Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar Regulatory Filings 2021

Aug 31, 2021

2196_rns_2021-08-31_e2559743-18f5-4af5-9936-4f95d317cad0.html

Regulatory Filings

Open in viewer

Opens in your device viewer

Hagar hf.: Breyting á samningum um viðskiptavakt með hlutabréf Haga hf.

Hagar hf.: Breyting á samningum um viðskiptavakt með hlutabréf Haga hf.

Hagar hf. hafa samþykkt breytingu á samningum um viðskiptavakt á eftirmarkaði með hlutabréf Haga við Kviku banka hf. annars vegar og Íslandsbanka hf. hins vegar. Breytingin tekur gildi 1. september 2021 en hún er tilkomin vegna innleiðingar á MiFID II sem tekur gildi sama dag og þeirri breytingu á verðskrefum (e. tick size) hlutabréfa Haga sem verður í kjölfarið.

Samkvæmt báðum samningum var hámarksverðbil kaup- og sölutilboða 1,5%. Breytingin á báðum samningum felur í sér að verðbil kaup- og sölutilboða skuli nú ákvarðast með hliðsjón af verðskrefatöflu Kauphallarinnar eins og hún er hverju sinni þannig að verðbil verði sem næst 1,5% en þó ekki minna en 1,45%. Þó skal viðskiptavökum heimilt að fara tímabundið undir framangreint viðmið s.s. vegna aðstæðna sem skapast vegna verðskrefatöflu Kauphallarinnar.

Að auki voru gerðar eftirfarandi breytingar á samningi við Íslandsbanka:

  • Fjárhæð kaup- og sölutilboða, að nafnvirði, skal nú vera að lágmarki kr. 200.000 í stað kr. 300.000 áður.
  • Ef verðbreyting innan viðskiptadags er umfram 5,0% er Íslandsbanka heimilt að tvöfalda hámarksverðbil milli kaup- og sölutilboða tímabundið þann daginn. Í fyrri samningi var miðað við 10% verðbreytingu.

Að öðru leyti en hér greinir eru samningarnir við Kviku banka hf. og Íslandsbanka hf. frá 13. febrúar 2020 óbreyttir.

Nánari upplýsingar veitir Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga, [email protected]