AI assistant
Hagar — Remuneration Information 2021
May 12, 2021
2196_rns_2021-05-12_4ec90e2a-dd6f-449b-a6db-d75ffbf8cdf8.pdf
Remuneration Information
Open in viewerOpens in your device viewer
hagar
Skýrsla starfskjaranefndar Haga hf.
Starfsárið 2020-2021
Stjórn Haga skipaði starfskjaranefnd á fundi sínum 9. júní 2020 samkvæmt starfsreglum stjórnar. Starfskjaranefnd var skipuð Davíð Harðarsyni, Eiríki S. Jóhannssyni og Jensínu K. Böðvarsdóttur.
Félagið sambykkti nýja starfskjarastefnu á aðalfundi sínum 7. júní 2019. Hlutverk nefndarinnar er m.a. að vera leiðbeinandi fyrir félagsstjórn og framkvæmdastjórn um starfskjör æðstu stjórnenda félagsins og ráðgefandi um starfskjarastefnu. Nefndin skal jafnframt fylgjast með því að starfskjör æðstu stjórnenda séu innan ramma starfskjarastefnu félagsins.
Starfskjaranefnd fundaði 7 sínum á tímabilinu.
Breyting var gerð á starfsreglum nefndarinnar þess eðlis að heimilt er að halda fundi nefndarinnar með aðstoð rafrænna miðla, svo sem fjarfundabúnaðar. Telst fundur sóttur af þeim sem taka þátt í honum með aðstoð slíkra miðla. Nefndin heldur skriflegar fundargerðir sem samþykktar eru af nefndarmönnum. Heimilt er að undirrita fundargerðir með rafrænni undirskrift, útbúinni með rafrænum skilríkjum. Fundargerðir skulu geymdar í fundargerðarbók eða með rafrænum hætti á miðlægu svæði starfskjaranefndar.
Starfskjaranefnd fór á fundum sínum yfir starfskjör stjórnar og nefndarmanna fyrir starfsárið 2020-2021 sem voru ákveðin á síðasta aðalfundi. Stjórnar og nefndarlaun tóku ekki breytingum á aðalfundinum 2020 og voru óbreytt frá starfsárinu 2019-2020.
Nefndin lagði fyrir stjórn neðangreinda tillögu að hækkun stjórnarlauna sem samþykkt var í stjórn og lögð er fyrir aðalfund 2021.
Núverandi laun:
| Stjórnarformaður 660.000 kr./mán. | Tillaga að hækkun launa: |
|---|---|
| Varaformaður 495.000 kr./mán. | 515.000 |
| Stjórnarmenn 330.000 kr./mán. | 350.000 |
Önnur nefndarlaun eru óbreytt.
Starfskjaranefnd fjallaði um starfskjarastefnuna á nokkrum fundum sínum, þá sérstaklega lið 7 sem snýr að breytilegum starfskjörum. Tillaga til aðalfundar er sú að liður 7 heiti nú „Breystieg starfskjör – árangurtengdar greiðslur og kaupréttarkerfi“. Undir „árangurstengdar greiðslur“ vill nefndin hnykkja á langtíma markmiðum forstjóra hvað varðar kaupaukaætlun þannig að 1-2 mánuðir séu greiddir í kaupauka ef samþykktum uppsettum innri skammtíma og langtíma markmiðum sé náð.
Nefndin lagði fyrir stjórn tillögu að kaupréttarkerfi sem lögð verður fyrir aðalfund 2021. Með kaupréttarkerfinu er sett upp langtíma hvatakerfi Haga hf. sem er ætlað að tvinna saman hagsmuni lykilstarfsmanna Haga hf. og hluthafa félagsins, með kerfi sem leiðréttir fyrir ávöxtunarkröfu og úthlutun af eignum félagsins og gerir þannig kaupréttarhafa og hluthafa jafnsetta. Kaupréttarhafi hagnast ekki á kaupréttarkerfinu nema með aðgerðum sem hafa jákvæð áhrif á hlutabréfaverð til lengri tíma litið og er kerfið þannig upp byggt að ekki er litið til skammtíma áhrifa á gengi hlutabréfa í félaginu. Þá er gert ráð fyrir að forstjóra og meðlimum framkvæmdastjórnar sé gert skylt að halda eftir ákveðnum fjölda hluta þar til ákveðnu margfeldi af grunnlaunum er náð, þegar skattar hafa verið dregnir frá, allt til starfsloka hjá félaginu, til samræmis við 4. tölulið 1. mgr. 79. grein a. laga um
1 af 2
hagar
hlutafélög. Kaupréttarkerfið er að öðru leyti til samræmis við tilgreinda 1. mgr. 79. gr. a. laga um hlutafélög og Leiðbeiningar Viðskiptaráðs Íslands, Nasdaq á Íslandi og Samtaka atvinnulífsins um stjórnunarhætti fyrirtækja.
Starfskjaranefnd vill þakka Finni Oddssyni forstjóra og Guðrún Evu Gunnarsdóttur framkvæmdastjóra fjármálasviðs fyrir einstaklega gott samstarf og vel unnin störf, svo og öðrum sem hafa starfað með nefndinni síðasta starfsárið.
Kópavogur, 12. maí 2021
Jensína K. Böðvarsdóttir
formaður starfskjaranefndar
Davíð Harðarson, formaður stjórnar
Eiríkur S. Jóhannsson varaformaður stjórnar
2 af 2