AI assistant
Síminn — AGM Information 2022
Mar 8, 2022
2203_rns_2022-03-08_a1b0c2c0-1365-4e6f-9687-fef4e8815781.pdf
AGM Information
Open in viewerOpens in your device viewer
GILDI
Síminn hf.
b.t. stjórnar félagsins
Ármúli 25,
108 Reykjavík
Reykjavík, 8. mars 2022
Breytingartillaga á aðalfundi Símans hf. 10. mars 2022
Með vísan til fundarboðs stjórnar félagsins um aðalfund Símans hf. óskar Gildi-lífeyrissjóður, sem hluthafi í félaginu, eftir því að eftirfarandi breytingartillaga verði tekin til umfjöllunar á aðalfundinum.
Dagskrárliður 11: Kaupréttaráætlun fyrir forstjóra, æðstu stjórnendur og lykilstarfsmenn lögð til samþykktar
Breytingartillaga: Kaupverð (5.2.)
Lagt er til að nýtingarverð kaupréttarsamninga að ávinnslutíma liðnum verði leiðrétt með 3% árlegum vöxtum ofan á áhættulausa vexti í stað 4% árlegra vaxta skv. tillögu stjórnar.
Skilmálar verði að öðru leyti óbreyttir miðað við tillögu stjórnar.
Greinargerð með tillögu:
Stjórn Símans leggur til að komið verði á fót kaupréttarkerfi fyrir forstjóra, stjórnendur og lykilstarfsmenn félagsins sem ætlað er að tengja hagsmuni rétthafa við afkomu og langtímamarkmið félagsins og hluthafa þess. Í tillögu stjórnar er gert er ráð fyrir því að nýtingarverð kaupréttarsamninga hækki um 4% árlega fram að fyrsta mögulega nýtingardegi fyrir hvert nýtingartímabil. Þá er gert ráð fyrir að forstjóra og æðstu stjórnendum verði gert skylt að halda eftir ákveðnum fjölda hluta þar til ákveðnu margfeldi af grunnlaunum er náð, þegar skattar hafa verið dregnir frá, allt til starfsloka hjá félaginu.
Gildi-lífeyrissjóður leggur áherslu á mikilvægi framangreindra atriða í afstöðu sinni varðandi kaupréttarkerfið, þ.e. að nýtingarverð kerfisins hækki yfir tíma og að stjórnendur haldi eftir ákveðnum eignarhlut í félaginu. Þá skiptir máli fyrir Gildi sem hluthafa að umfang kerfisins sé viðeigandi. Á hinn bóginn telur sjóðurinn rétt að nýtingarverð kerfisins hækki meira en sem nemur 4% árlegum vöxtum. Sjóðurinn leggur til að nýtingarverð hækki sem nemur áhættulausum vöxtum til viðbótar við 3% árlega vexti. Þetta er lagt til í því skyni að tengja betur saman hagsmuni kaupréttarhafa og hluthafa með því að færa nýtingarverðið nær þeirri ávöxtunarkröfu sem gerð er til hlutabréfa. Það felur í sér að ekki sé forsenda til að umbuna stjórnendum með þessum hætti ef hluthafar fá ekki viðunandi arðsemi á sína fjárfestingu í félaginu. Þá er breytingartillagan eðlileg að mati sjóðsins í ljósi núverandi heildarlauna stjórnenda félagsins og annarra möguleika þeirra á
Lifeyrissjóður
Gildi 517-4700 www.gildi.is
GILDI
árangurstengdum greiðslum. Ætti þessi viðbót jafnframt að mati sjóðsins að leiða til þess að minni þörf verði á almennum hækkunum á launum stjórnenda horft fram í tímann.
Að lokum vill Gildi benda á að núverandi markaðsaðstæður geta verið erfiður tímapunktur til innleiðingar á kaupréttarkerfum þannig að þau þjóni tilgangi sínum og tengi raunverulega saman langtímahagsmuni stjórnenda og hluthafa. Telur sjóðurinn eðlilegt, verði tillagan samþykkt, að tímapunktur úthlutunar og upphafsgengi verði vandlega ígrundað af stjórn félagsins með hagsmuni félagsins, stjórnenda og hluthafa að leiðarljósi.
Gildi óskar eftir því að stjórn Símans upplýsi aðra hluthafa félagsins hið fyrsta um þessa breytingartillögu, s.s. með tilkynningu í fréttakerfi kauphallar.
Reykjavík, 8. mars 2022
Gildi-lífeyrissjóður
Lifeyrissjóður
Gildi 517-4700 www.gildi.is