Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar Interim / Quarterly Report 2023

Jun 28, 2023

2196_rns_2023-06-28_ea6b6893-455d-464b-a8b0-a3adce2a3a2e.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

Fréttatilkynning

  1. júní 2023

hagar

VÖRUSALA Á 1F JÓKST UM 8,6% OG HAGNABUR NAM 653 M.KR.

Uppgjör Haga hf. á 1. ársfjórðungi 2023/24

Árshlutareikningur Haga hf. fyrir fyrsta ársfjórðung 2023/24 var sambykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 28. júní 2023. Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars til 31. maí 2023. Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Reikningurinn hefur hvorki verið kannaður né endurskoðaður af endurskoðendum félagsins, PricewaterhouseCoopers ehf.

Helstu lykiltölur

  • Vörusala 1F nam 41.490 m.kr. (8,6% vöxtur frá 1F 2022/23). [1F 2022/23: 38.213 m.kr.]
  • Framlegð 1F nam 8.072 m.kr. (19,5%). [1F 2022/23: 7.564 m.kr. (19,8%)]
  • Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) 1F nam 2.521 m.kr. eða 6,1% af veltu. [1F 2022/23: 2.668 m.kr. (7,0%)]
  • Hagnaður 1F nam 653 m.kr. eða 1,6% af veltu. [1F 2022/23: 926 m.kr. (2,4%)]
  • Grunnhagnaður á hlut 1F var 0,59 kr. [1F 2022/23: 0,82 kr.]. Þynntur hagnaður á hlut 1F var 0,58 kr. [1F 2022/23: 0,81 kr.]
  • Eigið fé nam 27.751 m.kr. í lok tímabilið og eiginfjárhlutfall 37,4%. [Árslok 2022/23: 27.931 m.kr. og 38,8%]
  • Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2023/24 gerir ráð fyrir að EBITDA verði 11.000-11.500 m.kr.

Helstu fréttir af starfsemi

  • Rekstur á fyrsta ársfjórðungi gekk vel, sér í lagi í dag- og sérvoruhluta samstæðunnar. Vörusala jókst um 8,6% milli ára og heildarhagnaður nam 653 m.kr.
  • Seldum stykkjum í dagvöruverslunum fjölgar milli ára um 4,5% og heimsóknum viðskiptavina fjölgar auk þess um 11,6% á fjórðungnum. Samdráttur var í seldum eldsneytislítrum á 1F sem nam 1,1%.
  • Framlegð í krónum talið eykst um 6,7% milli ára en framlegðarhlutfallið lækkar um 0,3%-stig. Framlegðarhlutfall lækkar bæði í dagvöru- og eldsneytishluta samstæðunnar.
  • Áframhaldandi verðhækkana á aðfanga- og vöruverði hefur gætt á fjórðungnum. Reynt hefur verið af fremsta megni að sporna við verðhækkunum og hefur þeim ekki öllum verið fleytt út í vöruverð.
  • Ný sjálfsafgreiðslulausn Bónus, Gripið & Greitt, var sett í loftið í Bónus Smáratorgi í lok ársfjórðungs. Lausnin hefur fengið frábærar viðtökur og verður innleidd í áföngum í fleiri verslanir á árinu.
  • Bónus opnaði nýja 1.800 m² matvöruverslun að Norðlingabraut 2 í Norðlingaholti þann 3. júní.

Fréttatilkynning 28. júní 2023

hagar

Finnur Oddsson, forstjóri:

Starfsemi Haga á fyrsta fjórðungi rekstrarársins 2023/24 gekk heilt yfir vel. Vörusala samstæðu nam 41,5 ma. kr. og jókst um tæp 9% miðað við sama tímabil í fyrra. EBITDA nam 2.521 m.kr. og hagnaður var 653 m.kr. Líkt og undanfarin misseri þá var rekstrarumhverfi smásölu krefjandi, en það hefur einkennst af miklum hækkunum á verði matvöru og almennt hækkandi rekstarkostnaði. Hvoru tveggja má a.m.k. að hluta rekja til áhrifa stríðs í Úkrainu og eftirstöðva Covid-19 faraldursins.

Afkoma samstæðunnar dregst lítillega saman á milli fjórðunga en megin ástæðan liggur í því að starfsemi Olís skilaði lægri afkomu en í fyrra. Tekjur vegna eldsneytissölu námu 12,7 ma. kr. og drógust saman um 8% sem skýrist fyrst og fremst af því að heimsmarkaðsverð olíu lækkæði töluvert á milli ára. Heildarsala eldsneytis í lítrum stóð svo til í stað, áfram sterk á smásölumarkaði og í sölu til stórnotenda, þrátt fyrir að heldur hafi dregið úr umsvifum útgerða vegna minni kvóta. Heildarumsvif hjá Olís voru í samræmi við áætlanir, en lækkun á heimsmarkaðsverði olíu á fjórðungnum leiddi til lægri framlegðar af sölu til stórnotenda.

Mikill vöxtur er áfram í sölu verslana og vöruhúsa, en tekjur jukust um 18% á milli fjórðunga. Pessa aukningu má annars vegar rekja til verðbólgu, hækkandi verðs aðfanga frá heildsölum og framleiðendum, sem hefur verið viðvarandi viðfangsefni síðustu misseri. Hins vegar er ánægjulegt að tekjuvöxtur er einnig til kominn vegna aukinna umsvifa í dag- og sérvoruhulta samstæðunnar því seldum stykkjum og heimsóknum viðskiptavina fjölgaði umtalsvert á tímabilinu. Þetta er sérstaklega áberandi í Bónus, en síðustu fjórðunga hefur þeim sem sækja í hagkvæmasta verslunarkostinn á dagvörumarkaði fjölgað umtalsvert. Að sama skapi fjölgaði viðskiptavinum Hagkaups og mikil aukning er í netverslun Eldum rétt þar sem æ fleiri viðskiptavinir sækja í þægindi, hagkvæmni og gæði heimsendra matarpakka í viku hverri. Afkoma af verslunum og vöruhúsum jókst m.v. sama fjórðung í fyrra.

Á fjórðungnum náðust áfangar sem hafa það að markmiði að efla þjónustu við viðskiptavini og styrkja starfsemi Haga enn frekar. Ný og rúmgóð verslun Bónus var opnuð í Norðlingaholti í byrjun júní og Hagkaup hélt áfram að bæta við úrval þægilegra, einfaldra og gómsætra lausna, nú með veisluréttum í netsölu og heimsendingu. Olís opnaði nýja og glæsilega þjónustumiðstöð á Fítum í Reykjanesbæ og fjölgaði Lemon mini útibúum, m.a. á Hellu, Fítum og Reyðarfíri. Enn er unnið að fjölda stafrænna verkefna sem hafa það að markmiði að tryggja grunnrekstur kerfa og efla þjónustu við viðskiptavini. Á þeim vettvangi kynnti Bónus nýja útfærslu af skönnunarlausn, Gripið & Greitt, við mjög góðar undirtektir, enda mun lausnin bæta upplifun viðskiptavina umtalsvert og gera Högum kleift að sníða þjónustu betur að þeirra þörfum.

Við erum sátt með árangur Haga á fyrsta fjórðungi rekstrarársins, sérstaklega í ljósi þess hversu ögrandi rekstrarumhverfi í okkar geira er og hefur verið. Ef lítið er fram hjá áhrifum niðursveiflu í heimsmarkaðsverði olíu á fjórðungnum, sem hefur neikvæð áhrif á afkomu Olís, þá er rekstur annarra eininga heldur að styrkjast. Verkefni okkar framundan verður að halda áfram framþróun félagsins á öllum svíðum, en gæta um leið að hagkvæmni í innkaupum og allri starfsemi og leggja þannig okkar af mörkum til að berjast gegir verðhækkunum og verðbólgu. Hagar búa sem fyrr að fjárhagslegum styrk, sterkum rekstrareiningum og frábæru starfsfólki sem hefur það að markmiði að efla hag viðskiptavina með því að gera verslun hagkvæma, þægilega og skemmtilega.


Fréttatilkynning

  1. júní 2023

hagar

Rekstrarreikningur samstæðunnar

f milli, kr. 1F 2023/24 1F 2022/23 Brevting Brevting %
01.03-31.05 01.03-31.05
Vörusala 41.490 38.213 3.277 8,6%
Kostnaðarverð seldra vara (33.418) (30.649) (2.769) 9,0%
Framlegð 8.072 7.564 508 6,7%
Framlegð % 19,5% 19,8% - -0,3%
Aðrar rekstrartekjur 194 202 (8) -4,0%
Laun og launatengd gjöld (3.932) (3.443) (489) 14,2%
Annar rekstrarkostnaður (1.813) (1.655) (158) 9,5%
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) 2.521 2.668 (147) -5,5%
EBITDA % 6,1% 7,0% - -0,9%
Afskriftir (1.129) (1.021) (108) 10,6%
Rekstrarhagnaður (EBIT) 1.392 1.647 (255) -15,5%
Hrein fjármagnsgjöld (626) (544) (82) 15,1%
Áhrif hlutdeildarfélaga 40 44 (4) -9,1%
Hagnaður fyrir tekjuskatt 806 1.147 (341) -29,7%
Tekjuskattur (153) (221) 68 -30,8%
Heildarhagnaður 653 926 (273) -29,5%

Rekstur á fyrsta ársfjörðungi 2023/24

Vörusala á 1F nam 41.490 m.kr., samanborið við 38.213 m.kr. árið áður. Söluaukning milli ára nam 8,6%. Söluaukning verslana og vöruhúsa nam 17,7% en samdráttur var í sölu hjá Olís um sem nemur 8,0% milli ára.

Aukin velta er að hluta knúin áfram af verðbólgu en þó hefur fjöldi seldra stykkja í dagvöruverslunum aukist um 4,5% á fjörðungnum. Heimsóknum viðskiptavina fjölgaði sömuleiðis, eða um 11,6%. Samdráttur var í seldum eldsneytislítrum hjá Olís á 1F og nam hann 1,1%.

Framlegð samstæðunnar á 1F var 8.072 m.kr., samanborið við 7.564 m.kr. árið áður, eða aukning sem nemur 6,7%. Framlegðarhlutfall lækkaði hins vegar og var 19,5% í samanburði við 19,8% á fyrra ári. Framlegðarhlutfall hefur

lækkað bæði í dagvöru- og eldsneytishluta samstæðunnar.

Launakostnaður hækkaði um 14,2% milli ára og hækkar launahlutfallið úr 9,0% í 9,5% á ársfjörðungnum.

Annar rekstrarkostnaður hækkaði um 9,5% milli ára og er kostnaðarhlutfallið nú 4,4% í samanburði við 4,3% árið áður.

Afkoma fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA) nam 2.521 m.kr., samanborið við 2.668 m.kr. árið áður. EBITDA-hlutfall var 6,1%, samanborið við 7,0% á fyrra ári. EBITDA verslana og vöruhúsa jókst um 19,0% milli ára en EBITDA Olís dróst saman um 62,6%, eða úr 800 m.kr. í 299 m.kr.

Heildarhagnaður tímabilsins nam 653 m.kr., sem jafngildir 1,6% af veltu en heildarhagnaður á fyrra ári var 926 m.kr. eða 2,4% af veltu.


Fréttatilkynning

  1. júní 2023

hagar

Efnahagsreikningur samstæðunnar

i millj. kr. 31.05.2023 28.02.2023 Breyting Breyting %
Eignir
Fastafjármunir 53.062 50.502 2.560 5,1%
Veltufjármunir 21.235 21.505 (270) -1,3%
Eignir samtals 74.297 72.007 2.290 3,2%
Eigið fé og skuldir
Hlutafé 1.106 1.119 (13) -1,2%
Annað eigið fé 26.645 26.812 (167) -0,6%
Eigið fé samtals 27.751 27.931 (180) -0,6%
Langtímaskuldir 21.989 21.101 888 4,2%
Vaxtaberandi skammtímaskuldir 3.814 3.325 489 14,7%
Aðrar skammtímaskuldir 20.743 19.650 1.093 5,6%
Skuldir samtals 46.546 44.076 2.470 5,6%
Eigið fé og skuldir samtals 74.297 72.007 2.290 3,2%

Lykiltölur efnahags 31.05.2023

  • Heildareignir samstæðunnar í lok tímabils námu 74.297 m.kr. og hækkuðu um 2.290 m.kr. frá árslokum 2022/23.
  • Fastafjármunir voru 53.062 m.kr. og hækkuðu um 2.560 m.kr. frá árslokum 2022/23. Hækkunina má að mestu rekja til fjárfestinga í fasteignum og öðrum rekstrarfjármunum en einnig hækkun leigueigna vegna nýrra leigusamninga.
  • Veltufjármunir voru 21.235 m.kr. og lækkuðu um 270 m.kr. frá árslokum 2022/23.
  • Birgðir í lok ársfjórðungs voru 11.541 m.kr. og veltuhraði birgða 11,3. Birgðir hafa lækkað um 694 m.kr. frá lokum 1F 2022/23 og um 1.176 m.kr. frá árslokum 2022/23. Lækkun birgða má nær alfarið rekja til lægra birgðaverðmætis eldsneytis vegna lækkunar heimsmarkaðsverðs. Veltuhraði birgða á fyrra ári var 10,6.
  • Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur hækka um 819 m.kr. á tímabilinu og er innheimtutími viðskiptakrafna nú 11,3 dagar samanborið við 11,5 daga á fyrra ári.
  • Veltufjárhlutfall er 0,86 og lausafjárhlutfall 0,39 í lok ársfjórðungs. Aðgangur að skammtímafjármögnun í formi lánalína að upphæð 6,2 ma. kr. hjá viðskiptabanka er tryggður.
  • Eigið fé í lok tímabilsins var 27.751 m.kr. og eiginfjárhlutfall 37,4%. Arðsemi eigin fjár var 17,2%. Eiginfjárhlutfall við lok síðasta rekstrarárs var 38,8% og arðsemi eigin fjár 18,5%. Félagið átti 26,2 millj. eigin hluti í lok tímabilsins.
  • Heildarskuldir samstæðunnar í lok fyrsta ársfjórðungs voru 46.546 m.kr. en þar af voru vaxtaberandi skuldir 15.738 m.kr. og leiguskuldir 9.811 m.kr. Nettó vaxtaberandi skuldir, með leiguskuldum, í lok tímabils voru 25.549 m.kr. eða 1,9 x 12 mánaða EBITDA.

Fréttatilkynning

  1. júní 2023

hagar

Sjóðstreymisyfirlit samstæðunnar

í millj. kr. 1F 2023/24 1F 2022/23 Breyting Breyting %
01.03-31.05 01.03-31.05
Handbært fé frá rekstri 3.335 1.970 1.365 69,3%
Fjárfestingarhreyfingar (2.350) (504) (1.846) 366,3%
Fjármögnunarhreyfingar (898) (1.036) 138 -13,3%
Hækkun á handbæru fé 87 430 (343) -79,8%
Handbært fé í byrjun tímabils 2.869 783 2.086 266,4%
Handbært fé í lok tímabils 2.956 1.213 1.743 143,7%

Sjóðstreymi fyrstu þrjá mánuði rekstrarársins 2023/24

  • Handbært fé frá rekstri á fyrsta ársfjórðungi nam 3.335 m.kr., samanborið við 1.970 m.kr. á fyrra ári en hækkun á handbæru fé milli ára má m.a. rekja til lækkandi birgðastöðu eldsneytis vegna lækkunar heimsmarkaðsverðs.
  • Fjárfestingarhreyfingar tímabilsins voru 2.350 m.kr., samanborið við 504 m.kr. á fyrra ári. Fjárfesting í fasteign við Norðlingabraut í Reykjavík nam 1.180 m.kr. og var það stærsta einstaka fjárfesting fjórðungsins ásamt fjárfestingu í opnun nýrrar verslunar Bónus í húsnæðinu.
  • Fjármögnunarhreyfingar tímabilsins voru 898 m.kr., samanborið við 1.036 m.kr. á fyrra ári.
  • Handbært fé í lok ársfjórðungs nam 2.956 millj., samanborið við 1.213 millj. í lok fyrsta ársfjórðungs í fyrra.

Staðan og framtíðarhorfur

Áframhaldandi verðhækkanir á aðfanga- og vöruverði, auk hækkandi vaxtastigs, einkenndi nýliðinn ársfjórðung líkt og verið hefur undanfarin misseri. Velta hefur aukist nokkuð í krónum talið í dagvöruhluta samstæðunnar þar sem áhrif verðbölgu hafa verið tóluverð. Framlegðarhlutfall hefur heldur lækkað sem sýnir að kostnaðarverðshækkunum hefur ekki verið fleytt út í vöruverð að fullu leyti. Þá hefur velta og framlegð í eldsneytishluta samstæðunnar dregist saman með lækkandi heimsmarkaðsverði á eldsneyti.

Afkomuspa stjórnenda fyrir rekstrarárið 2023/24 gerir ráð fyrir að rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) verði á bilinu 11.000-11.500 millj. kr. Fjárhagsleg staða samstæðunnar er sterk og er fjármögnun tryggð til langs tíma. Þá er aðgangur að skammtímafjármögnun í formi lánalína, að fjárhæð 4,5 ma. kr. og USD 12,5 millj. einnig tryggður. Þá hefur félagið undanfarið nýtt sér skammtímafjármögnun í formi vixlaútgáfu en útgáfa vixlanna er í samræmi við grunnlýsingu 10 ma. kr. útgáfuramma sem stjórn félagsins hefur samþykkt. Gera má ráð fyrir að félagið horfi í meira mæli til markaðsfjármögnunar á næstu misserum.

Hlutafé og hluthafar

  • Markaðsvirði Haga í lok tímabilsins nam 74,8 ma. kr. og lokaverð þann 31. maí 2023 var 66,0 kr./hlut.
  • Skráð hlutafé Haga í lok tímabilsins nam 1.133 m.kr. Félagið átti 26,2 millj. eigin hluti í lok tímabils.
  • Þann 1. júní 2023 samþykkti aðalfundur að lækka hlutafé félagsins til ógildingar á eigin hlutum að nafnverði 26,2 m.kr. Lækkunin kemur til framkvæmda í dag, þann 28. júní 2023, og lækkar hlutafé Haga því úr 1.133 m.kr. að nafnverði í 1.106 m.kr. að nafnverði.
  • Aðalfundur samþykkti einnig að greiddur yrði arður til hluthafa vegna síðastliðins árs sem nam 2,24 krónum á hlut eða 2.475 m.kr. Arðurinn var greiddur þann 13. júní 2023.
  • Hluthafar voru 1.055 í byrjun tímabils og 1.045 í lok þess. 10 stærstu hluthafar félagsins áttu 73,1% eignarhlut í félaginu í lok fyrsta ársfjórðungs.

5


Fréttatilkynning

  1. júní 2023

hagar

Rafrænk kynningarfundur miðvikudaginn 28. júní 2023

Rafrænk kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn í dag, miðvikudaginn 28. júní kl. 16:00, þar sem Finnur Oddsson, forstjóri, og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna rekstur og afkomu félagsins ásamt því að svara fyrirspurnum.

Tekið verður við spurningum sem tengjast uppgjörinu á meðan á útsendingu stendur á netfangið [email protected] og verður þeim svarað eins og kostur er í lok fundar.

Fundinum verður streymt og er skráning á fundinn hér: https://www.hagar.is/skraning

Kynningargögn verða aðgengileg á heimasíðu Haga, www.hagar.is, við upphaf fundar.

Fjárhagsdagatal 2023/24

Fjárhagsupplysingar eru birtar eftir lokun markaða.

Uppgjörstímabil Vikudagur Birtingardagur
2F – 1. mars til 31. ágúst Miðvikudagur 18. október 2023
3F – 1. mars til 30. nóvember Fimmtudagur 11. janúar 2024
4F – 1. mars til 29. febrúar Þriðjudagur 23. apríl 2024
Aðalfundur 2024 Fimmtudagur 30. mái 2024

Fréttatilkynning þessi og uppgjörsgögn verða aðgengileg á ensku þann 30. júní á https://www.hagar.is/en/

Press release and financial statements will be available in English on June 30th at https://www.hagar.is/en/

Nánari upplýsingar veita Finnur Oddsson, forstjóri félagsins ([email protected]), og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs ([email protected]), í síma 530-5500 eða tölvupósti.