Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar Regulatory Filings 2021

Dec 22, 2021

2196_rns_2021-12-22_5d6ca10a-2f91-43e5-ada5-faf89d232887.pdf

Regulatory Filings

Open in viewer

Opens in your device viewer

hagar

Útgefandalýsing

Útgefandalýsing þessi er gerð í samræmi við íslensk lög og reglugerðir. Lýsingin er gerð í samræmi við lög nr. 14/2020, um lýsingu verðbréfa sem boðin eru í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði og reglugerð nr. 274/2020 um framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/980 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/1129, að því er varðar sniðmát, efni, athugun og staðfestingu lýsinga sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði. Lýsingin fylgir ákvæðum um upplýsingagjöf í lýsingum skv. viðauka 7 í framseldri reglugerð (ESB) nr. 2019/980. Einnig er lýsingin útbúin með hliðsjón af reglum fyrir útgefendur fjármálagerninga, sem gefnar voru út af Nasdaq Iceland hf.

Útgefandalýsingin er gefin út á íslensku og birt af Högum hf. kt. 670203-2120, Hagasmára 1, Kópavogi (hér eftir „Útgefandi“, „félagið“ eða „Hagar“) þann 22. desember 2021 og er hluti af lýsingu félagsins sem samanstendur af þremur skjölum, þ.e. verðbréfalýsingu, útgefandalýsingu þessari og samantekt, dags. 22. desember 2021.

Fjárfesting í skuldaskjölum felur í sér áhættu. Fjárfestum er bent á að kynna sér lýsinguna í heild sinni og sérstaklega umfjöllun um áhættuþætti, sem getur átt við um fjárfestingu þeirra.

Lýsingunni skal ekki dreifa á nokkurn hátt, þ.m.t. senda í pósti til landa þar sem dreifing myndi krefjast viðbótarskráningarferlis eða aðgerða, annarra en þeirra sem heyra undir íslensk lög og reglur, eða ef slík dreifing brýtur í bága við lög eða reglur viðkomandi landa. Lýsingu þessari má m.a. ekki dreifa á nokkurn hátt til eða innan Bandaríkjanna, Ástralíu, Kanada eða Japans. Útgefandi og umsjónaráðili eru ekki skaðabótaskyldir vegna dreifingar á lýsingunni til þriðja aðila.

  1. desember 2021

1

  1. Áhættuþættir ... 3
    1.1. Fjárhagsleg áhætta ... 4
    1.1.1. Lausafjáráhætta ... 4
    1.1.2. Sérstakir lánaskilmálar ... 4
    1.1.3. Markaðsáhætta ... 4
    1.2. Efnahagsaðstæður og þróun ... 5
    1.3. Samkeppni ... 5
    1.4. Rekstraráhætta ... 5
    1.4.1. Stýring vaxtar ... 5
    1.4.2. Lykilstarfsmenn ... 6
    1.4.3. Kjarasamningar ... 6
    1.4.4. Vöruöryggi ... 6
    1.4.5. Sviksamleg háttsemi og fylgni við reglur ... 7
    1.4.6. Vörurýrnun ... 7
    1.4.7. Mótaðilaáhætta ... 7
    1.4.8. Viðskiptakröfur og aðrar kröfur ... 7
    1.4.9. Orðsporsáhætta ... 7
    1.4.10. Birgjar ... 7
    1.4.11. Fasteignir, leiguhúsnaði og staðsetning ... 8
    1.4.12. Alþjóðlegir reikningsskilastaðlar ... 8
    1.4.13. Tölvukerfi og innviðir ... 8
    1.4.14. Vörumerki og hugverkaréttindi ... 8
    1.5. Lagaleg áhætta ... 8
    1.5.1. Gildandi lög, reglugerðir og leyfi ... 8
    1.5.2. Samningsáhætta og mikilvægir samningar ... 8
    1.6. Skattar ... 9

  2. Upplýsingar um útgefandann ... 10

  3. Ágrip af sögu ... 11

  4. Útgefandi ... 11

  5. Fjárhagsdagatal ... 12

  6. Skipulag samstæðunnar ... 12

  7. Dótturfélög Haga ... 12

  8. Stefna og stefnumótun ... 12


2

  1. Hlutverk og gildi...13
    9.1. Arðgreiðslustefna...13
    9.2. Jafnéttis- og mannréttindastefna...13
    9.3. Persónuverndarstefna...14
    9.4. Samfélagsleg ábyrgð...14
    9.5. Samkeppnisstefna...14
    9.6. Síðareglur...14
    9.7. Umhverfisstefna...15
    9.8. Upplýsingastefna...15
    9.9. Starfsemi...15

  2. Stjórnarhættir, stjórn og stjórnendur...15
    10.1. Stjórnarhættir...15
    10.2. Stjórn og stjórnendur...15

  3. Gögn fæld inn með tilvísun...17

  4. Skjöl til sýnis, aðgengi og gildistími...17
  5. Hluthafar...18
  6. Afkomuspa...18
  7. Mikilvæg þróun á rekstri félagsins á árinu 2021...19
  8. Staðfesting af hálfu Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands...20
  9. Endurskoðandi...20
  10. Upplýsingar frá þriðja aðila...20
  11. Yfirlýsing ábyrgðaraðila útgefandalýsingar fyrir hönd útgefanda...21

3

1. Áhættuþættir

Áhættuþættir þeir sem hér á eftir er lýst eru þeir sem Hagar hf., kt. 670203-2120, Hagasmára 1, 201 Kópavogi (hér eftir „Hagar“, „félagið“ eða „útgefandinn“) er kunnugt um og telur að eigi sérstaklega við um félagið, þá atvinnugrein sem það starfar innan og virði verðbréfa útgefnum af félaginu.

Áður en ákvörðun er tekin um fjárfestingu í verðbréfum sem Hagar gefa út er mikilvægt að fjárfestar kynni sér og leggi sjálfstætt mat á allar upplýsingar sem koma fram í lýsingu félagsins sem samanstendur af útgefandalýsingu þessari og viðeigandi verðbréfalýsingu útgefanda, sérstaklega um þá áhættu- og óvissuþætti sem lýst er í köflum um áhættuþætti og gætu haft veruleg áhrif á Haga og fjárfestingar í verðbréfum félagsins.

Áhættuþáttur er atburður sem getur haft neikvæð eða jákvæð áhrif á félagið, hvort sem er á rekstur þess, efnahag eða framtíðarhorfur og leitt til lakari eða betri stöðu en ef áhrifanna hefði ekki gætt. Ekki er hægt með neinni vissu að meta líkur þess að einhver tiltekinn atburður eigi sér stað, áhrif hans eða hvort hann geti haft keðjuverkandi áhrif og þannig orðið til þess að aðrir atburðir komi til sem valdið geta félaginu eða hluthöfum þess tjóni. Hver og einn neðangreindra áhættuþátta gæti haft ítrekuð áhrif á rekstur og efnahag Haga og þar með á verðmæti verðbréfa útgefnum af Högum. Ekki er hægt að segja til um umfang eða tímamörk slíkra áhrifa.

Afmörkun á áhættuþáttum getur verið með ýmsu móti og til eru ýmsar aðferðir við að flokka þá. Hér er reynt eftir fremsta megni að kortleggja alla þekkta áhættuþætti í starfi félagsins og afmarka þá þannig að skörun þeirra sé með sem minnstum hætti. Áhrifa fleiri en eins áhættuþáttar getur gætt samtímis. Áhrifin felast stundum í einum tímabundnum atburði en í öðrum tilvikum er um langvinn áhrif að ræða. Flestir áhættuþættirnir geta komið fram í litum eða ríkum mæli, áhrif þeirra eru oft á tíðum ekki einhlít og innbyrðis tengsl flókin. Hafa þarf í huga að ómögulegt getur reynst að spá fyrir um hversu mikil áhrif áhættuþátta verða og að áhrifin geta komið mjög seint fram.

Ekki er víst að í lýsingunni sé fjallað um alla áhættuþætti sem gætu haft áhrif á félagið í framtíðinni, því áhættuþættirnir sem álitnir eru óverulegir í dag gætu þróast á þann veg að þeir hefðu veruleg áhrif á félagið síðar. Eins gætu komið fram nýir áhættuþættir í framtíðinni sem ekki eru þekktir í dag.

Með framsetningu og uppröðun þeirra áhættuþátta sem hér er fjallað um er leitast við að fyrst telja upp alvarlegustu áhættuþættina að mati útgefanda, að teknu tilliti til neikvæðra áhrifa á útgefandann og líkanna á að þeir raungerist. Afmörkun getur verið með ýmsu móti og þá er hægt að flokka með mismunandi aðferðum. Hér er eftir fremsta megni reynt að gera grein fyrir þekktum áhættuþáttum sem hafa áhrif á skuldaskjölin svo meta megi markaðsáhættuna sem tengist þeim.

Hagar búa við áhættu í tengslum við starfsemi sína. Rekstraráhætta er hættan á beinu og óbeinu tapi eða tjóni af völdum starfsfólks, tækni, ófullnægandi eða gallaðra innri ferla eða ytri atburða. Áhætta í rekstrarumhverfi lýtur meðal annars af eftirfarandi þáttum: Stýring vaxtar, kjarasamningar, vöruöryggi og eigin vörumerki, sviksamleg háttsemi og fylgni við reglur, vörurýrnun, mótaðilaáhætta, viðskiptakröfur og aðrar kröfur, orðsporsáhætta, birgjar, fasteignir og alþjóðlegir reikningsskilastaðlar.

Með áhættustýringu setur félagið sér markmið að uppgötva og greina áhættu sem það býr við, setja viðmið um áhættutöku og hafa eftirlit með henni. Áhættustýring félagins er yfirfarin reglulega til að greina breytingar á markaði og starfsemi félagins. Með starfsmannaþjálfun og starfsreglum er stefnt að öguðu eftirliti þar sem allir starfsmenn eru meðvitaðir um hlutverk sitt og skyldur.


4

1.1. Fjárhagsleg áhætta

Félagið er meðal annars í eftirfarandi áhættu vegna viðskipta sinna með fjármálagerninga: lausafjáráhættu og markaðsáhættu

1.1.1. Lausafjáráhætta

Lausafjáráhætta er hættan á því að félagið geti ekki staðið við fjárhagsskuldbindingar sínar eftir því sem þær gjaldfalla. Markmið félagsins er að stýra lausafé þannig að tryggt sé að það hafi alltaf nægt laust fé til að mæta skuldbindingum sínum eftir því sem þær gjaldfalla og forðast þannig að skaða orðspor félagins.

Félagið veitir viðskiptamönnum sínum greiðslufrest til að fjármagna viðskipti sín, til dæmis með greiðslukortagreiðslum, en þarf að greiða skammtímakröfur sínar gagnvart birgjum og öðrum kröfuhöfum innan tilskilins greiðslufrests. Meðal annars af þessum sökum ber félagið lausafjár- og lánsáhettu.

Til þess að mæta skammtímasveiflum í rekstri samstæðunnar og standa við skuldbindingar sínar gagnvart birgjum og öðrum kröfuhöfum hefur félagið veltufjármögnun hjá viðskiptabanka sínum.

1.1.2. Sérstakir lánaskilmálar

Lánasamningar félagsins innihalda skilmála sem lúta að fjárhagsstöðu, sjóðsstreymi og fjárfestingum félagsins auk þess sem félaginu er óheimilt að gera verulegar breytingar á starfsemi sinni þannig að það kalli á breytingar á samþykktum félagsins. Brott gegin sérstökum lánaskilmálum kann að leiða til gjaldfellingar.

1.1.3. Markaðsáhætta

Markaðsáhætta er hættan á því að breytingar á markaðsverði erlendra gjaldmiðla og vaxta hafi áhrif á afkomu félagsins eða virði fjármálagerninga. Markmið með stýringu markaðsáhættu er að stýra og takmarka áhættu við skilgreind mörk, jafnframt því sem ábati er hámarkaður.

Félagið býr við gengisáhættu vegna innkaupa og lántöku í öðrum gjaldmiðli en íslenskum krónum (ISK). Sveiflur á gengi erlendra gjaldmiðla geta haft neikvæð áhrif á fjármagnskostnað og afkomu félagsins.

Breyting á heimsmarkaðsverði á olíu getur haft mikil áhrif á rekstur samstæðu útgefanda. Áhættan myndast frá þeim tíma sem innkaup á olíu eiga sér stað og þar til hún er seld til viðskiptavinar. Mismunur á innkaups- og söluverði getur haft bein áhrif á framlegð félagsins. Pá getur hátt verð á olíu í einhverjum tilfellum dregið úr eftirspurn og þannig haft áhrif á afkomu félagsins.

Hluti af innkaupum félagsins er frá erlendum birgjum og eru greiðslur vegna þeirra í erlendum gjaldmiðlum. Reikningsskilagjaldmiðill Haga er íslensk króna og því ber félagið gengisáhættu vegna innkaupa í öðrum gjaldmiðli en íslenskri krónu. Hagar eru ekki með virkar gengisvarnir gegin gjaldmiðlaáhættu, en félagið er með lánalínu í bandaríkjadal (USD) sem mótvægi við birgðir af eldsneyti. Þeir gjaldmiðlar sem skapa gengisáhættu eru í mikilvægisröð: bandaríkjadalur (USD), evra (EUR), breskt pund (GBP), dónsk króna (DKK), sænsk króna (SEK) og norsk króna (NOK).

Vaxta- og fjármögnunaráhætta er fólgin í því að félagið verði fyrir neikvæðum áhrifum af vaxtabreytingum og breyttum aðstæðum á fjármálamörkuðum. Gert er ráð fyrir því að sjóðsstreymi frá rekstri nægi til að greiða afborganir af lánum. Félagið stendur frammi fyrir vaxtaáhættu þar sem vextir á fjármögnun eru að hluta til breytilegir. Af því leiðir að vaxtabreytingar geta haft áhrif á hagnað og sjóðsstreymi félagsins.

Mikil verðbólga hefur almennt neikvæð áhrif á rekstur Haga. Við slíkar aðstæður hækka útgjöld á borð við leigugreiðslur vegna tengingar við vísitölu neysluverðs og engin trygging er fyrir því að hægt verði að mæta hækkun kostnaðarverðs seldra vara og annarra útgjalda með verðhækkunum á þeim mörkuðum sem félagið starfar á. Vöruframboð Haga samanstendur hins vegar að meirhluta til af matvöru og eldsneyti, sem er nauðsynjavara fyrir heimili og fyrirtæki. Tiltölulega stöðug eftirspurn á matvöru getur að einhverju


marki dregið úr þeirri verðbólguáhættu sem fólgin er í starfsemi félagsins.

Verðbólga getur haft áhrif á hagnað og sjóðsstreymi félagsins þar sem 45,3% af fjármögnun er verðtryggð á föstum vöxtum, 20,4% er óverðtryggð á föstum vöxtum og 34,3% óverðtryggð á breytilegum vöxtum. Framangreind hlutföll kunna að breytast í takt við eignaþrón Haga og framboðs á lánsfjármarkaði.

1.2. Efnahagsaðstæður og þróun

Náin tengsl eru á milli þróunar á matvöru- og eldsneytismarkaði og almennrar efnahagsþróunar, hagvaxtar og atvinnustigs og ráðstöfunartekna. Pólitískir áhrifapættir á borð við skattaákvarðanir, til dæmis ákvörðun virðisaukaskatts, tekjuskatts á einstaklinga og fyrirtæki og opinberra gjalda á eldsneyti, skipta einnig miklu máli fyrir þróun smásólumarkaða Haga. Níðursveifla í efnahagslífinu og hærri skattar gætu haft neikvæð áhrif á veltu og hagnað félagsins.

Sveiflur í efnahagslífinu geta breytt hegðun neytenda og þannig haft áhrif á veltu og hagnað Haga, sérstaklega í öðrum geirum en matvöru, svo sem með fækkun ferðamanna. Minnkandi kaupmáttur, lítill hagvöxtur, aukið atvinnuleysi og lækkandi tekjur heimila eru áhyggjuefni fyrir Haga og önnur íslensk fyrirtæki. Allar tekjur Haga koma til af innlendri starfsemi og því er félagið afar háð aðstæðum og þróun í íslensku efnahagslífi.

1.3. Samkeppni

Hagar eiga í stöðugri samkeppni á helstu mörkuðum sínum og gæti hún leitt til verðlækkana, hærri markaðskostnaðar, meiri fjárfestinga en áætlanir gera ráð fyrir og minni markaðshlutdeildar, sem aftur getur haft neikvæð áhrif á arðsemi Haga í framtíðinni. Ef ekki er kept við samkeppnisaðila í verði, vörurvalí, gæðum og þjónustu gæti það haft neikvæð áhrif á fjárhagslega afkomu Haga. Nýir samkeppnisaðilar hafa komið inn á þá markaðí sem Hagar starfa aðallega á og náð fótfestu og því er ljóst að hættan á nýrri og aukinni samkeppni er stöðugt fyrir hendi. Hagar gera sér einnig grein fyrir að breytingar á afstöðu neytenda til félagsins og ákvarðanir yfirvalda gætu leitt til harðari samkeppni, haft í för með sér að félagið þurfi að ráðast í verulegar fjárfestingar eða að það þurfi að breyta viðskiptamódeli sínu til þess að verja samkeppnisstöðu sína.

Þann 11. september 2018 gerðu Hagar sátt við Samkeppniseftirlitið vegna kaupa félagsins á Olíuverzlun Íslands ehf. Með sáttinni, og þeim skilyrðum sem í henni felast, var stefnt að því að vega upp á móti neikvæðum áhrifum samrunans á samkeppni, efla og vernda virka samkeppni á þeim mörkuðum sem samruni félaganna tekur til. Til þess að vinna á móti hinum neikvæðu áhrifum voru lagðar skyldur á Haga sem felast meðal annars í sölu tiltekinna eigna, að félagið auki aðgengi að heildsölu og birgðarými eldsneytis og tryggi eins og kostur er samkeppnislegt sjálfstæði Haga. Óháður kunnáttumaður var skipaður í samræmi við sáttina til fimm ára, sem hefur það hlutverk að fylgjast með innleiðingu og framkvæmd sáttarinnar. Brott á fyrirmælum sáttarinnar geta varðað viðurlögum samkvæmt samkeppnislögum nr. 44/2005.

1.4. Rekstraráhætta

Rekstraráhætta er áhættan á beinu eða óbeinu tapi eða tjóni af völdum starfsfólks, tækni, ófullnægjandi eða gallaðra innri ferla eða ytri atburða. Áhættan í rekstrarumhverfi lýtur meðal annars að viðskiptastefnu félagsins, stýringu vaxta, kjarasamningum, vöruöryggi og eigirn vörumerki, sviksamlegri háttsemi og fylgni við reglur, vörurýrnu, mótaðilaáhættu, viðskiptakröfum og öðrum kröfum, orðsporsáhættu, birgjum, fasteignum og alþjóðlegum reikningsskilastöðlum.

1.4.1. Stýring vaxtar

Stærð félagsins er einn af styrkleikum þess, en getur einnig takmarkað möguleika þess til vaxtar. Um 70% af tekjum koma frá matvöru- og sérvoruverslunum þess og tengdum vöruhúsum og 30% frá


eldsneytismarkaði. Að mati Haga er félagið ekki í markaðsráðandi stöðu á matvörumarkaði en samkvæmt ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 64/2008 var komist að þeirri niðurstöðu að félagið væri markaðsráðandi á matvörumarkaði á Íslandi og takmarkar það vaxtatækifæri félagsins. Niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins hefur ítrekað verið mótmælt.

Árið 2011 samþykkti Alþingi breytingu á ákvæðum samkeppnislaga þar sem lögleiddar voru heimildir til handa Samkeppniseftirlitsins til þess að grípa til aðgerða gegn aðstæðum eða háttsemi sem koma í veg fyrir, takmarkar eða hefur skaðleg áhrif á samkeppni almenningi til tjóns. Sérstaklega er tekið fram að sú háttsemi sem Samkeppniseftirlitið grípur til aðgerða gegn þurfi ekki að hafa brotið gegn bannákvæðum samkeppnislaga. Með framangreindu var Samkeppniseftirlitinu veitt mjög íþyngjandi heimild til að grípa til aðgerða gagnvart einstaka fyrirtækjum enda þótt samkeppnislagabrot hefði átt sér stað, þ.e. samráð eða misnotkun markaðsyfirráða.

Í ljósi þessa er hugsanlegt að Samkeppniseftirlitið rannsaki frekar stöðu Haga á matvörumarkaðnum með það í huga að grípa til aðgerða gagnvart Högum og einstökum rekstrareiningum félagsins með þeim hætti sem nú er heimilt skv. samkeppnislögum. Ber þó að taka fram að Hagar hafa engar vísbendingar um ætlan Samkeppniseftirlitsins í þá veru.

1.4.2. Lykilstarfsmenn

Innan samstæðu félagsins er yfirgripsmikil reynsla og þekking á íslenska smásölumarkaðinum. Framtíðarþróun félagsins veltur á þekkingu, reynslu og einurð stjórnenda þess og annarra lykilstarfsmanna. Það gæti haft neikvæð áhrif á félagið ef einn eða fleiri þessara lykilstarfsmanna hætta störfum hjá því. Ef félagið getur ekki ráðið til sín nýja hæfa starfsmenn gæti það haft neikvæð áhrif á getu þess til að þróa reksturinn áfram. Það er mikilvægt fyrir Haga að geta laðað til sín og haldið í hæft starfsfólk. Félagið leggur mikla áherslu á að bjóða upp á góð starfsskilyrði og samkeppnishæf laun, en ekki er víst að því takist ávallt að laða til sín og halda í þá starfsmenn sem það þarfnast.

1.4.3. Kjarasamningar

Óvissa ríkir um áhrif kjarasamninga eftir að núgildandi kjarasamningar renna úr gildi árið 2022. Erfitt getur verið að velta auknum launakostnaði út í verðlagið. Af því leiðir að kjarasamningar geta haft áhrif á hagnað og sjóðstrey mi félagsins.

1.4.4. Vöruöryggi

Mikilvægt er að öryggi og gæði vara félagsins sé fullnægjandi og er það nauðsynlegt til að viðhalda trausti viðskiptavina. Ef félagið bregst trausti viðskiptavina gæti það haft áhrif á stærð viðskiptavinahópsins og þar með á fjárhagslega afkomu.

Til að lágmarka áhættu í tengslum við gæði og öryggi vara hefur félagið innleitt ferla til að tryggja að vörur uppfylli ávallt viðeigandi gæðakröfur, sérstaklega í tilviki vara sem framleiddar eru undir vörumerkjum félaga samstæðunnar. Hjá félaginu eru í gildi ferlar sem tryggja að vörur standist ýtrustu öryggiskröfur. Félagið og birgjar þess eiga með sér samstarf til þess að tryggja gagnkvæman skilning á þeim kröfum sem þarf að uppfylla. Einnig er fylgst með þróun á sviði heilbrigðis- og öryggismála og fleiri sviðum til þess að tryggja að félagið sé í stakk búið að bregðast með viðeigandi hætti við breytingum á lagaumhverfi og neysluvenjum viðskiptavina.

6


7

1.4.5. Sviksamleg háttsemi og fylgni við reglur

Starfsemi Haga er umfangsmikil, sem leiðir til aukinnar hættu á að starfsmenn félagsins viðhafi sviksamlega háttsemi. Þótt félagið telji að yfirgnæfandi meirihluti starfsmanna þess sinni starfi sínu af heiðarleika og fagmennsku, er sú hætta til staðar á öllum stigum rektarins, frá búðargólfi til æðstu stjórnenda, að sviksamleg háttsemi eigi sér stað. Félagið er með stöðugt eftirlit í gangi til að lágmarka þessa áhættu, sem felst m.a. í innleiðingu viðeigandi bókhalds- og öryggiseftirlits og annars konar eftirlitsferla á öllum stigum rektarins.

1.4.6. Vörurýrnun

Starfsemi Haga felur í sér hættu á vörurýrnun, sem aftur skiptist í þekkta og óþekkta vörurýrnun. Þekkt vörurýrnun er gjaldfærð um leið og hún á sér stað og getur orðið af völdum skemmdra eða útrunninna vara. Óþekkt vörurýrnun er hins vegar fyrst gjaldfærð við vörutalningu og getur meðal annars orðið af völdum þjófnaðar eða rangrar afhendingar vara.

1.4.7. Mótaðilaáhætta

Mótaðilaáhætta er hættan á að félagið verði fyrir fjárhagslegu tjóni af völdum þess að lánardrottinn, leigusali, birgi, viðskiptavinur eða annar mótaðili, einn eða fleiri, uppfylli ekki samningsbundnar skuldbindingar sínar.

1.4.8. Viðskiptakröfur og aðrar kröfur

Viðskiptamannahópur félagsins samanstendur að allega af einstaklingum og er því fjölbreyttur og dreifður, auk þess sem stærstur hluti viðskipta er gegn staðgreiðslu eða með milligöngu kreditkortafyrirtækja, sem tryggir að áhætta vegna einstaks viðskiptamanns er takmörkuð. Af því leiðir að lítil hætta er á að tap einstakra viðskiptamanna hafi veruleg áhrif á afkomu og efnahagsreikning félagsins. Félagið myndar niðurfærslu vegna áætaðrar virðisrýrnunar viðskiptakrafna, annarra krafna og fjárfestinga. Niðurfærslan er í meginatriðum sérstök niðurfærsla vegna einstakra viðskiptamanna og sameiginleg niðurfærsla með tilliti til aldurs krafna, sem ekki hefur verið tengd einstökum viðskiptamönnum. Sameiginleg niðurfærsla er ákveðin með tilliti til innheimtusögu sambærilegra krafna.

1.4.9. Orðsporsáhætta

Orðsporsáhætta er hættan á að félagið verði fyrir tekjumissi vegna neikvæðrar umfjöllunar um viðskiptahætti þess. Slík neikvæð umfjöllun getur til dæmis komið upp ef félaginu verða á mistök í rektir eða ef félagið eða tengdur aðili félagsins er sakaður um eða dæmdur fyrir athæfi sem samrýmist ekki lögum. Ef orðspor eða trúverðugleiki félagsins bíður tjón vegna opinberrar eða almennrar umræðu getur það skert möguleika þess til vaxtar og haft neikvæð áhrif á framtíðartekjur.

1.4.10. Birgjar

Félagið er háð því að það geti keypt eða leigt vörur og þjónustu af birgjum sínum á sanngjörnum kjörum. Helstu birgjar á matvörumarkaðnum eru stórir og fáir og samningsstaða þeirra því sterk. Vegna takmarkana á innflutningi og hárrar skattlagningar á innfluttar landbúnaðarafurðir er staða þeirra birgja sem sjá verslunum fyrir landbúnaðarvörum sérlega sterk. Það getur því reynst erfíðara að finna staðgengil innlends birgis en erlends vegna smæðar og samþjöppunar innlenda markaðarins. Þessi áhættuþáttur getur haft umtalsverð áhrif á vörur með skamman endingartíma eða vöruflokka þar sem vorugjöld, tollar og innflutningshöft gera það að verkum að möguleikar til innflutnings eru takmarkaðir, til dæmis landbúnaðarvörur.


8

1.4.11. Fasteignir, leiguhúsnæði og staðsetning

Flestar verslanir samstæðunnar, aðrar en verslanir og sólustaðir Olís (Olíuverzlunar Íslands ehf.), eru starfræktar í leiguhúsnæði. Staðsetning verslana getur haft mikið að segja um fjölda viðskiptavina sem þær laða til sín. Þess vegna hefur félagið tryggt sér forgangrétt til að leigja viðkomandi húsnæði áfram og í sumum tilvikum forkaupsrétt að húsnæði. Nokkur áhætta er fólgin í því að félagið geti ekki tryggt sér hentugt húsnæði undir starfsemi sína á mikilvægum svæðum á sanngjörnum kjörum. Þær fasteignir sem Hagar leigja eru í eigu þriðja aðila sem ekki eru tengdir félaginu.

1.4.12. Alþjóðlegir reikningsskilastaðlar

Ársreikningar Haga, og félaga innan samstæðunnar, eru útbúnir í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (International Financial Reporting Standard, IFRS).

Alþjóðlegu reikningsskilastaðlarnir eru endurskoðaðir með reglulegu millibili og breytingar á þeim gætu haft áhrif á reiknaðan hagnað félagsins.

1.4.13. Tölvukerfi og innviðir

Rekstur Haga þarfnast skilvirkra tölvukerfa. Bilanir í tölvukerfum félagsins, til dæmis í tengslum við greiðslukerfi, strikamerkjalesara eða aðfangakeðjuna, myndu hafa neikvæð áhrif á verslunarrekstur Haga. Félagið gerir sér grein fyrir því mikilvæga hlutverki sem tölvukerfi gegna í skilvirkum rekstri félagsins og að það geti náð viðskiptalegu forskoti með því að innleiða tækninýjungar sem bæta verslunarferðir viðskiptavina og auðveldar starfsmönnum að sinna starfi sínu. Eftirlitsferlar eru til staðar hjá félaginu sem tryggja öryggi og skilvirkni tölvukerfa þess.

1.4.14. Vörumerki og hugverkaréttindi

Félagið á fjölda vörumerkja og annarra hugverkaréttinda í gegnum dótturfélög, sem það hefur reynt að tryggja eignarétt sinn yfir. Það gæti haft áhrif á rekstur félagsins ef það gæti af einhverjum ástæðum ekki reitt sig áfram á mikilvæg hugverkaréttindi, til dæmis vegna mistaka við skráningu eða eldri réttar annars aðila. Áhrifin á rekstur félagsins gætu til dæmis falist í því að nauðsynlegt væri að fjárfesta í nýju vörumerki.

1.5. Lagaleg áhætta

1.5.1. Gildandi lög, reglugerðir og leyfi

Starfsemi Haga lýtur ýmsum lögum og reglugerðum, til dæmis að því er varðar skipulagsmál, skatta- og samkeppnismál. Breytingar á þeim lögum og reglum, sem gilda um félagið, eða ný lög og reglur, sem sett eru um starfsemi þess, gætu haft áhrif á afkomu þess og hvernig félagið hagar starfsemi sinni.

Starfsemi félagsins er þess eðlis að nauðsynlegt er að afla ýmissa leyfa frá þar til bærum yfirvöldum, í tengslum við innflutning, geymslu, dreifingu, meðhöndlun og sölu matvöru, sérvoru og eldsneytis. Allar verslanir félagsins hafa tilskilin rekstrarleyfi. Ef þessi leyfi yrðu afturkölluð eða þeim breytt á einhvern hátt gæti það haft neikvæð áhrif á rekstur félagsins, sérstaklega ef öll leyfin yrðu afturkölluð.

1.5.2. Samningsáhætta og mikilvægir samningar

Á félaginu hvíllir samningsbundin skylda til að uppfylla ýmis ákvæði leigu- og fjármögnunarsamninga. Ef félagið yrði ófært um að standa við skuldbindingar sínar, eða hætti af einhverjum ástæðum að gera það, ættu leigusalar og lánveitendur rétt á að rifta umræddum samningum, sem gæti haft neikvæðar fjárhagslegar afleiðingar í för með sér fyrir félagið, til dæmis gjaldfellingu lána eða leiguskuldbindinga. Gjaldfellingarheimildir þessar snúa að hefðbundnum vanefndaákvæðum, til dæmis vanefndum á


sammingsbundnum greiðslum afborgana, vaxta eða leigu og brotum á fjárhagsskilmálum, sbr. umfjöllun um Lausafjáráhættu. Stærsti lánardrottinn félagsins, fyrir utan kröfuhafa skuldabréfaflokka, er Landsbankinn hf. og stærsti leigusali þess er Reitir hf.

Flestir samningar Haga um sölu, innkaup, umboð, dreifingu, auglýsingar og önnur sambærileg efni eru byggðir á langtíma viðskiptasamböndum og eru án skriflegra samninga. Sérvoruverslun samstæðunnar byggir á sérleyfissamningi sem er skriflegur og inniheldur ákvæði um uppsagnarfrest og ákvæði um heimild til uppsagnar við eigendaskipti. Rekstrarniðurstaða samstæðunnar byggist ekki á neinum einstökum samningi. Samningar og viðskiptasambönd félagsins við stærstu birgja eru mikilvæg fyrir reksturinn og á því sviði má benda á samkomulag við AMS Marketing Service AG sem staðsett er í Amsterdam sem tryggir Högum einkarétt á dreifingu vara undir merkjum Euro Shopper á Íslandi. Í samkomulaginu felst aðgangur að innkaupasambandi sem Hagar eru aðilar að.

1.5.3. Verðbréfalöggjöf

Skuldabréf Haga eru skráð á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. (hér eftir „Nasdaq Iceland“) og þarf félagið að fylgja lögum, reglugerðum og reglum sem gilda um verðbréfamarkað á hverjum tíma, meðal annars ákvæðum laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga, reglum Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands um innhjerjavíðskipti og reglum fyrir útgefendur fjármálagerninga sem gefnar eru út af Nasdaq Iceland.

Ef félagið bryti gegin framangreindum lögum eða reglum gæti það haft neikvæðar fjárhagslegar afleiðingar í för með sér fyrir félagið. Brott gætu leitt til þess að eftirlitsaðilar og/eða Nasdaq Iceland veittu félaginu áminningu og beittu það jafnvel fésektum. Enn fremur gætu brott á umræddum reglum haft neikvæð áhrif á orðspor félagsins og þar með leitt til verðlækkunar á hlutabréfum og öðrum verðbréfum þess. Alvarleg brott gætu leitt til þess að skuldabréf félagins yðru tekin úr viðskiptum.

1.5.4. Málaferli og ágreiningsmál

Vegna stærðar og umfangs rekstrar Haga kann félagið á hverjum tíma að vera aðili að einhvers konar ágreiningsmálum sem upp koma af hálfu félagsins eða á hendur félaginu. Ágreiningsmál geta verið af ýmsum toga og geta til dæmis snert viðskiptavini félagsins, birgja, starfsfólk, opinberar stofnanir og fleiri sem eru í samskiptum við félagið á hverjum tíma.

Undanfarin ár hafa ýmsir úrskurðir og dómar verið kveðnir upp er varða Haga, eins og eðlilegt er hjá stóru félagi. Félagið hefur ekki verið aðili að stjórnsýslu-, dóms- eða gerðardómsmálum sl. 12 mánuði sem hafa haft veruleg áhrif á fjárhagsstöðu eða arðsemi þess. Engin mál eru í gangi sem geta haft mikil áhrif á rekstrarafkomu félagsins. Félagið er ekki aðili að neinum málum fyrir gerðardómi.

1.6. Skattar

Breyting á sköttum eða öðrum opinberum gjöldum, svo sem vorugjöldum, fela í sér áhættu í rekstri Haga og kunna að leiða til þess að eftirspurn eftir vörum félagsins breytist og geta þar með haft áhrif á afkomu félagsins, rekstur og/eða á verð hlutabréfa þess.

Félaginu er ekki kunnugt um að nokkur skattrannsókn sé í gangi á félaginu sjálfu eða dótturfélögum þess sem gæti haft veruleg áhrif á fjárhag þess. Eins og gildir um öll önnur félög er hugsanlegt að skattagögn félagsins verði tekin til athugunar á síðari stigum í samræmi við gildandi lög og reglugerðir, sem gæti haft áhrif á afkomu og rekstur þess. Félagið og skattyfirvöld gætu verið ósammála um hvernig skuli fara með hinar ýmsu fjárhagslegu ráðstafanir sem gerðar eru innan Haga í skattalegu tilliti. Félagið telur að það uppfylli öll viðeigandi lög og reglur um skatta og á því ekki von á að skattyfirvöld geri kröfur á hendur félaginu vegna meðferðar á tekjum eða öðrum fjárhagslegum atriðum.

9


10

2. Upplysingar um útgefandann

Hagar er verslunarfyirtæki með starfsemi á Íslandi en félagið er leiðandi á íslenskum matvöru-, sérvoru- og eldsneytismarkaði. Hagar starfrækja 38 matvöruverslanir, 26 Olís þjónustustöðvar, 43 ÓB-stöðvar, eina birgðaverslun, eina sérvoruverslun, tvö vöruhús og tvær framleiðslustöðvar. Kjarnastarfsemi Haga er á sviði matvöru og tengdra vöruhúsa, auk eldsneytissölu. Fyirtæki innan samstæðu Haga eru öll rekin sem sjálfstæðar einingar en á meðal fyrirtækjanna eru Bónus, Hagkaup og Olís. Hjá Högum starfa um 2.500 starfsmenn í 1.500 stöðugildum.

img-0.jpeg

Hagar eru fjárhagslega háð rekstri og afkomu dótturfélaga í samstæðunni til þess að standa við skuldbindingar sínar þar sem tekjur félagsins koma frá dótturfélögum og vegna útleigu fasteigna.

Um 70% af tekjum félagsins koma frá matvöru- og sérvoruverslunum þess og tengdum vöruhúsum og er Bónus stærsta og mikilvægasta einstaka eignin innan samstæðunnar. Um 30% tekna koma vegna sölu eldsneytis.

Hagar starfa samkvæmt lögum nr. 2/1995, um hlutafélög. Högum er sem verslunarfyirtæki skylt að starfa eftir lögum nr. 28/1998 um verslunaratvinnu, auk þess sem að sérlög geta gilt um starfsemi tiltekinna dótturfélaga. Í rekstri félagsins ber félaginu að fylgja almennum lögum og reglugerðum, svo sem varðandi innflutning, dreifingu og sölu matvæla, tóbaks og annarrar vöru, svo og varðandi hollustuhætti, mengunarvarnir, samkeppni, starfsmannahald, bókhald, ársreikninga og skatta.

Tilgangur útgefanda, samkvæmt gr. 1.4 í samþykktum hans, er verslunarrekstur, eignaumsýsla, rekstur fasteigna, fjárfestingar í félögum með skylda starfsemi, lánastarfsemi, kaup og sala eigna og annar skyldur rekstur.

Ekki hafa orðið neinar verulegar óæskilegar breytingar á framtíðarhorfum útgefanda síðan síðustu endurskoðuðu reikningsskil hans voru birt. Ekki hafa orðið verulegar breytingar á fjárhagslegri afkomu samstæðu útgefanda frá lokum síðasta fjárhagstímabils, sem fjárhagsupplysingar hafa verið birtar um til dagsetningar útgefandalýsingarinnar.

Engar mikilvægar breytingar á fjárhags- og viðskiptastöðu útgefanda hafa átt sér stað frá lokum síðasta


fjárhagstímabils.

3. Ágrip af sögu

Félagið var stofnað 20. febrúar 2003, sem einkahlutafélag undir nafninu Baugur Ísland ehf. Félagið hefur borið nafnið Hagar frá 24. október 2003 þegar lögformi þess var breytt í hlutafélag. Rekja má sögu félagsins allt aftur til 1927, þegar dótturfélag Haga, Olíuverzlun Íslands ehf., var stofnað. Pá voru Bananar ehf. stofnaðir 1955 og meginstoðir félagsins, Hagkaup og Bónus, voru stofnaðar 1959 og 1989. Árið 1993 stofnuðu Hagkaup og Bónus sameiginlegt innkaupafyrirtæki sem frá árinu 1998 hefur borið heitið Aðfóng. Árið 2001 opnuðu Hagar fyrstu verslun Zara á Íslandi, með sérleyfissamning frá Inditex á Spáni. Viðskipti með hlutabréf Haga á aðalmarkaði Nasdaq Iceland hófust þann 16. desember 2011.

4. Útgefandi

Lögformlegt heiti:1
Hagar hf.

Félagaform:
Skráð hlutafélag í samræmi við lög nr. 2/1995, um hlutafélög

Kennitala:
670203-2120

LEI:
635400TICHH43JJTNP54

Höfuðstöðvar og lögheimili:
Hagasmára 1, 201, Kópavogi, Ísland

Auðkenni hjá Nasdaq Iceland hf. og
Nasdaq CSD SE
HAGA

ISIN nr. hluta:
IS0000020121

Hlutafé og heildarfjöldi hluta:
1.154.232.879 kr. sem skiptast í jafn marga hluti

Heildarfjöldi útistandandi hluta:
1.154.232.879 kr. sem skiptast í jafn marga hluti

Vefsíða:
www.hagar.is2

Tölvupóstfang:
[email protected]

Símanúmer:
+354 530 5500


1 Viðskiptaheiti félagsins er það sama og lögformlega heiti þess.
2 Upplysingar sem birtar eru á vefsíðu Haga eru ekki hluti lysingarinnar nema þær séu felldar inn í lysinguna með tilvísun.

11


12

5. Fjárhagsdagatal

Eftirfarandi er fjárhagsdagatal Haga sem samþykkt er af stjórn félagsins:

Rekstrarárið 2021/22.

  1. ársfjórðungur (1. mars - 31. maí): 25. júní 2021.
  2. ársfjórðungur (1. mars - 31. ágúst): 19. október 2021.
  3. ársfjórðungur (1. mars - 30. nóvember): 12. janúar 2022.

Ársuppgjör 2021/22 (1. mars - 28. febrúar): 28. apríl 2022.

Aðalfundur: 1. júní 2022.

6. Skipulag samstæðunnar

Hagar er móðurfélag samstæðunnar og eru allar verslanir félagsins reknar af sérstökum dótturfélögum. Stjórnendur Haga sitja í stjórn og framkvæmdastjórn dótturfélaganna.

7. Dótturfélög Haga

Heiti félags Skráð aðsetur Eignarhlutur
Hagar verslanir ehf. Hagasmári 1, 201 Kópavogur, Ísland 100%
Bananar ehf. Korngörðum 1, 104 Reykjavík, Ísland 100%
FKV ehf. Síðumúla 34, 108 Reykjavík, Ísland 100%
Noron ehf.3 Skútvogi 5, 104 Reykjavík, Ísland 100%
Olúverzlun Íslands ehf. (Olís)4 Skútvogur 5, 104 Reykjavík, Ísland 100%

8. Stefna og stefnumótun

Stjórn Haga hf. hefur kosið endurskoðunarnefnd. Hlutverk hennar er að fara yfir fjárhagslegar upplýsingar og fyrirkomulag upplýsingagjafar frá stjórnendum. Hún skal staðreyna að þær upplýsingar sem stjórnin fær um rekstur og stöðu félagsins séu áreiðanlegar og gefi sem gleggsta mynd af stöðu þess á hverjum tíma. Endurskoðunarnefnd skal skila skýrslu um störf sín til stjórnar árlega.

Endurskoðunarnefndina skipa Anna Þórðardóttir, formaður nefndar, Katrín Olga Jóhannesdóttir og Eva Bryndís Helgadóttir. Nefndarmenn eru allir óháðir endurskoðendum Haga hf., daglegum stjórnendum félagsins og stórum hluthöfum þess. Starfsreglur fyrir endurskoðunarnefnd Haga er birt á vefsvæði félagsins https://www.hagar.is/media/ilnhut1z/2021-endursk-starfsreglur-endursko%C3%B0unarnefndar.pdf

Hluti af endurmati stjórnar á stefnu félagsins felst í árlegu endurmati á stjórnarháttaryfirlýsingu og starfsreglum stjórnar, síðareglum, starfskjarastefnu, arðgreiðslustefnu, upplýsingastefnu, samkeppnisstefnu ásamt stefnu um samfélagslega ábyrgð. Þá er jafnréttisstefna endurmetin á 3ja ára fresti að lágmarki.

3 Noron ehf. er rekstrarfélag Zöru.

4 Mjöll-Frigg ehf. er 100% í eigu Olís. Vakin er athygli á að í samstæðu Haga er félagíð meðhöndlað eins og dótturfélag samstæðunnar.


13

9. Hlutverk og gildi

Hagar sem öflugt félag á smásölumarkaði er í daglegum tengslum við almenning í landinu. Hagar hafa frá upphafi lagt metnað sinn í að þjóna íslenskum neytendum með ábyrgum hætti.

Hlutverk Haga er að veita rekstrareiningum félagsins stuðning og aðhald í rekstri ásamt því að virkja rekstrar-, markaðs-, tækni- og viðskiptalega samlegð fyrirtækjanna til aukins hagræðis fyrir viðskiptavini og eigendur félagsins.

Markmið Haga og dótturfélaga er að:

  • veita framúrskarandi þjónustu;
  • selja gæða vörur á sanngjörnu verði;
  • hafa eins jákvæð áhrif á umhverfi og samfélag og mögulegt er;
  • hámarka virði fyrir eigendur félagsins.

Hagar og dótturfélög deila fjórum gildum sem innleidd voru hjá samstæðunni á árinu 2020 og eru þau höfð að leiðarljósi í starfseminni. Gildin eru eftirfarandi:

  • Hagkvæmni - Við leitum stöðugt nýrra leiða til að geta boðið neytendum meira fyrir minna.
  • Samvinna - Styrkur Haga felst í innbyrðis samvinnu eininganna og uppbyggilegu samstarfi við alla okkar viðskiptavini.
  • Þjónustulund - Án viðskiptavina væru Hagar ekki til. Við viljum alltaf bæta þjónustu og upplifun þeirra.
  • Framsækni - Við viljum halda áfram að þróa íslenska verslunarflóru og bjóða neytendum upplifun og gæði í fremstu röð á heimsvísu.

9.1. Arðgreiðslustefna

Stjórn Haga hefur markað félaginu þá stefnu að lögð skuli áhersla á að félagið skili til hluthafa sinna, beint og óbeint, þeim verðmætum sem skapast í rekstrinum á hverju ári, umfram nauðsynlegar fjárfestingar í rekstrarfjármunum. Stefnt er að því að hluthöfum verði árlega greiddur arður, sem nemur að lágmarki 50% hagnaðar næstliðins rekstrarárs. Að auki mun félagið, ef tækifæri gefast, kaupa eigin bréf og kaupa fasteignir á hagstæðu verði sem nýtist félaginu í starfsemi sinni. Arðgreiðslustefna Haga var samþykkt af stjórn félagsins þann 15. apríl 2021 og er birt á vefsvæði félagsins:

https://www.hagar.is/media/z31pmsil/ar%C3%B0grei%C3%B0slustefna-haga-apr%C3%AD1-2021.pdf

9.2. Jafnréttis- og mannréttindastefna

Stefna Haga er að gætt skuli fyllsta jafnréttis milli kynjanna og að hver starfsmaður Haga og dótturfélaga þess sé metinn að eigin verðleikum, óháð kyni, aldri og uppruna. Allt starfsfólk skal njóta sömu virðingar og skulu kynin hafa jafna stöðu innan fyrirtækisins. Þannig er tryggt gott starfsumhverfi sem gefur af sér tækifæri fyrir hvern þann sem vill. Hvers konar mismunun er óheimil og verður ekki liðin og er það stefna fyrirtækisins að koma í veg fyrir að slíkt ranglæti eigi sér stað. Jafnréttisstefna Haga var samþykkt af stjórn félagsins þann 6. september 2021 og er birt á vefsvæði félagsins:

https://www.hagar.is/media/vloof41t/jafnr%C3%A9ttisstefna-haga-endursko%C3%B0un-september-


2021.pdf.

9.3. Persónuverndarstefna

Hagar hafa einsett sér að vinna með persónuupplýsingar í hvívetna í samræmi við lög um persónuupplýsingar og vinnslu persónuupplýsinga, nú lög nr. 90/2018, með áorðnum breytingum. Til að ná því markmiði hafa Hagar tekið saman skrá yfir þá vinnslu persónuupplýsinga sem fer fram hjá félaginu og markað sér stefnu um hvernig staðið verði að slíkri vinnslu, hvernig réttindi hinna skráðu verði tryggð og hvernig félagið sinni skyldum sínum sem ábyrgðar- og vinnsluaðili. Önnur félög samstæðunnar hafa gert slíkt hið sama. Persónuverndarstefna Haga var samþykkt af stjórn félagsins þann 20. apríl 2020 og er birt á vefsvæði félagsins:

https://www.hagar.is/media/mbgju5ab/2020-04-pers%C3%B3nuverndarstefna-haga-m-n%C3%B6fnum.pdf

9.4. Samfélagsleg ábyrgð

Stefna Haga um samfélagslega ábyrgð er langtímaáætlun félagsins um hvernig það getur lagt sinn skerf til betra og heilbrigðara samfélags og umhverfis, samhliða heilbrigðum rekstri. Stefnan segir auk þess til um hvernig samskiptum við hagsmunaaðila verði háttað. Helstu hagsmunaaðilar Haga eru starfsmenn, hluthafar, viðskiptavinir, birgjar og fjármögnunaraðilar, auk samfélagsins í heild sinni. Hagar eru aðilar að Festu, miðstöð um samfélagsábyrgð, og hafa verið frá upphafi árs 2016.

Stefna Haga um samfélagslega ábyrgð nær til móðurfélagsins auk allra dótturfélaga samstæðunnar og skal vera leiðbeinandi fyrir þau.

Stefna Haga um samfélagslega ábyrgð var síðast samþykkt af stjórn félagsins þann 15. apríl 2021 og er birt á vefsíðu félagsins:

https://www.hagar.is/media/ffthz532/stefna-haga-um-samf%C3%A9lagslega-%C3%A1byrg%C3%B0_apr%C3%ADI-2021.pdf

9.5. Samkeppnisstefna

Með sátt Haga við Samkeppniseftirlitið, dags. 11. september 2018, vegna samruna félagsins, Olíuverzlunar Íslands ehf. og DGV ehf., skuldbundu Hagar sig til að hlíta tilteknum skilyrðum í starfsemi sinni í samræmi við samkeppnislög. Meðal annars undirgengust Hagar þá skyldu að leggja fram samkeppnisstefnu til samþykktar á hluthafafundi félagsins. Í stefnunni skyldi kveðið á um háttsemi stjórnar og starfsmanna félagsins, skyldur félagsins samkvæmt sáttinni og samkeppnislögum og jafnframt skyldi hún fela í sér háternisreglur fyrir hluthafa Haga.

Samkeppnisstefna Haga var samþykkt á aðalfundi Haga þann 7. júní 2019 og er birt á vefsíðu félagsins:

https://www.hagar.is/media/te5oyotr/hagar-samkeppnisstefna-j%C3%BAn%C3%AD-2019_sam%C3%BEykkt-%C3%A1-a%C3%B0alfundi.pdf

9.6. Síðareglur

Hagar eru leiðandi fyrirtæki í íslenskri smásöluverslun og í fararbroddi í íslensku atvinnulífi. Hagar vilja vera fyrsti valkostur viðskiptavina sinna, góður samfélagsþegn, eftirsóttur vinnuveitandi og ákjósanlegur og öruggur fjárfestingarkostur. Síðareglur gilda um stjórn Haga og alla starfsmenn félagsins og dótturfélaga þess. Síðareglur Haga voru samþykktar af stjórn félagsins þann 15. apríl 2021 og eru birtar á vefsíðu félagsins: https://www.hagar.is/media/ltzhdcni/si%C3%B0areglur-fyrir-haga-150421.pdf


15

9.7. Umhverfisstefna

Umhverfisstefna Haga og dótturfyirtækja er sett fram med bød ad leiðarljósi ad leggja áherslu á mikilvægi umhverfissjónarmiða í daglegri starfsemi félagsins. Meginmarkmiðið er ad félagið leggi sitt af mörkum í bágu sjálfbærrar þróunar og samfélagslegrar ábyrgðar og styðji við mikilvægi þess ad starfsfólk sé meðvitað um aðgerðir félagsins í bágu umhverfisins. Hagar vilja nýta auðlindir landsins á sjálfbærran hátt í bágu atvinnulífsins, landsmanna og komandi kynslóða til efnahagslegs og félagslegs ábata og jafnframt stuðla að sjálfbærni auðlinda eins og hægt er. Umhverfisstefna Haga var samþykkt af stjórn félagsins þann 15. apríl 2021 og er birt á vefsvæði félagsins https://www.hagar.is/media/npfla0au/umhverfisstefna-haga-apr%C3%ADI-2021.pdf.

9.8. Upplýsingastefna

Markmið upplýsingastefnu Haga er að tryggja jafnan aðgang hagsmunaaðila að réttum, tímanlegum og áreiðanlegum upplýsingum um starfsemi félagsins á hverjum tíma, í samræmi við lög og reglur sem félaginu ber að fylgja sem útgefandi fjármálagerninga.

Upplýsingastefna Haga var samþykkt af stjórn félagsins þann 15. maí 2021 og er birt á vefsíðu félagsins https://www.hagar.is/media/213fcdq0/stefna-haga-um-birtingu-uppl%C3%BDsinga_apr%C3%ADI-2021.pdf.

9.9. Starfsemi

Dagleg stjórnun á samstæðunni, samræming og umsjón með starfsemi dótturfélaga fer fram í móðurfélaginu. Hagar starfrækja 38 matvöruverslanir, 26 Olís þjónustustöðvar, 43 ÓB-stöðvar, eina birgðaverslun, eina sérvöruverslun, tvö vöruhús og tvær framleiðslustöðvar. Fyrirtræki Haga eru öll rekin sem sjálfstæð fyrirtæki. Meginstarfsemi Haga er á sviði matvöru en innan þess eru tvær af stærstu verslunarkeðjum landsins, Bónus og Hagkaup, svo og stoðstarfsemi á sviði innkaupa og dreifingar. Þá er Olíuverzlun Íslands ehf. hluti af samstæðu Haga. Auk þess starfrækja Hagar sérvörusvið innan Hagkaups og sérvöruverslunina Zara.

10. Stjórnarhættir, stjórn og stjórnendur

10.1. Stjórnarhættir

Stjórnarhættir Haga eru í samræmi við lög nr. 2/1995, um hlutafélög og fylgir félagið Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja, sem gefnar eru út af Viðskiptaráði Íslands, Nasdaq Iceland og Samtökum atvinnulífsins, 5. útgáfa 2015 (hér eftir „Leiðbeiningar um stjórnarhætti“). Stjórnarháttaryfirlýsing var samþykkt af stjórn félagsins þann 15. apríl 2021 og er birt á vefsvæði félagsins

https://www.hagar.is/media/4hyjwzoe/stj%C3%B3rnarh%C3%A1ttayfirl%C3%BDsing-15-04-21.pdf.

10.2. Stjórn og stjórnendur

Nafn Staða Helstu störf utan útgefanda Hagsmunatengsl
Stjórn

16

Davíð Harðarson Formaður stjórnar Fjármálastjóri og stjórnarmaður Nordic visitor og stjórnarmaður Magmahótel ehf., Terra Nova sól ehf., Corivo ehf. og Libra Investment ehf. Davíð á 141.485 hluti í Högum hf.
Eiríkur S. Jóhannsson Meðstjórnandi Forstjóri Slippsins á Akureyri og stjórnarformaður Samherja hf. og Samherja holding ehf. auk félaga innan samstæðu þeirra.
Stjórnarmaður í Dysnesi þróunarfélagi, í stjórn og varastjórn Lítá ehf., Heir ehf. og Fjárhúsa ehf. Eiríkur er fjárhagslega tengdur Samherja hf. sem á 51.211.948 hluti í Högum hf. Aðrir aðilar fjárhagslega tengdir Eiríki eiga 74.500 hluti í Högum.
Eva Bryndís Helgadóttir Meðstjórnandi Lögmaður hjá LMG lögmönnum. Stjórnarmaður í Jarðborunum ehf. og Kassetta ehf.
Katrín Olga Jóhannesdóttir Meðstjórnandi Stjórnarmaður í Nasdaq Iceland hf., Landsnets hf., Kríu Konsulting ehf., situr í háskólaráði Háskólans í Reykjavík og í fjárfestingaráði Akurs fjárfestingasjóðs.
Jensína Kristín Böðvarsdóttir Meðstjórnandi Framkvæmdastjóri og eigandi Vinnvinn ehf. og og Associate Partner hjá Valcon consulting, alþjóðlegu ráðgjafafyrirtæki.
Stjórnarmaður Íslandssjóða hf. og varamaður í stjórn Sunnuvegar 13 ehf. og Vinnvinn ehf.
Framkvæmdastjórn Helstu störf utan útgefanda Hagsmunatengsl
--- --- --- ---
Finnur Oddsson Forstjóri Stjórnarmaður í Viðskiptaráði Íslands og Startup Iceland. Finnur á 255.000 hluti í Högum hf., auk kaupréttar að 850.000 hlutum í félaginu.
Guðrún Eva Gunnarsdóttir Framkvæmdastjóri fjármálasviðs Varamaður í stjórn Record Records ehf. Guðrún Eva á kauprétt að 850.000 hlutum í Högum hf.
Magnús Magnússon Framkvæmdastjóri stefnumótunar og rekstrar Stjórnarmaður í 2M ehf. Magnús á enga hluti í Högum hf. beint en er fjárhagslega tengdur 2M ehf. sem á 100.000 hluti í félaginu. Magnús á kauprétt að 850.000 hlutum í Högum hf.
Eiður Eiðsson Framkvæmdastjóri starfrænnar þróunar og upplýsingatækni Eiður á 100.000 hluti í Högum hf., auk kaupréttar að 850.000 hlutum í félaginu.

17

Guðmundur Marteinsson Framkvæmdastjóri Bónus Guðmundur á 157.000 hluti í Högum hf., auk kaupréttar að 850.000
Sigurður Reynaldsson Framkvæmdastjóri Hagkaups og sérverslana Haga Stjórnarmaður í MBFK1 ehf., Múrbúðinni ehf. og varamaður í KS smíði ehf. Sigurður á kauprétt að 850.000 hlutum í Högum hf.
Frosti Ólafsson Framkvæmdastjóri Olíuverzlunar Íslands ehf. Stjórnarmaður í Controlant hf., Íslandsbanka hf. og Óson ehf. Frosti á kauprétt að 850.000 hlutum í Högum hf.
Jóhanna Þ. Jónsdóttir Framkvæmdastjóri Banana Stjórnarmaður í Nostra ræstingar ehf., 4K ehf. og varamaður í DSN54 ehf.
Lárus Óskarsson Framkvæmdastjóri Aðfanga Lárus á 81.000 hluti í Högum hf., auk kauprétt að 850.000 hlutum í félaginu.

Heimilisfang stjórnar og framkvæmdastjórnar Haga er Hagasmári 1, 201 Kópavogur, Ísland.

Engir hugsanlegir hagsmunaárekstrar eru á milli skyldustarfa ofangreindra stjórnarmana og aðila að framkvæmdastjórn fyrir útgefanda og persónulegra hagsmuna þeirra og/eða annarra skyldustarfa aðrir en þeir sem greint er frá hér að framan.

11. Gögn felld inn með tilvísun

Eftirfarandi skjól eru felld með tilvísun inn í lýsinguna og skoðast sem órjúfanlegur hluti af lýsingunni:

  • Ársreikningur samstæðu Haga fyrir fjárhagsárið 2018/19, ásamt skýrslu endurskoðanda, vefslóð: https://www.hagar.is/media/du2bwjb0/hagar-%C3%A1rsreikningur-28-2-2019-%C3%ADsl.pdf
  • Ársreikningur samstæðu Haga fyrir fjárhagsárið 2019/20, ásamt skýrslu endurskoðanda, vefslóð: https://www.hagar.is/media/ds2htt4c/hagar-arsreikningur-29-2-2020-isl-loka.pdf
  • Ársreikningur samstæðu Haga fyrir fjárhagsárið 2020/21, ásamt skýrslu endurskoðanda, vefslóð: https://www.hagar.is/media/tnnngwww/hagar-%C3%A1rsreikningur-28-2-2021-%C3%ADsl.pdf
  • Árslutareikningur Haga 1. mars til 31. ágúst 2021, vefslóð: https://www.hagar.is/media/wbrlddhn/hagar-%C3%A1rslutareikningur-31-08-2021-%C3%ADsl.pdf

12. Skjól til sýnis, aðgengi og gildistími

Á meðan útgefandalýsingin er í gildi má skoða eftirfarandi skjól á vefsíðu útgefanda https://www.hagar.is/fjarfestar/yfirlit/ og á skráðri skrifstofu útgefanda að Hagasmára 1, 201 Kópavogi:

  • Samþykktir Haga hf. dagsettar 3. júní 2021.
  • Endurskoðaður ársreikningur samstæðu Haga fyrir fjárhagsárið 2018/19, ásamt skýrslu endurskoðanda.
  • Endurskoðaður ársreikningur samstæðu Haga fyrir fjárhagsárið 2019/20, ásamt skýrslu endurskoðanda.
  • Endurskoðaður ársreikningur samstæðu Haga fyrir fjárhagsárið 2020/21, ásamt skýrslu endurskoðanda.

  • Árshlutareikningur samstæðu Haga 1. mars til 31. ágúst 2021.

Lýsingin er gefin út á íslensku og gildir í 12 mánuði frá staðfestingu hennar. Gildistími lýsingarinnar hefur þó engin áhrif á þau skuldaskjöl sem gefin hafa verið út á grundvelli lýsingarinnar fram til þess tíma.

Aðgengi að lýsingunni verður tryggt í 10 ár eftir birtingu hennar á vefsetri útgefanda https://www.hagar.is/fjarfestar/yfirlit/. Fjárfestar geta einnig óskað eftir eintaki af lýsingunni á prentuðu formi á skrifstofu félagsins.

13. Hluthafar

20 stærstu hluthafar Haga þann 22. desember 2021:

Hluthafi Fjöldi hluta Hlutfallsleg eign
Gildi - lífeyrissjóður 216.348.121 18,74%
Lífeyriss. Starfsm. Rík. A-deild 132.800.000 11,51%
Lífeyrissjóður verzlunarmanna 122.887.852 10,65%
Birta lífeyrissjóður 91.298.559 7,91%
Brú Lífeyrissjóður starfs. sveit. 68.984.534 5,98%
Stapi lífeyrissjóður 53.189.251 4,61%
Samherji hf. 51.211.948 4,44%
Festa – lífeyrissjóður 47.575.169 4,12%
Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda 33.356.665 2,89%
Lífeyrissj.starfsm.rík. B-deild 33.200.000 2,88%
Íslensk verðbréf – safnreikn. 30.435.691 2,64%
Frjálsi lífeyrissjóðurinn 27.098.978 2,35%
Lífeyrissjóður starfsm Rvborgar 15.138.306 1,31%
Arctic Funds PLC 11.200.000 0,97%
Almenni lífeyrissjóðurinn 10.453.671 0,91%
Sjóvá-Almennar tryggingar hf. 9.703.363 0,84%
Kvika – Innlend hlutabréf 8.874.953 0,77%
Lífsverk lífeyrissjóður 8.528.431 0,74%
Hagar hf. 7.783.365 0,67%
Miranda ehf. 7.687.870 0,67%
Samtals 20 stærstu 987.756.727 85,58%
Útgefnir hlutir samtals 1.154.232.879 100,00%

Útgefanda er ekki kunnugt um annað eignarhald en að framan greinir eða að honum sé stjórnað af öðrum aðilum en hér hefur verið greint frá. Útgefanda er ekki kunnugt um að til staðar séu önnur réttindi en að framan greinir sem geta leitt til breytinga á yfirráðum í útgefanda. Hagsmunir minnihlutaeigenda eru varðir samkvæmt ákvæðum samþykta útgefanda og laga nr. 2/1995 um hlutafélög.

14. Afkomuspá

Uppgjör fyrri helmings rekstrarárs Haga, þ.e. tímabilið 1. mars til 31. ágúst 2021, var birt þann 19. október 2021. Uppgjörð var umfram áætlanir, þar sem bæði rekstur var nokkuð umfram áætlanir auk þess sem afkomuáhrif af sölu Útilífs komu fram á öðrum ársfjörðungi. Í ljósi þessa og samkvæmt áætlun stjórnenda á afkomu félagsins fyrir seinni árshelming þá var EBITDA afkomuspá hækkuð um 700 millj. kr.

18


19

Þann 22. nóvember sl., eftir að uppgjör september og október lá fyrir, ásamt áætlun fyrir nóvember var ljóst að rekstarafkoma samstæðunnar á þriðja ársfjórðungi yrði einnig umfram áætlánir. Í ljósi þessa og samkvæmt áætlun stjórnenda á afkomu félagsins á fjórða ársfjórðungi rekstrarársins var EBITDA afkomuspá hækkuð um 700 millj.kr. Er gert ráð fyrir að EBITDA afkoma samstæðu Haga fyrir rekstrarárið 2021/22 verði á bilinu 10.000-10.500 millj. kr.

Afkomuspáin er gerð í samræmi við reikningsskilaðferðir Haga hf. sem tilgreindar eru í ársreikningi Haga hf. fyrir rekstrarárið sem lauk þann 28. febrúar 2021. Allar fjárhæðir í afkomuspá eru samanburðarhæfar við sögulegar fjárhagsupplysingar félagsins. Grundvöllur afkomuspár eru rauntölur rekstrar fyrstu átta mánuði rekstrarársins auk samþykktrar áætlunar Haga hf. fyrir síðustu fjóra mánuði rekstrarársins. Áætlun Haga hf. byggir á rauntölum síðastliðins árs að teknu tilliti til spár um hagvöxt, verðbólgu, atvinnuleysi, fjölda ferðamanna o.fl. Áætlunin hefur verið samþykkt af stjórn félagsins.

Fjárfestingaáætlun fyrir rekstrarárið 2021/22 liggur ekki fyrir.

Við gerð afkomuspár Haga ber að taka fram að stjórnendur félagsins geta einungis haft áhrif á þætti sem taka til undirliggjandi rekstrar. Forsendur sem byggja á hagvexti, verðbólgu, atvinnuleysi og fjölda ferðamanna eru utan áhrifasviðs þeirra sem sitja í stjórn, framkvæmdastjórn eða eftirlitsstjórn Haga. Breytingar á hagvexti, verðbólgu, atvinnuleysi og fjölda ferðamanna geta haft áhrif á afkomuspá félagsins.

15. Mikilvæg þróun á rekstri félagsins á árinu 2021

Ekki hafa orðið óæskilegar breytingar á framtíðarhorfum eða fjárhagslegri afkomu Haga frá endurskoðuðum ársreikningi fyrir rekstrarárið 2020/2021.

Samanburður á milli rekstrarára 2020 og 2021 er hagstæður en fyrra ár markaðist af neikvæðum áhrifum af gengisfalli íslensku krónunnar, lækkunar á heimsmarkaðsverði olíu og samðrætti í umferð vegna COVID-19 faraldursins. Jafnframt gætir áhrifa af sóttvarnaraðgerðum yfirvalda á starfsemina.

Hagar og Olís skrifuðu undir samkomulag við Reykjavíkurborg í tengslum við yfirlýst markmið Reykjavíkurborgar um fækkun eldsneytisstöðva. Felur samkomulagið í sér fyrirhugaðar uppyggingar á eftirfarandi lóðum: Álfabakka 7, Álfheimum 49, Egilsgötu 5 og Stekkjarbakka 4-6. Jafnframt felst í samkomulaginu að 12 eldsneytisdælur fyrir 24 bíla verða aflagðar og þjónustustöðvum Olís við Álfheima og Álfabakka og sjálfsafgreiðslustöð ÓB við Egilsgötu verður lokað.

Samhliða samkomulagi við Reykjavíkurborg voru gerðir nýir lóðaleigusamningar vegna framtíðar uppyggingar. Áætluð heildarstærð lóðanna eru samtals um 31.000m2. Gert er ráð fyrir að tillaga að deiliskipulagi fyrir lóðirnar verði lagðar fram innan 2 ára.

Hagar keyptu 49% hlut í Djús ehf. sem á og rekur veitingastaði undir merkjum Lemon. Kaupin voru gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins sem samþykktí kaupin þann 2. júlí 2021.

Þann 24. september 2021 undirrituðu Hagar, Reginn hf., Klasi ehf. og KLS eignarhaldsfélag ehf. viljayfirlýsingu um uppyggingu og rekstur öflugs fasteignaþróunarfélags. Viljayfirlýsingin er gerð í tengslum við fyrirhuguð kaup Haga og Regins á nýju hlutafé í fasteignaþróunarfélaginu Klasa. Samkvæmt viljayfirlýsingunni er áætlað að eignarhlutur hvers eiganda um sig, þ.e. Haga, Regins og KLS eignarhaldsfélags, núverandi eiganda Klasa, verði um 1/3 af útgefnu hlutafé. Hagar og Reginn munu greiða fyrir eignarhlut sinn með þróunareignum. Á meðal eigna Haga sem um ræðir má nefna þróunarreit í Mjódd, þ.e. Álfabakka 7 og Stekkjarbakka 4-6, og á atvinnusvæði Sundahafnar, þ.e. Klettagærða 27. Samhliða fyrirhugaðri fjárfestingu Haga og Regins í fasteignaþróunarfélaginu Klasa mun Klasa verða skipt upp þannig að eldri verkefni Klasa, sem ekki teljast til þróunarverkefna, færast í annað félag sem stendur utan fyrirhugaðra viðskipta. Áætluð verðmæti undirliggjandi fjárfestingareigna Klasa eftir fyrirhuguð viðskipti verða um 15 ma.kr. Gert er ráð fyrir að eiginfjárhlutfall félagsins í upphafi verði um 70%.


20

16. Staðfesting af hálfu Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands, kt. 560269-4129, Kalkofnsvegi 1, 101 Reykjavík (hér eftir „Fjármálaeftirlitið“), sem er lögbært yfirvald samkvæmt reglugerð (ESB) 2017/1129, hefur staðfest þessa lýsingu, sem dags. er 22. desember 2021 Fjármálaeftirlitið staðfestir lýsinguna einungis í þeim skilningi að hún uppfyllir kröfur um að vera fullnægjandi, skiljanleg og samkvæm sem kveðið er á um í reglugerð (ESB) 2017/1129. Ekki skal líta á staðfestingu Fjármálaeftirlitsins á lýsingunni sem stuðning við útgefandann eða staðfestingu á gæðum þeirra skuldaskjala sem gefin hafa verið út á grundvelli lýsingarinnar. Fjárfestum ber að leggja sjálfstætt mat á hvort þeim henti að fjárfesta í skuldabréfunum út frá skilmálum skuldaskjalanna og lýsingunni. Lýsingin inniheldur þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru fjárfestum til að þeir geti lagt mat á eignir og skuldir, fjárhagsstöðu, afkomu og framtíðarhorfur útgefanda sem og þau réttindi sem fylgja þeim skuldabréfum sem gefin hafa verið út undir skuldabréfaflokknum.

17. Endurskoðandi

PricewaterhouseCoopers ehf., kt. 690681-0139, Skógarhlíð 12, 105 Reykjavík, hefur endurskoðað ársreikninga Haga hf. fyrir fjárhagsárin 2019/20 og 2020/21. Endurskoðað var í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Fyrir hönd PricewaterhouseCoopers voru Bryndís Björk Guðjónsdóttir og Vignir Rafn Gíslason endurskoðendur fyrir fjárhagsárin 2018-2021. Þau eru aðilar að Félagi löggiltra endurskoðenda. Árshlutareikningur fyrir 2. ársfjörðung rekstrarársins 2021/22 hefur verið kannaður af PricewaterhouseCoopers ehf.

Með vísun í staðfestingarskýrlu okkar um afkomuspá Haga hf., dags. 19. október 2021, staðfestum við að við yfirferð okkar hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að afkomuspáin sem vísað er til í útgefandalýsingunni hafi verið unnin á þeim grundvelli sem tilgreindur er í umfjöllun um afkomuspána í kafla 14. Afkomuspá hér að framan. Þá er ekkert sem bendir til annars en að grunnur afkomuspárinnar sé í samræmi við reikningsskilaðferðir Haga hf. Reikningsskilaðferðir Haga hf. eru tilgreindar í ársreikningi Haga hf. fyrir rekstrarárið sem lauk þann 28. február 2021. Grunnur rekstraráætlunarinnar er á ábyrgð Haga hf.

Skoðun okkar var framkvæmd í samræmi við alþjóðlegan staðal ISAE 3000 (revised) sem á við um staðfestingarvinnu aðra en endurskoðun og könnun í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla (ISA) eða alþjóðlega könnunarstaðla (ISRE). Markmið staðfestingarvinnunnar er að veita takmarkaða vissu.

Reykjavík, 22. desember 2021

PricewaterhouseCoopers ehf.

Bryndís Björk Guðjónsdóttir,
löggiltur endurskoðandi

Vignir Rafn Gíslason,
löggiltur endurskoðandi

18. Upplýsingar frá þriðja aðila

Upplýsingar í útgefandalýsingunni byggja ekki á yfirlýsingum utanaðkomandi sérfræðinga eða þriðja aðila, annað en opinberum upplýsingum sem birtar hafa verið af opinberum aðilum.


21

  1. Yfirlýsing ábyrgðaraðila útgefandalýsingar fyrir hönd útgefanda

Formaður stjórnar og forstjóri Haga hf., kt. 670203-2120, Hagasmára 1, 201 Kópavogi, lýsa því yfir fyrir hönd Haga hf. sem útgefanda, að samkvæmt þeirra bestu vitund eru upplýsingarnar sem útgefandalýsingin hefur að geyma, í samræmi við staðreyndir og að engum upplýsingum hefur verið sleppt sem geta haft áhrif áreiðanleika hennar.

Kópavogi 22. desember 2021

Fyrir hönd Haga hf.

Davíð Harðarson,
stjórnarformaður

Finnur Oddsson,
forstjóri


Undirritunarsíða

Hagar: útgefandalýsing
Finnur Oddsson

img-1.jpeg

Undirritað af:
Finnur Oddsson
0810704159
Dags: 22.12.2021
Timi: 12:04:41
Ástæða: Sambykt
Signet ID: e0c3f2d5-0eb7-4a4f-b126-76145f8617d7

Hagar: útgefandalýsing
Davíð Harðarson

img-2.jpeg

Undirritað af:
Davíð Harðarson
1710764129
Dags: 22.12.2021
Timi: 11:55:40
Ástæða: Sambykt
Signet ID: e0c3f2d5-0eb7-4a4f-b126-76145f8617d7

Hagar: útgefandalýsing
Vignir Rafn Gíslason

img-3.jpeg

Undirritað af:
Vignir Rafn Gíslason
1404675379
Dags: 22.12.2021
Timi: 12:54:33
Ástæða: Sambykt
Signet ID: e0c3f2d5-0eb7-4a4f-b126-76145f8617d7

Hagar: útgefandalýsing
Bryndís Björk Guðjónsdóttir

img-4.jpeg

Undirritað af:
Bryndís Björk
Guðjónsdóttir
2812654079
Dags: 22.12.2021
Timi: 11:58:26
Ástæða: Sambykt
Signet ID: e0c3f2d5-0eb7-4a4f-b126-76145f8617d7