Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Kvika banki Proxy Solicitation & Information Statement 2026

May 8, 2026

2199_rns_2026-05-08_164e3395-5047-47f7-85e0-804c3b9cb6ac.html

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

Kvika banki hf.: Tilkynning um boðun hluthafafundar

Kvika banki hf.: Tilkynning um boðun hluthafafundar

Stjórn Kviku banka hf. boðar til hluthafafundar í bankanum sem haldinn verður fimmtudaginn 4. júní 2026, kl. 16:30, á starfsstöð félagsins að Katrínartúni 2, 9. hæð, 105 Reykjavík. Tilefni fundarins er tillaga stjórnar um sérstaka arðgreiðslu að fjárhæð kr. 2,35 á hlut, sem jafngildir rúmum 10 milljörðum króna.

Á aðalfundi félagsins þann 18. mars 2026 kom fram að eiginfjárstaða félagsins yrði áfram mjög sterk í kjölfar tillagðrar arðgreiðslu og að stjórn hefði það til skoðunar að leggja til frekari útgreiðslu til hluthafa síðar á árinu ef aðstæður til þess myndu skapast. Í ljósi þess að ekki verður af samruna Kviku og Arion banka og eiginfjárstaða félagsins er áfram mjög sterk, er nú til staðar umtalsvert svigrúm til að skila fjármunum til hluthafa.

Við mótun tillögu stjórnar til hluthafafundar hefur einnig verið tekið mið af fyrirliggjandi heimild sem veitt var á aðalfundi félagsins til kaupa á eigin hlutabréfum fyrir allt að 10% af hlutafé félagsins. Stjórn stefnir þannig, auk framangreindra arðgreiðslna, ef aðstæður leyfa, að því að kaupa eigin hlutabréf fyrir allt að fjóra milljarða króna síðar á árinu.

Meðfylgjandi er fundarboð á hluthafafundinn.