Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar Proxy Solicitation & Information Statement 2021

May 31, 2021

2196_rns_2021-05-31_af0dfe41-8931-42cd-b18a-b09cabe098ad.pdf

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

hagar

Framboð til stjórnar á aðalfundi Haga hf.

  1. júní 2021

Davíð Harðarson (f. 1976)

Davíð hefur setið í stjórn Haga frá 6. júní 2018. Hann er með M.Sc. gráðu í fjármálum frá University of Florida og Cand.Oecon gráðu í fjármálum frá Háskóla Íslands og próf í verðbréfaviðskiptum. Davíð starfar sem fjármálastjóri Nordic Visitor og sem framkvæmdastjóri Magma hótels og situr hann jafnframt í stjórnum þeirra félaga. Davíð var forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Nordic Visitor 2017, framkvæmdarstjóri rekstrar hjá Tommi's Burger Joint 2016 og fjármálastjóri Elkem Ísland 2013-2016. Á árunum 2009-2013 starfaði hann sem verkefnastjóri á fjármálasviði Elkem Ísland. Frá árinu 2004 til 2009 starfaði hann sem framkvæmdastjóri á eignastýringarsviði Landsbanka Íslands og sem sjóðsstjóri á árunum 2000-2003. Davíð á 141.485 hluti í Högum hf. Engir aðilar fjárhagslega tengdir honum eiga hlutabréf í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagsins, samkeppnisaðila eða stóra hluthafa.

Eiríkur S. Jóhannsson (f. 1968)

Eiríkur var kjörinn í stjórn Haga á hluthafafundi þann 18. janúar 2019. Eiríkur er með B.Sc. gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands 1991 og lagði stund á framhaldsnám í fjármálum og alþjóðahagfræði við Vanderbilt University 1992-1994. Eiríkur tók við sem forstjóri Slippsins Akureyri á árinu 2015. Áður var hann framkvæmdastjóri Steinvirkis hf., dótturfélags Glitnis banka frá 2008 og þar áður forstöðumaður og framkvæmdastjóri hjá Baugi Group hf. Á árunum 2004-2005 var Eiríkur forstjóri Og Vodafone hf. og Dagsbrúnar hf. Áður hefur Eiríkur starfað sem forstjóri Fjárfestingafélagsins Kaldbaks, Kaupfélags Eyfirðinga sem og verið svæðisstjóri Landsbanka Íslands. Eiríkur er stjórnarformaður Samherja hf. og Samherja Holding ehf. auk félaga innan samstæða þeirra og annarra smærri félaga. Hann á að baki setu í fjölda stjórna félaga, innanlands sem erlendis í skráðum sem og óskráðum félögum. Eiríkur á engin hlutabréf í Högum hf. beint. Hann er fjárhagslega tengdur Samherja hf. sem á 51.211.948 hluti í Högum hf. Aðrir aðilar fjárhagslega tengdir Eiríki eiga 74.500 hluti í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta- eða samkeppnisaðila Haga.

Eva Bryndís Helgadóttir (f. 1972)

Eva, sem kjörin var í stjórn Haga á aðalfundi 9. júní 2020, er menntaður lögfræðingur (Cand. Jur.) frá Háskóla Íslands og hefur verið starfandi lögmaður frá útskrift, þar af sjálfstætt starfandi frá árinu 2003. Eva öðlaðist réttindi til málflutnings fyrir Hæstarétti árið 2007. Eva starfar á lögmannsstofunni LMB Mandat slf., þar sem hún er einn eigenda. Hún hefur gegnt margvíslegum stjórnunarstörfum þar á meðal verið stjórnarformaður Tryggingamiðstöðvarinnar hf. Eva situr í stjórn Jarðborana hf. Hvorki Eva né aðilar henni fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta- eða samkeppnisaðila Haga hf.


2

Jensína Kristín Bóðvarsdóttir (f. 1969)

Jensína var kjörin í stjórn Haga á aðalfundi 9. júní 2020. Jensína er með MBA gráðu frá University of San Diego með áherslu á markaðsmál og neytendahegðun, og B.Sc. gráðu í auglýsingafræði frá San Jose State University. Jensína er framkvæmdastjóri og eigandi Vinnvinn, ráðningar og ráðgjöf. Þar áður var hún Associate Partner hjá Valcon consulting, alþjóðlegu ráðgjafafyrirtæki. Jensína var framkvæmdastjóri hjá Alvogen, VP Global Strategic Planning & HR, 2015-2019. Þar áður var húm framkvæmdastjóri þróunar og mannaðs hjá Landsbankanum 2010-2015 og forstöðumaður sólá einstaklingssviði Símans 2007-2010. Hún var einnig markaðsstjóri Globus 2004-2007 og framkvæmdastjóri hjá IMG (áður Capacent) 2001-2004. Jensína hefur setið í stjórn Íslandssjóða frá 2016 og er formaður tilnefningarnefnda Símans og VÍS. Áður var Jensína í stjórn Frumtaks 2010-2016, varamaður í stjórn Framtakssjóðs Íslands 2011-2015 og stjórnarmaður og lengst af stjórnarformaður Reiknistofu bankanna 2010-2012. Hvorki Jensína né aðilar henni fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta- og eða samkeppnisaðila Haga.

Katrín Olga Jóhannesdóttir (f. 1962)

Katrín Olga var kjörin í stjórn Haga á hluthafafundi þann 18. janúar 2019. Katrín Olga er með B.Sc. í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands, M.Sc. í viðskiptum frá Odense Universitet og bætti við sig námi í Corporate Finance frá London Business School. Katrín Olga lauk störfum sem formaður Viðskiptaráðs Íslands í febrúar 2020, eftir 4 ár sem formaður ráðsins. Hún hefur gegnt margvíslegum stjórnunarstörfum þar á meðal stjórnarformaður og meðeigandi hjá Já hf, framkvæmdastjóri stjórnunarsviðs Skipta, framkvæmdastjóri einstaklingsmarkaðs Símans, framkvæmdastjóri markaðssviðs Símans og framkvæmdastjóri Navision Software Ísland. Katrín Olga hefur setið í stjórnum til margra ára, þar á meðal í stjórn Icelandair Group, Ölgerðarinnar og Advania. Hún situr nú í háskólaráði Háskólans í Reykjavík, í fjárfestingaráði Akurs fjárfestingasjóðs og stjórn Landsnets. Katrín Olga er eigandi Kría konsulting ehf. Þá á hún sæti í Samráðsvettvangi um aukna hagsæld. Hvorki Katrín Olga né aðilar henni fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta- og eða samkeppnisaðila Haga.