AI assistant
Hagar — Interim / Quarterly Report 2023
Oct 18, 2023
2196_rns_2023-10-18_6ef12225-d45b-4430-9373-11253891d840.pdf
Interim / Quarterly Report
Open in viewerOpens in your device viewer
hagar
SAMANDREGINN ÁRSHLUTAREIKNINGUR SAMSTÆDUNNAR
1. MARS TIL 31. ÁGÚST 2023
Hagar
Bananar
BÓNUS
ELDUM RÉTT
HAGKAUP
olis
STÓRKAUP
/N
Hagar hf. • Holtavegi 10 • 104 Reykjavík • Ísland • kt: 670203-2120 • hagar.is • 530-5500
EPNISYFIRLIT
Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra ... 3
Könnunaráritun óháðs endurskoðanda ... 5
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu ... 6
Efnahagsreikningur ... 7
Eiginfjáryfirlit ... 8
Sjóðstreymisyflit ... 9
Skýringar ... 10
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. ágúst 2023
SKÝRSLA OG YFIRLÝSING STJÓRNAR OG FORSTJÓRA
Hagar hf. („félagið“) er verslunarfyrirtæki með starfsemi á Íslandi en félagið er leiðandi á íslenskum matvöru-, sérvöru- og eldsneytismarkaði. Í lok tímabilsins starfrækti félagið 39 matvöruverslanir, 22 Olís þjónustustöðvar, 45 ÓB-stöðvar, tvö vöruhús, eina framleiðslustöð, eina netverslun með matarpakka, eina birgðaverslun og eina sérvöruverslun. Kjarnastarfsemi Haga er á sviði matvöru og tengdra vöruhúsa, auk eldsneytissölu.
Árshlutareikningur Haga hf. fyrir tímabilið 1. mars til 31. ágúst 2023 er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34. Árshlutareikningurinn samanstendur af samandregnum samstæðureikningi Haga hf. og dótturfélaga þess, sem vísað er til sem samstæðunnar.
Rekstur tímabilsins og fjárhagsleg staða
Samkvæmt rekstrarreikningi og yfirliti um heildarafkomu var hagnaður af rekstri samstæðunnar að fjárhæð 2.737 millj. kr. (2022/23: 3.304 millj. kr.). Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 6.993 millj. kr. (2022/23: 7.037 millj. kr.). Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir samstæðunnar 75.487 millj. kr. (árslok 2022/23: 72.007 millj. kr.). Eigið fé í lok tímabilsins nam 27.381 millj. kr. (árslok 2022/23: 27.931 millj. kr.) og var eiginfjárhlutfall 36,3% (árslok 2022/23: 38,8%).
Rekstur á nýliðnum ársfjörðungi gekk vel og var nokkuð umfram áætlannir. Ástæðuna má einkum rekja til sterkari afkomu hjá Olís en auk þess eru aukin umsvif hjá öðrum rekstrareiningum Haga. Aukin velta í dagvöru hefur annars vegar verið drifin áfram af áhrifum verðbólgu og hins vegar auknum umsvifum, en seldum stykkjum hefur fjölgað og viðskiptavinir heimsækja verslanirnar oftar en áður. Í eldsneytishluta samstæðunnar hefur velta dregist töluvert saman, vegna áhrifa lækkandi eldsneytisverðs, en seldum lítrum fjölgaði lítillega á fjörðungnum. Framlegðarhlutfall samstæðunnar á fjörðungnum hækkar milli ára sem rekja má til Olís en framlegðarhlutfall í dagvöru stendur í stað.
Þann 31. ágúst 2022 komu til framkvæmda viðskipti Haga með Klasa. Fjárhagsleg áhrif viðskiptanna námu 966 millj. kr. og voru færð sem hagnaður af sölu eigna á öðrum ársfjörðungi fyrra árs. Viðskiptin hafa því áhrif á afkomu samstæðunnar á samanburðarári.
Í september síðastliðnum var tilkynnt um breytingar sem verða á framkvæmdastjórn samstæðunnar frá og með næstu áramótum. Þá mun Björgvin Víkingsson taka við starfi framkvæmdastjóra Bónus af Guðmundi Marteinssyni en hann lætur af störfum eftir riflega 30 ár hjá félaginu.
Í janúar 2023 gerðu Hagar kaupsamning, með fyrirvörum, við eigendur Dista ehf. um kaup á öllu hlutafé heildverslunarinnar. Hagar hafa nú fallið frá samningnum og kemur hann því ekki til framkvæmda.
Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2023/24 gerir ráð fyrir að rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) verði á bilinu 12.250-12.750 millj. kr. Fjárhagsleg staða samstæðunnar er sterk og er fjármögnun tryggð til langs tíma. Þá er aðgangur að skammtímafjármögnun í formi lánalína, að fjárhæð 4,5 ma. kr. og USD 12,5 millj. einnig tryggður. Þá hefur félagið undanfarið nýtt sér skammtímafjármögnun í formi vixlaútgáfu en útgáfá vixlanna er í samræmi við grunnlýsingu 10 ma. kr. útgáfuramma sem stjórn félagsins hefur samþykkt. Gera má ráð fyrir að félagið horfi í meira mæli til markaðsfjármögnunar á næstu misserum en til marks um það var gefinn út nýr skuldabréfallokkur HAGA120926 1 í september síðastliðnum.
Hlutafé og hluthafar
Skráð hlutafé félagsins nam í lok tímabilsins 1.106 millj. kr. Hver hlutur er ein króna að nafnverði. Allir hlutir eru í sama flokki og njóta sömu réttinda.
Hluthafar voru 1.055 í byrjun rekstrarársins og 1.022 í lok ágúst 2023.
Þann 1. júní 2023 samþykkti aðalfundur félagsins að greiddur yrði arður til hluthafa sem nemur 50% af hagnaði síðasta reikningsárs eða samtals 2.475 millj. kr. Arðurinn var greiddur þann 13. júní 2023. Aðalfundur samþykkti einnig að lækká hlutafé félagsins til ógildingar á eigin hlutum að nafnverði 26,2 millj. kr. Lækkunin kom til framkvæmda þann 28. júní 2023 og lækkáði hlutafé Haga því úr 1.133 millj. kr. að nafnverði í 1.106 millj. kr. að nafnverði.
Samandregnin árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. ágúst 2023
SKÝRSLA OG YFIRLÝSING STJÓRNAR OG FORSTJÓRA, FRH.:
Yfirlýsing stjórnar og forstjóra
Samkvæmt bestu vitneskju stjórnar og forstjóra gefur samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar glögga mynd af rekstrarafkomu samstæðunnar fyrir tímabilið 1. mars til 31. ágúst 2023, eignum, skuldum og fjárhagsstöðu hennar þann 31. ágúst 2023 og breytingum á handbæru fé á tímabilinu, í samræmi við alpjóðlegan reikningsskilastaðal, IAS 34, eins og hann hefur verið staðfestur af Evrópusambandinu.
Jafnframt er það álit stjórnar og forstjóra að árshlutareikningurinn og skýrsla stjórnar og forstjóra geymi glöggt yfirlit um þróun og árangur í rekstri samstæðunnar, stöðu hennar, og lýsi helstu áhættupáttum og óvissu sem samstæðan býr við.
Stjórn og forstjóri Haga hf. hafa í dag farið yfir árshlutareikning samstæðunnar fyrir tímabilið 1. mars til 31. ágúst 2023 og staðfesta hann með undirritun sinni.
Árshlutareikningurinn er undirritaður með rafrænum hætti í samræmi við lög nr. 55/2019, um rafræna auðkenningu og traustþjónustu um rafræn viðskipti.
Reykjavík, 18. október 2023
Stjórn:
Davíð Harðarson, formaður
Eva Bryndís Helgadóttir, varaformaður
Eiríkur S. Jóhannsson, meðstjórnandi
Jensína Kristín Böðvarsdóttir, meðstjórnandi
Sigríður Olgeirsdóttir, meðstjórnandi
Forstjóri:
Finnur Oddsson
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. ágúst 2023
KÖNNUNARÁRITUN ÓHÁBS ENDURSKOBANDA
Til stjórnar og hluthafa Haga hf.
Inngangur
Við höfum kannað meðfylgjandi samandreginn árshlutareikning samstæðu Haga hf. fyrir tímabilið 1. mars til 31. ágúst 2023. Samandregni árshlutareikningurinn hefur að geyma skýrslu og yfirlýsingu stjórnar og forstjóra, rekstrarreikning og yfirlit um heildarafkomu, efnahagsreikning, eiginfjáryfirlit, sjóðstreymisyflit, upplýsingar um mikilvægar reikningsskilaðferðir og aðrar skýringar. Stjórnendur eru ábyrgir fyrir gerð og framsetningu samandregna árshlutareikningsins í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal IAS 34, eins og hann hefur verið sambykktur af Evrópusambandinu. Ábyrgð okkar felst í þeirri ályktun sem af könnun okkar leiðir.
Umfang könnunar
Könnun okkar var unnin í samræmi við alþjóðlegan staðal ISRE 2410, sem fjallar um könnun óháðs endurskoðanda á árshlutareikningum. Slik könnun felur í sér fyrirspurnir, einkum til starfsmanna sem eru ábyrgir fyrir fjármálum og reikningsskilum félagsins ásamt greiningum á hinum ýmsu liðum reikningsskilanna og öðrum könnunaraðgerðum. Könnun felur ekki í sér jafn viðtækar aðgerðir og endurskoðun sem unnin er í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla og er því ekki víst að við fáum vitneskju um öll mikilvæg atriði sem gætu komið í ljós við endurskoðun. Þar af leiðandi látum við ekki í ljós álit um endurskoðun.
Ályktun
Við könnun okkar kom ekkert fram sem bendir til annars en að meðfylgjandi samandreginn árshlutareikningur sé í öllum meginatriðum gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal IAS 34, eins og hann hefur verið sambykktur af Evrópusambandinu.
Reykjavík, 18. október 2023
PricewaterhouseCoopers ehf.
Bryndís Björk Guðjónsdóttir
Sara Henný H. Arnbjörnsdóttir
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. ágúst 2023
REKSTRARREIKNINGUR OG YFIRLIT UM HEILDARAFKOMU
1. MARS TIL 31. ÁGÚST 2023
| Skýr. | Annar ársfjörðungur* | Fyrri árshelmingur | |||
|---|---|---|---|---|---|
| 2023 | 2022 | 2023 | 2022 | ||
| 1.6.-31.8. | 1.6.-31.8. | 1.3.-31.8. | 1.3.-31.8. | ||
| Vörusala | 45.309 | 43.399 | 86.799 | 81.612 | |
| Kostnaðarverð seldra vara | ( 35.406) | ( 35.016) | ( 68.824) | ( 65.665) | |
| Framlegð | 9.903 | 8.383 | 17.975 | 15.947 | |
| Aðrar rekstrartekjur | 210 | 147 | 404 | 349 | |
| Hagnaður af sölu eigna | 0 | 882 | 0 | 882 | |
| Laun og launatengd gjöld | ( 3.881) | ( 3.438) | ( 7.813) | ( 6.881) | |
| Annar rekstrarkostnaður | ( 1.760) | ( 1.605) | ( 3.573) | ( 3.260) | |
| Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir | 4.472 | 4.369 | 6.993 | 7.037 | |
| Afskriftir | 7 | ( 1.353) | ( 1.099) | ( 2.482) | ( 2.120) |
| Rekstrarhagnaður | 3.119 | 3.270 | 4.511 | 4.917 | |
| Hrein fjármagnsgjöld | 8 | ( 639) | ( 426) | ( 1.265) | ( 970) |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | 109 | 94 | 149 | 138 | |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 2.589 | 2.938 | 3.395 | 4.085 | |
| Tekjuskattur | ( 505) | ( 560) | ( 658) | ( 781) | |
| Heildarhagnaður tímabilsins | 2.084 | 2.378 | 2.737 | 3.304 | |
| Hagnaður á hlut: | |||||
| Grunnhagnaður á hlut | 1,88 | 2,10 | 2,47 | 2,92 | |
| Þynntur hagnaður á hlut | 1,84 | 2,03 | 2,42 | 2,84 |
Skýringar á blaðsíðum 10 til 15 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárs hlutareikningnum.
- Ekki kannað
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. ágúst 2023
Fjárhæðir eru í milljónum króna
EFNAHAGSREIKNINGUR 31. ÁGÚST 2023
| Skýr. | 31.8.2023 | 28.2.2023 | |
|---|---|---|---|
| Eignir | |||
| Rekstrarfjármunir | 22.386 | 21.236 | |
| Fjárfestingarfasteignir | 3.866 | 3.402 | |
| Óefnislegar eignir | 12.693 | 12.430 | |
| Leigueignir | 9 | 8.842 | 8.287 |
| Eignarhlutir í hlutdeildarfélögum | 4.990 | 5.064 | |
| Aðrar langtímaeignir | 239 | 83 | |
| Fastafjármunir samtals | 53.016 | 50.502 | |
| Vörubirgðir | 10 | 12.020 | 12.717 |
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur | 11 | 7.725 | 5.919 |
| Handbært fé | 2.726 | 2.869 | |
| Veltufjármunir samtals | 22.471 | 21.505 | |
| Eignir samtals | 75.487 | 72.007 | |
| Eigið fé | |||
| Hlutafé | 1.106 | 1.119 | |
| Annað bundið eigið fé | 12 | 6.497 | 7.290 |
| Óráðstafað eigið fé | 19.778 | 19.522 | |
| Eigið fé samtals | 27.381 | 27.931 | |
| Skuldir | |||
| Vaxtaberandi langtímaskuldir | 13 | 11.891 | 11.829 |
| Leiguskuldir | 14 | 7.530 | 7.056 |
| Tekjuskattsskuldbinding | 2.855 | 2.216 | |
| Langtímaskuldir samtals | 22.276 | 21.101 | |
| Vaxtaberandi skammtímaskuldir | 13 | 4.966 | 3.325 |
| Leiguskuldir | 14 | 2.125 | 2.012 |
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir | 15 | 18.739 | 17.638 |
| Skammtímaskuldir samtals | 25.830 | 22.975 | |
| Skuldir samtals | 48.106 | 44.076 | |
| Eigið fé og skuldir samtals | 75.487 | 72.007 |
Skýringar á blaðsíðum 10 til 15 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárshlutareikningnum.
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. ágúst 2023
Fjárhæðir eru í milljónum króna
EIGINFJÁRYFIRLIT
1. MARS TIL 31. ÁGÚST 2023
| Skýr. | Hlutafé | Yfirverðs-reikningur hlutafjár | Annað bundið eigið fé | Óráðstafað eigið fé | Eigið fé Samtals | |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Breytingar á eigin fé 1. mars til 31. ágúst 2022 | ||||||
| Eigið fé 1. mars 2022 | 1.139 | 1.147 | 5.571 | 18.869 | 26.726 | |
| Endurkaup á eigin bréfum | ( 7) | ( 493) | ( 500) | |||
| Endurkaup á eigin bréfum - ógild | ( 6) | ( 494) | ( 500) | |||
| Heildarhagnaður tímabilsins | 3.304 | 3.304 | ||||
| Breyting á bundnu eigin fé | 12 | ( 104) | 125 | 21 | ||
| Greiddur arður, 2,00 kr. á hlut | ( 2.265) | ( 2.265) | ||||
| Eigið fé 31. ágúst 2022 | 1.126 | 160 | 5.467 | 20.033 | 26.786 | |
| Breytingar á eigin fé 1. mars til 31. ágúst 2023 | ||||||
| Eigið fé 1. mars 2023 | 1.119 | 0 | 7.290 | 19.522 | 27.931 | |
| Endurkaup á eigin bréfum | ( 13) | ( 820) | ( 833) | |||
| Heildarhagnaður tímabilsins | 2.737 | 2.737 | ||||
| Breyting á bundnu eigin fé | 12 | ( 793) | 814 | 21 | ||
| Greiddur arður, 2,24 kr. á hlut | ( 2.475) | ( 2.475) | ||||
| Eigið fé 31. ágúst 2023 | 1.106 | 0 | 6.497 | 19.778 | 27.381 |
Þann 1. júní 2023 samþykkti aðalfundur félagsins að greiddur yrði arður til hluthafa sem nemur 50% af hagnaði síðasta reikningsárs eða samtals 2.475 millj. kr. Arðurinn var greiddur þann 13. júní 2023.
Aðalfundur samþykkti einnig að lækka hlutafé félagsins til ógildingar á eigin hlutum að nafnverði 26,2 millj. kr. og varð skráð hlutafé eftir lækkun því 1.106 millj. kr. Félagið á engin eigin bréf í lok tímabils.
Þann 30. ágúst 2023 keypti félagið eigin bréf að nafnverði 7,2 millj. kr. með uppgjörsdegi og afhendingu þann 1. september 2023.
Skýringar á blaðsíðum 10 til 15 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárs hlutareikningnum.
Samandreginn árs hlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. ágúst 2023
Fjárhæðir eru í milljónum króna
SJÓÐSTREYMISYFIRLIT
1. MARS TIL 31. ÁGÚST 2023
| Skýr. | Annar ársfjörðungur* | Fyrri árshelmingur | |||
|---|---|---|---|---|---|
| 2023 | 2022 | 2023 | 2022 | ||
| 1.6.-31.8. | 1.6.-31.8. | 1.3.-31.8. | 1.3.-31.8. | ||
| Rekstrarhreýfingar | |||||
| Hagnaður tímabilsins | 2.084 | 2.378 | 2.737 | 3.304 | |
| Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi: | |||||
| Söluhagnaður | (78) | (926) | (146) | (994) | |
| Afskriftir | 7 | 1.353 | 1.099 | 2.482 | 2.120 |
| Hrein fjármagnsgjöld | 8 | 639 | 426 | 1.265 | 970 |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | (109) | (94) | (149) | (138) | |
| Tekjuskattur | 505 | 560 | 658 | 781 | |
| Aðrir liðir | 35 | 35 | 35 | 35 | |
| Veltufé frá rekstri | 4.429 | 3.478 | 6.882 | 6.078 | |
| Breytingar á rekstrartengdum eignum | (1.483) | (1.466) | (1.123) | (3.066) | |
| Breytingar á rekstrartengdum skuldum | 264 | 1.273 | 1.448 | 2.732 | |
| Handbært fé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt | 3.210 | 3.285 | 7.207 | 5.744 | |
| Innheimtar vaxtatekjur | 20 | (1) | 30 | 4 | |
| Greidd vaxtagjöld | (547) | (350) | (996) | (696) | |
| Greiddur tekjuskattur | (232) | (149) | (455) | (297) | |
| Handbært fé frá rekstri | 2.451 | 2.785 | 5.786 | 4.755 | |
| Fjárfestingarhreyfingar | |||||
| Fjárfesting í rekstrarfjármunum | (776) | (488) | (2.554) | (992) | |
| Söluverð rekstrarfjármuna | 117 | 4 | 299 | 114 | |
| Fjárfesting í fjárfestingarfasteignum | (31) | 0 | (504) | 0 | |
| Fjárfesting í óefnislegum eignum | (152) | (91) | (435) | (203) | |
| Móttekinn arður frá hlutdeildarfélögum | 244 | 174 | 244 | 174 | |
| Seldur eignarhlutur í dótturfélagi | 0 | 50 | 0 | 50 | |
| Langtímaeignir, breyting | (179) | (2) | (177) | 0 | |
| Fjárfestingarhreyfingar | (777) | (353) | (3.127) | (857) | |
| Fjármögnunarhreyfingar | |||||
| Keypt eigin bréf | 0 | (500) | (833) | (1.000) | |
| Greiddur arður | (2.475) | (2.265) | (2.475) | (2.265) | |
| Afborganir langtímalána | 13 | (110) | (101) | (221) | (226) |
| Leiguskuld afborganir | 14 | (469) | (431) | (923) | (842) |
| Vaxtaberandi skammtímaskuldir, breyting | 1.150 | 1.747 | 1.650 | 1.747 | |
| Fjármögnunarhreyfingar | (1.904) | (1.550) | (2.802) | (2.586) | |
| (Lækkun) hækkun á handbæru fé | (230) | 882 | (143) | 1.312 | |
| Handbært fé í upphafi tímabils | 2.956 | 1.213 | 2.869 | 783 | |
| Handbært fé í lok tímabils | 2.726 | 2.095 | 2.726 | 2.095 | |
| Fjárfestingarhreyfingar án greiðsluáhrifa | |||||
| Söluverð fasteigna | 0 | 3.403 | 0 | 3.403 | |
| Fjárfesting í hlutdeildarfélögum | 0 | (3.403) | 0 | (3.403) |
Skýringar á blaðsíðum 10 til 15 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárs hlutareikningnum.
- Ekki kannað
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. ágúst 2023
Fjárhæðir eru í milljónum króna
SKYRINGAR
- Félagið
Hagar hf. ("félagið") er íslenskft hlutafélag og er lögheimili þess að Holtavegi 10, Reykjavík. Samstæðuárshlutareikningur félagsins fyrir tímabilið 1. mars 2023 til 31. ágúst 2023 hefur að geyma samstæðu árshlutareikning félagsins og dótturfélaga þess, sem vísað er til í heild sinni sem „samstæðunnar“ og til einstakra félaga sem „samstæðufélaga“. Aðalstarfsemi félagsins er rekstur smásöluverslana og sala á eldsneyti. Yfirlit yfir félög í samstæðunni má finna í skýringu 16.
- Grundvöllur reikningsskilanna
Yfirlýsing um að alþjóðlegum reikningsskilastöðlum sé fylgt
Árshlutareikningur samstæðunnar er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal (IFRS) um árshlutareikninga, IAS 34, eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu. Samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar inniheldur ekki allar þær upplýsingar sem krafist er í fullbúnum ársreikningi og ætti að lesa í samhengi við ársreikning samstæðunnar fyrir rekstrarárið sem endaði þann 28. febrúar 2023.
Stjórn félagsins staðfesti árshlutareikninginn þann 18. október 2023.
- Mikilvægar reikningsskilaðferðir
Við gerð árshlutareikningsins er beitt sömu reikningsskilaðferðum og beitt var við gerð ársreiknings samstæðunnar fyrir rekstrarárið sem endaði þann 28. febrúar 2023. Hægt er að nálgast ársreikninginn á vef félagsins, www.hagar.is.
Árshlutareikningurinn er birtur í íslenskum krónum, sem er starfrækslugjaldmiðill félagins. Allar fjárhæðir eru birtur í milljónum króna.
- Mat og ákvarðanir
Gerð samstæðuárshlutareiknings í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og gefi sér forsendur sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaðferða og birtur fjárhæðir eigna, skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að vera frábrúgðnar þessu mati.
- Víðskiptavild
Engar vísbendingar voru um virðisrýrnun viðskiptavildar þann 31. ágúst 2023 og vegna þess var virðisrýrnunarpróf ekki framkvæmt.
- Starfsþáttayfirlit
Starfsþættir samstæðunnar eru tveir, verslanir og vöruhús annars vegar og Olís hins vegar. Starfsemi verslana og vöruhúsa er nær eingöngu í smásölurekstri matvöru á Íslandi. Stjórnendur leggja mat á smásöluverslun eftir mismunandi tegundum verslana og landsvæðum og líta svo á að hún byggist á sambærilegum efnahagslegum einkennum, vörum, viðskiptavinum og birgjum. Heildsölurekstur matvöru og smásölurekstur sérvöru er óverulegur og undir þeim tekju-, hagnaðar- og eignamörkum sem hafa ber til viðmiðunar við gerð starfsþáttayfirlits. Starfsemi Olís er að stærstum hluta í sölu eldsneytis og þjónustu sem því tengist.
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. ágúst 2023
Fjárhæðir eru í milljónum króna
SKYRINGAR, FRH.:
6. Starfspåttayfirlit, frh.:
| Fyrri árshelmingur 2023/24 | Verslanir og vöruhús | Olís ehf. | Jöfnunar-færslur | Samtals |
|---|---|---|---|---|
| Vörusala | 59.633 | 27.694 | ( 528) | 86.799 |
| Aðrar rekstrartekjur | 405 | 128 | ( 129) | 404 |
| Heildartekjur starfspátta | 60.038 | 27.822 | ( 657) | 87.203 |
| Heildarreksstrargjöld starfspátta | ( 55.066) | ( 25.801) | 657 | ( 80.210) |
| EBITDA starfspátta | 4.972 | 2.021 | 0 | 6.993 |
| Afskriftir starfspátta | ( 1.963) | ( 519) | 0 | ( 2.482) |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | 40 | 109 | 0 | 149 |
| Rekstrarafkoma starfspátta | 3.049 | 1.611 | 0 | 4.660 |
| Hrein fjármagnsgjöld | ( 995) | ( 270) | 0 | ( 1.265) |
| Tekjuskattur | ( 658) | |||
| Hagnaður tímabilsins | 2.737 | |||
| 31. ágúst 2023 | ||||
| Eignir starfspátta | 52.252 | 23.235 | 0 | 75.487 |
| Eignir samtals | 75.487 | |||
| Skuldir starfspátta | 37.105 | 11.001 | 0 | 48.106 |
| Skuldir samtals | 48.106 | |||
| Fjárfestingar starfspátta (nettó) | 2.737 | 457 | 0 | 3.194 |
| Fyrri árshelmingur 2022/23 | ||||
| Vörusala | 51.170 | 31.268 | ( 826) | 81.612 |
| Aðrar rekstrartekjur | 607 | 742 | ( 118) | 1.231 |
| Heildartekjur starfspátta | 51.777 | 32.010 | ( 944) | 82.843 |
| Heildarreksstrargjöld starfspátta | ( 47.333) | ( 29.417) | 944 | ( 75.806) |
| EBITDA starfspátta | 4.444 | 2.593 | 0 | 7.037 |
| Afskriftir starfspátta | ( 1.675) | ( 445) | 0 | ( 2.120) |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | 9 | 129 | 0 | 138 |
| Rekstrarafkoma starfspátta | 2.778 | 2.277 | 0 | 5.055 |
| Hrein fjármagnsgjöld | ( 922) | ( 48) | 0 | ( 970) |
| Tekjuskattur | ( 781) | |||
| Hagnaður tímabilsins | 3.304 | |||
| 31. ágúst 2022 | ||||
| Eignir starfspátta | 47.917 | 22.164 | 0 | 70.081 |
| Eignir samtals | 70.081 | |||
| Skuldir starfspátta | 32.248 | 11.047 | 0 | 43.295 |
| Skuldir samtals | 43.295 | |||
| Fjárfestingar starfspátta (nettó) | 785 | 296 | 0 | 1.081 |
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. ágúst 2023
Fjárhæðir eru í milljónum króna
SKÝRINGAR, FRH.:
| 7. Afskriftir | 2023 | 2022 | 2023 | 2022 |
|---|---|---|---|---|
| Afskriftir greinast pannig: | 1.6.-31.8. | 1.6.-31.8. | 1.3.-31.8. | 1.3.-31.8. |
| Afskriftir rekstrarfjármuna | 714 | 563 | 1.246 | 1.064 |
| Afskriftir fjárfestingarfasteigna | 22 | 18 | 41 | 38 |
| Afskriftir leigueigna | 489 | 440 | 955 | 865 |
| Afskriftir óefnislegra eigna | 93 | 55 | 171 | 96 |
| Hlutdeild í afskriftum Oiludreifingar ehf. | 35 | 23 | 69 | 57 |
| Afskriftir samtals | 1.353 | 1.099 | 2.482 | 2.120 |
- Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld
Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld greinast pannig:
| 2023 | 2022 | 2023 | 2022 | |
|---|---|---|---|---|
| 1.6.-31.8. | 1.6.-31.8. | 1.3.-31.8. | 1.3.-31.8. | |
| Vaxtatekjur af innstæðum og kröfum | 20 | 0 | 30 | 8 |
| Vaxtagjöld og verðbætur | (510) | (459) | (1.005) | (850) |
| Vaxtagjöld leiguskuldar | (145) | (124) | (276) | (247) |
| Fjármagnsgjöld samtals | (655) | (583) | (1.281) | (1.097) |
| Gengismunur | (4) | 157 | (14) | 119 |
| Hrein fjármagnsgjöld | (639) | (426) | (1.265) | (970) |
- Leigueignir
Leigueignir og leiguskuldir samstæðunnar sem leigutaka eru eingöngu vegna húsnæðis. Leigueignir og leiguskuldir vegna lóðaleigusamninga eru ekki færðar. Upplysingar um leiguskuldir má finna í skýringu 14.
| Leigueignir greinast pannig frá upphafi til loka tímabilsins: | 31.8.2023 | 28.2.2023 |
|---|---|---|
| Leigueignir í upphafi tímabils | 8.287 | 8.151 |
| Nýir samningar | 913 | 974 |
| Verðbætur | 533 | 886 |
| Afskriftir | (955) | (1.761) |
| Aðrar breytingar samninga | 64 | 37 |
| Leigueignir í lok tímabils | 8.842 | 8.287 |
- Vörubirgðir
Vörubirgðir greinast pannig: 31.8.2023 28.2.2023
Matvara 5.697 5.637
Sérvara 2.115 1.922
Eldsneyti 3.842 4.999
Vörur í flutningi 366 159
Vörubirgðir samtals 12.020 12.717
Niðurfærsla birgða í lok tímabils 280 222
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. ágúst 2023
Fjárhæðir eru í milijónum króna
SKYRINGAR, FRH.:
-
Viðskiptakrófur og aðrar skammtímakrófur
Viðskiptakrófur og aðrar skammtímakrófur greinast þannig: 31.8.2023 28.2.2023
Viðskiptakrófur ... 6.619 5.187
Niðurfærsla viðskiptakrafna ... ( 219) ( 200)
Gjaldmiðlaskiptasamningur ... 134 0
Aðrar skammtímakrófur ... 330 267
Viðskiptakrófur og aðrar skammtímakrófur ... 6.864 5.254
Greiðslukortakrófur ... 861 665
Viðskiptakrófur og aðrar skammtímakrófur samtals ... 7.725 5.919 -
Eigið fé
Bundið eigið fé greinist þannig: Lög- bundinn varasjóður Bundinn hlutdeildar- reikningur Bundið eigið fé samtals
Bundið eigið fé 1. mars 2022 ... 285 5.274 12 5.571
Breyting á varasjóð ... ( 2) 0 0 ( 2)
Áfallinn kostnaður v. kaupréttarsamninga ... 0 0 21 21
Breyting á hlutdeildarreikningi ... 0 ( 123) 0 ( 123)
Bundið eigið fé 31. ágúst 2022 ... 283 5.151 33 5.467
Bundið eigið fé 1. mars 2023 ... 283 6.974 33 7.290
Breyting á varasjóð ... ( 6) 0 0 ( 6)
Áfallinn kostnaður v. kaupréttarsamninga ... 0 0 21 21
Breyting á hlutdeildarreikningi ... 0 ( 808) 0 ( 808)
Bundið eigið fé 31. ágúst 2023 ... 277 6.166 54 6.497
- Vaxtaberandi skuldir
Vaxtaberandi skuldir greinast þannig: Vegið meðaltal vaxta Eftirstöðvar Eftirstöðvar
31.8.2023 28.2.2023 31.8.2023 28.2.2023
Langtímaskuldir í ISK, óverðtryggðar ... 7,68% 6,17% 6.228 6.336
Langtímaskuldir í ISK, verðtryggðar ... 2,80% 2,80% 6.099 5.938
Víxlskuldir í ISK ... 9,45% 7,25% 2.900 1.080
Lánalína í ISK ... 10,83% 8,10% 1.630 1.800
Vaxtaberandi skuldir, þ.m.t. næsta árs afborgun ... 16.857 15.154
Næsta árs afborganir vaxtaberandi skulda ... ( 4.966) ( 3.325)
Langtímaskuldir samtals ... 11.891 11.829
Afborganir langtímalána greinast þannig á næstu ár:
Afborganir innan árs ... 4.966 3.325
Afborganir eftir 1 til 2 ár ... 2.936 2.940
Afborganir eftir 2 til 3 ár ... 446 446
Afborganir eftir 3 til 4 ár ... 457 456
Afborganir eftir 4 til 5 ár ... 470 466
Afborganir síðar ... 7.582 7.521
Samtals ... 16.857 15.154
Breyting vaxtaberandi skulda á tímabilinu greinast þannig:
Vaxtaberandi skuldir í upphafi tímabils ... 15.154 12.171
Afborganir langtímalána ... ( 221) ( 492)
Breyting á víxlskuldum ... 1.820 1.080
Breyting á lánalínu ... ( 170) 1.800
Verðbætur ... 274 595
Vaxtaberandi skuldir í lok tímabils ... 16.857 15.154
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. ágúst 2023
Fjárhæðir eru í milfjónum króna
SKÝRINGAR, FRH.:
- Leiguskuldir
| Leiguskuldir greinast þannig frá upphafi til loka tímabilsins: | 31.8.2023 | 28.2.2023 |
|---|---|---|
| Leiguskuldir í upphafi tímabils | 9.068 | 8.884 |
| Nýir samningar | 913 | 974 |
| Afborgunarþáttur leigugreiðslna | ( 923) | ( 1.713) |
| Verðbætur | 533 | 886 |
| Aðrar breytingar samninga | 64 | 37 |
| Leiguskuldir, þ.m.t. næsta árs afborgun | 9.655 | 9.068 |
| Næsta árs afborganir leiguskulda | ( 2.125) | ( 2.012) |
| Leiguskuldir til langtíma í lok tímabils | 7.530 | 7.056 |
| Afborganir leiguskulda greinast þannig á næstu ár: | ||
| Afborganir innan árs | 2.125 | 2.012 |
| Afborganir eftir 1 til 2 ár | 1.891 | 1.712 |
| Afborganir eftir 2 til 3 ár | 1.650 | 1.537 |
| Afborganir eftir 3 til 4 ár | 1.149 | 1.238 |
| Afborganir eftir 4 til 5 ár | 887 | 877 |
| Afborganir síðar | 1.953 | 1.692 |
| Samtals | 9.655 | 9.068 |
Heildarleigugreiðslur sem tengjast þeim leigusamningum sem færðir eru samkvæmt leigustaðli IFRS 16 námu 1.199 millj. kr. á tímabilinu (2022/23: 1.089 millj. kr.).
- Víðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir
| Víðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir | ||
|---|---|---|
| 31.8.2023 | 28.2.2023 | |
| Tekjuskattur til greiðslu | 1.179 | 1.150 |
| Gjaldmiðlasamningur | 0 | 14 |
| Víðskiptaskuldir | 14.530 | 13.141 |
| Aðrar skammtímaskuldir | 3.030 | 3.333 |
| Víðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir samtals | 18.739 | 17.638 |
- Félög í samstæðu
Dótturfélög í samstæðu Haga hf. voru sex í upphafi og lok tímabilsins. Dótturfélögin eru eftirfarandi:
| Staðsetning | Eignarhlutur | ||
|---|---|---|---|
| 31.8.2023 | 28.2.2023 | ||
| Hagar verslanir ehf. | Ísland | 100% | 100% |
| Olís ehf. | Ísland | 100% | 100% |
| Bananar ehf. | Ísland | 100% | 100% |
| Noron ehf. | Ísland | 100% | 100% |
| Stórkaup ehf. | Ísland | 100% | 100% |
| Eldum rétt ehf. | Ísland | 100% | 100% |
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. ágúst 2023
Fjárhæðir eru í milljónum króna
SKYRINGAR, FRH.:
17. Tengdir aðilar
Tengdir aðilar félagsins eru stórir hluthafar í félaginu, hlutdeildarfélög þess, lykilstjórnendur og stjórnarmenn. Viðskipti á milli félagsins og dótturfélaga þess, sem eru skilgreind sem tengdir aðilar, hafa verið færð út í samstæðureikningsskilum og eru ekki hluti af þessari skýringu.
| Viðskipti við tengda aðila | 2023 | 2022 |
|---|---|---|
| Viðskipti við tengda aðila eru við hlutdeildarfélög og greinast þannig: | 1.3.-31.8. | 1.3.-31.8. |
| Seldar vörur og þjónusta | 191 | 93 |
| Keyptar vörur og þjónusta | ( 1.102) | ( 996) |
| Viðskiptakröfur í lok tímabils | 9 | 2 |
| Viðskiptaskuldir í lok tímabils | ( 197) | ( 113) |
18. Kennitölur
Helstu kennitölur samstæðunnar eru eftirfarandi:
| 2023 | 2022 | |
|---|---|---|
| Rekstur | 1.3.-31.8. | 1.3.-31.8. |
| Hagnaðarhlutfall (rekstrarhagnaður fyrir afskriftir / vörusölu) | 8,1% | 8,6% |
| Launahlutfall (laun og launatengd gjöld / vörusölu) | 9,0% | 8,4% |
| Kostnaðarhlutfall (annar rekstrarkostnaður / vörusölu) | 4,1% | 4,0% |
| Veltuhraði birgða (kostnaðarverð seldra vara / meðalbirgðastaða) | 11,0 | 10,8 |
| Innheimtutími viðskiptakrafna í dögum | 12,9 | 12,0 |
| Efnahagur | 31.8.2023 | 28.2.2023 |
| --- | --- | --- |
| Veltufjárhlutfall (veltufjármunir / skammtímaskuldir) | 0,87 | 0,94 |
| Lausafjárhlutfall ((veltufjármunir-birgðir) / skammtímaskuldir) | 0,40 | 0,38 |
| Skuldsetning (nettó vaxtaberandi skuldir / rekstrarhagnaður fyrir afskriftir) | 2,0 | 1,8 |
| Eiginfjárhlutfall (eigið fé / heildareignir) | 36,3% | 38,8% |
| Innra virði hlutafjár (eigið fé / hlutafé) | 24,76 | 24,96 |
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. ágúst 2023
Fjárhæðir eru í milljónum króna