Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar Regulatory Filings 2017

Sep 4, 2017

2196_rns_2017-09-04_98997e98-2001-4842-8368-ac220f86e59d.html

Regulatory Filings

Open in viewer

Opens in your device viewer

Hagar hf. endurnýja samning við Arion banka hf. um viðskiptavakt

Hagar hf. endurnýja samning við Arion banka hf. um viðskiptavakt

Hagar hf. hafa í dag endurnýjað samning við Arion banka hf. um viðskiptavakt á hlutabréfum útgefnum af Högum í Kauphöll Íslands NASDAQ OMX Iceland hf. Eldri samningur er frá árinu 2011.

Samningurinn kveður á um að Arion banki skuli dag hvern leggja fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf útgefin af félaginu í viðskiptakerfi Kauphallar Íslands. Fjárhæð kaup- og sölutilboða skal að lágmarki nema kr. 450.000 að nafnvirði á gengi sem Arion banki ákveður í hvert skipti. Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum Arion banka skal ekki vera meiri en 1,5% og skal frávik frá síðasta viðskiptaverði ekki vera meira en 3%.

Tilboð skulu endurnýjuð eins fljótt og unnt er, þó ávallt innan 10 mínútna eftir að þeim er tekið að fullu eða felld niður að hálfu Arion banka. Hámarksfjárhæð heildarviðskipta sem Arion banka er skylt að eiga dag hvern samkvæmt samningnum er kr. 200.000.000 að markaðsvirði.

Samningurinn er ótímabundinn og uppsegjanlegur af beggja hálfu með 14 daga fyrirvara.

Nánari upplýsingar veitir Guðrún Eva Gunnarsdóttir, fjármálastjóri Haga hf., í síma 530-5500.