Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Kvika banki M&A Activity 2017

Aug 2, 2017

2199_rns_2017-08-02_dfe2dfc8-aebf-43fc-acdd-24f440a9627c.html

M&A Activity

Open in viewer

Opens in your device viewer

Kvika banki hf.: Kvika kaupir allt hlutafé í Öldu

Kvika banki hf.: Kvika kaupir allt hlutafé í Öldu

Kvika banki hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé í Öldu sjóðum
hf. Kaupin eru gerð með fyrirvara um áreiðanleikakönnun og samþykki
eftirlitsstofnana.

Alda rekur 11 verðbréfasjóði og aðra sjóði um sameiginlega fjárfestingu auk þess
að vera söluaðili sjóða í umsjón Aberdeen Asset Management og Hermes Investment
Management. Heildareignir í stýringu hjá Öldu nema 45 milljörðum króna og hjá
félaginu starfa sex starfsmenn með mikla reynslu á sviði eignastýringar. Félagið
hefur á undanförnum árum náð mjög góðum árangri í sjóðastýringu og umsvif þess
aukist verulega.

Kvika er eini sérhæfði fjárfestingabanki landsins með sterka stöðu á sviði
markaðsviðskipta og öfluga eignastýringu, fyrirtækjaráðgjöf, sérhæfða
lánastarfsemi og einkabankaþjónustu. Kvika festi á dögunum kaup á öllu hlutafé í
Virðingu hf. með það að markmiði að sameina félögin. Kaupin á Virðingu hf. eru
háð samþykki eftirlitsstofnana og eru nú til umfjöllunar hjá Fjármálaeftirlitinu
og Samkeppniseftirlitinu.

Með kaupunum á Virðingu og Öldu verður Kvika einn umsvifamesti aðili í
eignastýringu á Íslandi með um 280 milljarða króna í stýringu.

Nánari upplýsingar veita:
Þorsteinn Pálsson, stjórnarformaður Kviku banka hf. í síma 540 3200.
Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku banka hf. í síma 540 3200.

[]