Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Kvika banki M&A Activity 2017

Nov 17, 2017

2199_rns_2017-11-17_8d672580-45bd-471d-90da-24da25271675.html

M&A Activity

Open in viewer

Opens in your device viewer

Kvika banki hf.: Kvika og Virðing sameinuð

Kvika banki hf.: Kvika og Virðing sameinuð

Fréttatilkynning

  1. nóvember 2017

Kvika og Virðing sameinuð

Kvika banki hf. og Virðing hf. sameinuðust í dagslok í dag og mun sameinað félag
opna mánudaginn 20. nóvember undir nafni og kennitölu Kviku. Með samrunanum
tekur Kvika yfir öll réttindi og skyldur Virðingar.

Starfsemi sameinaðs félags hér á landi fer nú öll fram í húsnæði Kviku í
Borgartúni 25.

Sameining félaganna hefur ekki breytingar í för með sér fyrir viðskiptavini.
Netföng og borðsímanúmer starfsmanna Virðingar munu þó breytast en upplýsingar
um öll netföng og símanúmer verður hægt að finna á heimasíðu bankans
www.kvika.is.

Kvika er eitt umsvifamesta félag í eignastýringu hér á landi og eftir samruna
eru um 285 milljarðar í stýringu hjá félaginu.

Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku:
"Það er ánægjulegt að hinu formlega samrunaferli sé lokið. Hjá sameinuðu félagi
kemur saman öflugur hópur sérfræðinga og framundan eru fjölmörg tækifæri til
sóknar."

Um Kviku banka hf.

Kvika er eini sjálfstæði og sérhæfði fjárfestingabanki landsins. Bankinn sinnir
þörfum viðskiptavina á afmörkuðum syllum með fagþekkingu og sérhæfðu
vöruframboði. Burðarás Kviku er öflug eignastýring og veitir bankinn sparifjár-
og innlánseigendum alhliða fjármálaþjónustu.

Hjá Kviku starfar samhentur hópur 99 sérfræðinga sem nær árangri í krafti
menntunar, markaðsþekkingar og víðtækrar reynslu. Eignarhald Kviku er gagnsætt
og er hann eini bankinn sem er að fullu í eigu einkaaðila s.s. lífeyrissjóða,
fyrirtækja og einstaklinga. Nánar á: www.kvika.is.

[]