AI assistant
Hagar — Regulatory Filings 2016
Nov 3, 2016
2196_rns_2016-11-03_2762ca27-335d-4c30-80a7-8cb3869569c0.html
Regulatory Filings
Open in viewerOpens in your device viewer
Leiðrétting - Hagar hf. endurnýja samning um viðskiptavakt með hlutabréf fyrirtækisins. – Frétt birt 2016-11-02 10:26:07 CET
Leiðrétting - Hagar hf. endurnýja samning um viðskiptavakt með hlutabréf fyrirtækisins. – Frétt birt 2016-11-02 10:26:07 CET
Leiðrétting: Í tilkynningu sem birt var í Kauphöll 2.11.2016 um endurnýjaðan
samning um viðskiptavakt sem Hagar hf. hafa gert við Íslandsbanka vantaði
upplýsingar um hámarksfjárhæð heildarviðskipta hvern dag.
Hagar hf. hafa endurnýjað samning við Íslandsbanka um viðskiptavakt á
hlutabréfum útgefnum af Högum hf. sem skráð eru á Nasdaq OMX Iceland. Eldri
samningur er frá 2011. Tilgangur þessa samnings er að efla viðskipti með
hlutabréf félagsins í Nasdaq OMX Iceland („Kauphöllin“) í því skyni að
seljanleiki hlutabréfa félagsins aukist, markaðsverð skapist og verðmyndun
hlutabréfanna verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti.
Samningurinn kveður á um að Íslandsbanki skuli dag hvern leggja fram kaup- og
sölutilboð í hlutabréf félagsins í viðskiptakerfi Kauphallarinnar.
Fjárhæð kaup- og sölutilboða, að nafnvirði, skal vera að lágmarki í samræmi við
töflu A þar sem gengi félagsins á markaði stýrir fjárhæð tilboða
TAFLA A
Gengi Nafnverð
1 - 25 1.000.000
25,1 - 35 800.000
35,1 - 45 600.000
45,1 - 50 500.000
50,1 - 65 400.000
65,1 - 85 300.000
85,1 - 125 200.000
125,1 - 165 150.000
165,1 - 250 100.000
Tilboð skulu endurnýjuð eins fljótt og unnt er, þó ávallt innan 10 mínútna
eftir að þeim er tekið að fullu. Íslandsbanki tryggir að verðbil milli kaup- og
sölutilboða sem sett eru fram í viðskiptavakt nemi að hámarki 1,5% og að frávik
þeirra frá síðasta viðskiptaverði sama dags sé ekki meira en 3%.
Eigi Íslandsbanki viðskipti með bréf félagsins fyrir 150.000.000 ISK að
markaðsvirði eða meira í sjálfvirkri pörun („automatch“) innan dags, sem fer um
veltubók Íslandsbanka (eigin viðskipti bankans), falla niður skyldur um
hámarksmun kaup- og sölutilboða innan þess dags.
Samningurinn er ótímabundinn og er uppsegjanlegur af beggja hálfu með 14 daga
fyrirvara.