AI assistant
Hagar — Remuneration Information 2024
May 8, 2024
2196_rns_2024-05-07_a4367534-6aa5-4c04-832d-4c3fd3e34557.pdf
Remuneration Information
Open in viewerOpens in your device viewer
hagar
Skýrsla starfskjaranefndar Haga hf.
Starfsárið 2023-2024
Stjórn Haga skipaði starfskjaranefnd á fundi sínum 1. júní 2023 samkvæmt starfsreglum stjórnar. Starfskjaranefnd var skipuð Davíð Harðarsyni, Eiríki S. Jóhannssyni og Jensínu K. Böðvarsdóttur.
Hlutverk starfskjaranefndar er m.a. að vera leiðbeinandi fyrir félagsstjórn og framkvæmdastjórn um starfskjör æðstu stjórnenda félagsins og ráðgefandi um starfskjarastefnu. Nefndin skal jafnframt fylgjast með því að starfskjör æðstu stjórnenda séu innan ramma starfskjarastefnu félagsins.
Stjórn Haga samþykkir starfsreglur starfskjaranefndar. Stjórn ber ábyrgð á störfum starfskjaranefndar og starfar nefndin í umboði stjórnar.
Starfskjaranefnd fundaði fimm sinnum á tímabilinu. Á sínum fyrsta fundi var verkaskipting nefndarinnar ákveðin og starfsáætlun samþykkt, en hún var í megin atriðum að skoða eftirfarandi máléfni:
- Starfskjarastefnu félagsins.
- Gera tillögu til stjórnar um viðmið og ramma fyrir laun, hlunnindi og önnur starfskjör stjórnar, forstjóra og aðra þá starfsmenn er heyra beint undir stjórn félagsins og forstjóra.
- Laun lykilstarfsmanna og stjórnenda.
- Jafnlaunavottun.
- Kaupréttarkerfi.
- Skoða þróun kjara- og mannauðsmála, þá sérstaklega með tilliti til jafnlaunamála.
- Meta áhættu sem starfskjaramál kunna að skapa fyrir félagið.
- Framkvæma mat á störfum nefndarinnar og starfsreglum nefndarinnar.
Ávinnsludagur núverandi kaupréttarkerfi fyrir stjórnendur og lykilstarfsfólks Haga sem samþykkt var á aðalfundi 2021 er fyrir flesta í júní n.k. Telur nefndin mikilvægt að koma á nýju kerfi sem tekur við í framhaldi af eldra kerfi og skapar rétta hvata fyrir lykilfólk innan samstæðu Haga til að ýta undir frekari árangur og horfa til lengri tíma. Stjórn Haga mun leggja til við aðalfund nýtt kaupréttarkerfi sem ætlað er að taka við af því eldra.
Starfskjaranefnd fór á fundum sínum yfir starfskjör stjórnar og nefndarmanna fyrir starfsárið 2023-2024 sem voru ákveðin á síðasta aðalfundi. Nefndin lagði fyrir stjórn neðangreinda tillögu að hækkun stjórnarlauna sem samþykkt var í stjórn og lögð er fyrir aðalfund 2024.
Núverandi laun:
| Stjórnarformaður 772.000 kr./mán. | 798.000 |
|---|---|
| Varaformaður 568.000 kr./mán. | 587.000 |
| Stjórnarmenn 386.000 kr./mán. | 399.000 |
Tilaga að hækkun launa:
Önnur nefndarlaun eru óbreytt og eru sem hér segir:
- Formaður starfskjaranefndar 180.000 kr./mán.
- Starfskjaranefndarmenn 90.000 kr./mán.
- Formaður endurskoðunarnefndar 180.000 kr./mán.
- Endurskoðurnarnefndarmenn 90.000 kr./mán.
- Tilnefningarnefndarmenn 25.000 kr./klst
1 af 2
hagar
Starfskjaranefnd vill þakka Finni Oddssyni forstjóra og Guðrún Evu Gunnarsdóttur framkvæmdastjóra fjármálasviðs fyrir einstaklega gott samstarf og vel unnin störf, svo og öðrum sem hafa starfað með nefndinni síðasta starfsárið.
Reykjavík, 30. apríl 2024
Jensína K. Böðvarsdóttir
formaður starfskjaranefndar
Davíð Harðarson, formaður stjórnar
Eiríkur S. Jóhannsson, meðstjórnandi
2 af 2
Undirritunarsíða
Davíð Harðarson

Undirritað af:
Davíð Harðarson
1710764129
Dags: 30.04.2024
Tími: 14:58:38
Ástæða: Sambykt
Signet ID: b83f0084-7101-4496-93d1-51437ea85803
Eiríkur S Jóhannsson

Undirritað af:
Eiríkur Signíðarson
Jóhannsson
0802684839
Dags: 30.04.2024
Tími: 13:21:39
Ástæða: Sambykt
Signet ID: b83f0084-7101-4496-93d1-51437ea85803
Jensína Kristín Böðvarsdóttir

Undirritað af:
Jensína Kristín
Böðvarsdóttir
1903694049
Dags: 30.04.2024
Tími: 13:26:39
Ástæða: Sambykt
Signet ID: b83f0084-7101-4496-93d1-51437ea85803