Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar Proxy Solicitation & Information Statement 2023

May 10, 2023

2196_rns_2023-05-10_a94171b6-ac69-400f-9971-ddfece7af06f.html

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

Hagar hf.: Aðalfundur 2023 - Tillaga tilnefningarnefndar um stjórnarmenn í Högum hf.

Hagar hf.: Aðalfundur 2023 - Tillaga tilnefningarnefndar um stjórnarmenn í Högum hf.

Aðalfundur Haga hf., kt. 670203-2120, verður haldinn fimmtudaginn 1. júní 2023 og hefst hann kl. 15:00 á Hilton Reykjavík Nordica (Vox Club), Suðurlandsbraut 2 í Reykjavík.

Þann 23. mars 2023 var birt auglýsing frá tilnefningarnefnd Haga hf., þar sem þeim sem vilja gefa kost á sér til setu í stjórn Haga hf. var bent á að tilkynna það skriflega til tilnefningarnefndar eigi síðar en 21. apríl 2023.

Alls bárust tilnefningarnefnd 5 framboð til stjórnar fyrir auglýstan frest nefndarinnar og voru þau öll frá núverandi stjórnarmönnum.

Samkvæmt samþykktum félagsins skal stjórn skipuð fimm mönnum. Tilnefningarnefnd hefur nú lokið störfum og farið yfir þau framboð sem bárust innan tiltekins frests. Það er einhuga niðurstaða nefndarinnar að leggja til við hluthafa að allir núverandi stjórnarmenn verðu endurkjörnir en þau eru:

  • Davíð Harðarson, fjármálastjóri Travel Connect
  • Eiríkur S. Jóhannsson, framkvæmdastjóri Kaldbaks ehf.
  • Eva Bryndís Helgadóttir, lögmaður hjá LMG lögmönnum
  • Jensína Kristín Böðvarsdóttir, framkvæmdastjóri og meðeigandi Vinnvinn ehf.
  • Sigríður Olgeirsdóttir, stjórnarformaður Nova og varamaður í bankaráði Landsbankans

Skýrslu tilnefningarnefndar má finna hér meðfylgjandi.

Hægt er að tilkynna um framboð til stjórnar skriflega skemmst 5 sólarhringum fyrir aðalfund, þ.e. eigi síðar en kl. 15:00 þann 27. maí 2023. Þegar lögboðinn framboðsfrestur er runninn út, eða minnst tveimur dögum fyrir hluthafafund, verður tilkynnt um endanlegan lista frambjóðenda.

Viðhengi: