Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar Investor Presentation 2023

Apr 28, 2023

2196_rns_2023-04-28_a29dbfa7-530f-4925-904f-0a8b3f3f7039.pdf

Investor Presentation

Open in viewer

Opens in your device viewer

hagar

Kynning á niðurstöðum 4. ársfjórðungs og ársuppgjöri 2022/23

Finnur Oddsson, forstjóri
Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs

  1. apríl 2023

hagar

Yfirlit

Fréttir af starfsemi

Fjárhagsuppgjör

Staða og horfur

2


3

Fjórðungur í hnotskurn: Lykiltölur

4F 2022/23 (breyting frá 4F 2021/22)

| 40,2 ma. kr.
vörusala

▲ 13,8% | 2,4 ma. kr.
EBITDA

▼ 1,5% | 0,7 ma. kr.
hagnaður

▲ 1,5% |
| --- | --- | --- |
| 19,3%
framlegðarhlutfall

▼ 1,4%stig | 13,7%
launa- og kostnaðarhlutfall

▼ 0,5%stig | 38,8%
eiginfjárhlutfall

▼ 2,2%stig |


Árið í hnotskurn: Lykiltölur

12M 2022/23 (breyting frá 12M 2021/22)

| 162,0ma. kr.
vörusala
▲ 19,3% | 12,0ma. kr.
EBITDA
▲ 14,5% |
4,9ma. kr.
hagnaður
▲ 23,7% |
| --- | --- | --- |
|
19,1%
framlegðarhlutfall
▼ 1,8%stig |
12,9%
launa- og kostnaðarhlutfall
▼ 0,9%stig |
38,8%*
eiginfjárhlutfall
▼ 2,2%stig |

  • Áhrif einskiptisliða um 1,4 ma. kr.

Þetta stendur upp úr á fjórðungnum

  • Starfsemi Haga gekk vel á fjórðungnum, sérstaklega þegar horft er til þess hve krefjandi rekstrarumherfi í smásölu hefur verið – vond blanda verðhækkana og aukins rekstrarkostnaðar
  • Mjög miklar hækkanir á verði aðfanga frá heildsölum og framleiðendum á 4F - sérstök áhersla á hagkvæmni í innkaupum og rekstri til að sporna við verðhækkunum
  • Áfram aukin umsvif í dagvöruverslun og heimsóknum og seldum stykkjum fjölgar – heildarsala eldsneytislítra dregst saman vegna samdráttar í sölu til stórnotenda
  • Framlegð í krónum eykst á milli ára en framlegðarhlutfall samstæðu lækkar – Hagar veita baráttu við verðbölgu lið
  • Hagar náðu samkomulag um kaup á Dista ehf. en Dista er heildverslun með áfengar og óáfengar drykkjavörur – fyrirvari um áreiðanleikakönnun og samþykki SE
  • Fjórðungurinn nýttur vel, eins og árið, í að styrkja rekstur Haga til framtiðar, m.a. með stafræni vegferð, samvinnu við Klasa, frekari útvíkkunar Eldum rétt og þróun nýjunga fyrir verslanir

img-0.jpeg

BÓNUS

HAGKAUP

olis

BANNAR

STÓRKAUP

ELDUM RÉTT

ZNA

img-1.jpeg

img-2.jpeg


Verslanir og vöruhús: Aukin umsvif en afkoma svipuð og á fyrra ári

Rekstrarreikningur 4F 2022/23 (m.kr.)

  • Tekjur af dagvöru, sérvoru og vöruhús um jukust um rúm 13% á milli ára og námú 28,7 ma. kr. - EBITDA var tæplega 2,1 ma. kr. (7,3%)
  • EBITDA lækkar um 5% í samanburði við 4F 2021/22
  • Mestu verðhækkanir frá heildsölum og framleiðendum sem sést hafa í seinni tíð – áhrif stríðs að koma fram í hækkuðu aðfangaverði
  • Verðbólga matvöru á 4F lægst á Íslandi (um 10%) af Norðurlöndum (12-20%) og með því lægsta í Evrópu (meðaltal ~18%)
  • Nýtt innkaupamynstur í dagvöru áberandi – fleiri viðskiptavinir leita ódýrari valkosta í stað merkjavöru
  • Seldum stykkjum í dagvöruverslunum fjölgar nokkuð og heimsóknum mikið - jólaverslun gekk vel þrátt fyrir mikla aukningu í utanlandsferðum yfir hátiðirnar
  • Metfjöldi heimsendinga í Eldum rétt og „Einstakir réttir“ komnir í verslanir Hagkaups
4F '22/23 4F '21/22 Δ
Tekjur 28.706 25.355 3.351 +13,2%
Rekstrargjöld -26.603 -23.148 -3.455 +14,9%
EBITDA 2.103 2.207 -104 -4,7%
EBITDA-hlutfall 7,3% 8,7% -1,4% -15,8%
EBIT 1.246 1.272 -26 -2,0%
EBIT-hlutfall 4,3% 5,0% -0,7% -13,5%

BÓNUS

HAGKAUP

A b r ó n g

Bananar

STÓRKAUP!

ELDUM RÉTT

ZNA


Bónus: Stærsta ár í sögunni og nýjungar framundan

  • Vörusala á 4F nam tæplega 19,4 ma. kr. og jókst um 14% frá fyrra ári - stærsta ár í sögu Bónus með vörusölu yfir 73 ma. kr.
  • Mikill meðbyr með Bónus eftir jákvæðar breytingar - uppfærsla verslana, lengri opnunartími og aukin afköst við afgreiðslu
  • Viðskiptavinum og seldum stykkjum fjölgar áfram tölúvert á milli ára (4F) – hagkvæmasta matvörukarfan vegur þungt í núverandi efnahagsástandi
  • Veltuaukning styður við afkomu en framlegðarhlutfall hefur dregist saman – mjög miklar verðhækkanir frá birgjum og veikara gengi
  • Bónus sem fyrr oftast með lægsta vöruverð samkvæmt könnunum
  • Áhugaverð framþróun á næstu víkum – nýjar verslanir og lausnir sem bæta upplifun viðskiptavina

img-3.jpeg

img-4.jpeg

img-5.jpeg

img-6.jpeg


Hagkaup: Bætt netverslun, nýjar þjónustur og samstarfsáðilar

  • Vörusala á 4F nam tæpum 6,6 ma. kr. og jókst um 5% frá fyrra ári – seldum stykkjum fækkar á milli ára en heimsóknum viðskiptavina fjölgar
  • Jólaverslun gekk sérlega vel þrátt fyrir aukin ferðalög landsmanna til útlanda
  • Vefverslun Hagkaups hefur mælst vel fyrir – meira en 10.000 pantanir sóttar á haustmánuðum
  • Flestar verslanir Hagkaups komnar í uppfært útlit og kolsýruvæðingu kælibúnaðar að ljúka – Hagkaup verður fyrsta 100% kolsýruvædda verslunarkeðja landsins
  • Glæsilegasta snyrtivöruverslun landsins sækir fram á umhverfisvænan hátt – ný Sóley áfyllingarstöð
  • Margvísleg spennandi þjónusta og nýjungar – íslenskir smáframleiðendur í sviðsljósi, sælkeradagar, Sælkerabúðin, 17 Sortir, Veisluhorn, Partýdeild, Lemon staðir í fjórum verslunum Hagkaups, o.s.frv.
  • Hagkaup vinnur með góðum málfnum – styrkir til Krabbameinsfélagsins, skipulags- og lestrarátak með grunnskólabörnum með Oreo, styrkur við Orðalykil, o.fl.

img-7.jpeg
HAGKAUP

img-8.jpeg

img-9.jpeg

img-10.jpeg

img-11.jpeg


Olís: Sterkur fjórðungur og ár – afrakstur hagræðingar (1/2)

Rekstrarreikningur 4F 2022/23 (m.kr.)

  • Tekjur á 4F námu 11,9 ma. kr. og jukust um 13% á milli ára - EBITDA nam 303 m.kr. (2,5%), sem er nokkuð umfram fyrra ár
  • Aukin sala á smásölumarkaði í eldsneyti og þurrvöru, en mikill samdráttur í sölu til stórnotenda – heildarsala í eldsneytislítrum dróst saman
  • Góð afkoma á fjórðungi og ári er m.a. afrakstur fjögurra samvirkandi þátta
  • Breyttar áherslur og hagræðingar í starfsemi síðustu 2 ár – launakostnaður lækkar, hagkvæmari rekstur stöðva og skilvirkari þjónusta við stórnotendur
  • Mikil eftirspurn vegna umsvifa stórnotenda og sterkrar smásölu samhliða fjölgun ferðamanna
  • Virk birgðastýring og gjaldmiðlavarnir, samhliða hækkun á heimsmarkaðsverði olíu skiluðu sterkri framlegð í sölu til stórnotenda
  • Einskiptis söluhagnaður eigna m.a. tengt kaupum Haga á hlut í fasteignarþróunarfélaginu Klasa
4F '22/23 4F '21/22 Δ
Tekjur 11.929 10.568 1.361 +12,9%
Rekstrargjöld -11.626 -10.333 -1.293 +12,5%
EBITDA 303 235 68 +28,9%
EBITDA-hlutfall 2,5% 2,2% +0,3% +14,2%
EBIT 132 1 131 +13100,0%
EBIT-hlutfall 1,1% 0,0% +1,1% +11594,0%

img-12.jpeg

img-13.jpeg


olis

Olís: Sterkur fjórðungur og ár – afrakstur hagræðingar (2/2)

Rekstrarreikningur 4F 2022/23 (m.kr.)

  • Einföldun á útibúaneti fyrirtækjasviðs sem farið var í fyrr á rekstrarárinu áfram að skila góðum árangri
  • Stórkaup var stofnað á grunni valinna vöruflokka fyrirtækjasviðs og hefur rekstur farið vel af stað
  • Umbreyting þjónustustöðva Olís er langt komin og mælist vel fyrir – bætt þjónustuupplifun og jákvæð áhrif á sölu
  • Lemon mini orðið hluti af fersku og fjölbreyttu veitingaframboði á átta Olís stöðvum – samtvinnað tekstri þjónustustöðva

img-14.jpeg

img-15.jpeg

img-16.jpeg

img-17.jpeg

img-18.jpeg

img-19.jpeg


Baksýnisspegillinn: Afrakstur breyttra áherslna sjáanlegur á árinu

  • Á rekstrarárinu sem leið sáum við afrakstur breyttra áherslna hjá Högum raungerast í starfsemi félagsins
  • Þessar breytingar höfðu jákvæð áhrif á rekstur, með betri þjónustu við viðskiptavini, nýjum tekjustraumum og áhugaverðum tækifærum til framtíðar

...fórum yfir nokkur valin dæmi á síðunum hér að aftan

img-20.jpeg


Baksýnisspegillinn: Stafræn vegferð bætir þjónustu og eykur skilvirkni

  • Sérstök áhersla á stafræna vegferð hjá Högum og dótturfélögum - snertir á mörgum og mismunandi þáttum í starfsemi, meðal annars:
  • Innleiðing á uppfærðum og/eða nýjum UT-kerfum og ferlum, t.d. vöruhúsa- og fjárhagskerfi, sem einfalda starfsemi og skapa grundvöll til framþróunar
  • Netverslun (t.d. fyrir Hagkaup og Stórkaup) skapar grunn fyrir önnur stafræn verkefni og bætir þjónustu við viðskiptavini með aukinni þekju
  • Einfaldaðir og bættir innri verkferlar og vinnubrögð, t.d. með innleiðingu á sjálfvirkum innkaupum, birgðastýringarkerfum, „bottum“, o.fl.
  • Nýtt greiðslu- og kortakerfi fyrir Haga verslanir sem byggir á innlendri heimildaleit

img-21.jpeg


Baksýnisspegillinn: Eldum rétt ein stærsta netverslun landsins með mat

  • Eldum rétt varð hluti af samstæðu Haga í nóvember 2022
  • Kaupin voru liður í viðleitni Haga til að bregðast við breyttum þörfum viðskiptavina með aukinni áherslu á hollar, einfaldar og tímasparandi lausnir þar sem matarsóun er í lágmarki
  • Fáar lausnir sem uppfylla jafn vel þessar þarfir viðskiptavina og lausnir Eldum rétt
  • Síaukin eftirspurn eftir þjónustu félagsins, fyrst og fremst með áskrift í netverslun og núna nýlega í sölu „Einstakra rétta“ í Hagkaup
  • Eldum rétt orðin ein stærsta netverslun landsins með matvöru

img-22.jpeg


Baksýnisspegillinn: Klasi farvegur fyrir þróunarverkefni og ný tækifæri

  • Á árinu var þróunar- og fasteignaverkefnum Haga komið í farsælan farveg hjá Klasa sem Hagar eiga nú í þriðjungs hlut
  • Markmiðið er að flýta fyrir verðmætasköpun á grunni þróunareigna samstæðunnar, skapa ný tækifæri sem tengjast öðrum eignum Klasa og gera stjórnendum Haga kleift að einbeita sér fyrst og fremst að kjarnarekstri í dagvöru og eldsneyti
  • Framundan eru spennandi verkefni við uppbyggingu eigna Klasa, þar sem vænt byggingarmagn núverandi verkefna er riflega 300.000 m², þar af allt að 1.500 íbúðir

img-23.jpeg


Baksýnisspegillinn: Önnur atriði

  • Stórkaup: Stofnun á nýju fyrirtæki með áherslu á stórnotendur, og þá sér í lagi með áherslu á rekstrar-, heilbrigðis- og hreinlætisvörur – uppbygging gengið vel og því hefur matvöru nýlega verið bætt við starfsemina
  • Aðföng og Bananar: Mikil vinna við að styrkja innviði með umbótum í gæðaferlum, vöruþróun, upplýsingatækni og stækkun vöruhúsa – þessar einingar Haga myndá mikilvægt bakbein aðfanga- og dreifinets Haga sem hagkvæmur rekstur verslana okkar byggir á
  • Samfélagsspor: Góður árangur hefur náðst í að styrkja jákvætt samfélagsspor Haga, en þar hefur áhersla verið á að skerpa á frammistöðu í umhverfis- og sjálfærnimálum, m.a. með aukinn flokkun og nýtingu umhverfisvænna kælimiðla í verslunum, stuðningi við frumkvöðlastarf í matvæla framleiðslu og önnur góð málefni

img-24.jpeg


16

Framrúðan: Framrúðan er stærri en baksýnisspegillinn

  • Þrátt fyrir að það sé gaman að rifja upp árangur síðasta árs er ekki síður mikilvægt að horfa fram á veginn en þar er margt á teikniborðinu
  • Verkefnin raðast mislangt fram í tímann, en nokkur verða sett í loftið á næstu víkum

...fórum yfir nokkur valin dæmi á síðunum hér að aftan

img-25.jpeg


17

Framrúðan: Veisluréttir Hagkaups meðal fjöldamargra nýjunga

  • Veisluréttir Hagkaups verða formlega kynntir til leiks á næstu víkum en um er að ræða frábæra viðbót fyrir viðskiptavini
  • Veisluréttir munu m.a. nýtast viðskiptavínum við undirbúning á veislum, fundum, eða stærri viðburðum, en hægt verður að panta veitingar í gegnum vefverslun og fá þær sendar á fyrirfram ákveðnum tíma
  • Valdar vörur úr núverandi framboði Hagkaups verða í boði, en einnig er verið að kynna mikið af nýjum veisluréttum til leiks

img-26.jpeg

img-27.jpeg

img-28.jpeg

VEISLURÉTTIR
V.af. Kotturðn ínverð varráljinns við þrör.

img-29.jpeg


18

Framrúðan: Nýjar verslanir Bónus á sterkum staðsetningum

  • Tvær nýjar verslanir Bónus opna á sumarmánuðum, önnur í staðinn fyrir gamla en hin á nýju markaðssvæði
  • Gamalli verslun Bónus í Holtagörðum verður lokað og ný og töluvert stærri verslun verður opnuð á betri stað í húsinu
  • Ný verslun Bónus verður opnuð í Norðlingaholti – frábær staðsetning fyrir íbúa í Norðlingaholti og nærliggjandi hverfum en einnig „síðasta stopp áður en farið er austur úr bænum“

img-30.jpeg


19

Framrúðan: „Gripið & Greitt“ mun bæta innkaupaupplifun landsmanna

  • Bónus mun kynna „Gripið & Greitt“ til leiks fyrir viðskiptavini á næstu víkum þegar „Gripið & Greitt“ lausn Haga verður innleidd í fyrstu verslunum
  • Þróun hefur staðið yfir í nokkurn tíma og mun G&G bæta þjónustuupplifun og auka á þægindi viðskiptavina til muna – einföld innskráning, handskannar í verslun, skannað beint í poka, snjallvogir fyrir ferskvöru, greitt eftir þyngd, innkaupalistar, innkaupasaga, greiningar, o.fl.
  • Lausnin verður fljótlega innleidd í verslun Bónus á Smáratorgi og í framhaldinu í fleiri verslunum
  • Þróun G&G stuðlar jafnframt að umbótum í ferulum og kerfum og búa þannig félagið undir frekari framþróun

img-31.jpeg


hagar
20

Yfirlit

Fréttir af starfsemi

Fjárhagsuppgjör

Staða og horfur


Góð veltuaukning á 4F og hagnaður hækkar lítillega

Rekstrarreikningur 4F 2022/23 (m.kr.)

  • Vörusala 4F jókst um 13,8% milli ára eða um 4,9 ma. kr.
  • Framlegð í krónum talið jókst um 447 m.kr. eða 6,1% en framlegðarhlutfallið lækkaði um 1,4%-stig, úr 20,7% í 19,3%
  • Laun hækkuðu töluvert á fjórðungnum, bæði vegna meiri umsvifa hjá Bónus en ekki síður vegna áhrifa kjarasamninga
  • Annar rekstrarkostnaður hækkaði lítillega eða um 2,1% milli ára
  • EBITDA 4F nam 2.406 m.kr. og lækkaði um 1,5% milli ára
  • Hagnaður nam 735 m.kr. og hækkaði um 1,5% milli ára
4F '22/23 4F '21/22 Δ
Vörusala 40.160 35.288 4.872 +13,8%
Framlegð 7.739 7.292 447 +6,1%
Aðrar rekstrartekjur 179 171 8 +4,7%
Laun og launatengd gjöld -3.886 -3.428 -458 +13,4%
Annar rekstrarkostnaður -1.626 -1.593 -33 +2,1%
EBITDA 2.406 2.442 -36 -1,5%
Afskriftir -1.248 -1.234 -14 +1,1%
Hrein fjármagnsgjöld -503 -399 -104 +26,1%
Hagnaður 735 724 11 +1,5%

Sterkur rekstur í krefjandi umhverfi

Rekstrarreikningur 12M 2022/23 (m.kr.)

  • Fjöldi seldra stykka í dagvöruverslunum jókst nokkuð á árinu og heimsóknum viðskiptavina fjölgaði sömuleiðis
  • Seldum eldsneytislítrum fækkaði lítillega – minnkun í sölu lítra til stórnotenda en aukning í smásölu á árinu
  • Framlegðarhlutfall í dagvöru hefur lækkað en áhrifin mest vegna lækkunar í eldsneytishluta samstæðunnar
  • Einskiptisliðir hafa áhrif á árinu og námu um 1,4 ma. kr. en voru 349 m.kr. á fyrra ári
  • Launakostnaður og annar rekstrarkostnaður hækkuðu mikið á árinu, einkum vegna áhrifa kjarasamninga og verðbólgu
  • EBITDA án einskiptisliða hækkaði um 4,5% milli ára og hagnaður um 2,5%
12M '22/23 12M '21/22 Δ
Vörusala 161.992 135.758 26.234 +19,3%
Framlegð 30.987 28.441 2.546 +9,0%
Aðrar rekstrartekjur 1.997 874 1.123 +128,5%
Laun og launatengd gjöld -14.345 -12.992 -1.353 +10,4%
Annar rekstrarkostnaður -6.598 -5.805 -793 +13,7%
EBITDA 12.041 10.518 1.523 +14,5%
Afskriftir -4.453 -4.241 -212 +5,0%
Hrein fjármagnsgjöld -1.887 -1.503 -384 +25,5%
Hagnaður 4.949 4.001 948 +23,7%

Kostnaðarhlutföll hafa batnað með aukinni veltu

Lykilmælikvarðar rekstrar (12M 2018/19 – 12M 2022/23)

  • Mikil veltuaukning undanfarin ár en framlegðarhlutfall hefur farið lækkandi á sama tíma – Olís hluti af samstæðu Haga frá og með 4F 2018/19
  • Launa- og kostnaðarhlutföll hafa batnað með aukinni veltu, þrátt fyrir hækkandi launa- og rekstrarkostnað undanfarin misseri
  • Innleiðing IFRS16 leigustaðals skýrir mikla breytingu á kostnaðar- og EBITDA hlutfalli rekstrarárið 2019/20
  • EBITDA hlutfall 7,4% á árinu sem var að líða og hagnaðarhlutfall 3,1%
  • EBITDA hlutfall án einskiptisliða beggja tímabila lækkar úr 7,5% í 6,6% milli ára
Velta og framlegð Velta (ma. kr.) Framlegð (%)
84,2 116,4 119,6 135,8 162,0 23,8 22,2 22,2 20,9 19,1
Rekstrar-kostnaður Launahlutfall (%) Kostnaðarhlutfall (%)
10,9 10,4 10,7 9,6 8,9 7,9 4,6 4,4 4,3 4,1
Afkoma EBITDA hlutfall (%) Hagnaðarhlutfall (%)
5,3 7,6 7,4 7,7 7,4 2,8 2,6 2,1 2,9 3,1
12M 12M 12M 12M 12M 12M 12M 12M 12M 12M
18/19 19/20 20/21 21/22 22/23 18/19 19/20 20/21 21/22 22/23

Sterkt sjóðstreymi og handbært fé hækkar á árinu

Sjóðstreymisyfirlit 12M 2022/23 (m.kr.)

  • Handbært fé frá rekstri á árinu nam rúmum 9,1 ma. kr. og hækkaði í samanburði við fyrra ár um 1,7 ma. kr.
  • Miklar breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum einkum vegna hærra birgðaverðmætis og viðskipta-skulda
  • Fjárfesting í rekstrarfjármunum nam 2.301 m.kr. á árinu, fjárfesting í óefnislegum eignum nam 709 m.kr. og áhrif af fjárfestingu í dótturfélagi nam 1.275 m.kr.
  • Endurkaup eigin bréfa á árinu námú 1.500 m.kr. og arðgreiðsla nam 2.265 m.kr.
  • Handbært fé hækkaði um tæpan 2,1 ma. kr. á árinu og nam tæpum 2,9 ma. kr. í árslok
12M 2022/23 12M 2021/22 Breyting
Hagnaður ársins 4.949 4.001 948
Rekstrarliðir án áhrifa á fjárstreymi 6.103 6.382 -279
Veltufé frá rekstri 11.052 10.383 669
Rekstrartengdar eignir -1.796 -3.678 1.882
Rekstrartengdar skuldir 2.253 2.389 -136
Greiddir vextir og skattar -2.371 -1.683 -688
Handbært fé frá rekstri 9.138 7.411 1.727
Fjárfestingarhreýfingar -3.962 -1.864 -2.098
Fjármögnunarhreýfingar -3.090 -5.152 2.062
Breyting á handbæru fé 2.086 395 1.691
Handbært fé í lok árs 2.869 783 2.086

Eignir aukast nokkuð milli ára – sterkur efnahagur í árslok

Efnahagsreikningur 28. febrúar 2023 (m.kr.)

  • Fastafjármunir hækkuðu um 5,4 ma. kr. á árinu – að mestu vegna kaupa Haga á Eldum rétt og 1/3 hlut í Klasa
  • Veltufjármunir hækkuðu um 1,4 ma. kr. frá árslokum 2021/22
  • Birgðir hækkuðu um 2,0 ma. kr. á árinu, aðallega vegna eldsneytisbírgða - veltuhraði birgða 11,2 í samanburði við 11,0 á fyrra ári
  • Innheimtutími krafna er nú 11,1 dagar samanborið við 11,7 dag í fyrra
  • Skammtimalánalína ádregin um 1,8 ma. kr. í lok árs og vixilskuld tæpur 1,1 ma. kr.
  • Eigið fé nam 27,9 ma. kr. í lok árs og átti félagið 13,9 millj. eigin hluti
28. 2. 2023 28. 2. 2022
Rekstrarfjármunir 21.236 21.215 +0%
Óefnislegar eignir 12.430 10.723 +16%
Aðrir fastafjármunir 16.836 13.126 +28%
Fastafjármunir 50.502 45.064 +12%
Eignir til sölu 0 2.388 -
Vörubirgðir 12.717 10.707 +19%
Viðskiptakröfur 5.919 6.250 -5%
Handbært fé 2.869 783 +266%
Veltufjármunir 21.505 20.128 +7%
Samtals eignir 72.007 65.192 +10%
Skuldir og eigið fé 72.007 65.192 +10%
28. 2. 2023 28. 2. 2022
--- --- --- ---
Vaxtaberandi 11.829 11.720 +1%
Leiguskuldir 7.056 6.918 +2%
Tekjuskattur 2.216 2.312 -4%
Langtímaskuldir 21.101 20.950 +1%
Vaxtaberandi 3.325 451 +637%
Leiguskuldir 2.012 1.966 +2%
Viðskiptaskuldir 16.488 14.329 +15%
Tekjuskattur 1.150 770 +49%
Skammtímaskuldir 22.975 17.516 +31%
Samtals skuldir 44.076 38.466 +15%
Eigið fé 27.931 26.726 +5%

Arðsemi eiginfjár hækkar nokkuð milli ára

Lykilmælikvarðar efnahags (12M 2018/19 – 12M 2022/23)

  • Arðsemi eigin fjár 18,5% á árinu samanborið við 15,9% á fyrra ári
  • Eiginfjárhlutfall í lok árs nam 38,8% samanborið við 41,0% í lok fyrra árs
  • Nettó vaxtaberandi skuldir í lok árs, að meðtöldum leiguskuldum, voru 21,4 ma. kr. eða 1,8 x EBITDA ársins
  • Nettó vaxtaberandi skuldir í lok árs, án leiguskulda, voru 12,3 ma. kr. eða 1,0 x EBITDA ársins
  • Veltufjárhlutfall í lok árs var 0,94 samanborið við 1,15 í lok fyrra árs
  • Veltuhraði í rekstri var 14,5 dagar samanborið við 15,4 daga á fyrra ári
  • Veltuhraði eigna var 2,4 í lok árs til samanburðar við 2,1 á fyrra ári
Ávöxtun hluthafa Arðsemi eigin fjár (%) Eiginfjárhlutfall (%)
12,9 12,6 10,2 15,9 18,5 47,7 39,2 40,9 41,0 38,8
Áhætta í rekstri Skuldahlutfall¹ Veltufjárhlutfall²
2,7 2,5 2,4 1,9 1,8 0,81 0,96 0,77 1,15 0,94
Skilvirkni eigna Veltuhraði í rekstri (dagafjöldi)³ Veltuhraði eigna⁴
23,1 17,6 14,0 15,4 14,5 2,1 2,0 1,9 2,1 2,4
12M 12M 12M 12M 12M 12M 12M 12M 18/19 19/20 20/21 21/22 22/23 12M 12M 12M 12M 12M 12M 12M 12M 12M 12M

1) Nettó vaxtaberandi skuldir (með leiguskuldum) / 12 mánaða EBITDA 2) Veltufjármunir / skammtímaskuldir
3) Veltuhraði í rekstri = dagafjöldi birgða + dagafjöldi viðskiptakrafna - dagafjöldi viðskiptaskulda 4) Vörusala / eignir


hagar
27

Yfirlit

Fréttir af starfsemi

Fjárhagsuppgjör

[Staða og horfur]


Gengi og stærstu hluthafar

img-32.jpeg

Dagsetning

Stærstu hluthafar, eignarhlutur við lok 28.02.2023

1. Gildi - lífeyrissjóður 19,4% 6. Kaldbakur ehf. 4,5%
2. Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins 13,6% 7. Festa - lífeyrissjóður 4,2%
3. Lífeyrissjóður verslunarmanna 10,5% 8. Stapi lífeyrissjóður 4,1%
4. Birta lífeyrissjóður 8,2% 9. Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda 2,9%
5. Brú lífeyrissjóður starfsm. sveitarfélaga 7,8% 10. Íslensk verðbréf - safnreikningur 2,7%

Heimild: NASDAQ OMX (24. apríl 2023)


Hagnaður á hlut hefur aukist á síðustu misserum

Uppsafnaður grunnhagnaður á hlut seinustu 12 mánuði (kr. á hlut)

  • Hagnaður á hlut hefur aukist á síðustu misserum, og er uppsafnaður hagnaður nú 3,69 kr. á hlut fyrir síðustu 12 mánuði, en 4,40 kr. á hlut ef viðskiptin með Klasa eru tekin með
  • Ávinningur aðgerða sem tengjast stefnumótunarvinnu og hagræðingu hefur haldið áfram að raungerast síðustu fjórðunga
  • Áframhaldandi fókus á verkefni sem hafa áhrif á rekstur til skemmri tíma, en einnig á stærri verkefni sem hafa áhrif til millilangs og lengri tíma

img-33.jpeg
Stefnumótun Haga og dótturfélaga, og uppfærðar áherslur

  • Áhrif vegna viðskipta með Klasa

hagar

Staða og horfur

  • Þrátt fyrir verðbólgu er starfsemi að færast í eðlilegra horf eftir þrjú óvenjuleg ár þar sem Covid og stríðsátök hafa truflað aðfangakeðjur og valdið hækkunum á hrávörumörkuðum
  • Áfram töluverð óvissa, t.d. um verðpróun á hrávörumörkuðum, gengi ISK, olíuverð, verðbólgu og vaxtastig - vonir standa til að hægjast fari á verðsveiflum og hækkunum frá framleiðendum og heildsölum
  • Horfur í rekstri eru ágætar – fjölgun viðskiptavina, hagkvæmasti matvörukosturinn, nýjar stoðir í rekstri, áframhaldandi áhersla á hagræðingu, fjárhagslegur styrkur Haga og markaðslegur styrkur rekstrareininga
  • Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2023/24 gerir ráð fyrir að EBITDA verði á bilinu 11.000 - 11.500 m.kr.
  • Fjárfestingaráætlun ársins 2023/24 nemur 5.000 - 5.500 m.kr., m.a. vegna kaupa á Norðlingabraut 2 og opnun nýrra verslana Bónus

img-34.jpeg

img-35.jpeg

img-36.jpeg

img-37.jpeg

img-38.jpeg

img-39.jpeg

img-40.jpeg


img-0.jpeg

hagar


32

Fyrirvari

Af hálfu Haga skal vakin athygli á því að staðhæfingar og upplýsingar í kynningu þessari byggja eftir atvikum á áætlunum og mati stjórnenda félagsins, en ekki á staðreyndum sem unnt er að sannreyna við birtingu kynningarinnar eða umfjöllun af hálfu félagsins um hana. Af þeim sökum fela umræddar staðhæfingar og upplýsingar í sér óvissu.

Þá skal athygli fjárfesta vakin á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi og afkoma félagsins verði með öðrum hætti en gert er ráð fyrir í kynningunni. Kynningin verður ekki endurskoðu, uppfærð eða breytt að þessu leyti af hálfu félagsins eftir birtingu hennar.

Staðhæfingar og upplýsingar í kynningu þessari gilda eingöngu á því tímamarki þegar hún er birt og takmarkast gildi þeirra við það sem segir í fyrirvara þessum.


hagar