AI assistant
Hagar — Interim / Quarterly Report 2025
Jan 16, 2025
2196_rns_2025-01-16_1dc8ddb6-6cd3-446b-a37e-b60572d7d8f6.pdf
Interim / Quarterly Report
Open in viewerOpens in your device viewer
hagar
SAMANDREGINN ÄRSHLUTAREIKNINGUR SAMSTÄEDUNNAR
1. MARS TIL 30. NÖVEMBER 2024
digitalis
Bananar
BÖNUS
ELDUM RÉTT
HAGKAUP
olis
STÖRKAUP
ZNA
Hagar hf. • Holtavegi 10 • 104 Reykjavík • Ísland • kt: 670203-2120 • hagar.is • 530-5500
EFNISYFIRLIT
Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra ... 3
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu ... 5
Efnahagsreikningur ... 6
Eiginfjáryfirlit ... 7
Sjóðstreymisyflit ... 8
Skýringar ... 9
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 30. nóvember 2024
SKÝRSLA OG YFIRLÝSING STJÓRNAR OG FORSTJÓRA
Hagar hf. („félagið“) er verslunarfyrirtæki með starfsemi á Íslandi en félagið er leiðandi á íslenskum matvöru-, sérvöru- og eldsneytismarkaði. Í lok tímabilsins starfrækti félagið 40 matvöruverslanir, 22 Olís þjónustustöðvar, 43 ÓB-stöðvar, tvö vöruhús, eina framleiðslustöð, eina netverslun með matarpakka, eina birgðaverslun, eina sérvöruverslun og eina netverslun með áfengi. Kjarnastarfsemi Haga er á sviði matvöru og tengdra vöruhúsa, auk eldsneytissölu.
Árshlutareikningur Haga hf. fyrir tímabilið 1. mars til 30. nóvember 2024 er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34. Árshlutareikningurinn samanstendur af samandregnum samstæðureikningi Haga hf. og dótturfélaga þess, sem vísað er til sem samstæðunnar.
Rekstur tímabilsins og fjárhagsleg staða
Samkvæmt rekstrarreikningi og yfirliti um heildarafkomu var hagnaður af rekstri samstæðunnar að fjárhæð 3.964 millj. kr. (2023/24: 3.853 millj. kr.). Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 10.881 millj. kr. (2023/24: 10.223 millj. kr.). Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir samstæðunnar 83.890 millj. kr. (árslok 2023/24: 77.214 millj. kr.). Eigið fé í lok tímabilsins nam 29.669 millj. kr. (árslok 2023/24: 28.188 millj. kr.) og var eiginfjárhlutfall 35,4% (árslok 2023/24: 36,5%).
Rekstur gekk vel á þriðja ársfjórðungi 2024/25 og var í samræmi við áætanir. Afkoma tímabilsins var nokkuð betri en á fyrra ári. Þar munar m.a. um sterkan ársfjórðungs hjá Olís, þar sem nokkuð hagfelldar hreyfingar á heimsmarkaðsverði olíu, í samanburði við fyrra ár, og einskiptistekjur vegna söuhagnaðar fasteignar styðja við afkomu. Vörusala samstæðunnar í heild stóð í stað á fjórðungnum, en framlegð í krónum jókst um ríflega 9%. Rekstrarkostnaður hækkæði um 10,1% milli ára en EBITDA afkoma fjórðungsins hækkæði um 13,1% frá fyrra ári. Heildarhagnaður jókst um 24,6% milli ára.
Þann 22. október 2024 var greint frá því að Hagar hf. og eigendur P/F SMS í Færeyjum hefðu undirritað skilyrt samkomulag um kaup og sölu á öllu hlutafé í SMS. Þann 27. nóvember 2024 var endanlegur kaupsamningur vegna viðskiptanna undirritaður. Uppgjörsdagur vegna kaupanna var mánudagurinn 2. desember 2024 og mun SMS því verða hluti af samstæðuuppjjöri Haga á síðasta fjórðungi rekstrarársins 2024/25, þ.e. áhrifa í rekstri mun gæta frá og með þeim tíma auk þess sem eignarhlutur verður þá bókfærður. Nánari upplýsingar má finna í skýringu 19.
Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2024/25 gerir ráð fyrir að rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) verði á bilinu 14.000–14.500 millj. kr. en afkomuspáin var hækkuð í lok ársfjórðungs samhliða tilkynningu um kaup félagsins á SMS í Færeyjum. Fjárhagsleg staða samstæðunnar er sterk og er fjármögnun tryggð. Aðgangur að skammtímafjármögnun í formi lánalína, að fjárhæð 4,5 ma. kr. og USD 12,5 millj. er tryggður en einnig hefur félagið undanfarið nýtt sér skammtímafjármögnun í formi vixlaútgáfu. Útgáfa vixlanna er í samræmi við grunnlýsingu 10 ma. kr. útgáfuramma sem stjórn félagsins hefur samþykkt. Gera má ráð fyrir að félagið nýtt sér áfram markaðsfjármögnun á næstu misserum.
Þann 26. september 2024 var tilkynnt um að Olís, dótturfélag Haga, hafi ásamt meðeigendum sínum komist að samkomulagi um að hefja formlegt söluferli á eignarhlutum félaganna í Olíudreifingu. Borist hafa óskuldbindandi tilboð í félagið en ekki liggur fyrir nein vissa á þessu stigi hvort framangreint ferli muni leiða til skuldbindandi tilboða í Olíudreifingu, sem gæti lokið með sölu á félaginu. Nánari upplýsingar má finna í skýringu 20.
Hlutafé og hluthafar
Skráð hlutafé félagsins nam í lok tímabilsins 1.106 millj. kr. Hver hlutur er ein króna að nafnverði. Allir hlutir eru í sama flokki og njóta sömu réttinda.
Hluthafar voru 968 í byrjun rekstrarársins og 909 í lok nóvember 2024.
Þann 30. mái 2024 samþykkti aðalfundur félagsins að greiddur yrði arður til hluthafa sem nemur 50% hagnaði síðasta reikningsárs eða samtals 2.522 millj. kr. Arðurinn var greiddur þann 7. júní 2024.
Samandregnin árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 30. nóvember 2024
SKÝRSLA OG YFIRLÝSING STJÓRNAR OG FORSTJÓRA, FRH.:
Yfirlýsing stjórnar og forstjóra
Samkvæmt bestu vitneskju stjórnar og forstjóra gefur samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar glögga mynd af rekstrarafkomu samstæðunnar fyrir tímabilið 1. mars til 30. nóvember 2024, eignum, skuldum og fjárhagsstöðu hennar þann 30. nóvember 2024 og breytingum á handbæru fé á tímabilinu, í samræmi við alpjóðlegan reikningsskilastaðal, IAS 34, eins og hann hefur verið staðfestur af Evrópusambandinu.
Jafnframt er það álit stjórnar og forstjóra að árshlutareikningurinn og skýrsla stjórnar og forstjóra geymi glöggt yfirlit um þróun og árangur í rekstri samstæðunnar, stöðu hennar, og lýsi helstu áhættupáttum og óvissu sem samstæðan býr við.
Stjórn og forstjóri Haga hf. hafa í dag farið yfir árshlutareikning samstæðunnar fyrir tímabilið 1. mars til 30. nóvember 2024 og staðfesta hann með undirritun sinni.
Árshlutareikningurinn er undirritaður með rafrænum hætti í samræmi við lög nr. 55/2019, um rafræna auðkenningu og traustþjónustu um rafræn viðskipti.
Reykjavík, 16. janúar 2025
Stjórn:
Eiríkur S. Jóhannsson, formaður
Eva Bryndís Helgadóttir, varaformaður
Davíð Harðarson, meðstjórnandi
Jensína Kristín Böðvarsdóttir, meðstjórnandi
Sigríður Olgeirsdóttir, meðstjórnandi
Forstjóri:
Finnur Oddsson
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 30. nóvember 2024
REKSTRARREIKNINGUR OG YFIRLIT UM HEILDARAFKOMU
1. MARS TIL 30. NØVEMBER 2024
| Skýr. | Þriðji ársfjörðungur | Þrir ársfjörðungar | |||
|---|---|---|---|---|---|
| 2024 | |||||
| 1.9.-30.11. | 2023 | ||||
| 1.9.-30.11. | 2024 | ||||
| 1.3.-30.11. | 2023 | ||||
| 1.3.-30.11. | |||||
| Vörusala | 43.659 | 43.683 | 134.305 | 130.482 | |
| Kostnaðarverð seldra vara | ( 33.774) | ( 34.621) | ( 104.709) | ( 103.445) | |
| Framlegð | 9.885 | 9.062 | 29.596 | 27.037 | |
| Aðrar rekstrartekjur | 341 | 139 | 604 | 543 | |
| Laun og launatengd gjöld | ( 4.444) | ( 4.094) | ( 13.069) | ( 11.907) | |
| Annar rekstarkostnaður | ( 2.129) | ( 1.877) | ( 6.250) | ( 5.450) | |
| Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) | 3.653 | 3.230 | 10.881 | 10.223 | |
| Afskriftir | 7 | ( 1.283) | ( 1.285) | ( 3.895) | ( 3.767) |
| Rekstrarhagnaður | 2.370 | 1.945 | 6.986 | 6.456 | |
| Hrein fjármagnsgjöld | 8 | ( 658) | ( 625) | ( 2.193) | ( 1.890) |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | 40 | 60 | 192 | 209 | |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 1.752 | 1.380 | 4.985 | 4.775 | |
| Tekjuskattur | ( 361) | ( 264) | ( 1.021) | ( 922) | |
| Heildarhagnaður tímabilsins | 1.391 | 1.116 | 3.964 | 3.853 | |
| Hagnaður á hlut: | |||||
| Grunnhagnaður á hlut | 1,29 | 1,03 | 3,66 | 3,50 | |
| Þynntur hagnaður á hlut | 1,26 | 1,01 | 3,59 | 3,43 |
Skýringar á blaðsiðum 9 til 15 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárshlutareikningnum.
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 30. növember 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
EFNAHAGSREIKNINGUR 30. NÓVEMBER 2024
| Skýr. | 30.11.2024 | 29.2.2024 | |
|---|---|---|---|
| Eignir | |||
| Rekstrarfjármunir | 22.213 | 22.410 | |
| Fjárfestingarfasteignir | 3.832 | 3.841 | |
| Óefnislegar eignir | 13.074 | 12.835 | |
| Leigueignir | 9 | 11.466 | 11.252 |
| Eignarhlutir í hlutdeildarfélögum | 5.519 | 5.517 | |
| Aðrar langtímaeignir | 219 | 230 | |
| Fastafjármunir samtals | 56.323 | 56.085 | |
| Vörubirgðir | 10 | 13.562 | 13.068 |
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur | 11 | 12.471 | 6.234 |
| Handbært fé | 1.534 | 1.827 | |
| Veltufjármunir samtals | 27.567 | 21.129 | |
| Eignir samtals | 83.890 | 77.214 | |
| Eigið fé | |||
| Hlutafé | 1.084 | 1.084 | |
| Bundið eigið fé | 12 | 8.475 | 8.928 |
| Óráðstafað eigið fé | 20.110 | 18.176 | |
| Eigið fé samtals | 29.669 | 28.188 | |
| Skuldir | |||
| Vaxtaberandi langtímaskuldir | 13 | 13.756 | 11.286 |
| Leiguskuldir | 14 | 10.036 | 9.660 |
| Tekjuskattsskuldbinding | 3.214 | 2.193 | |
| Langtímaskuldir samtals | 27.006 | 23.139 | |
| Vaxtaberandi skammtímaskuldir | 13 | 6.027 | 5.818 |
| Leiguskuldir | 14 | 2.631 | 2.579 |
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir | 15 | 18.557 | 17.490 |
| Skammtímaskuldir samtals | 27.215 | 25.887 | |
| Skuldir samtals | 54.221 | 49.026 | |
| Eigið fé og skuldir samtals | 83.890 | 77.214 |
Skýringar á blaðsíðum 9 til 15 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárshlutareikningnum.
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 30. nóvember 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
EIGINFJÁRYFIRLIT
1. MARS TIL 30. NÓVEMBER 2024
| Skýr. | Hlutafé | Bundið eigið fé | Óráðstafað eigið fé | Eigið fé Samtals | |
|---|---|---|---|---|---|
| Breytingar á eigin fé 1. mars til 30. nóvember 2023 | |||||
| Eigið fé 1. mars 2023 | 1.119 | 7.290 | 19.522 | 27.931 | |
| Endurkaup á eigin bréfum | ( 22) | ( 1.478) | ( 1.500) | ||
| Endurkaup á eigin bréfum - ógild | ( 13) | ( 820) | ( 833) | ||
| Heildarhagnaður tímabilsins | 3.853 | 3.853 | |||
| Breyting á bundnu eigin fé | 12 | 551 | ( 530) | 21 | |
| Greiddur arður, 2,24 kr. á hlut | ( 2.475) | ( 2.475) | |||
| Eigið fé 30. nóvember 2023 | 1.084 | 7.841 | 18.072 | 26.997 | |
| Breytingar á eigin fé 1. mars til 30. nóvember 2024 | |||||
| Eigið fé 1. mars 2024 | 1.084 | 8.928 | 18.176 | 28.188 | |
| Uppgjör kaupréttarsamninga | 10 | 10 | |||
| Heildarhagnaður tímabilsins | 3.964 | 3.964 | |||
| Breyting á bundnu eigin fé | 12 | ( 453) | 482 | 29 | |
| Greiddur arður, 2,33 kr. á hlut | ( 2.522) | ( 2.522) | |||
| Eigið fé 30. nóvember 2024 | 1.084 | 8.475 | 20.110 | 29.669 |
Þann 30. maí 2024 samþykkti aðalfundur félagsins að greiddur yrði arður til hluthafa sem nemur 50% hagnaði síðasta reikningsárs eða samtals 2.522 millj. kr. Arðurinn var greiddur þann 7. júní 2024.
Áhrifa af afhendingu eigin bréfa í viðskiptum Haga með SMS gætir ekki fyrr en á fjórða ársfjórðungi rekstrarársins þegar formlega er tekið við eignarhlutnum. Sjá nánari upplýsingar í skýringu 19.
Skýringar á blaðsíðum 9 til 15 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárshlutareikningnum.
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 30. nóvember 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
SJÓBSTREYMISYFIRLIT
1. MARS TIL 30. NÓVEMBER 2024
| Skýr. | Þriðji ársfjörðungur | Þrír ársfjörðungar | |||
|---|---|---|---|---|---|
| 2024 | 2023 | 2024 | 2023 | ||
| 1.9.-30.11. | 1.9.-30.11. | 1.3.-30.11. | 1.3.-30.11. | ||
| Rekstrarhreyfingar | |||||
| Hagnaður tímabilsins | 1.391 | 1.116 | 3.964 | 3.853 | |
| Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi: | |||||
| Söluhagnaður | ( 171) | ( 2) | ( 178) | ( 148) | |
| Afskriftir | 7 | 1.283 | 1.285 | 3.895 | 3.767 |
| Hrein fjármagnsgjöld | 8 | 658 | 625 | 2.193 | 1.890 |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | ( 40) | ( 60) | ( 192) | ( 209) | |
| Tekjuskattur | 361 | 264 | 1.021 | 922 | |
| Aðrir liðir | ( 11) | 0 | 54 | 35 | |
| Veltufé frá rekstri | 3.471 | 3.228 | 10.757 | 10.110 | |
| Breytingar á rekstrartengdum eignum | 685 | ( 656) | ( 1.553) | ( 1.779) | |
| Breytingar á rekstrartengdum skuldum | ( 518) | ( 341) | 1.910 | 1.107 | |
| Handbært fé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt | 3.638 | 2.231 | 11.114 | 9.438 | |
| Innheimtar vaxtatekjur | 72 | 31 | 169 | 61 | |
| Greidd vaxtagjöld | ( 721) | ( 641) | ( 2.114) | ( 1.637) | |
| Greiddur tekjuskattur | ( 294) | ( 377) | ( 917) | ( 832) | |
| Handbært fé frá rekstri | 2.695 | 1.244 | 8.252 | 7.030 | |
| Fjárfestingarhreyfingar | |||||
| Fjárfesting í fasteignum | ( 202) | ( 63) | ( 291) | ( 990) | |
| Söluverð fasteigna | 0 | 0 | 0 | 263 | |
| Fjárfesting í áhöldum og innréttingum | ( 579) | ( 606) | ( 1.420) | ( 2.233) | |
| Söluverð áhalda og tækja | 7 | 2 | 34 | 38 | |
| Fjárfesting í fjárfestingarfasteignum | ( 58) | ( 12) | ( 107) | ( 516) | |
| Söluverð fjárfestingarfasteigna | 204 | 0 | 204 | 0 | |
| Fjárfesting í óefnislegum eignum | ( 224) | ( 162) | ( 576) | ( 597) | |
| Fjárfesting í P/F SMS | 19 | ( 5.191) | 0 | ( 5.191) | 0 |
| Móttekinn arður frá hlutdeildarfélögum | 0 | 0 | 190 | 244 | |
| Fjárfesting í df. að frádr. yfirtekni handbæru fé | 0 | ( 30) | 0 | ( 30) | |
| Langtímaeignir, breyting | ( 15) | ( 9) | 0 | ( 186) | |
| Fjárfestingarhreyfingar | ( 6.058) | ( 880) | ( 7.157) | ( 4.007) | |
| Fjármögnunarhreyfingar | |||||
| Keypt eigin bréf | 0 | ( 1.500) | 0 | ( 2.333) | |
| Greiddur arður | 0 | 0 | ( 2.522) | ( 2.475) | |
| Nýjar vaxtaberandi langtímaskuldir | 13 | 2.560 | 2.000 | 2.560 | 2.000 |
| Afborganir langtímalána | 13 | ( 2.612) | ( 111) | ( 2.834) | ( 332) |
| Leiguskuld afborganir | 14 | ( 426) | ( 446) | ( 1.262) | ( 1.369) |
| Vaxtaberandi skammtímaskuldir, breyting | 2.391 | ( 1.150) | 2.670 | 500 | |
| Fjármögnunarhreyfingar | 1.913 | ( 1.207) | ( 1.388) | ( 4.009) | |
| Lækkun á handbæru fé | ( 1.450) | ( 843) | ( 293) | ( 986) | |
| Handbært fé í upphafi tímabils | 2.984 | 2.726 | 1.827 | 2.869 | |
| Handbært fé í lok tímabils | 1.534 | 1.883 | 1.534 | 1.883 |
Skyringar á bláðsíðum 9 til 15 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárs hlutareikningnum.
Samandreginn árs hlutareikningur samstæðu Haga hf. 30. nóvember 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
SKYRINGAR
- Félagið
Hagar hf. („félagið“) er íslensk hlutafélag og er lögheimili þess að Holtavegi 10, Reykjavík. Samstæðuárshlutareikningur félagsins fyrir tímabilið 1. mars 2024 til 30. nóvember 2024 hefur að geyma samstæðu árshlutareikning félagsins og dótturfélaga þess, sem vísað er til í heild sinni sem „samstæðunnar“ og til einstakra félaga sem „samstæðufélaga“. Aðalstarfsemi félagsins er rekstur smásöluverslana og sala á eldsneyti. Yfirlit yfir félög í samstæðunni má finna í skýringu 16.
- Grundvöllur reikningsskilanna
Yfirlýsing um að alþjóðlegum reikningsskilastöðlum sé fylgt
Árshlutareikningur samstæðunnar er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastöðal (IFRS) um árshlutareikninga, IAS 34, eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu. Samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar inniheldur ekki allar þær upplýsingar sem krafist er í fullbúnum ársreikningi og ætti að lesa í samhengi við ársreikning samstæðunnar fyrir rekstrarárið sem endaði þann 29. febrúar 2024.
Stjórn félagsins staðfesti árshlutareikninginn þann 16. janúar 2025.
- Mikilvægar reikningsskilaðferðir
Við gerð árshlutareikningsins er beitt sömu reikningsskilaðferðum og beitt var við gerð ársreiknings samstæðunnar fyrir rekstrarárið sem endaði þann 29. febrúar 2024. Hægt er að nálgast ársreikninginn á vef félagsins, www.hagar.is.
Árshlutareikningurinn er birtur í íslenskum krónum, sem er starfrækslugjaldmiðill félagsins. Allar fjárhæðir eru birtur í milljónum króna.
- Mat og ákvarðanir
Gerð samstæðuárshlutareiknings í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastöða krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og gefi sér forsendur sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaðferða og birtur fjárhæðir eigna, skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að vera frábrúðnar þessu mati.
- Viðskiptavild
Engar vísbendingar voru um virðisrýrnun viðskiptavildar þann 30. nóvember 2024 og vegna þess var virðisrýrnunarpróf ekki framkvæmt.
- Starfsþáttayfirlit
Starfsþættir samstæðunnar eru tveir, verslanir og vöruhús annars vegar og Olís hins vegar. Starfsemi verslana og vöruhúsa er nær eingöngu í smásölurekstri matvöru á Íslandi. Stjórnendur leggja mat á smásöluverslun eftir mismunandi tegundum verslana og landsvæðum og líta svo á að hún byggist á sambærilegum efnahagslegum einkennum, vörum, viðskiptavinum og birgjum. Heildsölurekstur matvöru og smásölurekstur sérvöru er óverulegur og undir þeim tekju-, hagnaðar- og eignamörkum sem hafa ber til viðmiðunar við gerð starfsþáttayfirlits. Starfsemi Olís er að stærstum hluta í sölu eldsneytis og þjónustu sem því tengist.
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 30. nóvember 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
SKYRINGAR, FRH.:
6. Starfspåttayfirlit, frh.:
| Fyrstu 9 mánuðir 2024/25 | Verslanir og vöruhús | Olís ehf. | Jöfnunar-færslur | Samtals |
|---|---|---|---|---|
| Vörusala | 94.682 | 40.266 | ( 643) | 134.305 |
| Aðrar rekstrartekjur | 549 | 265 | ( 210) | 604 |
| Heildartekjur starfsbátta | 95.231 | 40.531 | ( 853) | 134.909 |
| Heildarreksstrargjöld starfsbátta | ( 87.340) | ( 37.541) | 853 | ( 124.028) |
| EBITDA starfsbátta | 7.891 | 2.990 | 0 | 10.881 |
| Afskriftir starfsbátta | ( 2.989) | ( 906) | 0 | ( 3.895) |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | 39 | 153 | 0 | 192 |
| Rekstrarafkoma starfsbátta | 4.941 | 2.237 | 0 | 7.178 |
| Hrein fjármagnsgjöld | ( 1.780) | ( 413) | 0 | ( 2.193) |
| Tekjuskattur | ( 1.021) | |||
| Hagnaður tímabilsins | 3.964 | |||
| 30. nóvember 2024 | ||||
| Eignir starfsbátta | 60.791 | 23.099 | 0 | 83.890 |
| Eignir samtals | 83.890 | |||
| Skuldir starfsbátta | 44.343 | 9.878 | 0 | 54.221 |
| Skuldir samtals | 54.221 | |||
| Fjárfestingar starfsbátta (nettó) | 1.639 | 517 | 0 | 2.156 |
| Fyrstu 9 mánuðir 2023/24 | ||||
| Vörusala | 89.730 | 41.503 | ( 751) | 130.482 |
| Aðrar rekstrartekjur | 579 | 158 | ( 194) | 543 |
| Heildartekjur starfsbátta | 90.309 | 41.661 | ( 945) | 131.025 |
| Heildarreksstrargjöld starfsbátta | ( 82.956) | ( 38.791) | 945 | ( 120.802) |
| EBITDA starfsbátta | 7.353 | 2.870 | 0 | 10.223 |
| Afskriftir starfsbátta | ( 2.943) | ( 824) | 0 | ( 3.767) |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | 73 | 136 | 0 | 209 |
| Rekstrarafkoma starfsbátta | 4.483 | 2.182 | 0 | 6.665 |
| Hrein fjármagnsgjöld | ( 1.549) | ( 341) | 0 | ( 1.890) |
| Tekjuskattur | ( 922) | |||
| Hagnaður tímabilsins | 3.853 | |||
| 30. nóvember 2023 | ||||
| Eignir starfsbátta | 54.365 | 22.150 | 0 | 76.515 |
| Eignir samtals | 76.515 | |||
| Skuldir starfsbátta | 40.002 | 9.516 | 0 | 49.518 |
| Skuldir samtals | 49.518 | |||
| Fjárfestingar starfsbátta (nettó) | 3.353 | 682 | 0 | 4.035 |
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 30. nóvember 2024
Fjárhæðir eru í milfjónum króna
SKYRINGAR, FRH.:
-
Afskriftir
| | 2024 | 2023 | 2024 | 2023 |
| --- | --- | --- | --- | --- |
| Afskriftir greinast pannig: | 1.9.-30.11. | 1.9.-30.11. | 1.3.-30.11. | 1.3.-30.11. |
| Afskriftir rekstrarfjármuna | 643 | 632 | 1.910 | 1.878 |
| Afskriftir fjárfestingarfasteigna | ( 16) | 22 | 55 | 63 |
| Afskriftir leigueigna | 494 | 495 | 1.476 | 1.450 |
| Afskriftir óefnislegra eigna | 121 | 102 | 341 | 273 |
| Hlutdeild í afskriftum Olíudreifingar ehf. | 41 | 34 | 113 | 103 |
| Afskriftir samtals | 1.283 | 1.285 | 3.895 | 3.767 | -
Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld
Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld greinast pannig:
| 2024 | 2023 | 2024 | 2023 | |
|---|---|---|---|---|
| 1.9.-30.11. | 1.9.-30.11. | 1.3.-30.11. | 1.3.-30.11. | |
| Vaxtatekjur af innstæðum og kröfum | 72 | 31 | 169 | 61 |
| Gengishagnaður | 0 | 50 | 0 | 36 |
| 72 | 81 | 169 | 97 | |
| Vaxtagjöld og verðbætur | ( 424) | ( 525) | ( 1.527) | ( 1.530) |
| Vaxtagjöld leiguskuldar | ( 276) | ( 181) | ( 824) | ( 457) |
| Gengistap | ( 30) | 0 | ( 11) | 0 |
| Fjármagnsgjöld samtals | ( 730) | ( 706) | ( 2.362) | ( 1.987) |
| Hrein fjármagnsgjöld | ( 658) | ( 625) | ( 2.193) | ( 1.890) |
- Leigueignir
Leigueignir og leiguskuldir samstæðunnar sem leigutaka eru eingöngu vegna húsnæðis. Leigueignir og leiguskuldir vegna lóðaleigusamninga eru ekki færðar. Upplysingar um leiguskuldir má finna í skýringu 14.
| Leigueignir greinast pannig frá upphafi til loka tímabilsins: | 30.11.2024 | 29.2.2024 |
|---|---|---|
| Leigueignir í upphafi tímabils | 11.252 | 8.287 |
| Nýir samningar | 0 | 1.722 |
| Verðbætur | 487 | 939 |
| Afskriftir | ( 1.476) | ( 1.862) |
| Aðrar breytingar samninga | 1.203 | 2.166 |
| Leigueignir í lok tímabils | 11.466 | 11.252 |
- Vörubirgðir
| Vörubirgðir greinast pannig: | 30.11.2024 | 29.2.2024 |
| --- | --- | --- |
| Matvara | 6.772 | 6.126 |
| Sérvara | 3.043 | 2.520 |
| Eldsneyti | 3.405 | 4.039 |
| Vörur í flutningi | 342 | 383 |
| Vörubirgðir samtals | 13.562 | 13.068 |
| Niðurfærsla birgða í lok tímabils | 341 | 228 |
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 30. november 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
SKYRINGAR, FRH.:
-
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur greinast þannig: 30.11.2024 29.2.2024
Viðskiptakröfur ... 5.779 5.189
Niðurfærsla viðskiptakrafna ... ( 280) ( 239)
Fjárfesting í P/F SMS* ... 5.191 0
Gjaldmiðlaskiptasamningur ... 143 69
Aðrar skammtímakröfur ... 313 437
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur ... 11.146 5.456
Greiðslukortakröfur ... 1.325 778
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur samtals ... 12.471 6.234 -
Sjá nánari upplýsingar í skýringu 19.
-
Eigið fé
| Bundið eigið fé greinist þannig: | Lög-bundinn varasjóður | Bundinn hlutdeildar-reikningur | Bundinn eiginfjár-reikningur | Bundið eigið fé samtals |
|---|---|---|---|---|
| Bundið eigið fé 1. mars 2023 | 283 | 6.974 | 33 | 7.290 |
| Breyting á varasjóð | ( 6) | 0 | 0 | ( 6) |
| Áfallinn kostnaður v. kaupréttarsamninga | 0 | 0 | 21 | 21 |
| Breyting á hlutdeildarreikningi | 0 | 536 | 0 | 536 |
| Bundið eigið fé 30. nóvember 2023 | 277 | 7.510 | 54 | 7.841 |
| Bundið eigið fé 1. mars 2024 | 277 | 8.597 | 54 | 8.928 |
| Áfallinn kostnaður v. kaupréttarsamninga | 0 | 0 | 29 | 29 |
| Breyting á hlutdeildarreikningi | 0 | ( 482) | 0 | ( 482) |
| Bundið eigið fé 30. nóvember 2024 | 277 | 8.115 | 83 | 8.475 |
- Vaxtaberandi skuldir
| Vaxtaberandi skuldir greinast þannig: | Vegið meðaltal vaxta | Eftirstöðvar | Eftirstöðvar | |
|---|---|---|---|---|
| 30.11.2024 | 29.2.2024 | 30.11.2024 | 29.2.2024 | |
| Langtímaskuldir í ISK, óverðtryggðar | 9,41% | 8,42% | 8.034 | 8.125 |
| Langtímaskuldir í ISK, verðtryggðar | 2,80% | 2,80% | 6.182 | 6.099 |
| Skammtímaskuldir í erlendri mynt, DKK | 5,28% | 0,00% | 3.907 | 0 |
| Víxlskuldir í ISK | 9,90% | 10,32% | 1.660 | 2.880 |
| Vaxtaberandi skuldir, þ.m.t. næsta árs afborgun | 19.783 | 17.104 | ||
| Næsta árs afborganir vaxtaberandi skulda | ( 6.027) | ( 5.818) | ||
| Langtímaskuldir samtals | 13.756 | 11.286 |
Afborganir langtímalána greinast þannig á næstu ár:
| Afborganir innan árs | 6.027 | 5.818 |
|---|---|---|
| Afborganir eftir 1 til 2 ár | 3.470 | 445 |
| Afborganir eftir 2 til 3 ár | 2.041 | 2.456 |
| Afborganir eftir 3 til 4 ár | 493 | 468 |
| Afborganir eftir 4 til 5 ár | 5.452 | 481 |
| Afborganir síðar | 2.300 | 7.436 |
| Samtals | 19.783 | 17.104 |
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 30. nóvember 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
SKÝRINGAR, FRH.:
- Vaxtaberandi skuldir, frh.
| Breyting vaxtaberandi skulda á tímabilinu greinast pannig: | 30.11.2024 | 29.2.2024 |
|---|---|---|
| Vaxtaberandi skuldir í upphafi tímabils | 17.104 | 15.154 |
| Ný langtímalán | 2.560 | 2.000 |
| Afborganir langtímalána | ( 2.834) | ( 443) |
| Breyting á víxilskuldum | ( 1.220) | 1.800 |
| Breyting á skammtímaskuldum | 3.890 | ( 1.800) |
| Verðbætur | 266 | 393 |
| Gengismunur | 17 | 0 |
| Vaxtaberandi skuldir í lok tímabils | 19.783 | 17.104 |
- Leiguskuldir
| Leiguskuldir greinast pannig frá upphafi til loka tímabilsins: | 30.11.2024 | 29.2.2024 |
|---|---|---|
| Leiguskuldir í upphafi tímabils | 12.239 | 9.068 |
| Nýir samningar | 0 | 1.722 |
| Afborgunarpáttur leigugreiðsina | ( 1.262) | ( 1.656) |
| Verðbætur | 487 | 939 |
| Aðrar breytingar samninga | 1.203 | 2.166 |
| Leiguskuldir, þ.m.t. næsta árs afborgun | 12.667 | 12.239 |
| Næsta árs afborganir leiguskulda | ( 2.631) | ( 2.579) |
| Leiguskuldir til langtíma í lok tímabils | 10.036 | 9.660 |
Afborganir leiguskulda greinast pannig á næstu ár:
| Afborganir innan árs | 2.631 | 2.579 |
|---|---|---|
| Afborganir eftir 1 til 2 ár | 2.214 | 2.189 |
| Afborganir eftir 2 til 3 ár | 1.583 | 1.697 |
| Afborganir eftir 3 til 4 ár | 1.196 | 1.210 |
| Afborganir eftir 4 til 5 ár | 1.023 | 890 |
| Afborganir síðar | 4.020 | 3.674 |
| Samtals | 12.667 | 12.239 |
Heildarleigugreiðslur sem tengjast þeim leigusamningum sem færðir eru samkvæmt leigustaðli IFRS 16 námu 2.086 millj. kr. á tímabilinu (2023/24: 1.825 millj. kr.).
- Víðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir
| Víðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir | 30.11.2024 | 29.2.2024 |
|---|---|---|
| Tekjuskattur til greiðslu | 968 | 864 |
| Víðskiptaskuldir | 15.452 | 13.095 |
| Aðrar skammtímaskuldir | 2.137 | 3.531 |
| Víðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir samtals | 18.557 | 17.490 |
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 30. nóvember 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
SKYRINGAR, FRH.:
16. Félög í samstæðu
Dótturfélög í samstæðu Haga hf. voru sex í upphafi tímabils en sjö í lok þess. Dótturfélögin eru eftirfarandi:
| Staðsetning | Eignarhlutur | ||
|---|---|---|---|
| 30.11.2024 | 29.2.2024 | ||
| Hagar verslanir ehf. | Ísland | 100% | 100% |
| Olís ehf. | Ísland | 100% | 100% |
| Bananar ehf. | Ísland | 100% | 100% |
| Noron ehf. | Ísland | 100% | 100% |
| Stórkaup ehf. | Ísland | 100% | 100% |
| Eldum rétt ehf. | Ísland | 100% | 100% |
| Hagar Wine B.V. | Holland | 100% | 0% |
Nýtt dótturfélag Haga hf., P/F SMS í Færeyjum, verður hluti af samstæðu Haga á fjórða ársfjórðungi 2024/25, þ.e. frá og með 2. desember 2024. Sjá nánari upplýsingar í skýringu 19.
17. Tengdir aðilar
Tengdir aðilar félagsins eru stórí hluthafar í félaginu, hlutdeildarfélög þess, lykilstjórnendur og stjórnarmenn. Viðskipti á milli félagsins og dótturfélaga þess, sem eru skilgreind sem tengdir aðilar, hafa verið færð út í samstæðureikningsskilum og eru ekki hluti af þessari skýringu.
Viðskipti við tengda aðila
Viðskipti við tengda aðila eru við hlutdeildarfélög og greinast þannig:
| 2024 | 2023 | 2024 | 2023 | |
|---|---|---|---|---|
| 1.9.-30.11. | 1.9.-30.11. | 1.3.-30.11. | 1.3.-30.11. | |
| Seldar vörur og þjónusta | 56 | 172 | 245 | 363 |
| Keyptar vörur og þjónusta | (534) | (889) | (1.653) | (1.991) |
| Viðskiptakröfur í lok tímabils | 9 | 7 | ||
| Viðskiptaskuldir í lok tímabils | (164) | (204) |
18. Kennitölur
Helstu kennitölur samstæðunnar eru eftirfarandi:
| 2024 | 2023 | |
|---|---|---|
| Rekstur | 1.3.-30.11. | 1.3.-30.11. |
| Rekstrarhagnaðarhlutfall (rekstrarhagnaður fyrir afskriftir / vörusölu) | 8,1% | 7,8% |
| Hagnaðarhlutfall (hagnaður eftir skatta / vörusölu) | 3,0% | 3,0% |
| Launahlutfall (laun og launatengd gjöld / vörusölu) | 9,7% | 9,1% |
| Kostnaðarhlutfall (annar rekstrarkostnaður / vörusölu) | 4,7% | 4,2% |
| Veltuhraði birgða (kostnaðarverð seldra vara / meðalbirgðastaða) | 10,5 | 10,0 |
| Innheimtutími viðskiptakrafna í dögum | 12,3 | 11,9 |
| Efnahagur | 30.11.2024 | 29.2.2024 |
| --- | --- | --- |
| Veltufjárhlutfall (veltufjármunir / skammtímaskuldir) | 1,01 | 0,82 |
| Lausafjárhlutfall ((veltufjármunir-birgðir) / skammtímaskuldir) | 0,51 | 0,31 |
| Skuldsetning (nettó vaxtaberandi skuldir / rekstrarhagnaður fyrir afskriftir) | 2,3 | 2,1 |
| Eiginfjárhlutfall (eigið fé / heildareignir) | 35,4% | 36,5% |
| Innra virði hlutafjár (eigið fé / hlutafé) | 27,37 | 26,00 |
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 30. nóvember 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
SKÝRINGAR, FRH.:
19. Kaup á öllu hlutafé P/F SMS í Færeyjum
Þann 22. október 2024 var greint frá því að Hagar hf. og eigendur P/F SMS í Færeyjum hefðu undirritað skilyrt samkomulag um kaup og sölu á öllu hlutafé í SMS. Þann 27. nóvember 2024 var endanlegur kaupsamningur vegna viðskiptanna undirritaður. Uppgjörsdagur viðskiptanna var mánudagurinn 2. desember 2024 og mun SMS því verða hluti af samstæðu uppgjóri Haga á síðasta fjörðungi rekstrarársins 2024/25, þ.e. áhrifa í rekstri mun gæta frá og með þeim tíma auk þess sem eignarhlutur verður þá bókfærður.
Kaupverð (e. enterprise value) í viðskiptunum nam tæplega 467 mDKK og virði hlutafjár (e. equity value) tæplega 327 mDKK. Kaupverð byggði m.a. á rekstri og áætlunum SMS fyrir rekstrarárið 2024, en tekjur fyrir árið voru áætlaðar um 730 mDKK og hagnaður fyrir fjármagnsliði og afskriftir (EBITDA) um 63 mDKK. Kaupverð byggði einnig á mati á fasteignasafni SMS. Vert er að benda á að áhrifa leigustaðals IFRS 16 gætir ekki í uppgefnum afkomutölum SMS. Hagar greiddu kaupverð með reiðufé að upphæð um 267 mDKK og afhendingu 13.867.495 hluta eigin bréfa að virði 60 mDKK í viðskiptunum. Hluti kaupverð sem var í reiðufé var greiddur í lok 3. ársfjörðungs (á biðvörslu) en afhending bréfa fór fram þann 2. desember 2024, þ.e. í upphafi 4. ársfjörðungs. Hagar fjármögnuðu hluta kaupverð með nýju 200 mDKK láni til 12 mánaða en unnið verður að langtímafjármögnun á næstu misserum.
SMS er leiðandi verslunarfélag í Færeyjum og rekur m.a. átta Bónus lágvöruverðsverslanir viða í Færeyjum, fjórar smærri dagvöruverslanir í Þórshöfn undir nafninu Mylnan og stórverslunina Miklagarður í Þórshöfn. SMS er einnig umsvifamikið í annarri starfsemi, m.a. rekstri stærstu verslunarmiðstöðvar Færeyja, fjölda veitingastaða, småvöruverslana, brauð- og kökugerðar, kjötvinnslu og líkamsræktarstöðva. Að auki á félagið fjölbreytt fasteignasafn sem telur um 11.000 m2 sem er að mestu nytt undir eigin starfsemi en að hluta leigt til þriðja aðila. Markmið kaupanna er að renna frekari stoðum undir og styrkja rekstur Haga á sviði dagvöruverslana og auka skilvirkni rekstrar og vöruúrval SMS í Færeyjum.
20. Söluferli Olíudreifingar ehf.
Í apríl 2024 var tilkynnt um að Olís, dótturfélag Haga, ásamt meðeigendum sínum hefðu komist að samkomulagi um að hefja undirbúning sölumeðferðar á eignarhlutum félaganna í Olíudreifingu ehf. Í framhaldi af þeim undirbúningi var þann 26. september 2024 tilkynnt um að ákveðið hefði verið að hefja formlegt söluferli á eignarhlutunum. Olís á 40% eignarhlut en Olíudreifing er mikilvægt innviðafélag hvað varðar birgðahald og dreifingu eldsneytis á Íslandi. Borist hafa óskuldbindandi tilboð í félagið en ekki liggur fyrir nein vissa á þessu stigi hvort framangreint ferli muni leiða til skuldbindandi tilboða í Olíudreifingu, sem gæti lokið með sölu á félaginu.
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 30. nóvember 2024
Fjárhæðir eru í milfjónum króna