Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Kvika banki Proxy Solicitation & Information Statement 2026

Mar 16, 2026

2199_rns_2026-03-16_ad96c9b3-5833-47b6-be0d-f1110d0706ff.html

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

Kvika banki hf.: Aðalfundur 18. mars 2026 - framboð til stjórnar og skráningarfrestur

Kvika banki hf.: Aðalfundur 18. mars 2026 - framboð til stjórnar og skráningarfrestur

Framboðsfrestur til stjórnar Kviku banka hf. rann út þann 13. mars 2026. Eftirtaldir einstaklingar gáfu kost á sér til setu í stjórn fyrir aðalfund félagsins, sem haldinn verður kl. 16:00 þann 18. mars nk. á Iceland Parliament Hotel við Austurvöll, auk þess sem boðið er upp á fullgilda rafræna þátttöku í gegnum Lumi AGM:

Í framboði til stjórnar:

  • Sigurður Hannesson
  • Helga Kristín Auðunsdóttir
  • Guðjón Reynisson
  • Ingunn Svala Leifsdóttir
  • Páll Harðarson

Í framboði sem varamenn í stjórn:

  • Kolbrún Jónsdóttir
  • Thomas Skov Jensen

Það er mat stjórnar að öll framboð séu gild, sbr. 63. gr. a. laga um hlutafélög nr. 2/1995. Samkvæmt samþykktum félagsins skal stjórn skipuð fimm aðalmönnum og tveimur varamönnum. Það er mat tilnefningarnefndar að frambjóðendur búi yfir fjölbreyttri þekkingu og reynslu sem nýtist félaginu við stefnumótun og eftirlit í því umhverfi sem félagið starfar í.

Athygli er vakin á því að hluthafar eða umboðsmenn þeirra sem hafa hug á því að sækja fundinn, hvort sem er rafrænt eða á staðnum, eru beðnir um að skrá sig hér eigi síðar en kl. 16:00 í dag. Með innskráningu þarf að fylgja mynd af gildum skilríkjum og umboð, ef við á. Atkvæðagreiðsla á fundinum mun alfarið fara fram í gegnum Lumi AGM, hvort sem hluthafar mæta til fundarins á Parliament Hotel eða taka þátt með rafrænum hætti.

Nánari upplýsingar um frambjóðendur og aðrar upplýsingar um framkvæmd aðalfundar eru aðgengilegar á heimasíðu bankans.