AI assistant
Kvika banki — M&A Activity 2016
Nov 28, 2016
2199_rns_2016-11-28_2ae6b571-171e-49ef-899c-61154d60d284.html
M&A Activity
Open in viewerOpens in your device viewer
Kvika banki hf.: Viljayfirlýsing um undirbúning samruna Kviku banka hf. og Virðingar hf.
Kvika banki hf.: Viljayfirlýsing um undirbúning samruna Kviku banka hf. og Virðingar hf.
Tilkynning
Reykjavík, 28. nóvember 2016
Viljayfirlýsing um undirbúning samruna
Stjórnir Kviku banka hf. og Virðingar hf. hafa undirritað viljayfirlýsingu um
undirbúning samruna félaganna undir nafni Kviku.
Í aðdraganda sameiningar verður eigið fé Kviku lækkað um 600 m.kr. og lækkunin
greidd til hluthafa bankans. Hluthafar Kviku munu eftir samruna eiga 70% hlut í
sameinuðu félagi og hluthafar Virðingar 30%.
Með sameiningu Kviku og Virðingar yrði til öflugt fjármálafyrirtæki sem væri
leiðandi á fjárfestingabankamarkaði. Sameinað félag yrði einn stærsti aðili í
eignastýringu á Íslandi með um 220 milljarða króna í stýringu og fjölda sjóða í
rekstri s.s. verðbréfasjóði, fjárfestingasjóði, framtakssjóði, fasteignasjóði,
veðskuldabréfasjóði og ýmsa fagfjárfestasjóði. Auk þess myndi sameinað félag
ráða yfir öflugum markaðsviðskiptum, fyrirtækjaráðgjöf, sérhæfðri lánastarfsemi
og einkabankaþjónustu.
Á næstu vikum verður unnið að samkomulagi um helstu skilmála fyrir samrunanum,
þ.m.t. um forsendur, gerð áreiðanleikakannana, endanlega samningsgerð og
aðgerðar- og tímaáætlun. Ef sameining félaganna nær fram að ganga er stefnt að
því að hún taki gildi um mitt næsta ár.
Nánari upplýsingar veita:
Þorsteinn Pálsson, stjórnarformaður Kviku banka hf. í síma 540 3200.
Kristín Pétursdóttir, stjórnarformaður Virðingar hf. í síma 565 8500.
[]
Viðhengi: