Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar Transaction in Own Shares 2022

Sep 1, 2022

2196_rns_2022-09-01_d79f6ea6-204c-4fda-8ead-f06c8a4891af.html

Transaction in Own Shares

Open in viewer

Opens in your device viewer

Hagar hf.: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

Hagar hf.: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

Á aðalfundi Haga hf. sem haldinn var þann 1. júní 2022 var samþykkt að heimila félaginu að kaupa á næstu 18 mánuðum hlutabréf í félaginu fyrir allt að 10% af heildarhlutafé félagsins í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun.

Stjórn Haga hf. hefur á grundvelli fyrrgreindrar samþykktar tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins. Áætlunin mun hefjast þann 2. september 2022. Endurkaupin munu að hámarki nema 106.306.211 hlutum í félaginu, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 500 milljónir króna. Félagið á 6.961.397 eigin hluti í dag. Áætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins, þann 1. júní 2023, nema ef skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í höndum Fossa fjárfestingarbanka hf. og verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. MAR (reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum), sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir, og eftir atvikum II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.

Kaupin verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags í Kauphöll Nasdaq Ísland verða að hámarki 25% af meðal dagsveltu undangenginna 20 viðskiptadaga. Verð fyrir hvern hlut skal að hámarki nema hæsta verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða tilboði í Kauphöllinni, hvort sem hærra er.

Viðskipti félagsins með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt í samræmi við lög og reglugerðir.

Nánari upplýsingar veitir Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga hf., í síma 530-5500 eða á [email protected]