AI assistant
Kvika banki — Proxy Solicitation & Information Statement 2023
Mar 9, 2023
2199_rns_2023-03-09_4b39d9a0-f8e8-43ad-b563-14dc9a8e69ed.pdf
Proxy Solicitation & Information Statement
Open in viewerOpens in your device viewer
KVIKA
FUNDARBOD
Aðalfundur Kviku banka hf., kt. 540502-2930 („Kvika“), verður haldinn fimmtudaginn 30. mars 2023, kl. 16:00, á Grand Hótel, Háteigi, Sigtúni 28, 105 Reykjavík.
Á dagskrá fundarins verða eftirfarandi mál:
1) Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið starfsár.
2) Ársreikningur félagsins fyrir árið 2022 og ákvörðun um meðferð hagnaðar félagsins á reikningsárinu.
Stjórn Kviku leggur til að greiddur verði út arður til hluthafa bankans sem nemi kr. 0,4 á hlut sem jafngildir kr. 1.912.410.328, að teknu tilliti til eigin hluta.
3) Tillaga um að heimila félaginu að kaupa eigin hlutabréf.
4) Tillaga um lækku hlutafjár með ógildingu eigin hluta og samsvarandi breytingu á samþykktum félagsins.
5) Tillaga um starfskjarastefnu félagsins.
6) Tillaga um breytingar á samþykktum félagsins.
7) Kosning stjórnar og varastjórnar félagsins.
8) Kosning endurskoðenda félagsins.
9) Ákvörðun þóknunar til stjórnarmanna og nefndarmanna í undirnefndum stjórnar félagsins.
10) Önnur mál.
Meginefni tillögu stjórnar um breytingar á samþykktum:
Stjórn félagsins leggur til að hlutafé félagsins verði lækkað um 147.871.265 kr. að nafnvírði með ógildingu jafn margra eigin hluta sem keyptir voru samkvæmt formlegri endurkaupaáætlun á árinu 2022. Óskað verður eftir samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (FME) fyrir lækku hlutfjárins með ógildingu á eigin hlutum í samræmi við ákvæði laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002. Verði tillagan samþykkt, og heimild veitt af hálfu FME, lækkar hlutafé bankans úr 4.928.896.981 kr. í 4.781.025.716 kr. að nafnvírði.
Auk þeirrar breytingar á samþykktum sem felst í tillögu stjórnar um lækku hlutafjár leggur stjórn til að bætt verði við aðra málsgrein greinar 3.5 samþykktanna að til aðalfundar félagsins skuli boða minnst þremur vikum fyrir fund og lengst sex vikum fyrir fund. Þá leggur stjórn Kviku til að tilkynna skuli með minnst fimm daga fyrirvara um þátttöku á hluthafafundi í samræmi við nýtt ákvæði 5. mgr. 80. gr. laga um hlutafélög. Loks er lagt til að fellt verði niður bráðabírgðaákvæði I, II og IV ásamt því að breyta númerum bráðabírgðaákvæðis III í I og bráðabírgðaákvæðis V í II.
Aðrar upplysingar:
Fundarstörf fara fram á íslensku. Fundargögn eru aðgengileg á heimasíðu félagsins á íslensku og ensku utan þess að ársreikningur félagsins er eingöngu aðgengilegur á ensku. Dagskrá, endanlegar tillögur, starfskjarastefna, ársreikningur félagsins og önnur fundargögn munu liggja frammi á skrifstofu félagsins að Katrínartúni 2, Reykjavík, hluthöfum til sýnis í 21 dag fyrir aðalfund. Umrædd gögn, ásamt upplysingum um frambjódendur til stjórnar, eru einnig birt á heimasíðu félagsins, https://www.kvika.is/fjarfestaupplysingar/hluthafafundir/.
Boðið verður upp á fullgilda rafræna þátttöku á fundinum án þess að hluthafar séu viðstaddir á fundarstað í gegnum fundarkerfið Lumi AGM. Hægt verður að fylgjast með fundinum í gegnum vefstreymi auk þess sem hluthafar munu kjósa rafrænt og geta borið upp skriflegar spurningar í gegnum Lumi AGM. Rafræn þátttaka jafngildir mætingu á fundinn og veitir rétt til þátttöku á honum að öðru leyti.
Kvika banki hf.
Katrínartún 2
105 Reykjavík
[email protected]
kvika.is
KVKAA
Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að sækja fundinn, hvort sem er rafrænt eða á staðnum, eru beðnir um að skrá sig á vefsíðunni www.lumiconnect.com/ eigi síðar en kl. 16.00 þann 29. mars, eða degi fyrir fundardag. Með innskráningu þarf að fylgja mynd af gildum skilríkjum og umboð, ef við á.
Atkvæðagreiðsla á fundinum mun alfarið fara fram í gegnum Lumi AGM, hvort sem hluthafar mæta til fundarins á Grand Hótel eða taka þátt á rafrænan hátt.
Hver hluthafi á rétt á því að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á fundinum ef hann sendir um það skriflega eða rafræna kröfu til félagsstjórnar á heimilisfang félagsins eða á netfangið [email protected]. Þeir hluthafar sem óska eftir því að fá tiltekið mál tekið til meðferðar á aðalfundinum skulu sendar beiðni um slíkt eigi síðar en tíu sólarhringum fyrir boðaðan aðalfund, eða í síðasta lagi fyrir kl. 16:00 þann 20. mars 2023. Slíkri ósk skal fylgja drög að ályktun fundarins ef við á.
Hluthafar geta einnig lagt fram spurningar fyrir aðalfund með því að sendar erindi á framangreint netfang eða bera þær upp á aðalfundinum sjálfum.
Þeim sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn ber að tilkynna það skriflega til stjórnar félagsins að minnsta kosti fimm dögum fyrir upphaf aðalfundar, þ.e. fyrir kl. 16:00 laugardaginn 25. mars 2023.
Í tilkynningu um framboð til stjórnar skal geta nafns frambjóðanda, kennitölu, heimilisfangs, menntunar, upplýsinga um aðalstarf og starfsferil, hvenær viðkomandi tók fyrst sæti í stjórn félagsins ef við á, önnur trúnaðarstörf (t.a.m. stjórnarstörf í öðrum félögum) og hlutafjáreign í félaginu, beint eða í gegnum tengda aðila. Þá skal upplýsa um önnur tengsl við félagið og hagsmunatengsl við helstu viðskiptaaðila og samkeppnisaðila félagsins, sem og hluthafa sem eiga, einir eða í samstarfi við aðra, meira en 10% hlut í félaginu. Þeir einir eru kjörgengir til setu í stjórn félagsins sem þannig hafa gefið kost á sér. Krafa um hlutfallskosningu eða margfeldiskosningu, sbr. 7. mgr. 63. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995, skal hafa borist stjórn félagsins minnst fimm dögum fyrir aðalfundinn, þ.e. fyrir kl. 16:00 laugardaginn 25. mars 2022. Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar munu liggja frammi hluthöfum til sýnis á skrifstofu félagsins sem og á heimasíðu félagsins, eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfundinn, sbr. 63. gr. a laga um hlutafélög nr. 2/1995. Framboðsform til stjórnarsetu er aðgengilegt á vefsíðu félagsins.
Aðalfundur er lögmætur ef löglegá er til hans boðað, óháð fundarsókn. Aðilar sem eru skráðir hluthafar í hlutaskrá félagsins þegar aðalfundur fer fram geta beitt réttindum sínum á aðalfundinum. Hluthafar geta látið umboðsmann sækja fundinn fyrir sína hónd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt og dagsett umboð, en form að umboði er aðgengilegt á vefsíðu félagsins.
Fundarboð þetta, upplýsingar um heildarfjölda hluta og atkvæða á fundarboðsdegi, dagskrá, tillögur stjórnar til hluthafafundar og önnur fundargögn ásamt umboðsformum verða aðgengileg á vefsíðu félagsins. Sé misræmi milli fundargagna á íslensku og ensku, gildir íslenska útgáfan.
Stjórn Kviku banka hf.
Kvika banki hf.
Katrínartún 2
105 Reykjavík
[email protected]
kvika.is