Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar Interim / Quarterly Report 2024

Jun 28, 2024

2196_rns_2024-06-28_cf39c4fc-e09a-445b-be20-f2aee598df97.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

Fréttatilkynning

  1. júní 2024

hagar

HAGAR HF.: UPPGJÕR HAGA Á 1. ÁRSFJÓRDUNGI 2024/25

Rekstur gekk vel á fjórðungnum og afkoma styrkist á milli ára

Árshlutareikningur Haga hf. fyrir fyrsta ársfjórðung 2024/25 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 28. júní 2024. Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars til 31. maí 2024. Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Reikningurinn hefur hvorki verið kannaður né endurskoðaður af endurskoðendum félagsins, PricewaterhouseCoopers ehf.

Helstu lykiltölur

  • Vörusala 1F nam 44.067 m.kr. (6,2% vöxtur frá 1F 2023/24). [1F 2023/24: 41.490 m.kr.]
  • Framlegð 1F nam 9.537 m.kr. (21,6%). [1F 2023/24: 8.072 m.kr. (19,5%)]
  • Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) 1F nam 3.214 m.kr. eða 7,3% af veltu. [1F 2023/24: 2.521 m.kr. (6,1%)]
  • Hagnaður 1F nam 850 m.kr. eða 1,9% af veltu. [1F 2023/24: 653 m.kr. (1,6%)]
  • Grunnhagnaður á hlut 1F var 0,78 kr. [1F 2023/24: 0,59 kr.]. Þynntur hagnaður á hlut 1F var 0,77 kr. [1F 2023/24: 0,58 kr.]
  • Eigið fé nam 29.038 m.kr. í lok tímabils og eiginfjárhlutfall 35,6%. [Árslok 2023/24: 28.188 m.kr. og 36,5%]
  • Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2024/25 gerir ráð fyrir að EBITDA verði 13.800-14.300 m.kr.

Helstu fréttir af starfsemi

  • Rekstur á fyrsta ársfjórðungi gekk vel og var í samræmi við áætanir. Góð söluaukning var á tímabilinu en vörusala jókst um 6,2% milli ára.
  • Seldum stykkjum í dagvöruverslunum fjölgar milli ára um 1,1% og heimsóknum viðskiptavina fjölgar auk þess um 5,3%. Aukning var í seldum eldsneytislítrum milli ára og nam hún 0,7%.
  • Framlegð í krónum talið jókst um 18,1% milli ára og framlegðarhlutfallið hækkar um 2,2%-stig. Framlegðarhlutfall hækkar bæði í dagvöru- og eldsneytishluta samstæðunnar en framlegðarhlutfall var í sögulegu lágmarki á samanburðartímabili.
  • Unnið hefur verið að því með birgjum félagsins að lágmarka og/eða draga úr hækkun vöruverðs. Verðbólga í mat og drykk hefur lækkað töluvert á árinu.
  • Verslun Bónus á Ísafirði var stækkuð og endurnýjuð á tímabilinu - Gripið & Greitt innleitt í fleiri verslunum.

Fréttatilkynning 28. júní 2024

hagar

Finnur Oddsson, forstjóri:

Rekstrarárið 2024/25 fer vel af stað hjá Högum. Á fyrsta fjórðungi jókst vörusala um ríflega 6% og nam 44,1 ma. kr., framlegð styrktist og afkoma batnaði tóluvert miðað við sama fjórðung í fyrra. EBITDA nam 3.214 m.kr. og hagnaður 850 m.kr.

Starfsemi gekk vel á öllum sviðum, en stór skýring á bættri afkomu liggur í sterkari rekstri Olís á fjórðungnum. Tekjur vegna eldsneytissölu voru ríflega 13 ma. kr. og var afkoma umfram væntingar. Sala í lítrum var yfir árinu í fyrra, m.a. vegna sterkrar eftirspurnar í smásölu og stakra viðskipta við erlenda aðila. Sala á þurrvöru og veitingum á þjónustustöðvum jókst á milli ára, en aukið og bætt vöruframboð á stöðvum, nýtt samstarf við Wolt og afhendingarþjónusta pakkasendinga hafa almennt stuðlað að auknum umsvífum. Undirbúningur sölumeðferðar á ODR hefur verið hafinn.

Ágætur gangur er sem fyrr í rekstri verslana og vöruhúsa, þar sem tekjur jukust um ríflega 7% á fjórðungnum og afkoma batnaði m.v. sama fjórðung í fyrra. Heilt yfir hefur seldum stykkjum í dagvöruverslun og heimsóknum viðskiptavina fjölgað. Þar dregur Bónus sem fyrr vagninn, en ódýr matvörukarfa og nýjungar eins og Gripið & Greitt og hagkvæm kvöldmatartilboð hafa mælst vel fyrir og létta viðskiptavinum lífið. Tekjur jukust lítillega hjá Hagkaup og rekstur styrktist á milli ára. Viðskiptavinir hafa tekið nýjungum í starfsemi ákaflega vel, allt frá Skálinni, nýjum sjálsafgreiðslu-skyrbar, yfir í veislupjónustu sem annaði ekki eftirspurn á álagstoppum í kringum fermingar og útskriftir á vormánuðum. Eldum rétt hélt upp á 10 ára afmæli félagsins í apríl og þakkaði viðskiptavinum traustið með skemmtilegum ferðaleik. Sala heldur áfram að aukast og með nýju framleiðslurými og tækjabúnaði hefur náðst að einfalda ferla og auka skilvirkni í framleiðslu. Rekstur annarra eininga, vöruhúsa, Stórkaups og Zara var í samræmi við áætlanir.

Við erum ánægð með rekstur Haga á fyrstu mánuðum rekstrarársins, en árangurinn er til vitnis um að stefnumótun og aðgerðir til að styrkja rekstrarfélög okkar hafa heilt yfir gengið eftir. Eftir nokkur ögrandi ár hefur umhverfi rekstrar í okkar geira heldur þróast til betri vegar, m.a. með óvenju hóflegum kjarasamningum og auknum fyrirsjáanleika um launapróun, lækkandi verðbólgu, bæði visitölu neysluverðs og hvað matarverð varðar sérstaklega. Til skemmri tíma höfum við enn áhyggjur af þróun matarverðs en treystum á áframhaldandi gott samstarf og ábyrga afstöðu heildsala og framleiðenda að gæta höfs í verðhækkunum, sýna samstöðu og tryggja þannig stöðugleika verðlags. Þar liggja sameiginlegir hagsmunir allra landsmanna.

Staða Haga og horfur í rekstri eru sem fyrr jákvæðar. Fjárhagur er traustur, rekstur helstu eininga gengur vel og félagið er vel í stakk búið til að fylgja eftir spennandi tækifærum og þróa nýja tekjustrauma. Framundan er svo einn mikilvægasti rekstrarfjórðungur hvers árs, sumarið, með auknum ferðalögum landsmanna og erlendra ferðamanna. Síðast en ekki síst er vert að minnast á að Hagar búa að frábæru teymi starfsfólks sem leggur sig fram um að gera verslun með dagvöru og eldsneyti hagkvæma, þægilega og skemmtilega.


Fréttatilkynning

  1. júní 2024

hagar

Rekstrarreikningur samstæðunnar

I millj. kr. 1F 2024/25 1F 2023/24 Breyting Breyting %
01.03-31.05 01.03-31.05
Vörusala 44.067 41.490 2.577 6,2%
Kostnaðarverð seldra vara (34.530) (33.418) (1.112) 3,3%
Framlegð 9.537 8.072 1.465 18,1%
Framlegð % 21,6% 19,5% - 2,2%
Aðrar rekstrartekjur 142 194 (52) -26,8%
Laun og launatengd gjöld (4.377) (3.932) (445) 11,3%
Annar rekstrarkostnaður (2.088) (1.813) (275) 15,2%
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) 3.214 2.521 693 27,5%
EBITDA % 7,3% 6,1% - 1,2%
Afskriftir (1.381) (1.129) (252) 22,3%
Rekstrarhagnaður (EBIT) 1.833 1.392 441 31,7%
Hrein fjármagnsgjöld (789) (626) (163) 26,0%
Áhrif hlutdeildarfélaga 25 40 (15) -37,5%
Hagnaður fyrir tekjuskatt 1.069 806 263 32,6%
Tekjuskattur (219) (153) (66) 43,1%
Heildarhagnaður 850 653 197 30,2%

Rekstur á fyrsta ársfjörðungi 2024/25

Vörusala á 1F nam 44.067 m.kr., samanborið við 41.490 m.kr. árið áður. Söluaukning milli ára nam 6,2%. Söluaukning verslana og vöruhúsa nam 7,6% en söluaukning hjá Olís nam 2,8% milli ára.

Fjöldi seldra stykkja í dagvöruverslunum jókst um 1,1% á fjörðungnum. Heimsóknum viðskiptavina fjölgaði sömuleiðis, eða um 5,3%. Seldum eldsneytislítrum hjá Olís fjölgaði um 0,7% á fjörðungnum.

Framlegð samstæðunnar á 1F var 9.537 m.kr., samanborið við 8.072 m.kr. árið áður, eða aukning sem nemur 18,1%. Framlegðarhlutfall hækkáði og var 21,6% í samanburði við 19,5% á fyrra ári. Framlegðarhlutfall hefur hækkáði bæði í dagvöru- og eldsneytishluta samstæðunnar en á samanburðartímabili var framlegðarhlutfall í samstæðunni í sögulegu lágmarki.

Launakostnaður nam 4.377 m.kr. og hækkáði um 11,3% milli ára, einkum vegna áhrifa kjarasamninga og fjölgunar Bónusverslana. Launahlutfallið hækkar úr 9,5% í 9,9% á ársfjörðungnum.

Annar rekstrarkostnaður hækkáði um 15,2% milli ára og er kostnaðarhlutfallið nú 4,7% í samanburði við 4,4% árið áður.

Afkoma fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA) nam 3.214 m.kr., samanborið við 2.521 m.kr. árið áður. EBITDA-hlutfall var 7,3%, samanborið við 6,1% á fyrra ári. EBITDA verslana og vöruhúsa jókst um 10,1% milli ára og EBITDA Olís jókst úr 299 m.kr. í 767 m.kr. eða um 156,5%.

Heildarhagnaður tímabilsins nam 850 m.kr., sem jafngildir 1,9% af veltu en heildarhagnaður á fyrra ári var 653 m.kr. eða 1,6% af veltu.


Fréttatilkynning

  1. júní 2024

hagar

Efnahagsreikningur samstæðunnar

I millj. kr. 31.05.2024 29.02.2024 Breyting Breyting %
Eignir
Fastafjármunir 56.837 56.085 752 1,3%
Veltufjármunir 24.704 21.129 3.575 16,9%
Eignir samtals 81.541 77.214 4.327 5,6%
Eigið fé og skuldir
Hlutafé 1.084 1.084 -- 0,0%
Annað eigið fé 27.954 27.104 850 3,1%
Eigið fé samtals 29.038 28.188 850 3,0%
Langtímaskuldir 24.412 23.139 1.273 5,5%
Vaxtaberandi skammtímaskuldir 5.825 5.818 7 0,1%
Aðrar skammtímaskuldir 22.266 20.069 2.197 10,9%
Skuldir samtals 52.503 49.026 3.477 7,1%
Eigið fé og skuldir samtals 81.541 77.214 4.327 5,6%

Lykiltölur efnahags 31.05.2024

  • Heildareignir samstæðunnar í lok tímabils námu 81.541 m.kr. og hækkuðu um 4.327 m.kr. frá árslokum 2023/24.
  • Fastafjármunir voru 56.837 m.kr. og hækkuðu um 752 m.kr. frá árslokum 2023/24. Hækkunina má að mestu rekja til leigueigna.
  • Veltufjármunir námu 24.704 m.kr. og hækkuðu um 3.575 m.kr. frá árslokum 2023/24.
  • Birgðir í lok ársfjórðungs voru 12.798 m.kr. og veltuhraði birgða 11,4. Birgðir hafa hækkað um 1.257 m.kr. frá lokum 1F 2023/24 en lækkað um 270 m.kr. frá árslokum 2023/24. Veltuhraði birgða á fyrra ári var 11,3.
  • Víðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur hækka um 1.098 m.kr. á tímabilinu og er innheimtutími víðskiptakrafna nú 11,4 dagar samanborið við 11,3 daga á fyrra ári.
  • Veltufjárhlutfall er 0,88 og lausafjárhlutfall 0,42 í lok ársfjórðungs. Aðgangur að skammtímafjármögnun í formi lánalína að upphæð 6,2 ma. kr. hjá víðskiptabanka er tryggður en auk þess fjármagnar félagið sig til skamms tíma með útgáfu vixla.
  • Eigið fé í lok tímabilsins var 29.038 m.kr. og eiginfjárhlutfall 35,6%. Arðsemi eigin fjár var 18,9%. Eiginfjárhlutfall við lok síðasta rekstrarárs var 36,5% og arðsemi eigin fjár 18,1%. Félagið átti eigin hluti að nafnverði 22,1 millj. í lok tímabilsins.
  • Heildarskuldir samstæðunnar í lok fyrsta ársfjórðungs námu 52.503 m.kr. en þar af voru vaxtaberandi skuldir 17.155 m.kr. og leiguskuldir 13.278 m.kr. Nettó vaxtaberandi skuldir, með leiguskuldum, í lok tímabils voru 25.859 m.kr. eða 1,9 x 12 mánaða EBITDA.
  • Vaxtaberandi skammtímaskuldir námu 5.825 m.kr. en þar af námu víxilskuldir 2.880 m.kr. Þá er skuldabréfaflokkur HAGA181024 að upphæð 2.500 m.kr. á gjaldaga í október nk. Lánalína var óádregin í lok tímabils.

Fréttatilkynning

  1. júní 2024

hagar

Sjóõstreymisyfirlit samstæðunnar

I millj. kr. 1F 2024/25 1F 2023/24 Breyting Breyting %
01.03-31.05 01.03-31.05
Handbært fé frá rekstri 3.890 3.335 555 16,6%
Fjárfestingarhreyfingar (684) (2.350) 1.666 -70,9%
Fjármögnunarhreyfingar (459) (898) 439 -48,9%
Hækkun á handbæru fé 2.747 87 2.660 3057,5%
Handbært fé í byrjun tímabils 1.827 2.869 (1.042) -36,3%
Handbært fé í lok tímabils 4.574 2.956 1.618 54,7%

Sjóõstreymi fyrstu þrjá mánuði rekstrarársins 2024/25

  • Handbært fé frá rekstri á fyrsta ársfjórðungi nam 3.890 m.kr., samanborið við 3.335 m.kr. á fyrra ári.
  • Fjárfestingarhreyfingar tímabilsins voru 684 m.kr., samanborið við 2.350 m.kr. á fyrra ári. Einkum var fjárfest í áhöldum og innréttingum á tímabilinu, m.a. stækkun og endurbótum á verslun Bónus á Ísafirði. Á fyrra ári var fjárfest í fasteign við Norðlingabraut í Reykjavík ásamt opnun nýrrar verslunar Bónus í húsnæðinu.
  • Fjármögnunarhreyfingar tímabilsins voru 459 m.kr., samanborið við 898 m.kr. á fyrra ári.
  • Handbært fé hækkaði um 2.747 m.kr. á tímabilinu og nam í lok ársfjórðungs 4.574 m.kr., samanborið við 2.956 m.kr. í lok fyrsta ársfjórðungs í fyrra.

Staðan og framtíðarhorfur

Rekstur á fyrsta ársfjórðungi 2024/25 gekk vel og var í samræmi við áætlanir. Vörusala jókst um 6,2% frá fyrra ári og framlegð jókst í krónum talið um 18,1%. Rekstrarkostnaður hækkaði um 12,5% milli ára og EBITDA afkoma tímabilsins styrktist um 27,5% frá fyrra ári. Ágæta niðurstöðu fjórðungsins má að stórum hluta rekja til betri rekstrarafkomu starfsþáttar Olís en starfsþáttur verslana og vöruhúsa styrktist einnig milli ára. Fjármagnskostnaður samstæðunnar hækkaði um 26% milli ára. Vextir og verðbölga eru enn há í sögulegu samhengi og þá hafa vaxtagjöld vegna leiguskulda hækkað nokkuð milli tímabila.

Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2024/25 gerir ráð fyrir að rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) verði á bilinu 13.800-14.300 m.kr. Fjárhagsleg staða samstæðunnar er sterk og er fjármögnun tryggð til millilangs tíma. Aðgangur að skammtímafjármögnun í formi lánalína, að fjárhæð 4,5 ma. kr. og USD 12,5 millj. er tryggður en einnig hefur félagið undanfarið nýtt sér skammtímafjármögnun í formi víxlaútgáfu. Útgáfa víxlanna er í samræmi við grunnlýsingu 10 ma. kr. útgáfuramma sem stjórn félagsins hefur samþykkt. Gera má ráð fyrir að félagið nýtt sér áfram markaðsfjármögnun á næstu misserum.

Hlutafé og hluthafar

  • Markaðsvirði Haga í lok tímabilsins nam 85,7 ma. kr. og lokaverð þann 31. maí 2024 var 77,5 kr./hlut.
  • Skráð hlutafé Haga í lok tímabilsins nam 1.106 m.kr. Félagið átti 22,1 millj. eigin hluti í lok tímabils og er útistandandi hlutafé því 1.084 m.kr.
  • Þann 30. maí 2024 samþykktí aðalfundur félagsins að greiddur yrði arður til hluthafa sem nemur 50,0% af hagnaði síðasta reikningsárs eða samtals 2.522 m.kr. Heildararðgreiðslan nam því 2,33 kr. á hlut útistandandi hlutafjár. Arðurinn var greiddur þann 7. júní 2024.
  • Hluthafar voru 968 í byrjun tímabils og 956 í lok þess. 10 stærstu hluthafar félagsins áttu 77,55% eignarhlut í félaginu í lok fyrsta ársfjórðungs.

Fréttatilkynning

  1. júní 2024

hagar

Rafraenn kynningarfundur í dag, föstudaginn 28. júní 2024

Rafraenn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn í dag, föstudaginn 28. júní kl. 16:00, þar sem Finnur Oddsson, forstjóri, og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna rekstur og afkomu félagsins ásamt því að svara fyrirspurnum.

Tekið verður við spurningum sem tengjast uppgjörinu á meðan á útsendingu stendur á netfangið [email protected] og verður þeim svarað eins og kostur er í lok fundar.

Fundinum verður streymt og er skráning á fundinn hér: https://www.hagar.is/skraning.

Kynningargögn verða aðgengileg á heimasíðu Haga, www.hagar.is, við upphaf fundar.

Fjárhagsdagatal 2024/25

Fjárhagsupplysingar eru birtar eftir lokun markaða. Athugið að breyttur birtingadagur er á uppgjóri 3F frá fyrri tilkynningu, þ.e. birting er nú áættuð 16. janúar í stað 9. janúar 2025.

Uppgjörstímabil Vikudagur Birtingardagur
2F – 1. mars til 31. ágúst Fimmtudagur 17. október 2024
3F – 1. mars til 30. nóvember Fimmtudagur 16. janúar 2025
4F – 1. mars til 28. febrúar Þriðjudagur 15. apríl 2025
Aðalfundur 2025 Miðvikudagur 21. mái 2025

Fréttatilkynning þessi og uppgjörsgögn verða aðgengileg á ensku þann 1. júlí á https://www.hagar.is/en/

Press release and financial statements will be available in English on July 1st at https://www.hagar.is/en/

Nánari upplýsingar veita Finnur Oddsson, forstjóri félagsins ([email protected]), og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs ([email protected]), í síma 530-5500 eða tölvupósti.