AI assistant
Hagar — M&A Activity 2024
Sep 26, 2024
2196_rns_2024-09-26_c5e28dfa-590e-4a96-849c-e97ceef70ad9.html
M&A Activity
Open in viewerOpens in your device viewer
Hagar hf.: Ákvörðun um að hefja formlegt söluferli á eignarhlutum Olís og Festi í Olíudreifingu ehf.
Hagar hf.: Ákvörðun um að hefja formlegt söluferli á eignarhlutum Olís og Festi í Olíudreifingu ehf.
Í tilkynningu Haga frá 10. apríl 2024 var meðal annars greint frá því að Olís, dótturfélag Haga, og Festi hefðu komist að samkomulagi um að hefja undirbúning sölumeðferðar á eignarhlutum félaganna í Olíudreifingu ehf.
Í framhaldi af þeim undirbúningi hafa Olís og Festi ákveðið að hefja formlegt söluferli á eignarhlutum félaganna í Olíudreifingu.
Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hefur verið falin umsjón með söluferlinu og veitir frekari upplýsingar um ferlið í gegnum netfangið [email protected].
Nánar verður upplýst um framvindu ferlisins um leið og tilefni er til.
Olíudreifing er 40% í eigu Olís og 60% í eigu Festi. Félagið er mikilvægt innviðafélag hvað varðar birgðahald og dreifingu á eldsneyti á Íslandi.
