Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar Interim / Quarterly Report 2023

Jan 12, 2023

2196_rns_2023-01-12_e01ae6bd-b1b6-470f-9cb0-03eadf560c5e.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

Fréttatilkynning

  1. januar 2023

hagar

AUKIN UMSVIF OG NÝJAR STOBIR Í REKSTRI

Uppgjør Haga hf. á 3. ársfjórðungi 2022/23

Árshlutareikningur Haga hf. fyrir þriðja ársfjórðung 2022/23 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 12. janúar 2023. Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars til 30. nóvember 2022. Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Reikningurinn hefur hvorki verið kannaður né endurskoðaður af endurskoðendum félagsins, PricewaterhouseCoopers ehf.

Helstu lykiltölur

  • Vörusala 3F nam 40.220 m.kr. (19,9% vöxtur frá 3F 2021/22). Vörusala 9M nam 121.832 m.kr. (21,3% vöxtur frá 9M 2021/22). [3F 2021/22: 33.551 m.kr., 9M 2021/22: 100.470 m.kr.]
  • Framlegð 3F nam 7.301 m.kr. (18,2%) og 23.248 m.kr. (19,1%) fyrir 9M. [3F 2021/22: 6.916 m.kr. (20,6%), 9M 2021/22: 21.149 m.kr. (21,1%)]
  • Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) 3F nam 2.598 m.kr. eða 6,5% af veltu. EBITDA 9M nam 9.635 m.kr. eða 7,9% af veltu. [3F 2021/22: 2.535 m.kr. (7,6%), 9M 2021/22: 8.076 m.kr. (8,0%)]
  • Hagnaður 3F nam 910 m.kr. eða 2,3% af veltu. Hagnaður 9M nam 4.214 m.kr. eða 3,5% af veltu. [3F 2021/22: 841 m.kr. (2,5%), 9M 2021/22: 3.277 m.kr. (3,3%)]
  • Grunnhagnaður á hlut 3F var 0,82 kr. og 3,74 kr. fyrir 9M. [3F 2021/22: 0,73 kr., 9M 2021/22: 2,84 kr.]. Þynntur hagnaður á hlut 3F var 0,82 kr. og 3,67 kr. fyrir 9M. [3F 2021/22: 0,73 kr., 9M 2021/22: 2,82 kr.]
  • Eigið fé nam 27.196 m.kr. í lok tímabilis og eiginfjárhlutfall 37,8%. [Árslok 2021/22: 26.726 m.kr. og 41,0%]
  • Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2022/23 gerir ráð fyrir að EBITDA verði 10.200-10.700 m.kr., án áhrifa vegna viðskipta með Klasa og endurgreiðslu flutningsjöfnunarsjóðs. Áhrif einskiptisliða á EBITDA félagsins eru um 1,4 ma. kr.

Helstu fréttir af starfsemi

  • Tölverð veltuaukning (19,9%) á ársfjórðungi miðað við sama tímabil í fyrra og heildarhagnaður eykst um 8,2%, einkum vegna einskiptisliða.
  • Seldum stykkjum í dagvöruverslunum á 3F fjölgar um 7,0% milli ára og heimsóknum viðskiptavina fjölgar um 15,0% í samanbúrði við fyrra ár. Seldum eldsneytislítrum á 3F fækkar um 2,6% - sala til stórnotenda óvenju mikil á sama fjórðungi í fyrra.
  • Framlegð í krónum talið eykst um 5,6% milli ára en framlegðarhlutfallið lækkar um 2,5%-stig, einkum vegna hærra heimsmarkaðsverðs olíu samanbórið við fyrra ár en einnig hefur framlegðarhlutfall dagvöru lækkað.
  • Áframhaldandi hnökra gætir í aðfangakeðjunni og við framleiðslu matvöru með verulegri hækkun á verði aðfanga. Allt kapp lagt á að sporna við hækkandi vöruverði til viðskiptavina og þannig leggja. Hagar sitt af mörkum til að halda aftur af verðbólgu.
  • Einskiptisliðir að upphæð 451 m.kr. færðir meðal annarra rekstrartekna á 3F
  • Áhrifa kjarasamninga gætir á fjórðungnum en vegna afturvirk-ni til 1. nóvember var færð gjaldfærsla á tímabilinu.
  • Hagar tóku við rekstri Eldum rétt þann 1. nóvember og gætir áhrifa samrunans því í rekstri og efnahag samstæðunnar frá og með þeim tíma.

Fréttatilkynning 12. januar 2023

hagar

Finnur Oddsson, forstjóri:

Á síðustu mánuðum hefur órói á heimssmörkuðum fyrir hrávöru og orku leitt af sér fordæmalausar hækkanir á vöruverði til neytenda og um leið haft mikil áhrif á rekstrarumhverfi í smásölu. Í ljósi pessara aðstæðna, pá má segja að starfsemi Haga á príðja fjórðungi rekstrarársins 2022/23 hafi gengið ágætlega. Áfram er umtalsverð aukning vörusölu miðað við sama tímabil í fyrra, en tekjur námu 40,2 ma. kr. sem er 20% vöxtur. Afkoma batnaði lítillega, einkum vegna einskiptisliða, en EBITDA nam 2.598 m.kr. og hagnaður 910 m.kr. Á fyrstu 9 mánuðum ársins nam vörusala tæpum 122 ma.kr. og EBITDA hlutfall 7,9%. Við erum sátt með starfsemi félagsins pað sem af er ári, bæði niðurstöðu rekstrar við erfiðar aðstæður og að hafa komið í höfn mikilvægum áföngum sem munu styrkja Haga til framtíðar.

Eins og fyrr segir, pá litaðist fjórðungurinn af áframhaldandi róti á hráefnismörkuðum og hafa hækkanir og sveiflur í verði aðfanga pví verið eitt mikilvægasta viðfangsefni stjórnenda félagsins. Þar hefur leiðarstefið verið að tryggja vöruúral og vinna gegin hækkandi vöruverði í verslunum með hagkvæmum innkaupum og með pví að leita eftir auknu hagræði í allri starfsemi.

Ef horft er til starfspátta, pá jukust tekjur Olís um 35% á milli ára, námu 14,3 ma. kr., og afkoma batnaði. Bætta afkomu má fyrst og fremst rekja til einskiptisliða sem féllu til á fjórðungnum, en til grundvallar liggur ávinningur af breyttum áherslum í rekstri og vel heppnaðrar hagræðingarinnu síðustu missera. Eldsneytissala á smásölumarkaði jókst og þurrvörusala sömuleiðis, en aðeins dró úr umsvifum stornotenda, enda óvenju mikil umsvif stornotenda á sama fjórðungi í fyrra. Framlegð hefur heldur lækkað, bæði í krónum og sem hlutfall af veltu, meðal annars vegna óhagfelldra sveiflna á heimsmarksverði olíu. Aðlögun á pjónustu- og vöruframboði eldsneytisstöðva miðar samkvæmt áætlun og einfaldað sölu- og aðfangskipulag gagnvart stornotendum hefur gefist vel.

Ágætur vöxtur var í sölu á dagvöru í Bónus og Hagkaup, riflega 13%. Það er ljóst að hækkandi verð aðfanga frá heildsölum og framleiðendum hefur leitt til hærra vöruverðs í verslunum, sem skýrir tekjuvöxt að hluta. Það er hins vegar ánægjulegt að seldum stykkjum fjölgaði um 7% og heimsóknum viðskiptavina í verslanir fjölgaði um 15%. Þennan sterka vöxt í dagvöruverslun má að stærstum hluta rekja til pess að fleiri viðskiptavinir sækja Bónus heim, þar sem lengri opnunartími, gott aðgengi og hagkvæmt vöruverð mælast vel fyrir. Gert er ráð fyrir að svó verði áfram, enda skiptir pað æ fleiri máli að gera sem hagkvæmust innkaup á matvöru. Framlegð í krónum hækkaði á fjórðungnum í samræmi við aukna veltu, en framlegðarhlutfall í dagvöru hefur hins vegar heldur lækkað.

Í samræmi við markaða stefnu, pá hefur uppbygging samstæðu Haga tekið nokkrum breytingum á síðustu misserum, með pað að markmiði að bregðast við próun í rekstrarumhverfi félagsins og skjóta um leið fleiri stoðum undir rekstur samstæðunnar. Flestir þættir í pví uppbyggingarstarfi eru komnir í höfn eða á góðan rekspöl nú í upphafi árs 2023. Eldum rétt er formlega orðið meðlimur í Haga fjölskyldunni, sem liður í að bregðast við breyttum neysluvenjum með hollum, einföldum og tímasparandi lausnum. Stór próunar- og fasteignaverkefni eru komin í góðan farveg hjá Klasa, sem mun flýta fyrir verðmætasköpun og auka fókus stjórnenda Haga á kjarnarekstur á sviði dagvöru- og eldsneytis. Stórkaup var sett á laggirnar, og fer vel af stað, til að nýta innviði Haga enn betur og bjóða rekstrar-, heilbrigðis- og matvöru á ört stækkandi stornotendamarkaði. Stafræn vegferð Haga hefur svó skilað margvislegum ávinningi, og m.a. gert Hagkaup kleift að „stækka“ og pjóna viðskiptavinum um allt land enn betur, með nýjum netverslunum með snyrtivörur, leikfóng og valdar sérvorur. Þessar breytingar skjóta nú enn fleiri stoðum undir rekstur Haga samstæðunnar og er pess vænst að þær skili rekstrarlegum ávinningi strax á næstu fjórðungum.

Veiking krónu og þær fordæmalausu verðhækkanir sem verið hafa á innlendum og erlendum aðföngum hafa óhjákvæmilega leitt til hærra vöruverðs á nauðsynjum og verðbölga matvöru hefur því aukist. Á sama tíma hefur rekstarkostnaður aukist tölvert, bæði vegna launahækkana og almennra kostnaðarhækkana. Í pessu ljósi erum við ágætlega sátt við þann árangur sem náðst hefur pað sem af er rekstrarárs. Staða Haga á markaði er sterk og fjárhagslega stendur félagið traustum fótum, vel í stakk búið til að takast á við þær óvenjulegu og krefjandi rekstraraðstæður sem nú eru. Styrkur Haga liggur í öflugum dötturfélögum sem hafa á að skipa paulreyndu starfsfólki sem vinnur af einurð að því markmiði að tryggja vöruframboð, hagkvæm innkaup og rekstur. Starfsfólk Haga mun áfram vinna að því markmiði að efla hag viðskiptavina með því að gera verslun sem hagkvæmasta, en jafnframt þægilega og skemmtilega.


Fréttatilkynning

  1. januar 2023

hagar

Rekstrarreikningar samstæðunnar

Fjöldi, kr. 3F 2022/23 3F 2021/22 8M 2022/23 8M 2021/22
01.09-30.11 01.09-30.11 Breytlig Breytlig % 01.03-30.11 01.03-30.11 Breytlig Breytlig %
Vörusala 40.220 33.551 6.669 18,9% 121.832 100.470 21.362 21,3%
Kostnaðarverð seldra vara (32.919) (26.635) (6.284) 23,6% (98.584) (79.321) (19.263) 24,3%
Framlegð 7.301 6.916 385 5,6% 23.248 21.149 2.099 9,9%
Framlegð % 18,2% 20,6% - -2,5% 19,1% 21,1% - -2,0%
Aðrar rekstrartekjur 587 125 462 369,6% 936 354 582 164,4%
Hagnaður af sölu eigna -- -- -- -- 882 349 533 152,7%
Laun og launatengd gjöld (3.578) (3.132) (446) 14,2% (10.459) (9.564) (895) 9,4%
Annar rekstrakkostnaður (1.712) (1.374) (338) 24,6% (4.972) (4.212) (760) 18,0%
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) 2.598 2.535 63 2,5% 9.635 8.076 1.559 19,3%
EBITDA % 6,5% 7,6% - -1,1% 7,9% 8,0% - -0,1%
Afskriftir (1.085) (1.105) 20 -1,8% (3.205) (3.007) (198) 6,6%
Rekstrarhagnaður (EBIT) 1.513 1.430 83 5,8% 6.430 5.069 1.361 28,8%
Hrein fjármagnsgjöld (414) (373) (41) 11,0% (1.384) (1.104) (280) 25,4%
Áhrif hlutdeildarfélaga 34 23 11 47,8% 172 144 28 19,4%
Hagnaður fyrir tekjuskatt 1.133 1.080 53 4,9% 5.218 4.109 1.109 27,0%
Tekjuskattur (223) (239) 16 -8,7% (1.004) (832) (172) 20,7%
Heildarhagnaður 910 841 69 8,2% 4.214 3.277 937 28,6%
Skipting hagnaðar
Hlutdeild miðurfélags 910 841 69 8,2% 4.214 3.267 947 29,0%
Hlutdeild minnihuta -- -- -- -- -- 10 (10) -
910 841 69 8,2% 4.214 3.277 937 28,6%

Lykiltölur á 3. ársfjörðungi

Vörusala á 3F jókst um 19,9% milli ára. Fjöldi seldra stykkja í dagvöruverslunum jókst um 7,0% og heimsóknum viðskiptavina fjölgaði um 15,0%. Eldsneytislítrum hjá Olís á 3F fækkaði um 2,6% milli ára.

Framlegð á 3F í krónum talið jókst um 5,6% milli ára en framlegðarhlutfall lækkaði úr 20,6% í 18,2%, einkum vegna hærra heimsmarkaðsverðs olíu samanborið við fyrra ár en einnig vegna lægri framlegðar í dagvöruverslunum.

Endurgreiðsla flutningsjöfnunargjalds að upphæð 451 m.kr. er tekjufærð meðal annarra rekstartekna á fjörðungnum.

Áhrifa kjarasamninga gætir á fjörðungnum en vegna afturvirkni til 1. nóvember var færð gjaldfærsla á tímabilinu, auk varúðarfærslu vegna ófrágenginna kjarasamninga. Áhrif samninganna eru nokkuð umfram meðaltals prósentuhækkanir sem koma fram í samningum.

EBITDA 3F var 2.598 m.kr. í samanburði við 2.535 m.kr. á fyrra ári. EBITDA-hlutfall var 6,5% en var 7,6% á fyrra ári. Án einskiptisliða var EBITDA 2.147 m.kr. eða 5,3% hlutfall.

Heildarhagnaður 3F nam 910 m.kr. og hækkar um 8,2% á milli ára.

Rekstur fyrstu níu mánuði rekstrarársins

Vörusala tímabilsins nam 121.832 m.kr., samanborið við 100.470 m.kr. árið áður. Söluaukning milli ára nam 21,3%. Söluaukning verslana og vöruhúsa nam 9,6% og söluaukning hjá Olís nam 45,0%.

Fjöldi seldra stykkja í dagvöruverslunum jókst um 4,9% og heimsóknum viðskiptavina fjölgaði um 12,6%. Magnaukning á tímabilinu í seldum eldsneytislítrum hjá Olís var 3,6%.

Framlegð samstæðunnar var 23.248 m.kr., samanborið við 21.149 m.kr. árið áður, eða aukning um 9,9%. Framlegðarhlutfall lækkaði hins vegar og var 19,1% í samanburði við 21,1% á fyrra ári.

Einskiptisliðir á tímabilinu nema rúmum 1,4 ma. kr. sem tilkomnir eru vegna viðskipta Haga með Klasa (966 m.kr.) og endurgreiðslu flutningsjöfnunargjalds (451 m.kr.).

Laun hækka um 9,4% á tímabilinu, bæði vegna meiri umsvifa hjá Bónus en einnig vegna áhrifa kjarasamninga. Annar rekstrakkostnaður hefur hækkað um 18,0% á tímabilinu, einkum vegna hærra eldsneytisverðs og áhrifa verðbölgu.

Afkoma fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA) nam 9.635 m.kr., samanborið við 8.076 m.kr. árið áður. EBITDA-hlutfall var 7,9%, samanborið við 8,0% á fyrra ári.

Heildarhagnaður tímabilsins nam 4.214 m.kr., sem jafngildir 3,5% af veltu en heildarhagnaður á fyrra ári var 3.277 m.kr. eða 3,3% af veltu.

EBITDA afkoma, án einskiptisliða nú og á samanburðarári, hefur hækkað um 6,4% milli ára og heildarhagnaður hækkar um 1,1% milli ára án einskiptisliða.


Fréttatilkynning

  1. januar 2023

hagar

Efnahagsreikningur samstæðunnar

i millj. kr. 30.11.2022 28.02.2022 Breyting Breyting %
Eignir -
Fastafjármunir 50.058 45.064 4.994 11,1%
Veltufjármunir 21.842 17.740 4.102 23,1%
Eignir til sölu -- 2.388 (2.388) -
Eignir samtals 71.900 65.192 6.708 10,3%
Eigið fé og skuldir
Hlutafé 1.119 1.139 (20) -1,8%
Annað eigið fé 26.077 25.587 490 1,9%
Eigið fé samtals 27.196 26.726 470 1,8%
Langtímaskuldir 22.419 20.950 1.469 7,0%
Vaxtaberandi skammtímaskuldir 2.593 451 2.142 474,9%
Aðrar skammtímaskuldir 19.692 17.065 2.627 15,4%
Skuldir samtals 44.704 38.466 6.238 16,2%
Eigið fé og skuldir samtals 71.900 65.192 6.708 10,3%

Lykiltölur efnahags 30.11.2022

  • Heildareignir samstæðunnar í lok tímabils námu 71.900 m.kr. og hækkuðu um 6.708 m.kr. frá árslokum 2021/22.
  • Fastafjármunir voru 50.058 m.kr. og hækkuðu um 4.994 m.kr. frá árslokum 2021/22. Þar telur að mestu eignarhlutur Haga í Klasa sem bókfærður er í lok ágúst 2022 og hækkuð óefnislegra eigna vegna kaupa Haga á Eldum rétt í nóvember sl.
  • Veltufjármunir voru 21.842 m.kr. og hækkuðu um 1.714 m.kr. frá árslokum 2021/22, að meðtöldum eignum til sölu á fyrra ári.
  • Birgðir í lok nóvember voru 14.258 m.kr. og veltuhraði birgða 10,1. Birgðir hækkuðu um 3.482 m.kr. frá lokum 3F 2021/22 en hækkuð birgða má nær einungis rekja til hærri eldsneytisbirgða, sem orsakast af mikilli hækkuð á eldsneytisverði milli ára. Veltuhraði birgða á fyrra ári var 10,2. Birgðir hækkuðu um 3.551 m.kr. frá árslokum 2021/22, af sömu ástæðu og rakin er hér á undan auk meiri birgðasöfnunar í matvöru og sérvöru vegna jólaverslunar.
  • Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur eru nánast á pari á tímabilinu eða hækkuð um 16 m.kr. frá árslokum. Innheimtutími viðskiptakrafna var 10,4 dagar samanborið við 10,2 daga á fyrra ári.
  • Veltufjárhlutfall var 0,98 og lausafjárhlutfall 0,34 í lok þriðja ársfjörðungs. Aðgangur að skammtímafjármögnun í formi lánalína að upphæð 6,2 ma. kr. hjá viðskiptabanka er tryggður.
  • Eigið fé í lok tímabilsins var 27.196 m.kr. og eiginfjárhlutfall 37,8%. Arðsemi eigin fjár var 18,6%. Eiginfjárhlutfall við lok síðasta rekstrarárs var 41,0% og arðsemi eigin fjár 15,9%. Félagið átti 13,9 millj. eigin hluti í lok tímabilsins.
  • Heildarskuldir samstæðunnar í lok þriðja ársfjörðungs voru 44.704 m.kr. en þar af voru vaxtaberandi skuldir 14.448 m.kr. og leiguskuldir 9.233 m.kr. Nettó vaxtaberandi skuldir, með leiguskuldum, í lok tímabils voru 22.363 m.kr. eða 1,9 x 12 mánaða EBITDA. Nettó vaxtaberandi skuldir, án leiguskulda, voru 1,1 x 12 mánaða EBITDA.

Fréttatilkynning

  1. januar 2023

hagar

Sjóðstreymisyflrit samstæðunnar

I mill. kr. 3F 2022/23 9M 2022/23
01.09-30.11 01.09-30.11 Breyting Breyting % 01.09-30.11 01.09-30.11 Breyting Breyting %
Handbært fé frá rekstri 1.808 2.478 (670) -27,0% 6.563 7.035 (472) -6,7%
Fjárfestingarhreýfingar (1.895) (367) (1.528) 416,3% (2.752) (1.221) (1.531) 125,4%
Fjármögnunarhreýfingar (690) (1.006) 316 -31,4% (3.276) (4.146) 870 -21,0%
Hækkun á handbæru fé (777) 1.105 (1.882) -170,3% 535 1.668 (1.133) -67,9%
Handbært fé í byrjun tímabils 2.095 951 1.144 120,3% 783 388 395 101,8%
Handbært fé í lok tímabils 1.318 2.056 (738) -35,9% 1.318 2.056 (738) -35,9%

Sjóðstreymi fyrstu níu mánuði rekstrarársins

  • Handbært fé frá rekstri fyrstu níu mánuðum ársins 2022/23 nam 6.563 m.kr., samanborið við 7.035 m.kr. á fyrra ári.
  • Fjárfestingarhreýfingar á fyrstu níu mánuðum ársins voru 2.752 m.kr., samanborið við 1.221 m.kr. á fyrra ári. Fjárfesting í rekstrarfjármunum nam 1.455 m.kr. á tímabilinu, fjárfesting í óefnislegum eignum 386 m.kr. og fjárfesting í dótturfélagi nam 1.305 m.kr.
  • Fjármögnunarhreýfingar tímabilsins voru 3.276 m.kr., samanborið við 4.146 m.kr. á fyrra ári. Endurkaup eigin bréfa á fyrstu níu mánuðum ársins námu 1.500 m.kr. og arðgreiðsla í júní 2022 nam 2.265 m.kr.
  • Handbært fé í lok tímabils nam 1.318 m.kr. til samanburðar við 2.056 m.kr. í lok sama tímabils í fyrra.

Staðan og framtíðarhorfur

Starfsemi samstæðunnar hefur verið að færast í eðlilegra horf í samanburði við síðustu tvö rekstrarár, en áhrif COVID-19 heimsfaraldursins hafa farið dvínandi. Ferðalög landsmanna utan hafa aukist og erlendum ferðamönnum á Íslandi hefur fjölgað, sem hefur áhrif á eftirspurn á mörkuðum fyrir dagvöru og eldsneyti. Hnökra gætir þó enn í framleiðslu matvöru og í aðfangakeðjunni, bæði vegna eftirstöðva heimsfaraldursins og ekki síður vegna stríðsátaka í Úkrainu. Hvoru tveggja hefur leitt til verulegrar hækkunar á verði aðfanga, verðbólga hefur aukist og vaxtastig hækkað. Hagar munu, eftir sem áður, leggja áherslu á að sporna við hækkandi vöruverði til neytenda og leggja þannig sitt af mörkum til að tryggja viðskiptavinum sínum vörur og þjónustu á sem hagkvæmasta verði og um leið leggja lóð á vogarskálar til að halda aftur af verðbólgu.

Á þriðja ársfjörðungi gætir áhrifa af kjarasamningum sem undirritaðir voru í desember, en vegna afturvirkni til 1. nóvember 2022 var færð gjaldfærsla á tímabilinu, auk varúðarfærslu vegna ófrágenginna kjarasamninga. Áhrif kjarasamninga hjá félaginu verða líklega eitthvað umfram þær meðaltals prósentuhækkanir sem fjallað er um í samningunum þar sem nokkuð stór hluti starfsfólks er á kjarasamningstöxtum, en hækkun taxta nemur á bilinu 10-13%.

Afkomuspa stjórnenda gerir ráð fyrir að rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) samstæðu Haga fyrir rekstrarárið 2022/23 verði á bilinu 10.200-10.700 mill. kr., ef frá eru talin áhrif einskiptisliða sem tengjast sölu á eignum til Klasa og endurgreiðsla flutningsjöfnunargjalds. Áhrif einskiptisliða á EBITDA samstæðunnar voru á öðrum ársfjörðungi um 966 mill. kr. vegna sölu á eignum til Klasa og á þriðja ársfjörðungi 451 mill. kr. vegna endurgreiðslu flutningsjöfnunargjalds.

Fjárhagsleg staða samstæðu Haga hf. er sterk og er félagið vel í stakk búið að takast á við ögrandi aðstæður í íslensku efnahagslífi. Fjármögnun samstæðunnar er að mestu tryggð til langs tíma og er aðgangur tryggður að skammtímafjármögnun í formi lánalína að fjárhæð 4,5 ma. kr. og USD 12,5 mill.

Þann 17. október 2022 samþykkti Samkeppniseftirlitið kaup Haga hf. á öllu hlutafé í Eldum rétt ehf. Afhending og greiðsla kaupverðsins fór fram þann 1. nóvember sl. Áhrif kaupanna á rekstrarreikning og efnahagsreikning Haga koma fram frá og með 1. nóvember 2022.

5


Fréttatilkynning

  1. januar 2023

hagar

Hlutafé og hluthafar

  • Markaðsvirði Haga í lok tímabilsins nam 83,8 ma. kr. og lokaverð þann 30. nóvember 2022 var 74,0 kr./hlut.
  • Skráð hlutafé Haga í lok tímabilsins nam 1.133 m.kr. Félagið átti 13,9 millj. eigin hluti í lok tímabils.
  • Þann 1. júní 2022 samþykktí aðalfundur að lækka hlutafé félagsins til ógildingar á eigin hlutum að nafnverði 21,6 m.kr. Lækkunin kom til framkvæmda þann 23. júní 2022 og lækkaði hlutfé Haga því úr 1.154 m.kr. að nafnverði í 1.133 m.kr. að nafnverði.
  • Aðalfundur samþykktí einnig að greiddur yrði arður til hluthafa vegna síðastliðins árs sem nam 2,0 krónum á hlut eða 2.265 m.kr. Arðurinn var greiddur þann 15. júní 2022.
  • Stjórn Haga hefur á grundvelli samþykktar aðalfundar frá 1. júní 2022 sett í gang tvær endurkaupaáætanir á tímabilinu í þeim tilgangi að lækka útgefíð hlutafé félagsins. Endurkaupunum er lokið en fjárhæð þeirra nam 1.000 m.kr. eða 13,9 millj. hluta. Stjórn hefur nú samþykkt frekari endurkaup að fjárhæð 500 m.kr. en nánar verður tilkynnt um útfærslu þeirra á næstu dögum.
  • Hluthafar voru 986 í byrjun rekstrarárs og 1.034 í lok nóvember. 10 stærstu hluthafar félagsins áttu 76,01% eignarhlut í félaginu í lok nóvember.

Rafrænn kynningarfundur föstudaginn 13. janúar 2022

Rafrænn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn föstudaginn 13. janúar kl. 8:30. Fundinum verður varpað í gegnum netið, þar sem Finnur Oddsson, forstjóri, og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna rekstur og afkomu félagsins ásamt því að svara fyrirspurnum.

Tekið verður við spurningum sem tengjast uppgjörinu á meðan á útsendingu stendur á netfangið [email protected] og verður þeim svarað eins og kostur er í lok fundar.

Fundinum verður streymt og er skráning á fundinn hér: https://www.hagar.is/skraning

Kynningargögn verða aðgengileg á heimasíðu Haga, www.hagar.is, við upphaf fundar.

Fjárhagsdagatal 2022/23

Fjárhagsupplysingar eru birtar eftir lokun markaða.

Uppgjörstímabil Vikudagur Birtingardagur
4F – 1. mars til 28. febrúar Fimmtudagur 27. apríl 2023
Aðalfundur 2023 Fimmtudagur 1. júní 2023

Fréttatilkynning þessi og uppgjörsgögn verða aðgengileg á ensku þann 16. janúar á https://www.hagar.is/en/

Press release and financial statements will be available in English on January 16th at https://www.hagar.is/en/

Nánari upplysingar veita Finnur Oddsson, forstjóri félagsins ([email protected]), og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs ([email protected]), í síma 530-5500 eða tölvupósti.