Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar Interim / Quarterly Report 2024

Jan 11, 2024

2196_rns_2024-01-11_0b659859-daee-481b-8094-a3fe32c1ac7c.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

Fréttatilkynning

  1. januar 2024

hagar

HAGAR HF.: UPPGJØR HAGA Á 3. ÁRSFJÓRDUNGI 2023/24

Aukin aosókn í verslanir og pjónustu Haga

Árshlutareikningur Haga hf. fyrir priðja ársfjórðung 2023/24 var sampykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 11. janúar 2024. Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars til 30. nóvember 2023. Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alpjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Reikningurinn hefur hvorki verið kannaður né endurskoðaður af endurskoðendum félagsins, PricewaterhouseCoopers ehf.

Helstu lykiltölur

  • Vörusala 3F nam 43.683 m.kr. (8,6% vöxtur frá 3F 2022/23). Vörusala 9M nam 130.482 m.kr. (7,1% vöxtur frá 9M 2022/23). [3F 2022/23: 40.220 m.kr., 9M 2022/23: 121.832 m.kr.]
  • Framlegð 3F nam 9.062 m.kr. (20,7%) og 27.037 m.kr. (20,7%) fyrir 9M. [3F 2022/23: 7.301 m.kr. (18,2%), 9M 2022/23: 23.248 m.kr. (19,1%)]
  • Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) 3F nam 3.230 m.kr. eða 7,4% af veltu. EBITDA 9M nam 10.223 m.kr. eða 7,8% af veltu. [3F 2022/23: 2.598 m.kr. (6,5%), 9M 2022/23: 9.635 m.kr. (7,9%)]
  • Hagnaður 3F nam 1.116 m.kr. eða 2,6% af veltu. Hagnaður 9M nam 3.853 m.kr. eða 3,0% af veltu. [3F 2022/23: 910 m.kr. (2,3%), 9M 2022/23: 4.214 m.kr. (3,5%)]
  • Grunnhagnaður á hlut 3F var 1,03 kr. og 3,50 kr. fyrir 9M. [3F 2022/23: 0,82 kr., 9M 2022/23: 3,74 kr.]. Þynntur hagnaður á hlut 3F var 1,01 kr. og 3,43 kr. fyrir 9M. [3F 2022/23: 0,82 kr., 9M 2022/23: 3,67 kr.]
  • Eigið fé nam 26.997 m.kr. í lok tímabils og eiginfjárhlutfall 35,3%. [Árslok 2022/23: 27.931 m.kr. og 38,8%]
  • Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2023/24 gerir ráð fyrir að EBITDA verði 12.900-13.400 m.kr.

Helstu fréttir af starfsemi

  • Rekstur á 3F gekk vel og var afkoma umfram áætlanir félagsins. Afkomuspá var endurskoðuð og hækkuð seinni hluta desembermánaðar.
  • Vörusala jókst um 8,6% á 3F en seldum stykkjum í dagvöruverslunum fjölgaði um 3,6% milli ára og heimsóknum viðskiptavina fjölgaði sömuleiðis, eða um 8,6% á fjórðungnum. Seldum eldsneytislítrum fjölgaði um 1,6% á fjórðungnum.
  • Afkomu umfram áætlanir má m.a. rekja til aukinnar aðsóknar í verslanir Haga, pá einkum í dagvöruhluta samstæðunnar, en einnig hefur áfram verið sterk eftirspurn í eldsneytishluta samstæðunnar.
  • Framlegð í krónum talið eykst um 24,1% milli ára og framlegðarhlutfallið nemur 20,7% eða hækkun um 2,6%-stig milli ára. Styrking framlegðar frá fyrra ári tengist að stærstum hluta starfsemi Olís og sveiflum í heimsmarkaðsverði olíu, en framlegðarhlutfall í dagvöru hefur einnig batnað lítillega.
  • Á fyrra ári var meðal annarra rekstrartekná færð einskiptis endurgreiðsla vegna flutningsjöfnunarsjóðs að fjárhæð 451 m.kr.
  • Bónus opnaði nýja 2.200 m² matvöruverslun í Miðhrauni í Garðabæ þann 25. nóvember sl. Verslanir Bónus eru nú 33 talsins.
  • Þann 1. desember var tilkynnt um að Hagar ásamt meðeigendum hefðu hafið vinnu við skoðun á stefnu og framtíðarmöguleikum á eignarhaldi Olíudreifingar ehf., sem er í 40% eigu Olís.

Fréttatilkynning 11. januar 2024

hagar

Finnur Oddsson, forstjóri:

Starfsemi Haga hf. á priðja ársfjörðungi rekstrarársins 2023/24 gekk vel. Vörusala samstæðu nam 43,7 ma. kr. og jökst um 8,6% miðað við sama tímabil árið á undan. Afkoma styrktist á fjörðungnum og var heldur umfram áætlun og fyrra ár, en EBITDA nam 3.230 m.kr. og hagnaður 1.116 m.kr. Í ljósi þess hve rekstrarumhverfi í dagvöruverslun hefur verið ögrandi, með áframhaldandi hækkun á verði aðfanga og rekstarkostnaði á haustmánuðum, þá erum við ánægð með rekstur félagsins á fjörðungnum og það sem af er ári.

Umsvíf jukust áfram og afkoma batnaði þvert á samstæðu Haga. Ef horft er til starfsbátta, þá er sem fyrr ágætur vöxtur í tekjum verslana og vöruhúsa, þ.e. Bónus, Hagkaup, Eldum rétt, Zara, Aðföng og Bananar. Tekjur jukust um tæp 16%, að hluta vegna áhrifa verðhækkana frá heildsölum og framleiðendum sem hafa nú verið viðvarandi allt frá árinu 2020. Það er hins vegar ánægjulegt að sjá raunvöxt tekna, sem er afleiðing þess að aðsókn í verslanir Haga og þjónustu Eldum rétt hefur aukist töluvert, bæði talið í fjölda viðskiptavina og seldum einingum. Afkoma starfsbáttarins batnar áfram, bæði vegna aukinnar eftirspurnar en einnig vegna þess að framlegð hefur heldur styrkst frá hausti 2022 þegar hún var lág í sögulegu samhengi.

Ný verslun Bónus opnaði í Miðhrauni, Garðabæ, í lok nóvember og fer vel af stað, eins og aðrar verslanir Bónus sem opnaðar voru eða endurbættar á árinu. Tekjur jukust áfram og æ fleiri viðskiptavinir sækja Bónus heim. Loforð um hagkvæmustu matvörukörfu landsins á greinilega vel við á tímum verðbölgu og hárra vaxta. Því til viðbótar þá hafa viðskiptavinir tekið nybreytni í starfsemi Bónus vel síðustu misseri, eins og lengri opnunartíma, auðvelda aðgengi og þægindi og tímasparnað í verslunarferðum sem næst með skönnunarlausn eins og Gripið & Greitt. Hagkaup og Zara áttu sterka haustmánuði og eðli máls samkvæmt hafa umsvíf í Banönum og Aðföngum aukist í takti við verslanir. Til að mæta aukningunni er unnið að stækkun vöruhúsa Aðfanga, en fyrsta stóra áfanga þeirrar vinnu lauk í nóvember.

Fyrsta heila ári Eldum rétt sem hluti af Högum lauk í október og gekk vel, með mikilli fjölgun seldra matarpakka í samanburði við árið á undan. Félagið er frábær viðbót við þjónustuframboð Haga og velgengni síðasta árs endurspeglar ánægju viðskiptavina og þá staðreynd að stöðugt fleiri landsmenn nýta Eldum rétt til að auðvelda og bæta matseld á heimilum. Til að anna eftirspurn voru framleiðslurými stækkuð á síðasta ári, en við sjáum mikil tækifæri til frekari vaxtar Eldum rétt á næstu mánuðum og misserum.

Tekjur Olís á fjörðungnum námu 13,8 ma. kr., sem er 7% samdráttur frá fyrra ári sem skýrist fyrst og fremst af einskiptisliðum og lækkun heimsmarkaðsverðs olíu á milli tímabila. Nokkur aukning var í heildarfjölda seldra lítra, vegna góðrar sölu til stórnotenda en umsvíf á smásölumarkaði voru svipuð á milli ára. Sala á þurrvöruflokkum jökst einnig á milli ára, í samræmi við góðar móttökur viðskiptavina við aðlögdu og bættu þjónustu- og vöruframboði á þjónustustöðvum Olís. Að teknu tilliti til einskiptisliða sem höfðu töluverð áhrif á afkomu Olís á sama fjörðungi fyrir ári, þá batnar afkoma starfsbáttarins, m.a. vegna mikilla umsvífa stórnotenda og hagræðis vegna skipulagsbreytinga.

Við erum ánægð með rekstur samstæðunnar á fjörðungnum og þróun síðustu misseri. Stoðir í rekstri félagsins hafa styrkst og endurspeglast það í bættri afkomu. Þar skiptir mestu aukið hagræði í rekstri, meiri umsvíf hjá öllum rekstrareiningum Haga, nýjar einingar og afrakstur stefnumarkandi ákvarðana.

Viðfangsefni okkar á næstu mánuðum eru óbreytt, þ.e. að vinna að áframhaldandi styrkingu félagsins og sérstaklega að beita okkur gegn þrálátum verðhækknunum í dagvöru og styðja þannig við hjöðnun verðbölgu. Því tengt, þá gætir enn óróa á mörkuðum fyrir dagvöru, m.a. vegna nýrra stríðsátaka erlendis, og heildsalar og framleiðendur hafa margir boðað verðhækkanir um og upp úr áramótum. Það er bót í málí að svo virðist sem heldur hafi hægt á verðhækknunum aðfanga til dagvöruverslunar í samanburði við síðasta ár, en vonir standa til að svo verði áfram. Hagar leggja, í samstarfi sinu við birgja, ríka áherslu á að sporna við verðhækknunum og styðja þannig við forsendur kjarasamninga. Við teljum þetta raunar vera eitt okkar allra mikilvægasta verkefni í dag.

Heilt yfir, þá er staða Haga góð, bæði fjárhagsleg og á markaði og félagið býr að sterkum rekstrareiningum og öflugu teymi starfsfólks sem vinnur hvern dag að því að gera verslun þægilega, skemmtilega og ekki sist hagkvæma. Horfur í rekstri eru almennt góðar.


Fréttatilkynning

  1. januar 2024

hagar

Rekstrarreikningur samstæðunnar

| I mill. kr. | 3F 2023/24
01.09-30.11 | 3F 2022/23
01.09-30.11 | BM 2023/24 | | BM 2022/23 | | | |
| --- | --- | --- | --- | --- | --- | --- | --- | --- |
| | | | Breyting % | 01.03-30.11 | 01.03-30.11 | Breyting % | Breyting % | |
| Vörusala | 43.683 | 40.220 | 3.463 | 8,6% | 130.482 | 121.832 | 8.650 | 7,1% |
| Kostnaðarverð seldra vara | (34.621) | (32.919) | (1.702) | 5,2% | (103.445) | (98.584) | (4.861) | 4,9% |
| Framlegð | 9.062 | 7.301 | 1.761 | 24,1% | 27.037 | 23.248 | 3.789 | 16,3% |
| Framlegð % | 20,7% | 18,2% | - | 2,6% | 20,7% | 19,1% | - | 1,6% |
| Aðrar rekstrartekjur | 139 | 587 | (448) | -76,3% | 543 | 936 | (393) | -42,0% |
| Hagnaður af sölu eigna | -- | -- | -- | - | -- | 882 | (882) | - |
| Laun og launatengd gjöld | (4.094) | (3.578) | (516) | 14,4% | (11.907) | (10.459) | (1.448) | 13,8% |
| Annar rekstarkostnaður | (1.877) | (1.712) | (165) | 9,6% | (5.450) | (4.972) | (478) | 9,6% |
| Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) | 3.230 | 2.598 | 632 | 24,3% | 10.223 | 9.635 | 588 | 6,1% |
| EBITDA % | 7,4% | 6,5% | - | 0,9% | 7,8% | 7,9% | - | -0,1% |
| Afskriftir | (1.285) | (1.085) | (200) | 18,4% | (3.767) | (3.205) | (562) | 17,5% |
| Rekstrarhagnaður (EBIT) | 1.945 | 1.513 | 432 | 28,6% | 6.456 | 6.430 | 26 | 0,4% |
| Hrein fjármagnsgjöld | (625) | (414) | (211) | 51,0% | (1.690) | (1.384) | (506) | 36,6% |
| Áhrif hlutdeildarfiklaga | 60 | 34 | 26 | 76,5% | 209 | 172 | 37 | 21,5% |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 1.380 | 1.133 | 247 | 21,8% | 4.775 | 5.218 | (443) | -8,5% |
| Tekjuskattur | (264) | (223) | (41) | 18,4% | (922) | (1.004) | 82 | -8,2% |
| Heildarhagnaður | 1.116 | 910 | 206 | 22,6% | 3.853 | 4.214 | (361) | -8,6% |

Lykiltölur á 3. ársfjörðungi 2023/24

Vörusala á 3F nam 43.683 m.kr. og jókst um 8,6% milli ára. Söluaakning verslana og vöruhúsa nam 15,4% en samdráttur var í sölu hjá Olís sem nemur 3,6% milli ára.

Seldum stykkjum í dagvöruverslunum fjölgaði um 3,6% milli ára og heimsóknum viðskiptavina fjölgaði um 8,6% á fjörðungnum. Seldum eldsneytislítrum hjá Olís fjölgaði um 1,6%.

Framlegð á 3F nam 9.062 m.kr. og jókst um 24,1% milli ára. Framlegðarhlutfall nam 20,7% og hækkaði um 2,6%-stig frá fyrra ári. Hækkun framlegðarhlutfalls má að mestu rekja til starfsemi Olís og sveiflum í heimsmarkaðsverði olíu. Framlegðarhlutfall í dagvöru hefur styrkts lítillega frá fyrra ári þegar það var sögulega lágt eftir tímabil fordæmalausra kostnaðarverðshækkana.

Á 3F fyrra árs var færð meðal annarra rekstrartekna endurgreiðsla til Olís vegna flutningsjöfnunarsjóðs að fjárhæð 451 m.kr.

Laun á 3F hækkuðu um 14,4% og launahlutfallið hækkaði úr 8,9% í 9,4% milli ára. Annar rekstarkostnaður hækkaði um 9,6% en kostnaðarhlutfallið stendur í stað milli ára í 4,3%.

EBITDA á 3F nam 3.230 m.kr. og hækkar um 24,3% milli ára. EBITDA hækkar um 50,4% milli ára ef frá eru taldar einskiptistekjur fyrra árs. EBITDA-hlutfall er 7,4% en var 6,5% í fyrra (5,3% án einskiptisliða).

Hagnaður ársfjörðungsins nam 1.116 m.kr. og hækkar um 22,6% milli ára.

Rekstur fyrstu níu mánuði 2023/24

Vörusala tímabilsins nam 130.482 m.kr., samanborið við 121.832 m.kr. árið áður eða aukning um 7,1% milli ára. Söluaakning verslana og vöruhúsa nam 16,2% en samdráttur var í sölu hjá Olís um 9,0%.

Framlegð samstæðunnar var 27.037 m.kr., samanborið við 23.248 m.kr. árið áður, eða aukning sem nemur 16,3%. Framlegðarhlutfall nam 20,7% og hækkaði um 1,6%-stig frá fyrra ári. Hækkun framlegðarhlutfalls liggur í eldsneytishluta samstæðunnar, þá einkum á sviði stórnotenda, en í dagvöru hefur framlegðarhlutfall hækkað lítillega.

Launakostnaður hækkaði um 13,8% milli ára og launahlutfallið hækkar úr 8,6% í 9,1%. Annar rekstarkostnaður hækkaði um 9,6% og kostnaðarhlutfall fer úr 4,1% í 4,2%.

EBITDA nam 10.223 m.kr., samanborið við 9.635 m.kr. árið áður eða 6,1% aukning. EBITDA-hlutfall var 7,8%, samanborið við 7,9% á fyrra ári. EBITDA, án einskiptistekna vegna Klasa og flutningsjöfnunarsjóðs á fyrra ári, jókst um 24,4% milli ára.

Afskriftir hækkað um 17,5% milli ára og fjármagnskostnaður eykst um 36,6%.

Heildarhagnaður tímabilsins nam 3.853 m.kr., sem jafngildir 3,0% af veltu en heildarhagnaður á fyrra ári var 4.214 m.kr. eða 3,5% af veltu. Án einskiptistekna nam heildarhagnaður fyrra árs 2,5% af veltu.


Fréttatilkynning

  1. januar 2024

hagar

Efnahagsreikningur samstæðunnar

I millj. kr. 30.11.2023 28.02.2023 Breyting Breyting %
Eignir
Fastafjármunir 54.189 50.502 3.687 7,3%
Veltufjármunir 22.326 21.505 821 3,8%
Eignir samtals 76.515 72.007 4.508 6,3%
Eigið fé og skuldir
Hiutafé 1.084 1.119 (35) -3,1%
Annað eigið fé 25.913 26.812 (899) -3,4%
Eigið fé samtals 26.997 27.931 (934) -3,3%
Langtímaskuldir 22.708 21.101 1.607 7,6%
Vaxtaberandi skammtímaskuldir 6.318 3.325 2.993 90,0%
Aðrar skammtímaskuldir 20.492 19.650 842 4,3%
Skuldir samtals 49.518 44.076 5.442 12,3%
Eigið fé og skuldir samtals 76.515 72.007 4.508 6,3%

Lykiltölur efnahags 30.11.2023

  • Heildareignir samstæðunnar í lok tímabils námu 76.515 m.kr. og hækkuðu um 4.508 m.kr. frá árslokum 2022/23.
  • Fastafjármunir voru 54.189 m.kr. og hækkuðu um 3.687 m.kr. frá árslokum 2022/23. Hækkunina má að mestu rekja til fjárfestinga í fasteignum og öðrum rekstrarfjármunum en einnig hækkuð leigueigna vegna nýrra leigusamninga.
  • Veltufjármunir voru 22.326 m.kr. og hækkuðu um 821 m.kr. frá árslokum 2022/23.
  • Vörubirgðir eru stærsti hluti veltufjármuna og námu 12.929 m.kr. í lok nóvember. Birgðir hafa lækkað um 1.329 m.kr. frá lokum 3F 2022/23 en hafa hækkað um 212 m.kr. frá árslokum 2022/23. Lækkun birgða milli ára má rekja til lægri eldsneytisbirgða sem nemur um 2.519 m.kr. en matvörubirgðir hafa á sama tíma hækkað um 1.297 m.kr. Hækkun matvörubirgða má fyrst og fremst rekja til hærra einingaverðs vegna áhrifa verðbólgu, en einnig vegna nýrra verslana Bónus. Veltuhraði birgða er nú 10,0 en var 10,1 á fyrra ári.
  • Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur námu 7.514 m.kr. og hækkuðu um 1.595 m.kr. á tímabilínu. Viðskiptakröfur, án annarra krafna, eru 1.118 m.kr. hærri en í lok 3F á fyrra ári og innheimtúmi viðskiptakrafna er nú 11,9 dagar samanbórið við 10,4 daga á fyrra ári.
  • Veltufjárhlutfall er 0,83 og lausafjárhlutfall 0,35 í lok nóvember. Aðgangur að skammtímafjármögnun í formi lánalína að upphæð 6,2 ma. kr. hjá viðskiptabanka er tryggður en auk þess fjármagnar félagið sig til skamms tíma með útgáfu vixla.
  • Eigið fé í lok tímabilsins var 26.997 m.kr. og eiginfjárhlutfall 35,3%. Arðsemi eigin fjár var 16,9%. Eiginfjárhlutfall við lok síðasta rekstrarárs var 38,8% og arðsemi eigin fjár 18,5%. Félagið átti eigin hluti að nafnverði 22,1 millj. kr. í lok tímabils.
  • Heildarskuldir samstæðunnar í lok nóvember námu 49.518 m.kr. en þar af voru vaxtaberandi skuldir 17.675 m.kr. og leiguskuldir 10.716 m.kr. Nettó vaxtaberandi skuldir, með leiguskuldum, í lok tímabils voru 26.508 m.kr. eða 2,1 x 12 mánaða EBITDA.
  • Vaxtaberandi skammtímaskuldir námu 6.318 m.kr. en þar af námu vixilskuldir 3.380 m.kr. Lánalína var óádregin í lok tímabils.

Fréttatilkynning

  1. januar 2024

hagar

Sjóðstreymisyflit samstæðunnar

I millj. kr. 3F 2023/24 8M 2023/24 8M 2023/23
01.09-30.11 01.08-30.11 Breýting Breýting % 01.03-30.11 01.03-30.11 01.03-30.11 Breýting Breýting %
Handbært fé frá rekstri 1.244 1.808 (564) -31,2% 7.030 6.563 467 7,1%
Fjárfestingarhreýfingar (880) (1.895) 1.015 -53,6% (4.007) (2.752) (1.255) 45,6%
Fjármögnunarhreýfingar (1.207) (690) (517) 74,9% (4.009) (3.276) (733) 22,4%
Hækkun á handbæru fé (843) (777) (66) 8,5% (986) 535 (1.521) -284,3%
Handbært fé í byrjun tímabils 2.726 2.095 631 30,1% 2.869 783 2.086 266,4%
Handbært fé í lok tímabils 1.883 1.318 565 42,9% 1.883 1.318 565 42,9%

Sjóðstreymi fyrstu níu mánuði 2023/24

  • Handbært fé frá rekstri fyrstu níu mánuði rekstrarársins nam 7.030 m.kr., samanborið við 6.563 m.kr. á fyrra ári.
  • Fjárfestingarhreýfingar tímabilsins voru 4.007 m.kr., samanborið við 2.752 m.kr. á fyrra ári. Fjárfesting í fasteignum nam 1.506 m.kr. sem er að stærstum hluta í fasteign við Norðlingabraut í Reykjavík. Auk þess var fjárfest í opnun þriggja nýrra verslana Bónus, þ.e. við Norðlingabraut, í Holtagörðum og í Miðhrauni. Þá var opnuð ný þjónustustöð Olís að Fitjum í Reykjanesbæ auk þess sem fjárfest var í stafrænti þróun, upplýsingatækni og mikilvægum sjálfbærnítengdum verkefnum á borð við kolsýruvæðingu kælikerfa.
  • Fjármögnunarhreýfingar tímabilsins voru 4.009 m.kr., samanborið við 3.276 m.kr. á fyrra ári. Endurkaup eigin bréfa námu 2.333 m.kr. og arðgreiðsla í júní 2023 nam 2.475 m.kr.
  • Handbært fé í lok nóvember 2023 nam 1.883 millj., samanborið við 1.318 millj. í nóvemberlok í fyrra.

Staðan og framtíðarhorfur

Rekstur þriðja ársfjörðungs var umfram áætlanir og var afkomuspa félagsins endurskoðuð og hækkunð seinni hluta desembermánaðar. Afkomu umfram áætlanir má meðal annars rekja til aukinnar aðsóknar í verslanir Haga, einkum í dagvöruhluta samstæðunnar þar sem bæði seldum stykkjum og heimsóknum viðskiptavina fjölgar. Einnig hefur áfram verið sterk eftirspurn í eldsneytishluta samstæðunnar og framlegð heldur umfram áætlanir.

Í september og október síðastliðnum var tilkynnt um breýtingar á framkvæmdastjórn samstæðunnar frá og með 1. januar 2024. Þá tók Björgvin Víkingsson við starfi framkvæmdastjóra Bónus af Guðmundi Marteinssyni og Ingunn Svala Leifsdóttir tók við starfi framkvæmdastjóra Olís af Frosta Ólafssyni.

Afkomuspa stjórnenda fyrir rekstrarárið 2023/24 gerir ráð fyrir að rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) verði á bilinu 12.900-13.400 millj. kr. Fjárhagsleg staða samstæðunnar er sterk og er fjármögnun tryggð til langs tíma. Þá er aðgangur að skammtímafjármögnun í formi lánalína, að fjárhæð 4,5 ma. kr. og USD 12,5 millj. einnig tryggður. Þá hefur félagið undanfarið nýtt sér skammtímafjármögnun í formi vixlaútgáfu en útgáfá vixlanna er í samræmi við grunnlýsingu 10 ma. kr. útgáfuramma sem stjórn félagsins hefur samþykkt. Gera má ráð fyrir að félagið horfi í meira mæli til markaðsfjármögnunar á næstu misserum en til marks um það var gefinn út nýr skuldabréfaflokkur HAGA120926 1 í september síðastliðnum.

5


Fréttatilkynning

  1. januar 2024

hagar

Hlutafé og hluthafar

  • Markaðsvirði Haga í lok tímabilsins nam 73,6 ma. kr. og lokaverð þann 30. nóvember 2023 var 66,5 kr./hlut.
  • Þann 1. júní 2023 samþykkti aðalfundur að lækka hlutafé félagsins til ógildingar á eigin hlutum að nafnverði 26,2 m.kr. Lækkunin kom til framkvæmda þann 28. júní 2023 og lækkaði hlutafé Haga því úr 1.133 m.kr. að nafnverði í 1.106 m.kr. að nafnverði, sem er skráð hlutafé í lok tímabils.
  • Aðalfundur samþykkti einnig að greiddur yrði arður til hluthafa vegna síðastliðins árs sem nam 2,24 krónum á hlut eða 2.475 m.kr. Arðurinn var greiddur þann 13. júní 2023.
  • Skráð hlutafé Haga í lok tímabils nam 1.106 m.kr. og átti félagið eigin hluti að nafnverði 22,1 m.kr.
  • Hluthafar voru 1.055 í byrjun tímabils og 983 í lok þess. 10 stærstu hluthafar félagsins áttu 77,2% eignarhlut í félaginu í lok þriðja ársfjórðungs.

Rafrænn kynningarfundur í dag, fimmtudaginn 11. janúar 2024

Rafrænn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn í dag, fimmtudaginn 11. janúar kl. 16:00, þar sem Finnur Oddsson, forstjóri, og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna rekstur og afkomu félagsins ásamt því að svara fyrirspurnum.

Tekið verður við spurningum sem tengjast uppgjörinu á meðan á útsendingu stendur á netfangið [email protected] og verður þeim svarað eins og kostur er í lok fundar.

Fundinum verður streymt og er skráning á fundinn hér: https://www.hagar.is/skraning

Kynningargögn verða aðgengileg á heimasíðu Haga, www.hagar.is, við upphaf fundar.

Fjárhagsdagatal 2023/24

Fjárhagsupplysingar eru birtar eftir lokun markaða.

Uppgjörstímabil Vikudagur Birtingardagur
4F – 1. mars til 29. febrúar Þriðjudagur 23. apríl 2024
Aðalfundur 2024 Fimmtudagur 30. maí 2024

Fréttatilkynning þessi og uppgjörsgögn verða aðgengileg á ensku þann 15. janúar á https://www.hagar.is/en/

Press release and financial statements will be available in English on January 15th at https://www.hagar.is/en/

Nánari upplysingar veita Finnur Oddsson, forstjóri félagsins ([email protected]), og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs ([email protected]), í síma 530-5500 eða tölvupósti.