AI assistant
Hagar — Proxy Solicitation & Information Statement 2019
Jan 11, 2019
2196_rns_2019-01-11_f39a187b-64ec-4cf8-9d91-b6774de5102c.pdf
Proxy Solicitation & Information Statement
Open in viewerOpens in your device viewer
hagar
Framboð til stjórnar á hluthafafundi Haga hf.
18. janúar 2019
Davíð Harðarson (f. 1976)
Davíð var fyrst kjörinn í stjórn Haga hf. þann 6. júní 2018. Davíð er með M.Sc- gráðu í fjármálum frá University of Florida og Cand.Oecon gráðu í fjármálum frá Háskóla Íslands og próf í verðbréfaviðskiptum. Davíð starfar sem fjármálastjóri Nordic Visitor. Hann situr jafnframt í stjórn félagsins og í stjórn Magna hótels. Davíð var forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Nordic Visitor 2017, framkvæmdastjóri rekstar hjá Tommi's Burger Joint 2016 og fjármálastjóri Elkem Ísland 2013-2016. Á árunum 2009-2013 starfaði hann sem verkefnastjóri á fjármálasviði Elkem Ísland. Frá árinu 2004 til 2009 starfaði hann sem framkvæmdastjóri á eignastýringarsviði Landsbanka Íslands og sem sjóðsstjóri á árunum 2000-2003. Davíð á 29.485 hluti í Högum hf. Engin aðilar fjárhagslega tengdir honum eiga hlutabréf í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagsins, samkeppnisaðila eða stóra hluthafa.
Eiríkur S. Jóhannsson (f. 1968)
Eiríkur er með B.Sc.-gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og lagði stund á framhaldsnám í fjármálum og alþjóðahagfræði við Vanderbilt University. Eiríkur tók við sem forstjóri Slippsins á Akureyri á árinu 2015. Áður var hann framkvæmdastjóri Steinvirkis hf., dótturfélags Glitnis banka frá 2008, og þar áður forstöðumaður og framkvæmdastjóri hjá Baugi Group hf. Á árunum 2004-2005 var Eiríkur forstjóri Og Vodafone hf. og Dagsbrúnar hf. Áður hefur Eiríkur starfað sem forstjóri Fjárfestingafélagsins Kaldbaks, Kaupfélags Eyfirðinga sem og verið svæðisstjóri Landsbanka Íslands. Eiríkur er stjórnarformaður Samherja hf. og Samherja Holding ehf. auk félaga innan samstæðu þeirra. Hann er stjórnarmaður í Dysnesi þróunarfélagi og varamaður í Íslenskum Verðbréifum. Eiríkur er í stjórn og varastjórn Litá ehf., Heir ehf. og Fjárhúsa ehf. Eiríkur á engin hlutabréf í Högum hf. beint. Hann er fjárhagslega tengdur Samherja hf. sem á 112.343.738 hluti í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagsins og samkeppnisaðila.
Erna Gísladóttir (f. 1968)
Erna var fyrst kjörinn í stjórn Haga hf. þann 1. mars 2010. Hún er með MBA-gráðu frá IESE í Barcelona og B.Sc.-gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands. Erna er forstjóri og eigandi BL ehf. og er ræðismaður Suður-Kóreu á Íslandi. Erna var forstjóri Bifreiða & landbúnaðarvéla hf. 2003-2008 og einn af eigendum þess félags, en hún var framkvæmdastjóri hjá B&L 1991-2003. Erna situr í stjórnum eftirtalinna félaga: Eldhúsvörur ehf., Sjóvá-Almennar tryggingar hf., EGG ehf., BL ehf., EGG fasteignir ehf., Umbreytingar slhf. og Hregg ehf. (varamaður). Erna á engin hlutabréf í Högum hf. beint. Hún er fjárhagslega tengd Sjóvá-Almennum tryggingum hf. sem eiga 6.888.889 hluti í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagsins, samkeppnisaðila eða stóra hluthafa.
Jón Ásgeir Jóhannesson (f. 1968)
Jón Ásgeir stundaði nám við Verslunarskóla Íslands. Hans aðalstarf í dag er fjárfestir. Jón Ásgeir stofnaði Bónus árið 1989 ásamt föður sínum. Hann starfaði sem forstjóri og stjórnarformaður Haga og Baugs Group auk þess sem hann hefur sinnt stjórnunarstörfum í fjölmörgum félögum, m.a. Iceland Foods og Magazin du Nord. Jón Ásgeir er varamaður í stjórn 365 miðla hf. Jón Ásgeir á engin hlutabréf í Högum hf. beint. Aðilar honum fjárhagslega tengdir eiga um 53 milljónir hluta í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagins og samkeppnisaðila.
Katrín Olga Jóhannesdóttir (f. 1962)
Katrín Olga er með Cand.Oecon.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands, M.Sc.-gráðu í viðskiptum frá Odense Universitet og nám í corporate finance við London Business School. Katrín Olga er formaður Viðskiptaráðs Íslands. Hún hefur gegnt margvíslegum stjórnunarstörfum, þar á meðal stjórnarformaður og meðeigandi Já hf., framkvæmdastjóri stjórnunarsviðs Skipta, framkvæmdastjóri einstaklingsmarkaðs Símans, framkvæmdastjóri markaðssviðs Símans og framkvæmdastjóri Navision Software Ísland. Katrín Olga situr í háskólaráði Háskólans í Reykjavík, í fjárfestingaráði Akurs fjárfestingasjóðs, í stjórn Travelade ehf. og er varaformaður samráðsvettvangs um aukna hagsæld. Katrín Olga hefur setið í stjórnum margra fyrirtækja, þar á meðal í stjórn Icelandair Group, Ölgerðarinnar og Advania. Hvorki Katrín Olga né aðilar henni fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagsins, samkeppnisaðila eða stóra hluthafa.
Kristján Óli Niels Sigurmundsson (f. 1991)
Kristján Óli lauk bílamálun árið 2011 og verslunarbraut árið 2012. Hann starfar sem bifreiðastjóri og fjárfestir. Auk þess situr hann í fulltrúaráði og kjördæmaráði Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ. Á árunum 2007-2015 starfaði Kristján Óli við verslunarstörf og frá árinu 2015 hefur hann starfað við bifreiðastörf. Hvorki Kristján Óli né aðilar honum fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagsins, samkeppnisaðila eða stóra hluthafa.
Stefán Árni Auðólfsson (f. 1972)
Stefán Árni var fyrst kjörinn í stjórn Haga hf. þann 7. júní 2013. Hann er menntaður lögfræðingur (Cand. jur) frá Háskóla Íslands og er með framhaldsmenntun frá Háskólanum í Kent í Bretlandi. Stefán Árni er með réttindi sem héraðsdómslögmaður og próf í verðbréfaviðskiptum. Stefán Árni starfar sem lögmaður hjá LMB lögmönnum slf. Stefán Árni hefur áður sinnt störfum hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins 2005-2011, á nefndasviði Alþingis 2003-2005 og hjá Fortis lögmannsstofu 1999-2005. Stefán Árni situr í stjórnum eftirtalinna félaga: Hváll ehf., Porpið – Vistfélag ehf., Gamli Byr eignarhaldsfélag ehf., Egla hf. og GGX ehf. (varamaður). Hvorki Stefán Árni né aðilar honum fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagsins, samkeppnisaðila eða stóra hluthafa.