Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar Interim / Quarterly Report 2024

Oct 17, 2024

2196_rns_2024-10-17_e4a052e8-75d4-4b93-871e-307e8fa13e86.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

Fréttatilkynning

  1. október 2024

hagar

HAGAR HF: UPPGJÕR HAGA Á 2. ÁRSFJÓRGUNGI 2024/25

Ágætur gangur í rekstri og söluferli á Olíudreifingu hafið

Árshlutareikningur Haga hf. fyrir annan ársfjórðung 2024/25 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 17. október 2024. Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars til 31. ágúst 2024. Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alpjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Reikningurinn hefur verið kannaður af endurskoðendum félagsins, PricewaterhouseCoopers ehf.

Helstu lykiltölur

  • Vörusala 2F nam 46.579 m.kr. (2,8% vöxtur frá 2F 2023/24). Vörusala 6M nam 90.646 m.kr. (4,4% vöxtur frá 6M 2023/24). [2F 2023/24: 45.309 m.kr., 6M 2023/24: 86.799 m.kr.]
  • Framlegð 2F nam 10.174 m.kr. (21,8%) og 19.711 m.kr. (21,7%) fyrir 6M. [2F 2023/24: 9.903 m.kr. (21,9%), 6M 2023/24: 17.975 m.kr. (20,7%)]
  • Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) 2F nam 4.014 m.kr. eða 8,6% af veltu. EBITDA 6M nam 7.228 m.kr. eða 8,0% af veltu. [2F 2023/24: 4.472 m.kr. (9,9%), 6M 2023/24: 6.993 m.kr. (8,1%)]
  • Hagnaður 2F nam 1.723 m.kr. eða 3,7% af veltu. Hagnaður 6M nam 2.573 m.kr. eða 2,8% af veltu. [2F 2023/24: 2.084 m.kr. (4,6%), 6M 2023/24: 2.737 m.kr. (3,2%)]
  • Grunnhagnaður á hlut 2F var 1,59 kr. og 2,37 kr. fyrir 6M. [2F 2023/24: 1,88 kr., 6M 2023/24: 2,47 kr.]. Þynntur hagnaður á hlut 2F var 1,56 kr. og 2,33 kr. fyrir 6M. [2F 2023/24: 1,84 kr., 6M 2023/24: 2,42 kr.]
  • Eigið fé nam 28.282 m.kr. í lok tímabilið og eiginfjárhlutfall 34,9%. [Árslok 2023/24: 28.188 m.kr. og 36,5%]
  • Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2024/25 er óbreytt og gerir ráð fyrir að EBITDA verði 13.800–14.300 m.kr.

Helstu fréttir af starfsemi

  • Rekstur á öðrum ársfjórðungi gekk ágætlega en söluaukning nam 2,8% milli ára.
  • Á 2F fækkar seldum stykkjum í dagvöruverslunum lítillega milli ára, eða um tæplega 1,0% en heimsóknum viðskiptavina fjölgar um 1,6% – aukning í Bónus en samdráttur hjá Hagkaup.
  • Seldum eldsneytislítrum fækkáði um 4,2% á fjórðungnum – stór einskiptisverkefni á samanburðartímabili skekkja samanburð.
  • Framlegð í krónum talið jókst um 2,7% milli ára og framlegðarhlutfallið stóð nánast í stað í 21,8% á fjórðungnum.
  • Undirbúningur að opnun erlendrar vefverslunar með áfengi stóð yfir á tímabilinu og opnaði Hagar Wine, dótturfélag Haga, vefverslun með áfengi í samstarfi við Hagkaup í byrjun september.
  • Bónus og KKÍ gerðu með sér samstarfssamning þar sem Bónus er nú einn af aðal samstarfsaðilum KKÍ og munu úrvalsdeildir karla og kvenna bera nafn Bónus.
  • Í samræmi við samþykkt hluthafafundar þann 30. ágúst sl. var þann 31. ágúst úthlutað kaupréttum fyrir samtals 12,9 millj. hlutum í félaginu, eða sem samsvarar 1,17% af hlutafé. Þar af var 11,0 millj. úthlutað til framkvæmdastjórnar.
  • Eftir lok ársfjórðungs, þann 26. september sl., var tilkynnt um að Hagar og meðeigendur hefðu ákveðið að hefja formlegt söluferli á eignarhlutum félaganna í Olíudreifingu.

Fréttatilkynning 17. október 2024

hagar

Finnur Oddsson, forstjóri:

Rekstur Haga í sumar, á öðrum ársfjórðungi rekstrarársins 2024/25, gekk ágætlega og samkvæmt áætlunum. Á fjórðungnum jókst vörusala um 2,8% miðað við árið á undan og nam 46.579 m.kr. Framlegð jókst að sama skapi um 2,7% í krónum talið en framlegðarhlutfall stóð í stað og var 21,8%. Þrátt fyrir að rekstur hafi gengið með ágætum, þá dróst afkoma á fjórðungnum heldur saman miðað við árið á undan, en EBITDA nam 4.014 m.kr. og hagnaður 1.723 m.kr. Þess ber að geta að afkoma á sama fjórðungi í fyrra var óvenju sterk í sögulegu samhengi.

Afkoma stærstu eininga sem falla undir verslanir og vöruhús styrktist á milli fjórðunga en afkoma starfsþáttar Olís dróst hins vegar nokkuð saman. Skýringin á samdrætti í afkomu Haga miðað við fyrra ár liggur því annars vegar í breytingum hjá Olís og hins vegar í hækkun fjármagnsgjalda. Hjá Olís er nauðsynlegt að horfa til samanburðar við sama fjórðung í fyrra, þegar selt magn og afkoma voru óvenju sterk, m.a. vegna hagfelldra hreyfinga í heimsmarkaðsverði olíu og stórra einskiptisverkefna. Tekjur Olís á fjórðungnum voru 14,7 ma. kr. og var eldsneytissala í lítrum á áætlun, bæði á smásölumarkaði og til stórnotenda. Ágætt ferðamannasumar, nýjar rafhleðslustöðvar í samstarfi við Ísorku og vel heppnuð samvinna með Wolt og póstafhendingarþjónustum skilaði sér í aukinni þurrvöru- og veitingasölu á þjónustustöðvum Olís. Heilt yfir hefur undirliggjandi rekstur Olís haldið áfram að styrkjast og enn er unnið að því að efla þjónustuframboð á stöðvum. Því tengt mun fyrsta bílapvottastöð félagsins opna í desember undir merkinu Glans. Þá er formlegt söluferli á eignarhlutum Olís og meðeigenda í ODR hafið.

Tekjur í rekstri verslana og vöruhúsa jukust um tæp 5% og afkoma styrktist á milli fjórðunga. Heimsóknum viðskiptavina fjölgar sem fyrr hjá Bónus en hjá Hagkaup var samdráttur í bæði seldum stykkjum og heimsóknum. Stórbruni í Kringlunni í byrjun sumars, lokanir verslana og fækkun gesta, höfðu neikvæð áhrif á matvöruverslanir Haga í verslunarmiðstöðinni, en þar rekur félagið bæði Bónus verslun og stóra Hagkaups verslun. Einnig má gera ráð fyrir að háir stýrivextir og hækkandi greiðslubyrði fasteignalána séu farin að hafa áhrif í dagvöruverslun, sem sést m.a. á því að þó viðskiptavinum haldi áfram að fjölga og fjöldinn sé í sögulegu hámarki, þá fækkar stykkjum örlítið sem rata í hverja verslunarkörfu. Þeim fjölgar áfram sem nýta sér Gripið & Greitt þjónustu Bónus, enda fljótlegasta leiðin til að versla og léttir viðskiptavinum lífið. Þjónustan er nú í boði í sjö Bónusverslunum og fjórar bættast fljótlega við. Hagkaup hefur lagt sérstaka áherslu á að bæta þjónustuframboð á undanförnum misserum, m.a. með nýjungum í vöruframboði verslana og auknu úrvali í netverslun. Viðskiptavinir hafa tekið þessu aukna úrvali opnum örmum, sem ásamt átaki í hagræðingu skilar nú sterkari rekstri á milli fjórðunga. Netverslun Hagar Wine með áfengi opnaði í september og hefur verið vel tekið af viðskiptavinum frá fyrsta degi. Aukin eftirspurn ánægðra viðskiptavina og vélvæðing framleiðsluferla hjá Eldum rétt heldur áfram að skila sér í bættri afkomu og skilvirkari rekstri, m.a. vegna minni umbúðanotkunar. Starfsemi annarra eininga, þ.e. Aðfanga, Banana, Stórkaups og Zara var í takti við áætlannir.

Á síðustu mánuðum og misserum hefur kauphegðun viðskiptavina þegar kemur að dagvöru breyst nokkuð, m.a. hliðrast yfir í ódýrari valkosti og færst framar í mánuði. Hjá verslunum Haga, einkum Bónus, hefur sérstök áhersla hefur verið lögð á að hjálpa viðskiptavinum að versla ódýrt, m.a. með því að bjóða hagkvæmari staðkvæmdarvöru við dýrari vörumerki, auðvelda innkaup í réttu magni, fjölga tilboðum, o.fl. Í sama tilgangi hefur aðhald smásala og gott samstarf við helstu birgja stuðlað að lækkandi matarverðbólgu, sem á eftir að koma heimilum vel, samhliða vonandi áfram lækkandi vöxtum.

Heilt yfir erum við sátt með starfsemi Haga á fjórðungnum og það er ánægjulegt að afkoma helstu eininga á dagvöruhliðinni heldur áfram að styrkjast þrátt fyrir breytta kauphegðun viðskiptavina. Staða og horfur í rekstri Haga eru góðar, en rekstrareiningar félagsins standa sterkt, fjárhagsleg staða er góð, og mörg tækifæri til vaxtar á nýjum sviðum. Sem fyrr hefur félagið á að skipa frábærum hópi starfsfólks sem hefur hag neytenda að leiðarljósi, m.a. með því að leita stöðugt leiða til að auka hagkvæmni í verslun og gera hana þægilegri og skemmtilegri. EBITDA spá stjórnenda fyrir árið er óbreytt, 13,8 – 14,3 ma.kr.


Fréttatilkynning

  1. oktober 2024

hagar

Rekstrarreikningur samstæðunnar

Unifikát 2F 2024/25 2F 2023/24 6M 2024/25 6M 2023/24
01.05.2019 01.05.2018 Brønding Brønding % 01.05.2019 01.05.2018 Brønding Brønding %
Vörusala 46.579 45.309 1.270 2,8% 90.646 86.799 3.847 4,4%
Kostnaðarverð seldra vara (36.405) (35.406) (999) 2,8% (70.935) (68.824) (2.111) 3,1%
Framlegð 10.174 9.903 271 2,7% 19.711 17.975 1.736 9,7%
Framlegð % 21,8% 21,9% - 0,0% 21,7% 20,7% - 1,0%
Aðrar rekstrartekjur 121 210 (89) -42,4% 263 404 (141) -34,9%
Laun og launatengd gjöld (4.248) (3.881) (367) 9,5% (8.625) (7.813) (812) 10,4%
Ánnar rekstrarkostnaður (2.033) (1.760) (273) 15,5% (4.121) (3.573) (548) 15,3%
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) 4.014 4.472 (458) -10,2% 7.228 6.993 235 3,4%
EBITDA % 8,6% 9,9% - -1,3% 8,0% 8,1% - -0,1%
Afskriftir (1.231) (1.353) 122 -9,0% (2.612) (2.482) (130) 5,2%
Rekstrarhagnaður (EBIT) 2.783 3.119 (336) -10,8% 4.616 4.511 105 2,3%
Hrein fjármagnsgjöld (746) (639) (107) 16,7% (1.535) (1.265) (270) 21,3%
Áhrif hlutdeildarfélaga 127 109 18 16,5% 152 149 3 2,0%
Hagnaður fyrir tekjuskatt 2.164 2.589 (425) -16,4% 3.233 3.395 (162) -4,8%
Tekjuskattur (441) (505) 64 -12,7% (660) (658) (2) 0,3%
Heildarhagnaður 1.723 2.084 (361) -17,3% 2.573 2.737 (164) -6,0%

Lykiltölur á 2. ársfjörðungi 2024/25

Vörusala á 2F nam 46.579 m.kr. og jökst um 2,8% milli ára. Söluaukning verslana og vöruhúsa nam 4,8% en samdráttur var í sölu hjá Olís sem nemur 1,8% milli ára.

Seldum stykkjum í dagvöruverslunum fækkaði lítillega eða um 1,0% milli ára en heimsóknum viðskiptavina fjölgaði um 1,6% á fjörðungnum. Samdráttur var í seldum eldsneytislítrum hjá Olís um 4,2% milli ára.

Framlegð á 2F nam 10.174 m.kr. og jökst um 2,7% frá fyrra ári. Framlegðarhlutfall nam 21,8% og stóð nánast í stað milli ára. Framlegðarhlutfall í dagvöru hækkaði lítillega á sama tíma og hlutfallið í eldsneytishluta samstæðunnar lækkaði.

Laun hækkuðu um 9,5% og annar rekstrarkostnaður hækkaði um 15,5% á 2F. Launa- og kostnaðarhlutfall á fjörðungnum hækkar úr 12,5% í 13,5% milli ára.

EBITDA á 2F nam 4.014 m.kr. og lækkar um 10,2% milli ára. EBITDA hækkar um 8,1% hjá verslunum og vöruhúsum en samdráttur í EBITDA hjá Olís nam 39,6%. 2F á fyrra ári var óvenju sterkur hjá Olís í sögulegu samhengi.

Hagnaður ársfjörðungsins nam 1.723 m.kr. og lækkar um 17,3% milli ára.

Rekstur á fyrri árshelmingi 2024/25

Vörusala fyrri árshelmings nam 90.646 m.kr., samanborið við 86.799 m.kr. árið áður. Söluaukning milli ára nam 4,4%. Söluaukning verslana og vöruhúsa nam 6,2% og söluaukning hjá Olís nam 0,3%.

Framlegð samstæðunnar var 19.711 m.kr., samanborið við 17.975 m.kr. árið áður, eða aukning sem nemur 9,7%. Framlegðarhlutfall nam 21,7% og hækkaði um 1,0%-stig frá fyrra ári. Hækkun framlegðarhlutfalls liggur bæði í dagvöru og eldsneytishluta samstæðunnar.

Launakostnaður hækkaði um 10,4% milli ára og annar rekstrarkostnaður hækkaði um 15,3%. Launa- og kostnaðarhlutfall á tímabilinu hækkar úr 13,1% í 14,1%.

EBITDA nam 7.228 m.kr., samanborið við 6.993 m.kr. árið áður. EBITDA-hlutfall var 8,0%, samanborið við 8,1% á fyrra ári. EBITDA verslana og vöruhúsa jökst um 9,0% milli ára en EBITDA Olís dróst saman um 10,6%.

Afskriftir hækka um 5,2% milli ára og fjármagnskostnaður hækkar um 21,3%.

Heildarhagnaður tímabilsins nam 2.573 m.kr., sem jafngildir 2,8% af veltu en heildarhagnaður á fyrra ári var 2.737 m.kr. eða 3,2% af veltu.


Fréttatilkynning

  1. október 2024

hagar

Efnahagsreikningur samstæðunnar

i millj. kr. 31.08.2024 29.02.2024 Breyting Breyting %
Eignir
Fastafjármunir 56.460 56.085 375 0,7%
Veltufjármunir 24.505 21.129 3.376 16,0%
Eignir samtals 80.965 77.214 3.751 4,9%
Eigið fé og skuldir
Hlutafé 1.084 1.084 -- 0,0%
Annað eigið fé 27.198 27.104 94 0,3%
Eigið fé samtals 28.282 28.188 94 0,3%
Langtímaskuldir 24.608 23.139 1.469 6,3%
Vaxtaberandi skammtímaskuldir 6.110 5.818 292 5,0%
Aðrar skammtímaskuldir 21.965 20.069 1.896 9,4%
Skuldir samtals 52.683 49.026 3.657 7,5%
Eigið fé og skuldir samtals 80.965 77.214 3.751 4,9%

Lykiltölur efnahags 31.08.2024

  • Heildareignir samstæðunnar í lok tímabils námu 80.965 m.kr. og hækkuðu um 3.751 m.kr. frá árslokum 2023/24.
  • Fastafjármunir voru 56.460 m.kr. og hækkuðu um 375 m.kr. frá árslokum 2023/24 og veltufjármunir námu 24.505 m.kr. og hafa hækkað um 3.376 m.kr. það sem af er árs.
  • Vörubirgðir eru stærsti hluti veltufjármuna og námu 13.085 m.kr. í lok ágúst. Birgðir standa nánast í stað frá árslokum 2023/24 en hafa hækkað um 1.065 m.kr. frá lokum 2F 2023/24. Eldsneytisbirgðir standa nánast í stað en bæði birgðir í dagvöru og sérvoru hafa hækkað milli ára. Veltuhraði birgða er nú 11,1 en var 11,0 á fyrra ári.
  • Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur námu 8.436 m.kr. og hækka um 2.202 m.kr. á tímabilinu en viðskiptakröfur eru 711 m.kr. hærri en í lok 2F á fyrra ári. Innheimtutími viðskiptakrafna er nú 13,3 dagar samanborið við 12,9 daga á fyrra ári.
  • Veltufjárhlutfall er 0,87 og lausafjárhlutfall 0,41 í lok fyrri árshelmings. Aðgangur að skammtímafjármögnun í formi lánalína að upphæð 6,2 ma. kr. hjá viðskiptabanka er tryggður en auk þess fjármagnar félagíð sig til skamms tíma með útgáfu vixla.
  • Eigið fé í lok tímabilsins var 28.282 m.kr. og eiginfjárhlutfall 34,9%. Arðsemi eigin fjár var 17,8%. Eiginfjárhlutfall við lok síðasta rekstrarárs var 36,5% og arðsemi eigin fjár 18,1%. Félagíð átti eigin hluti að nafnverði 22,1 millj. í lok tímabilsins.
  • Heildarskuldir samstæðunnar í lok fyrri árshelmings námu 52.683 m.kr. en þar af voru vaxtaberandi skuldir 17.418 m.kr. og leiguskuldir 13.062 m.kr. Nettó vaxtaberandi skuldir, með leiguskuldum, í lok tímabils voru 27.496 m.kr. eða 2,1 x 12 mánaða EBITDA.
  • Vaxtaberandi skammtímaskuldir námu 6.110 m.kr. en þar af námu vixilskuldir 2.940 m.kr. og skuldabréfaflokkur HAGA181024 nam 2.500 m.kr. Skuldabréfaflokkurinn hefur nú verið endurfjármagnaður með útgáfu HAGA 161127 og stækkun á eldri flokki HAGA 120926 1. HAGA 161127 er að fjárhæð 1.560 millj. og ber fasta 8,60% vexti en HAGA 120926 1 verður að fjárhæð 3.000 millj. eftir stækkun og ber fljótandi vexti tengda 1 mánaða REIBOR að viðbættu 1,30% álagi.

4


Fréttatilkynning

  1. október 2024

hagar

Sjóostreymisyfirlit samstæðunnar

Fertilí kr. 2F 2024/25 2F 2023/24 6M 2024/25 6M 2023/24
01.06.2018 01.06.2018 Brevtina Brevtina% 01.03.2018 01.03.2018 Brevtina Brevtina%
Handbært fé frá rekstri 1.667 2.451 (784) -32,0% 5.557 5.786 (229) -4,0%
Fjárfestingarhreyfingar (485) (777) 292 -37,6% (1.099) (3.127) 2.028 -64,9%
Fjármögnunarhreyfingar (2.772) (1.904) (868) 45,6% (3.301) (2.802) (499) 17,8%
Hækkun á handbæru fé (1.590) (230) (1.360) 591,3% 1.157 (143) 1.300 -909,1%
Handbært fé í byrjun tímabils 4.574 2.956 1.618 54,7% 1.827 2.869 (1.042) -36,3%
Handbært fé í lok tímabils 2.984 2.726 258 9,5% 2.984 2.726 258 9,5%

Sjóostreymi á fyrri árshelmingi 2024/25

  • Handbært fé frá rekstri á fyrri árshelmingi nam 5.557 m.kr., samanborið við 5.786 m.kr. á fyrra ári.
  • Fjárfestingarhreyfingar tímabilsins voru 1.099 m.kr., samanborið við 3.127 m.kr. á fyrra ári. Einkum var fjárfest í áhöldum og innréttingum á tímabilinu, þar á meðal stækkun og endurnýjun verslunar Bónus á Ísafirði. Þá var fjárfest í rafrænum hillumiðum hjá Hagkaup auk breytinga í Hagkaup Skeifunni.
  • Fjármögnunarhreyfingar tímabilsins voru 3.301 m.kr., samanborið við 2.802 m.kr. á fyrra ári. Ekki hafa verið keypt eigin bréf á tímabilinu en á fyrra ári námu endurkaup 833 m.kr. Arðgreiðsla var greidd í júní 2024 og nam hún 2.522 m.kr.
  • Handbært fé í lok ágúst 2024 nam 2.984 millj., samanborið við 2.726 millj. í ágústlok í fyrra.

Staðan og framtíðarhorfur

Rekstur á öðrum ársfjörðungi 2024/25 var í samræmi við áætlanir en aðeins undir síðasta ári. Er það einna helst vegna Olís en á síðasta ári var afkoma Olís óvenju sterk í sögulegu samhengi, m.a. vegna hagfelldra hreyfinga í heimsmarkaðsverði oliu og stórra einskiptisverkefna. Vörusala samstæðunnar jókst um 2,8% frá fyrra ári og framlegð jókst í krónum talið um 2,7%. Rekstrarkostnaður hækkæði um 11,4% milli ára og EBITDA afkoma fjörðungsins lækkæði um 10,2% frá fyrra ári. Fjármagnskostnaður samstæðunnar hækkæði um 16,7% milli ára. Vextir og verðbólga eru enn há í sögulegu samhengi og þá hafa vaxtagjöld vegna leiguskulda hækkæði nokkuð milli tímabila.

Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2024/25 gerir ráð fyrir að rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) verði á bilinu 13.800–14.300 millj. kr. Fjárhagsleg staða samstæðunnar er sterk og er fjármögnun tryggð. Aðgangur að skammtímafjármögnun í formi lánalína, að fjárhæð 4,5 ma. kr. og USD 12,5 millj. er tryggður en einnig hefur félagíð undanfarið nýtt sér skammtímafjármögnun í formi vixlaútgáfu. Útgáfa vixlanna er í samræmi við grunnlýsingu 10 ma. kr. útgáfurama sem stjórn félagsins hefur samþykkt. Gera má ráð fyrir að félagíð nýtt sér áfram markaðsfjármögnun á næstu misserum.

Þann 26. september 2024 var tilkynnt um að Olís, dótturfélag Haga, hafi ásamt meðeigendum sínum komist að samkomulagi um að hefja formlegt söluferli á eignarhlutum félaganna í Olíudreifingu. Olís á 40% eignarhlut en Olíudreifing er mikilvægt innviðafélag hvað varðar birgðahald og dreifingu eldsneytis á Íslandi.

5


Fréttatilkynning 17. október 2024

hagar

Hlutafé og hluthafar

  • Markaðsvirði Haga í lok tímabilsins nam 88,5 ma. kr. og lokaverð þann 31. ágúst 2024 var 80,0 kr./hlut.
  • Skráð hlutafé Haga í lok tímabilsins nam 1.106 m.kr. Félagið átti 22,1 millj. eigin hluti í lok tímabils og er útistandandi hlutafé því 1.084 m.kr.
  • Þann 30. maí 2024 samþykkti aðalfundur félagsins að greiddur yrði arður til hluthafa sem nemur 50,0% af hagnaði síðasta reikningsárs eða samtals 2.522 m.kr. Heildararðgreiðslan nam því 2,33 kr. á hlut útistandandi hlutafjár. Arðurinn var greiddur þann 7. júní 2024.
  • Í samræmi við samþykkt hluthafafundar þann 30. ágúst 2024 var tilkynnt þann 31. ágúst 2024 að ákveðið hafi verið að veita tilteknum lykilstarfsmönnum félagsins kauprétti fyrir samtals 12.918.615 hlutum í félaginu, eða sem samsvarar 1,17% af hlutafé Haga þegar kaupréttarkerfið var samþykkt. Þar af var 11.037.686 hlutum úthlutað til framkvæmdastjórnar.
  • Hluthafar voru 968 í byrjun tímabils og 915 í lok þess. 10 stærstu hluthafar félagsins áttu 77,58% eignarhlut í félaginu í lok annars ársfjörðungs.

Rafraenn kynningarfundur föstudaginn 18. október 2024

Rafraenn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn föstudaginn 18. október kl. 08:30, þar sem Finnur Oddsson, forstjóri, og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna rekstur og afkomu félagsins ásamt því að svara fyrirspurnum.

Tekið verður við spurningum sem tengjast uppgjörinu á meðan á útsendingu stendur á netfangið [email protected] og verður þeim svarað eins og kostur er í lok fundar.

Fundinum verður streymt og er skráning á fundinn hér: https://www.hagar.is/skraning

Kynningargögn verða aðgengileg á heimasíðu Haga, www.hagar.is, við upphaf fundar.

Fjárhagsdagatal 2024/25

Fjárhagsupplysingar eru birtar eftir lokun markaða.

Uppgjörstímabil Vikudagur Birtingardagur
3F – 1. mars til 30. nóvember Fimmtudagur 16. janúar 2025
4F – 1. mars til 28. febrúar Þriðjudagur 15. apríl 2025
Aðalfundur 2025 Miðvikudagur 21. maí 2025

Fréttatilkynning þessi og uppgjörsgögn verða aðgengileg á ensku þann 21. október á https://www.hagar.is/en/

Press release and financial statements will be available in English on October 21st at https://www.hagar.is/en/

Nánari upplýsingar veita Finnur Oddsson, forstjóri félagsins ([email protected]), og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs ([email protected]), í síma 530-5500 eða tölvupósti.