AI assistant
Hagar — Proxy Solicitation & Information Statement 2021
May 24, 2021
2196_rns_2021-05-24_4e95bdcb-e223-4332-b687-5b314e3fc7b1.pdf
Proxy Solicitation & Information Statement
Open in viewerOpens in your device viewer
GILDI
Hagar hf.
b.t. stjórnar félagsins
Hagasmára 1
201 Kópavogur
Reykjavík, 23. máí 2021
Breytingartillaga á aðalfundi Haga hf. 3. júní 2021
Með vísan til fundarboðs stjórnar félagsins um aðalfund Haga hf. óskar Gildi-lífeyrissjóður, sem hluthafi í félaginu, eftir því að stjórn félagsins taki eftirfarandi breytingartillögu til umfjöllunar á aðalfundinum.
Dagskrárliður 6: Tillaga stjórnar um kaupréttarkerfi
Breytingartillaga: Lagt er til að heimilt verði úthluta allt að 11.806.246 hlutum, eða sem samsvarar 1% af hlutafé Haga hf. þegar kaupréttarkerfi er samþykkt, í stað 2% samkvæmt tillögu stjórnar um kaupréttarkerfi. Skilmálar verði að öðru leyti óbreyttir miðað við tillögu stjórnar.
Greinargerð með tillögu:
Stjórn Haga hf. leggur til að komið verði á fót kaupréttarkerfi innan félagsins sem ætlað er að tvinna saman hagsmuni lykilstarfsmanna Haga hf. og hluthafa félagsins, með kerfi sem leiðréttir fyrir ávöxtunarkröfu og úthlutun af eignum félagsins. Kaupréttarhafi hagnist ekki á kaupréttarkerfinu nema með aðgerðum sem hafi jákvæð áhrif á hlutabréfaverð til lengri tíma litið og er kerfið pannig upp byggt að mati stjórnar að ekki er litið til skammtímaáhrifa á gengi hlutabréfa í félaginu. Þá er gert ráð fyrir að forstjóra og meðlimum framkvæmdastjórnar verði gert skylt að halda eftir ákveðnum fjölda hluta þar til ákveðnu margfeldi af grunnlaunum er náð, þegar skattar hafa verið dregnir frá, allt til starfsloka hjá félaginu.
Gildi-lífeyrissjóður leggur áherslu á mikilvægi framangreindra atriða í afstöðu sinni varandi kaupréttarkerfið, þ.e. að nýtingarverð kerfisins hækki yfir tíma og að stjórnendur haldi eftir ákveðnum eignarhlut í félaginu. Á hinn bóginn telur sjóðurinn rétt að litið sé til heildarsamhengis launa stjórnenda félagsins við mótun á umfangi kerfisins. Í ljósi fyrirliggjandi upplýsinga um þessi kjör telur sjóðurinn rétt að umfang kaupréttarkerfis verði 1% af hlutafé félagsins í stað 2% samkvæmt tillögu stjórnar félagsins og leggur það til sem breytingartillögu. Tillaga stjórnar verði að öðru leyti óbreytt.
Gildi óskar eftir því að stjórn Haga upplýsi aðra hluthafa félagsins hið fyrsta um þessa breytingartillögu.
Reykjavík, 23. máí 2021
Gildi-lífeyrissjóður
Gildi 515-4700 www.gildi.is