AI assistant
Síminn — AGM Information 2018
Feb 22, 2018
2203_rns_2018-02-22_70ea85e4-bf72-46d0-8747-e6520862e6b7.pdf
AGM Information
Open in viewerOpens in your device viewer
Síminn
Aðalfundur Símans hf.
Verður haldinn fimmtudaginn 15. mars 2018 kl. 10:00
að Nauthól við Nauthólsvík
Dagskrá
- Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu starfsári.
- Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár, ásamt skýrslu endurskoðanda, lagður fram til staðfestingar.
- Ákvörðun um ráðstöfun hagnaðar félagsins, þ.m.t. greiðslu arðs.
- Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins, ef borist hafa.
- Kosning stjórnar félagsins.
- Kosning löggilts endurskoðanda eða endurskoðunarstofu.
- Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna félagsins fyrir störf þeirra.
- Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins.
- Tillaga um læk kun á hlutafé og breytingu á samþykktum félagsins.
- Tillaga um að heimila félaginu kaup á eigir hlutabréfum skv. 55. gr. hlutafélagalaga og framkvæmd endurkaupaáætlunar.
Verði tillagan samþykkt felur það í sér að heimildarinnar verður getið í sérstökum viðauka við samþykktir félagsins og skal viðaukinn vera hluti af samþykktunum þann tíma sem heimildin er í gildi, sbr. grein 8.1 samþykkta félagsins.
- Tillögur frá hluthöfum sem ber að taka á dagskrá.
- Önnur mál.
Aðrar upplýsingar
Réttur hluthafa til að fá mál sett á dagskrá aðalfundar
Hver hluthafi á rétt á því að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á aðalfundi ef hann gerir um það skriflega eða rafræna kröfu til félagsstjórnar eigi síðar en 10 dögum fyrir fund, þ.e. fyrir kl. 10.00, þann 5. mars 2018. Hægt er að senda tillögur eða ályktanir fyrir fundinn á netfangið [email protected]. Nánari upplýsingar um þátttöku og atkvæðagreiðslu er að finna á vefsíðu félagsins, www.siminn.is/forsida/siminn/fjarfestar/hluthafar/hluthafafundir
Hluthafar sem ekki eiga kost á að sækja fundinn geta veitt öðrum skriflegt umboð eða greitt atkvæði skriflega. Þeim hluthöfum sem hyggjast nýta sér annan hvorn þessara kosta er bent á að kynna sér á heimasíðu félagsins hvernig þeir skuli bera sig að. Þar er að finna leiðbeiningar um skráningu og form skjala og hvernig þeim skuli skilað til félagsins.
Upplýsingar fyrir hluthafa
Heildarfjöldi hluta í félaginu hinn 19. febrúar 2018 er 9.444.201.742 hlutir og atkvæði jafnmörg. Þar af eru virk atkvæði 9.247.417.363.
Aðrar upplýsingar
Á vef félagsins, www.siminn.is/forsida/siminn/fjarfestar/hluthafar/hluthafafundir, er að finna allar frekari upplýsingar í tengslum við aðalfundinn, þ.m.t. frekari upplýsingar um rétt hluthafa til að fá mál sett á dagskrá hluthafafundar og leggja fram ályktunartillögur fyrir fundinn, drög að dagskrá fundarins, tillögur stjórnar félagsins, ársreikning félagsins fyrir árið 2017, umboðseyðublað, framboðseyðublað auk upplýsinga um skjöl sem lögð verða fyrir fundinn. Endanleg dagskrá fundarins og tillögur verða gerðar aðgengilegar hluthöfum 3 dögum fyrir fundinn á framangreindum vef félagsins og skrifstofu félagsins að Ármúla 25, 108 Reykjavík.
Hluthöfum er bent á að skv. 63. gr. a. hlutafélagalaga skal tilkynna skriflega, minnst fimm dögum fyrir hluthafafund, um framboð til stjórnar, þ.e. fyrir kl. 10:00 þann 10. mars 2018 og skal senda framboð á veffangið á [email protected]. Framboðseyðublað er að finna á vefsíðu félagsins og tilkynnt verður um framboð til stjórnar vef félagsins eigi síðar en 2 dögum fyrir aðalfundinn.
Atkvæðaseðlar og önnur gögn verða afhent á fundarstað frá kl. 9:30. Fundurinn fer fram á íslensku.
Reykjavík, 22. febrúar 2018,
Stjórn Símans hf.