Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar Board/Management Information 2026

May 18, 2026

2196_rns_2026-05-18_2b3301ce-abcc-4dbb-93b1-b07fd3d78af0.html

Board/Management Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Hagar hf.: Framboð til stjórnar á aðalfundi 21. maí 2026

Hagar hf.: Framboð til stjórnar á aðalfundi 21. maí 2026

Aðalfundur Haga hf., kt. 670203-2120, verður haldinn fimmtudaginn 21. maí 2026 og hefst hann kl. 15:00 á Hilton Reykjavík Nordica (Vox Club), Suðurlandsbraut 2 í Reykjavík.

Framboðsfrestur til stjórnar Haga hf. rann út þann 16. maí sl. Alls bárust fimm framboð til stjórnar félagsins, þar af fjögur frá núverandi stjórnarmönnum.

Eftirtaldir einstaklingar hafa því gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins.

  1. Einar Örn Einarsson (f. 1977), framkvæmdastjóri Zócalo
  2. Eiríkur S. Jóhannsson (f. 1968), forstjóri Kaldbaks ehf.
  3. Eva Bryndís Helgadóttir (f. 1972), lögmaður hjá LMG lögmönnum
  4. Orri Hauksson (f. 1971), stjórnarformaður First Water hf.
  5. Sigríður Olgeirsdóttir (f. 1960), sjálfstætt starfandi

Nánari upplýsingar um frambjóðendur er að finna í skýrslu tilnefningarnefndar sem birt var þann 30. apríl 2026 og er hér meðfylgjandi.

Samkvæmt samþykktum Haga hf. eiga fimm sæti í stjórn félagsins og er því sjálfkjörið. Er það mat stjórnar að allir frambjóðendur séu óháðir félaginu, stjórnendum og stórum hluthöfum þess og að öll framboð séu gild sbr. 63. gr. a. í hlutafélagalögum nr. 2/1995.

Stjórn Haga hf.