AI assistant
Hagar — Investor Presentation 2023
Oct 19, 2023
2196_rns_2023-10-19_32d942ad-4ae6-446e-ac94-2154324d610a.pdf
Investor Presentation
Open in viewerOpens in your device viewer
hagar
Kynning á niðurstöðum 2. ársfjórðungs 2023/24
Finnur Oddsson, forstjóri
Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs
- október 2023
hagar
Yfirlit
Fréttir af starfsemi
Fjárhagsuppgjör
Staða og horfur
2
Fjórðungur í hnotskurn: Lykiltölur
2F 2023/24 (breyting frá 2F 2022/23)
| 45,3 ma.kr. vörusala
▲ 4,4% | 4,5 ma.kr. EBITDA*
▲ 2,4% | 2,1 ma.kr. hagnaður*
▼ 12,4% |
| --- | --- | --- |
| 21,9%
framlegðarhlutfall
▲ 2,5%stig | 12,5%
launa- og kostnaðarhlutfall
▲ 0,9%stig | 36,3%
eiginfjárhlutfall
▼ 1,9%stig |
- Áhrif einskiptistekna vegna Klasa á EBITDA 966 m.kr. og áhrif á hagnað 773 m.kr. á 2F 2022/23
Þetta stendur upp úr á fjórðungnum
- Starfsemi Haga gekk vel á sumarmánuðum, bæði í dagvöru- og eldsneytishluta samstæðu
- Umsvif í dagvöru aukast mælt í fjölda heimsókna og seldum stykkjum – heildarsala eldsneytislítra eykst lítillega frá því í fyrra
- Aðfóng í dagvöru hækka áfram en olíuverð hefur lækkað á milli ára – breytt mynstur hækkana
- Framlegð í krónum og sem hlutfall af veltu hækkar á milli ára – þróun heimsmarkaðsverðs á eldsneyti veldur hækkun á framlegðarhlutfalli samstæðu
- Áfram sérstök áhersla á hagkvæmni í öllum rekstri og innkaupum til að draga úr þörf á verðhækkunum í verslunum
- Í lok september var tilkynnt um að framkvæmdastjóri Bónus myndi láta af störfum um áramót eftir ríflega 30 ár hjá félaginu

BÓNUS
HAGKAUP
olis
Aðfóng
Bananar
STÓRKAUP
ELDUM RÉTT
ZNA


Verslanir og vöruhús: Afkoma styrkist og umsvif aukast áfram
Rekstrarreikningur 2F 2023/24 (m.kr.)
- Tekjur af dagvöru, servöru og vöruhús um jukust um 14% á milli ára og námu 30,8 ma. kr.
- Afkoma styrkist þar sem EBITDA var 2,75 ma. kr. eða 8,9% af tekjum - tæplega 7% aukning á milli ára
- Seldum stykkjum í dagvöruverslunum fjölgar um 7% á milli ára - heimsóknum viðskiptavina fjölgar um 12,5% á fjórðungnum
- Mikil eftirspurn í netverslun Eldum rétt og fjórðungurinn umfram áætlanir stjórnenda – lokið við stækkun á framleiðslurými
- Heldur dregið úr verðhækkunum frá heildsölum og framleiðendum, en þær þó enn til staðar – verulegar hækkanir á innlendri framleiðsluvöru
- Vöruhúsarekstur sem fyrr gengið vel hjá bæði Aðföngum og Banönum
| 2F '23/24 | 2F '22/23 | Δ | %Δ | |
|---|---|---|---|---|
| Tekjur | 30.775 | 26.989 | 3.786 | +14,0% |
| Rekstrargjöld | -28.025 | -24.413 | -3.612 | +14,8% |
| EBITDA | 2.750 | 2.576 | 174 | +6,8% |
| EBITDA-hlutfall | 8,9% | 9,5% | -0,6% | -6,4% |
| EBIT | 1.738 | 1.718 | 20 | +1,2% |
| EBIT-hlutfall | 5,6% | 6,4% | -0,7% | -11,3% |
BÓNUS
HAGKAUP
A D F O N G
Bananar
STÓRKAUP!
ELDUM RÉTT
ZNA
Bónus: Mikil fjölgun heimsókna og öflugur tekjuvöxtur
- Vörusala á 2F nam rúmlega 22 ma. kr. og jókst um tæp 19% frá fyrra ári – afkoma styrkist einnig á milli ára
- Umsvif halda enn áfram að aukast – viðskiptavinum og seldum stykkjum fjölgar töluvert á milli ára
- Áfram meðbyr með Bónus eftir jákvæðar breytingar síðustu missera, svo sem vegna nýrra og uppfærðra verslana, lengri opnunartima og nýrrar þjónustu
- Bónus enn og aftur oftast með lægsta vöruverð samkvæmt könnunum ASÍ
- Sjálfsafgreiðslulausnin „Gripið & Greitt“ fengið mjög góðar undirtektir og er nú í boði í fjórum verslunum
- Ný verslun Bónus í Holtagörðum opnaði í sumar í stað eldri verslunar sem var lokað – umtalsverð söluaukning
- Framkvæmdir við nýja verslun Bónus í Miðhrauni í Garðabæ ganga vel – stefnt að opnun á næstu vikum




Bónus: Framkvæmdastjóri lætur af störfum um áramótin…
- Eins og tilkynnt var um í lok september mun Guðmundur Marteinsson láta af störfum sem framkvæmdastjóri Bónus um næstu áramót
- Guðmundur hefur starfað hjá Bónus í yfir 30 ár en á þeim tíma hefur hann gegnt nánast öllum störfum í Bónus
- Lengstan hluta þess tíma hefur Guðmundur þó starfað sem framkvæmdastjóri félagsins, eða frá árinu 1998
- Guðmundur hefur markað djúp spor í íslenska verslunarsögu og skilur, um áramót, við Bónus sem **leiðandi fyrirtæki í matvöruverslun á Íslandi – fyrirtæki sem nýtur trausts viðskiptavina fyrir að bjóða frá stofnun upp á hagkvæmustu matvörukörfu landsins

Bónus: Björgvin Víkingsson hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri
- Björgvin Víkingsson hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri Bónus frá og með 1. janúar 2024
- Björgvin hefur kynnst Bónus vel á síðustu mánuðum, en frá 1. maí hefur hann starfað sem aðstoðarframkvæmdastjóri og innkaupastjóri Bónus
- Björgvin starfaði áður sem forstjóri Ríkiskaupa frá árinu 2020, og þar á undan starfaði hann m.a. hjá alþjóðlegum fyrirtækjum á borð við Maersk, Aasted, DT Group og Marel
- Björgvin er með meistaragráðu í aðfangakeðjustjórnun frá ETH háskólánum í Zurich og B.Sc. gráðu í umhverfis- og byggingaverkfræði frá Háskóla Íslands

Hagkaup: Fjölgun heimsókna og áframhaldandi tæknivæðing
- Vörusala á 2F nam rúmlega 5,6 ma. kr. og jókst um tæp 6% frá fyrra ári – afkoma í samræmi við áætlanir og er svipuð á milli ára
- Heimsóknum viðskiptavina fjölgar á milli ára, en seldum stykkjum fækkar lítillega
- Áhersla á nýtingu tækni og sjálfvirkni í rekstri – innleiðingu á rafrænum hillumiðum í öllum verslunum lokið og stærsti hluti pantana á aðföngum til verslana sjálfvirkur
- Vefverslun Hagkaups hefur náð góðri fótfestu – Veisluréttir Hagkaups frábær viðbót og hafa farið vel af stað
- Hagkaup er fyrsta verslunarkeðja landsins þar sem umhverfisvænir kælimiðlar (kolsýra) eru nýttir fyrir alla kæla
- Mikill undirbúningur í gangi fyrir jólatörn, en nóvember og desember eru stærstu mánuðir ársins hjá Hagkaup

HAGKAUP




Olís: Kröftug sala í smásölu og til stórnotenda – afkoma batnar olís
Rekstrarreikningur 2F 2023/24 (m.kr.)
- Tekjur á 2F námu 15,1 ma. kr. og drógust saman um 17% á milli ára - heimsmarkaðsverð olíu lægra en fyrir ári
- EBITDA nam 1.722 m.kr. (11,4%) og lækkar í krónum á milli ára – um 64% aukning EBITDA að teknu tilliti til 745 m.kr. einskiptisliða vegna Klasa í fyrra
- Kröftug sala eldsneytis til stórnotenda og einnig á smásölumarkaði, en fjórðungurinn var einn sá stærsti í sögu Olís – mikil aukning í þurrvörusölu á smásölu- og fyrirtækjasviði
- Framlegð og afkoma umfram áætlanir - skýrist m.a. af hækkun heimsmarkaðsverðs olíu á sumarmánuðum, hagfelldri birgðastýringu og ávinningi af gengisvörnum
- Hagræði vegna skipulagsbreytinga að fullu komið fram í rekstri – rekstrarkostnaður stendur í stað þrátt fyrir umtalsverðar launahækkanir og verðbólgu
- Uppfærslu á nýju fjárhagskerfi og tækniinnviðum að mestu lokið – grunnur að stafrænni framþróun Olís
| 2F '23/24 | 2F '22/23 | Δ | %Δ | |
|---|---|---|---|---|
| Tekjur | 15.103 | 18.134 | -3.031 | -16,7% |
| Rekstrargjöld | -13.381 | -16.341 | 2.960 | -18,1% |
| EBITDA | 1.722 | 1.793 | -71 | -4,0% |
| EBITDA-hlutfall | 11,4% | 9,9% | +1,5% | +15,3% |
| EBIT | 1.490 | 1.646 | -156 | -9,5% |
| EBIT-hlutfall | 9,9% | 9,1% | +0,8% | +8,7% |


hagar
11
Yfirlit
Fréttir af starfsemi
Fjárhagsuppgjör
Staða og horfur
Aukin umsvif og sterk afkoma á 2F
Rekstrarreikningur 2F 2023/24 (m.kr.)
- Vörusala 2F jókst um 4,4% milli ára eða um 1,9 ma. kr.
- Framlegð í krónum talið nam 9,9 ma.kr. og jókst um 18,1% á 2F
- Framlegðarhlutfall hækkaði um 2,5%-stig sem einkum má rekja til viðskipta stórnotenda hjá Olís – framlegðarhlutfall í dagvöru stendur í stað
- Hagnaður af sölu eigna á fyrra ári litar samanburðarár þar sem áhrif viðskipta með Klasa námu 966 m.kr.
- EBITDA jókst um 2,4% á 2F – ef frá eru talin einskiptisáhrif fyrra árs jókst EBITDA um 31,4% milli ára
- Hagnaður nam 2,1 ma. kr. og lækkar um 12,4% frá fyrra ári
| 2F '23/24 | 2F '22/23 | Δ | %Δ | |
|---|---|---|---|---|
| Vörusala | 45.309 | 43.399 | 1.910 | +4,4% |
| Framlegð | 9.903 | 8.383 | 1.520 | +18,1% |
| Aðrar rekstrartekjur | 210 | 1.029 | -819 | -79,6% |
| Laun og launatengd gjöld | -3.881 | -3.438 | -443 | +12,9% |
| Annar rekstrarkostnaður | -1.760 | -1.605 | -155 | +9,7% |
| EBITDA | 4.472 | 4.369 | 103 | +2,4% |
| Afskriftir | -1.353 | -1.099 | -254 | +23,1% |
| Hrein fjármagnsgjöld | -639 | -426 | -213 | +50,0% |
| Hagnaður | 2.084 | 2.378 | -294 | -12,4% |
Góður fyrri árshelmingur að baki með framlegðarbata
Rekstrarreikningur 6M 2023/24 (m.kr.)
- Vörusala 6M jókst um 6,4% milli ára eða um 5,2 ma. kr.
- Söluaukning verslana og vöruhúsa nam 16,5% en 11,4% samdráttur var hjá Olís
- Framlegðarhlutfall nam 20,7% og hækkaði um 1,2%-stig frá fyrra ári – liggur í eldsneytishluta samstæðunnar en í dagvöru hefur framlegðarhlutfall lækkað lítillega
- EBITDA verslana og vöruhúsa jókst um 11,9% en EBITDA Olís dróst saman um 22,1%, einkum vegna einskiptisliða fyrra árs
- Afskriftir hækka um 17,1% milli ára, m.a. vegna endurnýjunar og breytinga verslana
- Fjármagnsgjöld hækkuðu um 30,4% samhliða verðbólgu og hækkandi vaxtastigi
| 6M '23/24 | 6M '22/23 | Δ | %Δ | |
|---|---|---|---|---|
| Vörusala | 86.799 | 81.612 | 5.187 | +6,4% |
| Framlegð | 17.975 | 15.947 | 2.028 | +12,7% |
| Aðrar rekstrartekjur | 404 | 1.231 | -827 | -67,2% |
| Laun og launatengd gjöld | -7.813 | -6.881 | -932 | +13,5% |
| Annar rekstrarkostnaður | -3.573 | -3.260 | -313 | +9,6% |
| EBITDA | 6.993 | 7.037 | -44 | -0,6% |
| Afskriftir | -2.482 | -2.120 | -362 | +17,1% |
| Hrein fjármagnsgjöld | -1.265 | -970 | -295 | +30,4% |
| Hagnaður | 2.737 | 3.304 | -567 | -17,2% |
Afkomuhlutföll gefa eftir vegna einskiptisliða fyrra árs
Lykilmælikvarðar rekstrar (6M 2019/20 – 6M 2023/24)
- Áframhaldandi góð veltuaukning milli ára – drifin áfram af auknum umsvifum og áhrifum verðbölgu
- Framlegðarhlutfall hækkar nú milli ára í fyrsta skipti síðan 2020/21 – áhrif af sterkari rekstri hjá Olís, einkum vegna áhrifa af heimsmarkaðsverði á olíu
- Launa- og kostnaðarhlutföll gefa eftir í samanburði við síðasta ár – áhrif mikilla launa- og kostnaðarhækkana undanfarin misseri
- EBITDA hlutfall 8,1% á 2F og hagnaðarhlutfall 3,2% – áhrif af viðskiptum með Klasa á fyrra ári skekkir samanburð milli ára









Sterkt sjóðstreymi og handbært fé 2,7 ma. kr. í lok tímabils
Sjóðstreymisyfirlit 6M 2023/24 (m.kr.)
- Handbært fé frá rekstri á tímabilinu
nam 5,8 ma. kr. og hækkaði í
samanburði við fyrra ár um 1,0 ma. kr. - Fjárfesting í fasteignum nam 1,4 ma.
kr. á fjórðungnum – stærstur hluti vegna
Norðlingabrautar í Reykjavík - Fjárfest í opnun nýrra verslana
Bónus við Norðlingabraut og í
Holtagörðum, nýrri bjónustustöð Olís
að Fitjum auk fleiri verkefna - Endurkaup eigin bréfa á fyrri
árshelmingi námu 833 m.kr. og
arðgreiðsla 2,5 ma. kr. - Handbært fé lækkaði um 143 m.kr. á
fyrri árshelmingi og nam 2,7 ma. kr. í lok
tímabils
| 6M 2023/24 | 6M 2022/23 | Breyting | |||
|---|---|---|---|---|---|
| Hagnaður tímabilsins | 2.737 | 3.304 | -567 | ||
| Rekstrarliðir án áhrifa á fjárstreymi | 4.145 | 2.774 | 1.371 | ||
| Veltufé frá rekstri | 6.882 | 6.078 | 804 | ||
| Rekstrartengdar eignir | -1.123 | -3.066 | 1.943 | ||
| Rekstrartengdar skuldir | 1.448 | 2.732 | -1.284 | ||
| Greiddir vextir og skattar | -1.421 | -989 | -432 | ||
| Handbært fé frá rekstri | 5.786 | 4.755 | 1.031 | ||
| Fjárfestingarheyfingar | -3.127 | -857 | -2.270 | ||
| Fjármögnunarheyfingar | -2.802 | -2.586 | -216 | ||
| Breyting á handbæru fé | -143 | 1.312 | -1.455 | ||
| Handbært fé í lok tímabils | 2.726 | 2.095 | 631 |
Sterkur efnahagur í lok tímabils
Efnahagsreikningur 31. ágúst 2023 (m.kr.)
- Fastafjármunir hækkuðu um 2,5 ma. kr. frá árslokum 2022/23
- Veltufjármunir námu 22,5 ma. kr. og hækkuðu um 966 m.kr. frá árslokum 2022/23
- Birgðir lækkuðu um 697 m.kr. frá árslokum 2022/23 vegna lægra birgðaverðmætis í eldsneyti - veltuhraði birgða 11,0 í samanburði við 10,8 í fyrra
- Innheimtutími krafna er nú 12,9 dagar samanborið við 12,0 daga í fyrra
- Eigið fé nam 27,4 ma. kr. í lok tímabils og átti félagið enga eigin hluti
- Vaxtaberandi skammtímaskuldir námu 5,0 ma. kr. en þar af nam lánalína 1,6 ma. kr. og vixilskuldir 2,9 ma. kr.
| 31. 8. 2023 | 28. 2. 2023 | %Δ | |
|---|---|---|---|
| Rekstrarfjármunir | 22.386 | 21.236 | +5% |
| Óefnislegar eignir | 12.693 | 12.430 | +2% |
| Aðrir fastafjármunir | 17.937 | 16.836 | +7% |
| Fastafjármunir | 53.016 | 50.502 | +5% |
| Vörubirgðir | 12.020 | 12.717 | -5% |
| Viðskiptakröfur | 7.725 | 5.919 | +31% |
| Handbært fé | 2.726 | 2.869 | -5% |
| Veltufjármunir | 22.471 | 21.505 | +4% |
| Samtals eignir | 75.487 | 72.007 | +5% |
| Skuldir og eigið fé | 75.487 | 72.007 | +5% |
| 31. 8. 2023 | 28. 2. 2023 | %Δ | |
| --- | --- | --- | --- |
| Vaxtaberandi | 11.891 | 11.829 | +1% |
| Leiguskuldir | 7.530 | 7.056 | +7% |
| Tekjuskattur | 2.855 | 2.216 | +29% |
| Langtímaskuldir | 22.276 | 21.101 | +6% |
| Vaxtaberandi | 4.966 | 3.325 | +49% |
| Leiguskuldir | 2.125 | 2.012 | +6% |
| Viðskiptaskuldir | 18.739 | 17.638 | +6% |
| Skammtímaskuldir | 25.830 | 22.975 | +12% |
| Samtals skuldir | 48.106 | 44.076 | +9% |
| Eigið fé | 27.381 | 27.931 | -2% |
Eiginfjárhlutfall nálgast markmið stjórnar
Lykilmælikvarðar efnahags (6M 2019/20 – 6M 2023/24)
- Arðsemi eigin fjár 16,4% síðastliðna 12 mánuði
- Eiginfjárhlutfall í lok 2F nam 36,3% og nálgast markmið stjórnar
- Nettó vaxtaberandi skuldir í lok 2F, að meðtöldum leiguskuldum, voru 23,8 ma. kr. eða 2,0 x 12 mánaða EBITDA
- Veltufjárhlutfall í lok 2F var 0,87 samanborið við 0,99 í lok 2F fyrra árs
- Veltuhraði í rekstri var 13,0 dagar samanborið við 13,7 daga á fyrra ári
- Veltuhraði eigna var 2,3 í lok 2F til samanburðar við 2,0 í lok 2F fyrra árs
| Ávöxtun hluthafa | Arðsemi eigin fjár (%) | Eiginfjárhlutfall (%) |
|---|---|---|
| 14,2 | ||
| 10,7 | ||
| 14,7 | ||
| 18,6 | ||
| 16,4 | 39,7 | |
| 40,8 | ||
| 40,7 | ||
| 38,2 | ||
| 36,3 | ||
| Áhætta í rekstri | Skuldahlutfall^{1} | Veltufjárhlutfall^{2} |
| 2,8 | ||
| 2,4 | ||
| 2,1 | ||
| 1,8 | ||
| 2,0 | 0,75 | |
| 0,97 | ||
| 0,86 | ||
| 0,99 | ||
| 0,87 | ||
| Skilvirkni eigna | Veltuhraði í rekstri (dagafjöldi)^{3} | Veltuhraði eigna^{4} |
| 10,6 | ||
| 10,9 | ||
| 13,2 | ||
| 13,7 | ||
| 13,0 | ||
| 6M | ||
| 6M | ||
| 6M | ||
| 6M | ||
| 19/20 | ||
| 20/21 | ||
| 21/22 | ||
| 22/23 | ||
| 23/24 | 2,3 | |
| 1,9 | ||
| 2,0 | ||
| 2,2 | ||
| 2,3 | ||
| 6M | ||
| 6M | ||
| 6M | ||
| 19/20 | ||
| 20/21 | ||
| 21/22 | ||
| 22/23 | ||
| 23/24 |
1) Nettó vaxtaberandi skuldir (með leiguskuldum) / 12 mánaða EBITDA
2) Veltufjármunir / skammtímaskuldir
3) Veltuhraði í rekstri = dagafjöldi birgða + dagafjöldi viðskiptakrafna - dagafjöldi viðskiptaskulda
4) Vörusala / eignir
hagar
18
Yfirlit
Fréttir af starfsemi
Fjárhagsuppgjör
Gengi og stærstu hluthafar

Stærstu hluthafar, eignarhlutur við lok 31.08.2023
| 1. Gildi - lífeyrissjóður | 19,8% | 6. Kaldbakur ehf. | 4,6% |
|---|---|---|---|
| 2. Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins A-deild | 11,3% | 7. Festa - lífeyrissjóður | 4,5% |
| 3. Lífeyrissjóður verslunarmanna | 10,7% | 8. Stapi lífeyrissjóður | 3,6% |
| 4. Brú lífeyrissjóður starfsm. sveitarfélaga | 8,3% | 9. Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda | 3,0% |
| 5. Birta lífeyrissjóður | 8,3% | 10. Íslensk verðbréf - safnreikningur | 2,8% |
Heimild: NASDAQ OMX (16. október 2023)
Hagnaður á hlut hefur aukist á síðustu misserum
Uppsafnaður grunnhagnaður á hlut seinustu 12 mánuði (kr. á hlut)
- Hagnaður á hlut hefur aukist á síðustu misserum, og er uppsafnaður hagnaður nú 3,95 kr. á hlut fyrir síðustu 12 mánuði
- Ávinningur aðgerða sem tengjast stefnumótunarvinnu og hagræðingu hefur haldið áfram að raungerast síðustu fjórðunga
- Áframhaldandi fókus á verkefni sem hafa áhrif á rekstur til skemmri tíma, en einnig á stærri verkefni sem hafa áhrif til millilangs og lengri tíma

Stefnumótun Haga og dótturfélaga, og uppfærðar áherslur
- Áhrif vegna viðskipta með Klasa
hagar
Staða og horfur
- Rekstur hefur gengið vel síðustu mánuði og horfur eru góðar:
- Almenn fjölgun viðskiptavina og selt magn
- Hagkvæmasta matvörukarfan
- Nýjar stoðir í rekstri (t.d. Eldum rétt)
-
Áframhaldandi hagræðingaraðgerðir
-
Fjárhagsleg staða samstæðunnar er sterk og er fjármögnun tryggð til bæði skemmri og lengri tíma
-
Björgvin Víkingsson tekur við af Guðmundi Marteinssyni sem framkvæmdastjóri Bónus frá og með næstu áramótum
-
Ýmsir þættir munu hafa áhrif á rekstur en óvissa um hvernig, m.a. verðþróun á aðföngum, hrávórumarkaðir, gengi, verðbólga og vextir - kjarasamingar mikilvægt verkefni
-
Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2023/24 gerir ráð fyrir að EBITDA verði á bilinu 12.250 - 12.750 m.kr.








hagar
23
Fyrirvari
Af hálfu Haga skal vakin athygli á því að staðhæfingar og upplýsingar í kynningu þessari byggja eftir atvikum á áætlunum og mati stjórnenda félagsins, en ekki á staðreyndum sem unnt er að sannreyna við birtingu kynningarinnar eða umfjöllun af hálfu félagsins um hana. Af þeim sökum fela umræddar staðhæfingar og upplýsingar í sér óvissu.
Þá skal athygli fjárfesta vakin á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi og afkoma félagsins verði með öðrum hætti en gert er ráð fyrir í kynningunni. Kynningin verður ekki endurskoðu, uppfærð eða breytt að þessu leyti af hálfu félagsins eftir birtingu hennar.
Staðhæfingar og upplýsingar í kynningu þessari gilda eingöngu á því tímamarki þegar hún er birt og takmarkast gildi þeirra við það sem segir í fyrirvara þessum.
hagar