AI assistant
Hagar — Proxy Solicitation & Information Statement 2019
Jan 11, 2019
2196_rns_2019-01-11_b45ebce6-0def-431f-b8d1-1a5483746294.pdf
Proxy Solicitation & Information Statement
Open in viewerOpens in your device viewer
Tillaga tilnefninganefndar um stjórnarmenn í Högum hf.
- janúar 2019
Tilnefninganefnd Haga hf. var kjørin í fyrsta sinn á aðalfundi félagsins 6. júní 2018 og voru starfsreglur fyrir nefndina samþykktar í stjórn 29. október 2018. Í tilefninganefnd eru: Ásta Bjarnadóttir, vinnu- og skipulagssálfræðingur (formaður), Björg Sigurðardóttir, löggiltur endurskoðandi og Símon Á. Gunnarsson, löggiltur endurskoðandi.
Nefndin tók til starfa haustið 2018. Í byrjun desember varð ljóst að boðað yrði til hluthafafundar vegna stjórnarkjörs í janúar 2019. Vinnuferli tilnefninganefndar að þessu sinni ber þess merki að styttri tími var til stefnu en hefðbundið er í aðdraganda aðalfundar.
Í fundarboði vegna hluthafafundar 18. janúar kom fram að óskað væri eftir að tillögur að nöfnum myndu berast tilnefninganefnd eigi síðar en 4. janúar.
Hluti af vinnu tilnefninganefndarinnar í aðdraganda þessa hluthafafundar var að ræða við stærstu hluthafa, stjórnarmenn og forstjóra félagsins. Haft var samband við sex stærstu hluthafana, og þáðu fimm þeirra fund eða símafund, en einn sendi tölvupóst. Fundirnir voru haldnir á tímabilinu 18. desember til 3. janúar. Fundir með stjórnarmönnum voru haldnir á tímabilinu 28. desember til 3. janúar. Fundur með forstjóra var haldinn 28. desember.
Tilnefninganefnd byggir tillögu sína fyrst og fremst á sjónarmiðum um hagsmuni félagsins, hæfni, reynslu og þekkingu stjórnarmanna, leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja og að samsetning stjórnarinnar uppfylli viðmið góðra stjórnarhátta og ákvæði hlutafélagalaga um kynjahlutföll í stjórnum (sjá nánar í 3. gr. starfsreglna tilnefninganefndar Haga).
Varðandi mat á einstökum stjórnarmönnum var horft einkum til eftirfarandi hæfniviðmiða:
- Reynsla af fjármálum
- Rekstrarreynsla
- Lögfræðiþekking
- Reynsla af rekstri eigin félaga
- Reynsla af stafrænnir þróun
- Reynsla af smásöluverslun
- Reynsla af stjórnarsetum
- Reynsla af fasteignamarkaði
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi stjórnar
Einnig var horft til samsetningar stjórnarinnar, og komu þar m.a. eftirfarandi sjónarmið til álita:
- Að lágmarks fjöldi stjórnarmanna væri óháður félaginu
- Að stjórninn hefði fjölbreyttan menntunarbakgrunn
- Að uppfylla ákvæði hlutafélagalaga um kynjahlutföll í stjórnum
- Að viðhalda stöðugleika í rekstri Haga, þ.e.a.s. að ekki verði skipt um of marga stjórnarmenn í einu.
Kristín Friðgeirsdóttir formaður stjórnar Haga og Sigurður Arnar Sigurðsson varaformaður stjórnar upplystu tilnefninganefndina um þá ákvörðun sína að gefa ekki kost á sér til endurkjörs í stjórnina. Því var ljóst að um yrði að ræða talsverða endurnýjun í stjórninni að þessu sinni.
Eins og áður segir var óskað eftir að áhugasamir aðilar myndu upplýsa tilnefninganefnd um þann áhuga eigi síðar en 4. janúar. Um 10 aðilar gáfu sig fram við tilnefninganefndina, ýmist með formlegu framboði eða óformlegri tilkynningu.
Að teknu tilliti til ofangreindra sjónarmiða leggur tilnefninganefnd til að eftirtaldir aðilar verði kosnir í stjórn félagsins:
Davíð Harðarson (f. 1976): Davíð hefur setið í stjórn Haga frá 6. júní 2018. Hann er með M.Sc- gráðu í fjármálum frá University of Florida og Cand.Oecon gráðu í fjármálum frá Háskóla Íslands og próf í verðbréfaviðskiptum. Davíð starfar sem fjármálastjóri Nordic Visitor og sem framkvæmdastjóri Magma hótels og situr hann jafnframt í stjórnum þeirra félaga. Davíð var forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Nordic Visitor 2017, framkvæmdarstjóri rekstar hjá Tommi's Burger Joint 2016 og fjármálastjóri Elkem Ísland 2013-2016. Á árunum 2009-2013 starfaði hann sem verkefnastjóri á fjármálasviði Elkem Ísland. Frá árinu 2004 til 2009 starfaði hann sem framkvæmdastjóri á eignastýringarsviði Landsbanka Íslands og sem sjóðsstjóri á árunum 2000-2003. Davíð á 29.485 hluti í Högum hf. Engin aðilar fjárhagslega tengdir honum eiga hlutabréf í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagsins, samkeppnisaðila eða stóra hluthafa.
Eiríkur S. Jóhannsson (1968): Eiríkur er með B.Sc.-gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands 1991 og lagði stund á framhaldsnám í fjármálum og alþjóðahagfræði við Vanderbilt University 1992-1994. Eiríkur tók við sem forstjóri Slippsins Akureyri á árinu 2015. Áður var hann framkvæmdastjóri Steinvirkis hf., dótturfélags Glitnis banka frá 2008 og þar áður forstöðumaður og framkvæmdastjóri hjá Baugi Group hf. Á árunum 2004-2005 var Eiríkur forstjóri Og Vodafone hf. og Dagsbrúnar hf. Áður hefur Eiríkur starfað sem forstjóri Fjárfestingafélagsins Kaldbaks, Kaupfélags Eyfirðinga sem og verið svæðisstjóri Landsbanka Íslands. Eiríkur er stjórnarformaður Samherja hf og Samherja Holding ehf. auk félaga innan samstæða þeirra og annara smærri félaga. Hann á að baki setu í fjölda stjórna félaga, innanlands sem erlendis í skráðum sem og óskráðum félögum.
Erna Gísladóttir (f. 1968): Erna var fyrst kjörin í stjórn Haga þann 1. mars 2010. Hún er með MBA-gráðu frá IESE í Barcelona og B.Sc.-gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands. Erna er forstjóri og eigandi BL ehf. og er ræðismaður Suður Kóreu á Íslandi. Erna var forstjóri Bifreiða & landbúnaðarvéla hf. 2003-2008 og einn af eigendum þess félags, en hún var framkvæmdastjóri hjá B&L 1991-2003. Erna situr í stjórnum eftirtalinna félaga: Eldhúsvörur ehf., BLIH eignarhald hf., Sjóvá-Almennar tryggingar hf., EGG ehf., BL ehf., EGG fasteignir ehf. (varamaður) og Hregg ehf. (varamaður). Erna á engin hlutabréf í Högum hf.
beint. Hún er fjárhagslega tengd Sjóvá-Almennum tryggingum hf. sem eiga 6.888.889 hluti í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta- eða samkeppnisaðila Haga.
Katrín Olga Jóhannesdóttir (f. 1962)
Katrín Olga er með BS í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands, Ms í viðskiptum frá Odense Universitet og bætti við sig námi Corporate Finance frá London Business School. Katrín Olga er formaður Viðskiptaráðs Íslands. Hún hefur gengt margvíslegum stjórnunarsstörfum þar á meðal stjórnarformaður og meðeigandi hjá Já hf, framkvæmdastjóri Stjórnunarsviðs Skipta, framkvæmdastjóri Einstaklingsmarkaðs Símans, framkvæmdastjóri Markaðssviðs Símans og framkvæmdastjóri Navision Software Ísland. Katrín Olga hefur setið í stjórnum til margra ár, þar á meðal í stjórn Icelandair Group, Ölgerðarinnar og Advania. Hún situr nú í háskólaráði Háskólans í Reykjavík, í fjárfestingaráði Akurs fjárfestingasjóð og er í stjórn Travelade nýsköpunarfélags. Þá er hún varaformaður Samráðsvettvangs um auka hagsæld. Hvorki Katrín Olga né aðilar henni fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum. Engin hagsmunategsl eru við helstu viðskipta- og eða samkeppnisaðila Haga.
Stefán Árni Auðólfsson (f. 1972)
Stefán Árni var fyrst kjörinn í stjórn Haga þann 7. júní 2013. Hann er menntaður lögfræðingur (Cand. jur) frá Háskóla Íslands og er með framhaldsmenntun frá Háskólanum í Kent í Bretlandi. Stefán Árni er með réttindi sem héraðsdómslögmaður og próf í verðbréfaviðskiptum. Stefán Árni starfar sem lögmaður hjá LMB lögmönnum slf. Stefán Árni hefur áður sinnt störfum hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins 2005-2011, á nefndasviði Alþingis 2003-2005 og hjá Fortis lögmannsstofu 1999-2002. Stefán Árni situr í stjórnum eftirtalinna félaga: Hváll ehf., Síminn hf., Gamli Byr eignarhaldsfélag ehf., Egla hf. og GGX ehf. (varamaður). Hvorki Stefán Árni né aðilar honum fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta- eða samkeppnisaðila Haga.
Reykjavík 11. janúar 2019,

Ásta Bjarnadóttir

Björg Sigurðardóttir

Símon Á. Gunnarsson