AI assistant
Hagar — Proxy Solicitation & Information Statement 2018
Dec 21, 2018
2196_rns_2018-12-21_d7fb33af-c801-4db9-8715-d72d33205ad2.pdf
Proxy Solicitation & Information Statement
Open in viewerOpens in your device viewer
hagar
Hluthafafundur Haga hf. 18. janúar 2019
Hluthafafundur Haga hf., kt. 670203-2120, verður haldinn föstudaginn 18. janúar 2019 og hefst hann kl. 09:00 á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2 í Reykjavík.
Dagskrá fundarins:
- Kosning stjórnar félagsins
- Önnur mál
Endanleg dagskrá og tillögur verða birtar föstudaginn 11. janúar nk. Hluthófum er bent á að óski þeir eftir að fá mál sett á dagskrá eða leggja fram ályktunartillögur á fundinum þarf að beina því skriflega og í endanlegu formi til félagsstjórnar eigi síðar en 10 dögum fyrir fund (þriðjudaginn 8. janúar nk.) á netfangið [email protected], eins og kvedið er á um í 1. og 2. mgr. 86. gr. hlutafélagalaga, sbr. lög nr. 2/1995. þeim sem gefa vilja kost á sér til setu í stjórn Haga hf. er bent á að tilkynna Það skriflega til tilnefningarnefndar Haga eigi síðar en kl. 16:00 Þann 4. janúar 2019, á netfangið [email protected]. Tillögur tilnefningarnefndar um frambjódendur til stjórnar verða tilkynntar þann 11. janúar nk.
Ítarlegri upplysingar er að finna á vefsíðu félagsins,
http://www.hagar.is/fjarfestaupplysingar/hluthafafundir/
Stjórn félagsins vill árétta að forsvarsmenn hluthafa sem sækja fundinn, Þ.e. forsvarsmenn fyrirtækja, lífeyrissjóða, fjárfestingasjóða, einstaklinga eða annarra hluthafa, ber að skila umboði við skráningu inn á fundinn. Einnig verða einstaklingar beðnir um að framvísa persónuskilríkjum.
Stjórn Haga hf.