Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar Interim / Quarterly Report 2023

Jun 28, 2023

2196_rns_2023-06-28_3e11e0d2-234a-4c08-85a4-3ea83d0d2434.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

hagar

SAMANDREGINN ÁRSHLUTAREIKNINGUR SAMSTÆDUNNAR
1. MARS TIL 31. MAÍ 2023

Hagar

Bananar

BÓNUS

ELDUM RÉTT

HAGKAUP

olis

STÓRKAUP

ZNA

Hagar hf. • Holtavegi 10 • 104 Reykjavík • Ísland • kt: 670203-2120 • hagar.is • 530-5500


EPNISYFIRLIT

Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra ... 3
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu ... 5
Efnahagsreikningur ... 6
Eiginfjáryfirlit ... 7
Sjóðstreymisyflit ... 8
Skýringar ... 9

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. mai 2023


SKÝRSLA OG YFIRLÝSING STJÓRNAR OG FORSTJÓRA

Hagar hf. („félagið“) er verslunarfyrirtæki með starfsemi á Íslandi en félagið er leiðandi á íslenskum dagvöru- og eldsneytismarkaði. Í lok tímabilsins starfrækti félagið 38 matvöruverslanir, 22 Olís þjónustustöðvar, 45 ÓB-stöðvar, tvö vöruhús, eina framleiðslustöð, eina netverslun með matarpakka, eina birgðaverslun og eina sérvöruverslun. Kjarnastarfsemi Haga er á sviði matvöru og tengdra vöruhúsa, auk eldsneytissölu.

Árshlutareikningur Haga hf. fyrir tímabilið 1. mars til 31. maí 2023 er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34. Árshlutareikningurinn samanstendur af samandregnum samstæðureikningi Haga hf. og dótturfélaga þess, sem vísað er til sem samstæðunnar. Árshlutareikningurinn er hvorki endurskoðaður né kannaður af endurskoðendum félagsins.

Rekstur tímabilsins og fjárhagsleg staða

Samkvæmt rekstrarreikningi og yfirliti um heildarafkomu var hagnaður af rekstri samstæðunnar að fjárhæð 653 millj. kr. (2022/23: 926 millj. kr.). Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 2.521 millj. kr. (2022/23: 2.668 millj. kr.). Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir samstæðunnar 74.297 millj. kr. (Árslok 2022/23: 72.007 millj. kr.). Eigið fé í lok tímabilsins nam 27.751 millj. kr. (Árslok 2022/23: 27.931 millj. kr.) og var eiginfjárhlutfall 37,4% (Árslok 2022/23: 38,8%).

Áframhaldandi verðhækkanir á aðfanga- og vöruverði, auk hækkandi vaxtastigs, einkenndi nýliðinn ársfjórðung líkt og verið hefur undanfarin misseri. Velta hefur aukist nokkuð í krónum talið í dagvöruhluta samstæðunnar þar sem áhrif verðbólgu hafa verið tölverð. Framlegðarhlutfall hefur heldur lækkað sem sýnir að kostnaðarverðshækkunum hefur ekki verið fleytt út í vöruverð að fullu leyti. Þá hefur velta og framlegð í eldsneytishluta samstæðunnar dregist saman með lækkandi heimsmarkaðsverði á eldsneyti.

Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2023/24 gerir ráð fyrir að rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) verði á bilinu 11.000-11.500 millj. kr. Fjárhagsleg staða samstæðunnar er sterk og er fjármögnun tryggð til langs tíma. Þá er aðgangur að skammtímafjármögnun í formi lánalína, að fjárhæð 4,5 ma. kr. og USD 12,5 millj. einnig tryggður. Þá hefur félagið undanfarið nýtt sér skammtímafjármögnun í formi vixlaútgáfu en útgáfá vixlanna er í samræmi við grunnlýsingu 10 ma. kr. útgáfuramma sem stjórn félagsins hefur samþykkt. Gera má ráð fyrir að félagið horfi í meira mæli til markaðsfjármögnunar á næstu misserum.

Hlutafé og hluthafar

Skráð hlutafé félagsins nam í lok tímabilsins 1.133 millj. kr. Hver hlutur er ein króna að nafnverði. Allir hlutir eru í sama flokki og njóta sömu réttinda. Eigin hlutir í upphafi tímabils námu 13,9 millj. kr. að nafnverði en í lok tímabils á félagið 26,2 millj. kr. eigin hluti að nafnverði.

Hluthafar voru 1.055 í byrjun tímabilsins og 1.045 í lok þess.

Þann 1. júní 2023 samþykkti aðalfundur félagsins að greiddur yrði arður til hluthafa sem nemur 50% hagnaði síðasta reikningsárs eða samtals 2.475 millj. kr. Arðurinn var greiddur þann 13. júní 2023. Aðalfundur samþykkti einnig að lækka hlutafé félagsins til ógildingar á eigin hlutum að nafnverði 26,2 millj. kr. og verður skráð hlutafé eftir lækkun því 1.106 millj. kr.

Samandregnin árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. maí 2023


SKÝRSLA OG YFIRLÝSING STJÓRNAR OG FORSTJÓRA, FRH.:

Yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Samkvæmt bestu vitneskju stjórnar og forstjóra gefur samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar glögga mynd af rekstrarafkomu samstæðunnar fyrir tímabilið 1. mars til 31. maí 2023, eignum, skuldum og fjárhagsstöðu hennar þann 31. maí 2023 og breytingum á handbæru fé á tímabilinu, í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastáðla eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu.

Jafnframt er það álit stjórnar og forstjóra að árshlutareikningurinn og skýrsla stjórnar og forstjóra geymi glöggt yfirlit um þróun og árangur í rekstri samstæðunnar, stöðu hennar, og lýsi helstu áhættupáttum og óvissu sem samstæðan býr við.

Stjórn og forstjóri Haga hf. hafa í dag farið yfir árshlutareikning samstæðunnar fyrir tímabilið 1. mars til 31. maí 2023 og staðfesta hann með undirritun sinni.

Árshlutareikningurinn er undirritaður með rafrænum hætti í samræmi við lög nr. 55/2019, um rafræna auðkenningu og traustþjónustu fyrir rafræn viðskipti.

Reykjavík, 28. júní 2023

Stjórn:

Davið Harðarson, formaður

Eva Bryndís Helgadóttir, varaformaður Eiríkur S. Jóhannsson, meðstjórnandi
Jensína Kristín Böðvarsdóttir, meðstjórnandi Sigríður Olgeirsdóttir, meðstjórnandi

Forstjóri:

Finnur Oddsson

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. maí 2023


REKSTRARREIKNINGUR OG YFIRLIT UM HEILDARAFKOMU

1. MARS 2023 TIL 31. MAÍ 2023

| | Skýr. | 2023
1.3.-31.5. | 2022
1.3.-31.5. |
| --- | --- | --- | --- |
| Vörusala | | 41.490 | 38.213 |
| Kostnaðarverð seldra vara | | ( 33.418) | ( 30.649) |
| Framlegð | | 8.072 | 7.564 |
| Aðrar rekstrartekjur | | 194 | 202 |
| Laun og launatengd gjöld | | ( 3.932) | ( 3.443) |
| Annar rekstarkostnaður | | ( 1.813) | ( 1.655) |
| Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir | | 2.521 | 2.668 |
| Afskriftir | 7 | ( 1.129) | ( 1.021) |
| Rekstrarhagnaður | | 1.392 | 1.647 |
| Hrein fjármagnsgjöld | 8 | ( 626) | ( 544) |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | | 40 | 44 |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | | 806 | 1.147 |
| Tekjuskattur | | ( 153) | ( 221) |
| Heildarhagnaður tímabilsins | | 653 | 926 |
| Hagnaður á hlut | | | |
| Grunnhagnaður á hlut | | 0,59 | 0,82 |
| Þynntur hagnaður á hlut | | 0,58 | 0,81 |

Skýringar á blaðsíðum 9 til 14 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárs hlutareikningnum.

Samandreginn árs hlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. maí 2023

Fjárhæðir eru í milljónum króna


EFNAHAGSREIKNINGUR 31. MAI 2023

Skýr. 31.5.2023 28.2.2023
Eignir
Rekstrarfjármunir 22.368 21.236
Fjárfestingarfasteignir 3.857 3.402
Óefnislegar eignir 12.635 12.430
Leigueignir 9 9.018 8.287
Eignarhlutir í hlutdeildarfélögum 5.105 5.064
Aðrar langtímaeignir 79 83
Fastafjármunir samtals 53.062 50.502
Vörubirgðir 10 11.541 12.717
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 11 6.738 5.919
Handbært fé 2.956 2.869
Veltufjármunir samtals 21.235 21.505
Eignir samtals 74.297 72.007
Eigið fé
Hlutafé 1.106 1.119
Lögbundinn varasjóður 283 283
Bundnir eiginfjárreikningar 7.976 7.007
Óráðstafað eigið fé 18.386 19.522
Eigið fé samtals 27.751 27.931
Skuldir
Vaxtaberandi langtímaskuldir 12 11.924 11.829
Leiguskuldir 13 7.703 7.056
Tekjuskattsskuldbinding 2.362 2.216
Langtímaskuldir samtals 21.989 21.101
Vaxtaberandi skammtímaskuldir 12 3.814 3.325
Leiguskuldir 13 2.108 2.012
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir 14 18.635 17.638
Skammtímaskuldir samtals 24.557 22.975
Skuldir samtals 46.546 44.076
Eigið fé og skuldir samtals 74.297 72.007

Skýringar á blaðsiðum 9 til 14 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárshlutareikningnum.

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. mai 2023

Fjárhæðir eru í milljónum króna


EIGINFJÁRYFIRLIT

1. MARS 2023 TIL 31. MAÍ 2023

| Breytingar á eigin fé
1. mars til 31. maí 2022 | Hlutafé | Yfirverðs-reikningur
hlutafjár | Lög-bundinn
varasjóður | Bundinn
hlutdeildar-reikningur | Bundinn
eiginfjár-reikningur | Óráðstafað
eigið fé | Eigið fé
Samtals |
| --- | --- | --- | --- | --- | --- | --- | --- |
| Eigið fé 1. mars 2022 | 1.139 | 1.147 | 285 | 5.274 | 12 | 18.869 | 26.726 |
| Endurkaup á eigin bréfum ... ( | 6 ) | ( 494 ) | | | | | ( 500 ) |
| Heildarhagnaður tímabilsins ... | | | | | | 926 | 926 |
| Breyting á hlutdeildarreikning | | | | 1.180 | | ( 1.180 ) | 0 |
| Eigið fé 31. maí 2022 | 1.133 | 653 | 285 | 6.454 | 12 | 18.615 | 27.152 |
| 1. mars til 31. maí 2023 | | | | | | | |
| Eigið fé 1. mars 2023 | 1.119 | 0 | 283 | 6.974 | 33 | 19.522 | 27.931 |
| Endurkaup á eigin bréfum ... ( | 13 ) | | | | | ( 820 ) | ( 833 ) |
| Heildarhagnaður tímabilsins ... | | | | | | 653 | 653 |
| Breyting á hlutdeildarreikning | | | | 969 | | ( 969 ) | 0 |
| Eigið fé 31. maí 2023 | 1.106 | 0 | 283 | 7.943 | 33 | 18.386 | 27.751 |

Þann 1. júní 2023 samþykkti aðalfundur félagsins að greiddur yrði arður til hluthafa sem nemur 50% hagnaði síðasta reikningsárs eða samtals 2.475 millj. kr. Arðurinn var greiddur þann 13. júní 2023. Aðalfundur samþykkti einnig að lækka hlutafé félagsins til ógildingar á eigin hlutum að nafnverði 26,2 millj. kr. og verður skráð hlutafé eftir lækkun því 1.106 millj. kr.

Skýringar á blaðsíðum 9 til 14 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárshlutareikningnum.

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. maí 2023

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SJÓBSTREYMISYFIRLIT

1. MARS 2023 TIL 31. MAÍ 2023

Skýr. 2023 2022
1.3.-31.5. 1.3.-31.5.
Rekstrarhreyfingar
Hagnaður tímabilsins 653 926
Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi:
Söluhagnaður rekstrarfjármuna ( 68) ( 68)
Afskriftir 7 1.129 1.021
Hrein fjármagnsgjöld 8 626 544
Áhrif hlutdeildarfélaga ( 40) ( 44)
Tekjuskattur 153 221
Veltufé frá rekstri 2.453 2.600
Breytingar á rekstrartengdum eignum 360 ( 1.600)
Breytingar á rekstrartengdum skuldum 1.184 1.459
Handbært fé fyrir vexti og tekjuskatt 3.997 2.459
Innheimtar vaxtatekjur 10 5
Greidd vaxtagjöld ( 449) ( 346)
Greiddur tekjuskattur ( 223) ( 148)
Handbært fé frá rekstri 3.335 1.970
Fjárfestingarhreyfingar
Fjárfesting í fasteignum ( 792) ( 25)
Söluverð fasteigna 153 70
Fjárfesting í áhöldum og innréttingum ( 986) ( 479)
Söluverð áhalda og tækja 29 40
Fjárfesting í fjárfestingarfasteignum ( 473) 0
Fjárfesting í óefnislegum eignum ( 283) ( 112)
Skuldabréfaeign, breyting 2 2
Fjárfestingarhreyfingar ( 2.350) ( 504)
Fjármögnunarhreyfingar
Keypt eigin bréf ( 833) ( 500)
Afborganir langtímalána ( 111) ( 125)
Vaxtaberandi skammtímaskuldir, breyting 500 0
Leiguskuld afborganir ( 454) ( 411)
Fjármögnunarhreyfingar ( 898) ( 1.036)
Hækkun á handbæru fé 87 430
Handbært fé í upphafi tímabils 2.869 783
Handbært fé í lok tímabils 2.956 1.213

Skýringar á blaðsíðum 9 til 14 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárshlutareikningnum.

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. maí 2023

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKYRINGAR

  1. Félagið

Hagar hf. („félagið“) er íslenskt hlutafélag og er lögheimili þess að Holtavegi 10, Reykjavík. Samstæðuárshlutareikningur félagsins fyrir tímabilið 1. mars til 31. maí 2023 hefur að geyma árslutareikning félagsins og dótturfélaga þess, sem vísað er til í heild sinni sem „samstæðunnar“ og til einstakra félaga sem „samstæðufélaga“. Aðalstarfsemi félagsins er rekstur smásöluverslana og tengdra vöruhúsa, ásamt sölu á eldsneyti. Í skýringu 15 er greint frá félögum í samstæðunni.

  1. Grundvöllur reikningsskilanna

Yfirlýsing um að alþjóðlegum reikningsskilastöðlum sé fylgt

Árslutareikningur samstæðunnar er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal (IFRS) um árslutareikninga, IAS 34, eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu. Samandreginn árslutareikningur samstæðunnar inniheldur ekki allar þær upplýsingar sem krafist er í fullbúnum ársreikningi og ætti að lesa í samhengi við ársreikning samstæðunnar fyrir rekstrarárið sem endaði þann 28. febrúar 2023.

Stjórn félagsins staðfesti árslutareikninginn þann 28. júní 2023.

  1. Mikilvægar reikningsskilaðferðir

Við gerð árslutareikningsins er beitt sömu reikningsskilaðferðum og beitt var við gerð ársreiknings samstæðunnar fyrir rekstrarárið sem endaði þann 28. febrúar 2023. Hægt er að nálgast ársreikninginn á vef félagsins, www.hagar.is.

Árslutareikningurinn er birtur í íslenskum krónum, sem er starfrækslugjaldmiðill félagsins. Allar fjárhæðir eru birtur í milljónum króna.

  1. Mat og ákvarðanir

Gerð samstæðuárshlutareiknings í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og gefi sér forsendur sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaðferða og birtur fjárhæðir eigna, skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að verða frábrögur þessu mati.

  1. Viðskiptavild

Engar vísbendingar voru um virðisrýrnun viðskiptavildar þann 31. maí 2023 og vegna þess var virðisrýrnunarpróf ekki framkvæmt.

  1. Starfsþáttayfirlit

Starfsþættir samstæðunnar eru tveir, verslanir og vöruhús annars vegar og Olís hins vegar. Starfsemi verslana og vöruhúsa er nær eingöngu í smásölurekstri matvöru á Íslandi. Stjórnendur leggja mat á smásöluverslun eftir mismunandi tegundum verslana og landsvæðum og líta svo á að hún byggist á sambærilegum efnahagslegum einkennum, vörum, viðskiptavinum og birgjum. Heildsölurekstur matvöru og smásölurekstur sérvoru er óverulegur og undir þeim tekju-, hagnaðar- og eignamörkum sem hafa ber til viðmiðunar við gerð starfsþáttayfirlits. Starfsemi Olís er að stærstum hluta í sölu eldsneytis og þjónustu sem því tengist.

Samandreginn árslutareikningur samstæðu Haga hf. 31. maí 2023

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKYRINGAR, FRH.:

6. Starfspåttayfirlit, frh.:

Fyrsti årsfjörðungur 2023/24 Verslanir og vöruhús Olís ehf. Jöfnunar-færslur Samtals
Vörusala 29.035 12.689 ( 234) 41.490
Aðrar rekstrartekjur 228 30 ( 64) 194
Heildartekjur starfsbátta 29.263 12.719 ( 298) 41.684
Heildarreestrargjöld starfsbátta ( 27.041) ( 12.420) 298 ( 39.163)
EBITDA starfsbátta 2.222 299 0 2.521
Afskriftir starfsbátta ( 910) ( 219) 0 ( 1.129)
Áhrif hlutdeildarfélaga ( 1) 41 0 40
Rekstrarafkoma starfsbátta 1.311 121 0 1.432
Hrein fjármagnsgjöld ( 508) ( 118) 0 ( 626)
Tekjuskattur ( 153)
Hagnaður tímabilsins 653
31. mai 2023
Eignir starfsbátta 51.960 22.337 0 74.297
Eignir samtals 74.297
Skuldir starfsbátta 35.823 10.723 0 46.546
Skuldir samtals 46.546
Fjárfestingar starfsbátta (nettó) 1.976 376 0 2.352
Fyrsti årsfjörðungur 2022/23
Vörusala 24.668 13.794 ( 249) 38.213
Aðrar rekstrartekjur 120 82 0 202
Heildartekjur starfsbátta 24.788 13.876 ( 249) 38.415
Heildarreestrargjöld starfsbátta ( 22.920) ( 13.076) 249 ( 35.747)
EBITDA starfsbátta 1.868 800 0 2.668
Afskriftir starfsbátta ( 825) ( 196) 0 ( 1.021)
Áhrif hlutdeildarfélaga 17 27 0 44
Rekstrarafkoma starfsbátta 1.060 631 0 1.691
Hrein fjármagnsgjöld ( 432) ( 112) 0 ( 544)
Tekjuskattur ( 221)
Hagnaður tímabilsins 926
31. mai 2022
Eignir starfsbátta 47.193 20.391 0 67.584
Eignir samtals 67.584
Skuldir starfsbátta 29.771 10.661 0 40.432
Skuldir samtals 40.432
Fjárfestingar starfsbátta (nettó) 502 4 0 506

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. mai 2023

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKYRINGAR, FRH.:

7. Afskriftir 2023 2022
Afskriftir greinast pannig: 1.3-31.5. 1.3-31.5.
Afskriftir rekstrarfjármuna 532 501
Afskriftir fjärfestingarfasteigna 19 20
Afskriftir leigueigna 466 425
Afskriftir öefnislegra eigna 78 41
Hlutdeild í afskriftum Oiludreifingar ehf. 34 34
Afskriftir samtals 1.129 1.021

8. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld

Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld greinast pannig:

Vaxtatekjur af innstæðum og kröfum 10 8
Fjármunatekjur samtals 10 8
Vaxtagjöld og verðbætur ( 495) ( 391)
Vaxtagjöld leiguskuldar ( 131) ( 123)
Gengistap ( 10) ( 38)
Fjármagnsgjöld samtals ( 636) ( 552)
Hrein fjármagnsgjöld ( 626) ( 544)

9. Leigueignir

Leigueignir og leiguskuldir samstæðunnar sem leigutaka eru eingöngu vegna húsnæðis. Leigueignir og leiguskuldir vegna lóðaleigusamninga eru ekki færðar. Upplysingar um leiguskuldir má finna í skýringu 13.

Leigueignir greinast pannig frá upphafi til loka tímabilsins: 31.5.2023 28.2.2023
Leigueignir í upphafi tímabils 8.287 8.151
Nýir samningar 913 974
Verðbætur 307 886
Afskriftir ( 466) ( 1.761)
Aðrar breytingar samninga ( 23) 37
Leigueignir í lok tímabils 9.018 8.287

10. Vörubirgðir

Vörubirgðir greinast pannig:

Matvara 5.809 5.637
Sérvara 2.017 1.922
Eldsneytí 3.347 4.999
Vörur í flutningl 368 159
Vörubirgðir samtals 11.541 12.717
Niðurfærsla birgða í lok tímabils 265 222

11. Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur

Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur greinast pannig:

Viðskiptakröfur 5.592 5.187
Niðurfærsla viðskiptakrafna ( 223) ( 200)
Gjaldmiðlaskiptasamningur 44 0
Aðrar skammtímakröfur 520 267
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 5.933 5.254
Greiðslukortakröfur 805 665
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur samtals 6.738 5.919

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. mai 2023

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKÝRINGAR, FRH.:

  1. Vaxtaberandi skuldir
Vaxtaberandi skuldir greinast þannig:
Vegið meðaltal iaxta Eftirstöðvar Eftirstöðvar
31.5.2023 28.2.2023 31.5.2023 28.2.2023
Langtímaskuldir í ISK, óverðtryggðar 7,43% 6,17% 6.281 6.336
Langtímaskuldir í ISK, verðtryggðar 2,80% 2,80% 6.077 5.938
Víxlskuldir í ISK 8,23% 7,25% 2.480 1.080
Lánalína í ISK 10,39% 8,10% 900 1.800
Vaxtaberandi skuldir, þ.m.t. næsta árs afborgun 15.738 15.154
Næsta árs afborganir vaxtaberandi skulda ( 3.814 ) ( 3.325 )
Langtímaskuldir samtals 11.924 11.829
Afborganir langtímalána greinast þannig á næstu ár:
Afborganir innan árs 3.814 3.325
Afborganir eftir 1 til 2 ár 2.929 2.940
Afborganir eftir 2 til 3 ár 439 446
Afborganir eftir 3 til 4 ár 450 456
Afborganir eftir 4 til 5 ár 461 466
Afborganir síðar 7.645 7.521
Samtals 15.738 15.154
Breyting vaxtaberandi skulda á tímabilinu greinist þannig: 31.5.2023 28.2.2023
Vaxtaberandi skuldir í upphafi tímabils 15.154 12.171
Afborganir langtímalána ( 111 ) ( 492 )
Breyting á víxlskuldum 1.400 1.080
Breyting á lánalínu ( 900 ) 1.800
Verðbætur 195 595
Vaxtaberandi skuldir í lok tímabils 15.738 15.154

Gangvirði fjáreigna og fjárskulda er jafnt bókfærðu virði þeirra.

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. mai 2023

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKÝRINGAR, FRH.:

  1. Leiguskuldir
Leiguskuldir greinast þannig frá upphafi til loka tímabilsins: 31.5.2023 28.2.2023
Leiguskuldir í upphafi tímabils 9.068 8.884
Nýir samningar 913 974
Afborgunarþáttur leigugreiðslna ( 454) ( 1.713)
Verðbætur 307 886
Aðrar breytingar samninga ( 23) 37
Leiguskuldir, þ.m.t. næsta árs afborgun 9.811 9.068
Næsta árs afborganir leiguskulda ( 2.108) ( 2.012)
Leiguskuldir til langtíma í lok tímabils 7.703 7.056
Afborganir leiguskulda greinast þannig á næstu ár:
Afborganir innan árs 2.108 2.012
Afborganir eftir 1 til 2 ár 1.848 1.712
Afborganir eftir 2 til 3 ár 1.636 1.537
Afborganir eftir 3 til 4 ár 1.239 1.238
Afborganir eftir 4 til 5 ár 923 877
Afborganir síðar 2.057 1.692
Samtals 9.811 9.068

Heildarleigugreiðslur sem tengjast þeim leigusamningum sem færðir eru samkvæmt leigustaðli IFRS 16 námu 585 millj. kr. (2022/23: 535 millj. kr.).

  1. Víðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir
Víðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir greinast þannig: 31.5.2023 28.2.2023
Tekjuskattur til greiðslu 934 1.150
Gjaldmiðlaskiptasamningur 0 14
Víðskiptaskuldir 14.150 13.141
Aðrar skammtímaskuldir 3.551 3.333
Víðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir samtals 18.635 17.638
  1. Félög í samstæðu

Dótturfélög í samstæðu Haga hf. voru sex í upphafi og lok tímabilsins. Dótturfélögin eru eftirfarandi:

Staðsetning Eignarhlutur
31.5.2023 28.2.2023
Hagar verslanir ehf. Ísland 100% 100%
Olís ehf. Ísland 100% 100%
Bananar ehf. Ísland 100% 100%
Noron ehf. Ísland 100% 100%
Stórkaup ehf. Ísland 100% 100%
Eldum rétt ehf. Ísland 100% 100%

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. mai 2023

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKYRINGAR, FRH.:

16. Tengdir aðilar

Tengdir aðilar félagsins eru stórir hluthafar í félaginu, hlutdeildarfélög þess, lykilstjórnendur og stjórnarmenn. Viðskipti á milli félagsins og dótturfélaga þess, sem eru skilgreind sem tengdir aðilar, hafa verið færð út í samstæðureikningsskilum og eru ekki hluti af þessari skýringu.

Viðskipti við tengda aðila
2023 2022
Viðskipti við tengda aðila eru við hlutdeildarfélög og greinast þannig: 1.3.-31.5. 1.3.-31.5.
Seldar vörur og þjónusta 103 64
Keyptar vörur og þjónusta ( 548) ( 486)
Viðskiptakröfur í lok tímabils 133 1
Viðskiptaskuldir í lok tímabils ( 344) ( 108)

17. Kennitölur

Helstu kennitölur samstæðunnar eru eftirfarandi:

Rekstur 2023 2022
1.3-31.5. 1.3-31.5.
Rekstrarhagnaðarhlutfall (rekstrarhagnaður fyrir afskriftir / vörusölu) 6,1% 7,0%
Launahlutfall (laun og launatengd gjöld / vörusölu) 9,5% 9,0%
Kostnaðarhlutfall (annar rekstrarkostnaður / vörusölu) 4,4% 4,3%
Veltuhraði birgða (kostnaðarverð seldra vara / meðalbirgðastaða) 11,3 10,6
Innheimtutími viðskiptakrafna í dögum 11,3 11,5
Efnahagur 31.5.2023 28.2.2023
--- --- ---
Veltufjárhlutfall (veltufjármunir / skammtímaskuldir) 0,86 0,94
Lausafjárhlutfall ((veltufjármunir-birgðir) / skammtímaskuldir) 0,39 0,38
Skuldsetning (nettó vaxtaberandi skuldir / rekstrarhagnaður fyrir afskriftir) 1,90 1,80
Eiginfjárhlutfall (eigið fé / heildareignir) 37,4% 38,8%
Innra virði hlutafjár (eigið fé / hlutafé) 25,09 24,96

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. mai 2023

Fjárhæðir eru í milljónum króna