Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar Investor Presentation 2020

Oct 30, 2020

2196_rns_2020-10-30_9d07428d-16ee-41d9-a0dd-d0cbc0bf76e2.pdf

Investor Presentation

Open in viewer

Opens in your device viewer

hagar

Kynning á niðurstöðum 2. ársfjórðungs 2020/21

Finnur Oddsson, forstjóri
Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar og samstæðu

  1. október 2020

Fjórðungurinn í hnotskurn

  • Tekjur vöruhúsa og verslana aukast. Á móti kemur samdráttur hjá Olís sem skilar óbreyttum tekjum samstæðunnar á milli ára
  • Afkoma batnar á milli ára á öllum helstu mælikvörðum, þar á meðal framlegð, EBITDA, hagnaður og hagnaður á hlut
  • Verkefni síðustu mánaða hafa verið fjölbreytt. Þar bera hæst aðgerðir vegna COVID, endurnýjanir verslana, aukin sjálfsafgreiðsla, fjölmörg verkefni í umhverfismálum og styrking aðfangakeðjunnar
  • Við leggjum höfuðáherslu á bættan hag neytenda, meðal annars með því að einbeita okkur að því sem við erum góð í, auka samstarf innan samstæðunnar og tala við og skilja viðskiptavini okkar betur

Lykiltölur

2F 2020/21, ma. kr. (breyting í mö. kr. / prósentustigum frá 2F 2019/20)

| 30,9

vörusala

0,0 | 3,0

EBITDA

▲ 0,5 | 1,3

hagnaður

▲ 0,3 |
| --- | --- | --- |
| 23,5%

framlegðarhlutfall

▲ 1,9% | 14,0%

launa- og kostnaðarhlutfall

0% | 40,8%

eiginfjárhlutfall

▲ 1,6% |


3

Yfirlit

Fréttir af starfsemi

Fjárhagsuppgjör

Stefna og markmið


Einingar Haga

1 HoReCa stendur fyrir Hotels, Restaurants & Catering

BONUS

  • 31 verslun um allt land
  • Mikill vöxtur vörusölu
  • Framlegðarhlutfall undir væntingum

HAGKAUP

  • 8 verslanir
  • Mikill vöxtur í vörusölu, sérstaklega í sérvöru
  • Viðsnúningur í rekstri

ulfs

  • Breitt net um allt land
  • Samdráttur í vörusölu
  • Mun betri rekstrarafkoma eftir mótvind á 1F

árróna

  • Aukin umsvif vegna veltuaukningar verslana
  • Hagkvæmari rekstur

  • Aukin sala til verslana innan samstæðu

  • Samdráttur á HoReCa¹

ananar

ÚTILÍF

ZNA

mjöll frigg

ÓR

Árróna

¹


Verkefni síðustu mánaða hafa verið fjölbreytt

img-0.jpeg
Öflugar sóttvarnir

img-1.jpeg
Endurnýjaðar verslanir

img-2.jpeg
Aukin sjálfsafgreiðsla

img-3.jpeg
Aðgerðir fyrir umhverfið

img-4.jpeg
Sterkari aðfangakeðja


img-5.jpeg

Öflugar sóttvarnir

  • Gripið hefur verið til margvíslegra aðgerða til að tryggja öryggi starfsfólks, viðskiptavina og samstarfsaðila
  • Sóttvarnir í efsta forgangi í öllum verslunum og þjónustu-stöðvum fyrirtækja Haga
  • Starfsfólk í aðfangakeðju varið með skiptingu í ólíka hópa og svæði
  • Fjarfundaskylda á mörgum stöðum innan samstæðunnar
  • Mikil starfsemi hjá Mjöll Frigg við framleiðslu á sóttvarnar-vörum og innflutning á sóttvarnarbúnaði fyrir heilbrigðisstofanir

img-6.jpeg

img-7.jpeg

img-8.jpeg

img-9.jpeg


img-10.jpeg

img-11.jpeg

img-12.jpeg

img-13.jpeg

img-14.jpeg

img-15.jpeg

Endurnýjaðar verslanir

  • Bónus endurnýjar nú eldri verslanir til að bæta gæði, fríska upp á útlit og minnka orkunotkun og kolefnisspor
  • Þá hefur Hagkaup endurnýjað verslanir sínar á Seltjarnarnesi og í Skeifunni
  • Dæmi um endurbætur eru ný LED lýsing, lok á kæla og frysta, ný gólfefni og ný umhverfisvænni kælikerfi
  • Loks hefur Hagkaup skipt út F&F fatnaði fyrir stærri leikfanga-, snyrtivöru- og búsáhaldadeildir í öllum verslunum til að mæta aukinni eftirspurn í þeim võruflokkum

Aukin sjálfsafgreiðsla

  • Verslanir Haga hafa fjölgað sjálfsafgreiðslukössum vegna ánægju viðskiptavina með styttri biðtíma og meira athafnarými
  • Sjálfsafgreiðslukassar eru nú komnir í allar matvöru- verslanir Hagkaups
  • Meirihluti kassa í Bónus eru nú sjálfsafgreiðslukassar. 156 slíkir auk 131 beltakassa svo heildarfjöldi kassa hefur aukist
  • Uppfærsla á kössunum á lokametrunum þar sem myndavél mun þekkja vörur og flýta þannig fyrir afgreiðslu og auka öryggi í skönnun

img-16.jpeg

img-17.jpeg

img-18.jpeg


img-19.jpeg

img-20.jpeg
Mynd af Facebook-síðu Strandvarða Íslands

img-21.jpeg

img-22.jpeg

Aðgerðir fyrir umhverfið

  • Bónus viðheldur forystu- hlutverki í umhverfismálum:
  • Þátttakandi í landsátaki í söfnun og sáningu birkifræja
  • Bakhjarl verkefnisins „Frelsum strandlengju Íslands“ undir verkstjórn Hrafns Jökulssonar og Veraldarvina
  • 200 tonn af plasti sparast frá því plastpokar voru teknir úr verslunum fyrir tveimur árum
  • Umhverfisverðlaun Terra 2020
  • Olís lagt mikla áherslu á kolefnisjöfnun og bauð ökumönnum fría kolefnisjöfnun í sumar í gegnum styrki til Landgræðslunnar

Sterkari aðfangakeðja

  • Nýtt kæli- og frystivöruhús Aðfanga við Korngarða er nú nær tilbúið eftir hraða framvindu síðustu mánuði
  • Uppsetning á hillum og lokafragangur stendur yfir – húsnæðið verður tekið í notkun í nóvember
  • Vöruhúsið mun styrkja Haga með því að lækka rekstrarkostnað Aðfanga og auka samlegðaráhrif við Banana
  • Nýr tækjabúnaður hjá Ferskum kjötvörum var tekinn í notkun, sem eykur bæði magn og gæði eigin kjötvara Haga í Bónus og Hagkaupum

img-23.jpeg

img-24.jpeg

img-25.jpeg


11

Yfirlit

Fréttir af starfsemi

Fjárhagsuppgjör

Stefna og markmið


Góð rekstrarniðurstaða og hagnaður eykst um fjórðung

Rekstrarreikningur 2F 2020/21 (ma. kr.)

  • Vörusala stendur í stað á milli ára
  • Framlegð eykst um 9% og framlegð-arhlutfall hækkar úr 21,6% í 23,5%
  • Framlegðarhlutfall Hagkaups og Olís töluvert yfir væntingum en Bónus nokkuð undir
  • Rekstrarkostnaður stendur nánast í stað milli tímabila
  • EBITDA afkoma 530 m.kr. hærri en á fyrra ári, eða 21% hækkun
2F '20/21 2F '19/20 Δ
Vörusala 30,9 30,9 - -
Framlegð 7,3 6,7 +0,6 +9%
Aðrar rekstrartekjur 0,1 0,2 -0,1 -46%
Laun og launatengd gjöld -3,1 -3,0 -0,1 +3%
Annar rekstrarkostnaður -1,3 -1,4 0,1 -8%
EBITDA 3,0 2,5 +0,5 +21%
Afskriftir -1,1 -0,9 -0,1 +14%
Hrein fjármagnsgjöld -0,4 -0,3 -0,1 +32%
Hagnaður 1,3 1,1 +0,3 +25%

Góð afkoma á 2F vegur að mestu upp lakari afkomu á 1F

Rekstrarreikningur 6M 2020/21 (ma. kr.)

  • Vörusala minnkar um 1% á milli ára fyrstu sex mánuði rekstrarársins en framlegð stendur í stað, þrátt fyrir krefjandi aðstæður
  • Launakostnaður hækkar um 5% sem að hluta má rekja til starfslokagreiðslna og lotunar á samningsbundnum starfslokakostnaði
  • Annar rekstrarkostnaður lækkar milli tímabila, þrátt fyrir aukinn kostnað vegna COVID
  • Afskriftir og fjármagnskostnaður hækka nokkuð milli tímabila
6M '20/21 6M '19/20 Δ
Vörusala 59,2 59,5 -0,3 -1%
Framlegð 13,1 13,1 - -
Aðrar rekstrartekjur 0,2 0,3 -0,1 -31%
Laun og launatengd gjöld -6,3 -6,0 -0,3 +5%
Annar rekstrarkostnaður -2,6 -2,8 0,2 -7%
EBITDA 4,3 4,5 -0,2 -5%
Afskriftir -2,1 -1,9 -0,2 +12%
Hrein fjármagnsgjöld -0,9 -0,6 -0,2 +38%
Hagnaður 1,2 1,7 -0,5 -29%

Rekstrarmælikvarðar breytast lítið miðað við síðasta tímabil

Lykilmælikvarðar rekstrar (1H 2018/19 - 1H 2020/21)

  • Launahlutfall á tímabilinu hækkar um 0,6 prósentustig samanborið við fyrra ár
  • Hlutfall annars rekstrarkostnaðar var 4,4% á tímabilinu og lækkar úr 4,7% á fyrra ári
  • EBITDA hlutfall var 7,3% samanborið við 7,6% á fyrra ári.
  • Áhrif leigustaðals IFRS 16 á EBITDA og kostnaðarhlutfall koma fyrst fram 1H 2019/20
  • Hagnaðarhlutfall var 2,1% samanborið við 2,9% á sama árshelmingi fyrra árs

img-26.jpeg

img-27.jpeg

img-28.jpeg

img-29.jpeg

img-30.jpeg

img-31.jpeg

img-32.jpeg

img-33.jpeg

img-34.jpeg


Afkoma verslana styrkist en mótvindur er í rekstri Olís

Starfsþáttayfirlit 6M (ma. kr.)

6M '20/21 6M '19/20 Δ
Vörusala 43,4 39,2 +4,2 +11%
Vöxtur 10,6% 3,9% +6,7% +170%
EBITDA 3,7 3,3 +0,4 +14%
EBITDA-hlutfall 8,6% 8,3% +0,2% +3%
EBIT 2,2 1,8 +0,3 +18%
EBIT-hlutfall 5,0% 4,7% +0,3% +7%
6M '20/21 6M '19/20 Δ
--- --- --- --- ---
Vörusala 16,0 20,3 -4,4 -21%
Vöxtur -21,4% - - -
EBITDA 0,6 1,3 -0,7 -52%
EBITDA-hlutfall 3,8% 6,2% -2,4% -39%
EBIT 0,2 0,9 -0,7 -79%
EBIT-hlutfall 1,2% 4,5% -3,3% -74%
  • Velta verslana og võruhúsa eykst um 11% og EBITDA um 14% samanborið við fyrra ár
  • Velta Olís dregst hins vegar saman um 21% og EBITDA um 52%
  • Lægri afkoma samstæðunnar á fyrri helmingi ársins skýrist því alfarið af mótvindi í rekstri Olís
  • Þrátt fyrir erfiðan 1F hjá Olís var 2F umfram væntingar og fyrra ár

Handbært fé lækkar á 1H 2020/21 um 1,3 ma. kr.

Sjóostreymisyfirlit 6M (ma. kr.)

  • Breyting á rekstrartengdum eignum á fyrra ári má rekja til breytinga í april 2019 á uppgjörsfyrirkomulagi greiðslukorta
  • Handbært fé frá rekstri lækkar í samanburði við fyrra ár um 3,8 ma. kr. af þeim sökum
  • Fjárfestingar í fasteign á Furuvöllum á Akureyri og framkvæmd við nýtt kæli- og frystivöruhús Aðfanga á tímabilinu
  • Ekki greiddur arður til hluthafa vegna síðastliðins rekstrarárs en á fyrra ári nam arðgreiðsla tæpum 1,2 ma. kr.
  • Handbært fé lækkar í lok tímabils er 889 m.kr. samanborið við 2.232 m.kr. í árslok
6M 2020/21 6M 2019/20 Breyting
Hagnaður tímabilsins 1,2 1,7 -0,5
Rekstrarliðir án áhrifa á fjárstreymi 3,1 2,7 0,4
Veltufé frá rekstri 4,3 4,4 -0,1
Rekstrartengdar eignir -0,5 2,6 -3,1
Rekstrartengdar skuldir 0,7 1,2 -0,5
Greiddir vextir og skattar -1,0 -0,9 -0,1
Handbært fé frá rekstri 3,6 7,4 -3,8
Fjárfestingarhreýfingar -2,1 -1,5 -0,6
Fjármögnunarhreýfingar -2,8 -3,9 1,1
Breyting á handbæru fé -1,3 2,0 -3,3

Áfram sterkur efnahagur við lok tímabils

Efnahagsreikningur 31. ágúst 2020 (ma. kr.)

  • Rekstrarfjármunir hækkuðu um 1,1 ma. kr., vegna fjárfestinga í fasteignum og endurnýjun verslana
  • Birgðir í lok tímabils voru 8,4 ma. kr. og veltuhráði birgða 11,1. Birgðir stóðu í stað frá árslokum. Veltuhráði á sama tímabili á fyrra ári var 13,2
  • Víðskiptakröfur hækkuðu um 400 m.kr. og er innheimtutími krafna nú 11,1 dagur samanborið við 12,7 daga á sama tímabili á fyrra ári
  • Vaxtaberandi skuldir lækka um 1,3 ma. kr. bar sem lánalína var greidd upp á tímabilinu
31. 8. 2020 29. 2. 2020
Rekstrarfjármunir 23,1 22,0 +5%
Óefnislegar eignir 10,5 10,5 -
Aðrir fastafjármunir 14,4 15,0 -4%
Fastafjármunir 48,1 47,6 +1%
Vörubirgðir 8,4 8,4 -
Víðskiptakröfur 4,9 4,5 +9%
Handbært fé 0,9 2,2 -60%
Veltufjármunir 14,2 15,2 -6%
Samtals eignir 62,2 62,7 -1%
Skuldir og eigið fé 62,2 62,7 -1%
31. 8. 2020 29. 2. 2020
--- --- --- ---
Vaxtaberandi 12,1 12,2 -1%
Leiguskuldir 7,4 8,0 -8%
Tekjuskattur 2,8 2,2 +26%
Langtimaskuldir 22,2 22,4 -1%
Vaxtaberandi 0,5 1,7 -73%
Víðskiptaskuldir 11,7 11,1 +5%
Annað 2,5 2,9 -13%
Skammtímaskuldir 14,6 15,8 -7%
Samtals skuldir 36,9 38,1 -3%
Eigið fé 25,4 24,6 +3%

Arðsemi undir samanburðartímabilum en áhætta takmörkuð

Lykilmælikvarðar efnahags (1H 2018/19 - 1H 2020/21)

  • Arðsemi eigin fjár er 10,7% síðastliðna 12 mánuði.
  • Eiginfjárhlutfall í lok tímabilsins nam 40,8% samanborið við 39,2% við árslok
  • Nettó vaxtaberandi skuldir í lok tímabils voru 21,1 ma. kr. eða 2,4 x 12 mán. EBITDA
  • Veltufjárhlutfall lok tímabils var 0,97. Félagið hefur aðgang að 6,2 ma. kr. lánalínum í ISK og USD
  • Veltuhraði í rekstri á tímabilinu 10,6 dagar sem er óbreytt frá sama tímabili á fyrra ári
  • Veltuhraði eigna 1,9 í lok tímabils en var 2,3 á sama tímabili á fyrra ári
Ávöxtun hluthafa Arðsemi eigin fjár (%) Eiginfjárhlutfall (%)
12,3 12,9 14,2 12,6 10,7 60,0 47,7 39,7 39,2 40,8
Áhætta í rekstri Skuldahlutfall¹ Veltufjárhlutfall²
0,8 2,7 2,8 2,5 2,4 1,06 0,81 0,75 0,96 0,97
Skilvirkni eigna Veltuhraði í rekstri (dagafjöldi)³ Veltuhraði eigna⁴
18,8 22,9 10,6 17,4 10,6 1H18 2H18 1H19 2H19 1H20

1) Nettó vaxtaberandi skuldir / EBITDA 2) Veltufjármunir / skammtímaskuldir 3) Veltuhraði í rekstri = dagafjöldi birgða + dagafjöldi viðskiptaskulda 4) Vörusala / eignir

18


19

Afkomuspá er útgefin og endurkaupááætlun samþykkt

  • Stjórnendur spá 8,1 til 8,6 ma. kr. EBITDA á yfirstandandi rekstrarári, samanborið við 8,9 ma. kr. í fyrra
  • Stjórn hefur ákveðið að ráðast í endurkaup á eigin bréfum félagsins að upphæð 500 m.kr. frá byrjun nóvember
  • Gert samkvæmt heimild aðalfundar um að stjórn geti keypt allt að 10% af útistandandi bréfum félagsins
  • Áformað að ógilda bréfin að endurkaupum loknum í samræmi við arðsgreiðslustefnu Haga

20

Yfirlit

Fréttir af starfsemi

Fjárhagsuppgjör

Stefna og markmið


Finnur í Undralandi

img-35.jpeg

img-36.jpeg

Grafik: The Toon Planet (thetoonplanet.com)


Einkenni Haga eru yfirleitt til gagns en geta líka truflað

img-37.jpeg

img-38.jpeg

22


Hvers vegna eru Hagar til?

img-39.jpeg


Hvernig bætum við hag neytenda?

Einbeitum okkur að því sem við erum góð í

  • Einblínum á dagvöru, eldsneyti og tengdar vörur
  • Hefjum söluferli á Útilíf og Reykjavíkur Apóteki

Gerum heildina sterkari en summu eininga

  • Stillum vörumerkjum Haga upp sem ólíkum valkostum
  • Aukum ávinning samvinnu í gegnum vöruhús og móðurfélag

Tölum við og skiljum viðskiptavini okkar

  • Segjum frá því sem við gerum fyrir neytendur, náttúruna og samfélagið
  • Skiljum viðskiptavini okkar og mætum þannig betur þörfum þeirra

img-40.jpeg

... og fleiri atriði sem við munum vinna að innan samstæðunnar

24


Við höfum sett okkur markmið sem við munum mæla til að meta árangur okkar á komandi misserum

Færa neytendum meira fyrir minna

Skapa eftirsóknarverðan vinnustað

Skila eigendum sanngjarnri ávöxtun

Stuðla að bættu samfélagi

img-41.jpeg


Horfur og staða

Pótt áskoranir séu framundan ...

  • Afkomuspá á bilinu 8,1 til 8,6 ma. kr. EBITDA á yfirstandandi rekstrarári
  • Helstu áhrifapættir:
  • Efnahagssamdráttur á rekstrarári
  • Áhrif Covid á ferðamannastraum og ferðalög Íslendinga
  • Veiking krónu og hækkanir frá birgjum setja þrýsting á framlegð
  • Kostnaðarsamar launahækkanir skv. lífskjarasamningi

... standa Hagar styrkum fótum

  • Sterk efnahags- og lausafjárstaða
  • Sterk markaðsstaða helstu eininga á dagvöru- og eldsneytismarkaði
  • Viðamiklar aðgerðir til að tryggja öryggi starfsfólks og viðskiptavina
  • Sóknarfæri í samræmi við mótaðar áherslur og stefnu

Spurningar?

img-42.jpeg


Gengi og stærstu hluthafar

img-43.jpeg

Stærstu hluthafar (1-5), eignarhlutur við lok 31.8.2020

  • Gildi - lífeyrissjóður 15,0%
  • Lífeyrissjóður verslunarmanna 10,7%
  • Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins A-deild 10,6%
  • Birta lífeyrissjóður 6,7%
  • Stapi lífeyrissjóður 5,6%

Stærstu hluthafar (6-10), eignarhlutur við lok 31.8.2020

  • Samherji hf. 4,3%
  • Festa - lífeyrissjóður 4,2%
  • Íslensk verðbréf - safnreikningur 3,9%
  • Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins B-deild 2,9%
  • Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda 2,8%

Heimild: NASDAQ OMX (28. október 2020)


29

Fyrirvari

Af hálfu Haga skal vakin athygli á því að staðhæfingar og upplýsingar í kynningu þessari byggja eftir atvikum á áætlunum og mati stjórnenda félagsins, en ekki á staðreyndum sem unnt er að sannreyna við birtingu kynningarinnar eða umfjöllun af hálfu félagsins um hana. Af þeim sökum fela umræddar staðhæfingar og upplýsingar í sér óvissu.

Þá skal athygli fjárfesta vakin á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi og afkoma félagsins verði með öðrum hætti en gert er ráð fyrir í kynningunni. Kynningin verður ekki endurskoðu, uppfærð eða breytt að þessu leyti af hálfu félagsins eftir birtingu hennar.

Staðhæfingar og upplýsingar í kynningu þessari gilda eingöngu á því tímamarki þegar hún er birt og takmarkast gildi þeirra við það sem segir í fyrirvara þessum.


hagar