Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar Interim / Quarterly Report 2023

Oct 18, 2023

2196_rns_2023-10-18_46ff5586-cc12-4845-b8a5-02288a85b5fa.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

Fréttatilkynning 18. október 2023

hagar

AUKIN UMSVIF OG BÆTT AFKOMA FRÁ REKSTRI

Uppgjør Haga hf. á 2. ársfjórðungi 2023/24

Árshlutareikningur Haga hf. fyrir annan ársfjórðung 2023/24 var sambykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 18. október 2023. Reikningurinn er fyrir tímabillið 1. mars til 31. ágúst 2023. Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Reikningurinn hefur verið kannaður af endurskoðendum félagsins, PricewaterhouseCoopers ehf.

Helstu lykiltölur

  • Vörusala 2F nam 45.309 m.kr. (4,4% vöxtur frá 2F 2022/23). Vörusala 6M nam 86.799 m.kr. (6,4% vöxtur frá 6M 2022/23). [2F 2022/23: 43.399 m.kr., 6M 2022/23: 81.612 m.kr.]
  • Framlegð 2F nam 9.903 m.kr. (21,9%) og 17.975 m.kr. (20,7%) fyrir 6M. [2F 2022/23: 8.383 m.kr. (19,3%), 6M 2022/23: 15.947 m.kr. (19,5%)]
  • Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) 2F nam 4.472 m.kr. eða 9,9% af veltu. EBITDA 6M nam 6.993 m.kr. eða 8,1% af veltu. [2F 2022/23: 4.369 m.kr. (10,1%), 6M 2022/23: 7.037 m.kr. (8,6%)]
  • Hagnaður 2F nam 2.084 m.kr. eða 4,6% af veltu. Hagnaður 6M nam 2.737 m.kr. eða 3,2% af veltu. [2F 2022/23: 2.378 m.kr. (5,5%), 6M 2022/23: 3.304 m.kr. (4,0%)]
  • Grunnhagnaður á hlut 2F var 1,88 kr. og 2,47 kr. fyrir 6M. [2F 2022/23: 2,10 kr., 6M 2022/23: 2,92 kr.]. Þynntur hagnaður á hlut 2F var 1,84 kr. og 2,42 kr. fyrir 6M. [2F 2022/23: 2,03 kr., 6M 2022/23: 2,84 kr.]
  • Eigið fé nam 27.381 m.kr. í lok tímabils og eiginfjárhlutfall 36,3%. [Árslok 2022/23: 27.931 m.kr. og 38,8%]
  • Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2023/24 gerir ráð fyrir að EBITDA verði 12.250-12.750 m.kr.

Helstu fréttir af starfsemi

  • Rekstur á nýliðnum ársfjórðungi gekk vel, og var nokkuð umfram áætlanir, þá sérstaklega í eldsneytishluta félagsins. Vörusala jókst um 4,4% milli ára og EBITDA jókst um 2,4% milli ára.
  • Á fyrra ári námu einskiptisliðir vegna áhrifa viðskipta með Klasa 966 m.kr. Án áhrifa einskiptisliða vegna Klasa á fyrra ári jókst EBITDA um 31,4% milli ára.
  • Seldum stykkjum í dagvöruverslunum fjölgar milli ára um 6,9% og heimsóknum viðskiptavina fjölgar einnig, eða um 12,5% á fjórðungnum. Lítilsháttar aukning var í seldum eldsneytislítrum á fjórðungnum eða sem nam 0,3%.
  • Framlegð í krónum talið eykst um 18,1% milli ára og framlegðarhlutfallið hækkar um 2,5%-stig. Hækkun framlegðarhlutfalls má að mestu rekja til viðskipta stórnotenda hjá Olís en framlegðarhlutfall í dagvöru stendur í stað.
  • Bónus opnaði nýja 2.500 m² matvöruverslun í Holtagörðum þann 22. júlí og var gömlu versluninni þar í húsi lokað á sama tíma.
  • Hagkaup setti á laggirnar veislupjónustu á heimasíðu sinni, Veisluréttir Hagkaups, þar sem boðið er upp á gómsæta veislubakka í netverslun.
  • Í júní opnaði Olís nýja og glæsilega þjónustustöð að Fitjum í Reykjanesbæ.

Fréttatilkynning 18. október 2023

hagar

Finnur Oddsson, forstjóri:

Starfsemi Haga á sumarmánuðum, öðrum ársfjörðungi rekstrarársins 2023/24, gekk vel. Vörusala samstæðu nam 45,3 ma. kr. og jókst um 4,4% miðað við sama tímabil í fyrra. Afkoma á fjörðungnum var sterk, en EBITDA nam 4.472 m.kr. og hagnaður 2.084 m.kr. Við erum ánægð með rekstur félagsins í sumar og fyrri hluta árs, sérstaklega þegar horft er til þess að umhverfi er áfram ögrandi; aðföng í dagvöru hafa haldið áfram að hækka, rekstarkostnaður einnig og tóluverðar sveiflur hafa verið á eldsneytisverði.

Afkoma frá rekstri Haga styrktist á milli ára. EBITDA nam 9,9% af veltu og eykst um 31% að frádregnum einskiptisliðum sem voru til hækkunar á EBITDA í fyrra. Framlegð hefur hækkað um 18% í krónum talið, en einnig sem hlutfall af tekjum.

Umsvif halda áfram að aukast þvert á allar rekstrareiningar Haga, en megin skýring á bættri framlegð og rekstrarafkomu yfir áætlunum liggur í sterkari rekstri Olis á fjörðungnum. Tekjur Olis á fjörðungnum nám 15 ma. kr. og eldsneytissala í litrum talið var sögulega sterk, lítilsháttar aukning í samanburði við mjög sterkan fjörðung í fyrra. Sala til stórnotenda og stórt ferðamannasumar á Íslandi hafði jákvæð áhrif á heildarsölu eldsneytis og þurrvöru, bæði á smásölu og fyrirtækjamarkaði. Samdráttur í tekjum á milli ára skýrist af því að heimsmarkaðsverð á olíu var talsvert lægra í ár en á sama tíma í fyrra. Framlegð og afkoma styrktust hins vegar tóluvert, en helstu ástæður þess liggja í því að hagræði vegna skipulagsbreytinga síðustu missera er nú að fullu komið fram í rekstri og hækkun á heimsmarkaðsverði olíu á sumarmánuðum 2023 samhliða virkri birgðastýringu skilaði aukinni framlegð.

Sem fyrr er sterkur tekjuvöxtur í verslunum og vöruhúsum, en þar undir falla m.a. verslanir Bónus og Hagkaups, Eldum rétt, Aðföng og Bananar. Tekjur jukust um tæplega 17% á milli fjörðunga, en eins og áður má að hluta rekja þessa aukningu til verðbölgu, hækkandi verðs aðfanga frá heildsölum og framleiðendum sem hefur verið viðvarandi viðfangsefni undanfarin ár og sérstaklega síðustu 12 mánuði. Það er hins vegar ánægjulegt að heimsóknum viðskiptavina í dagvöruverslanir Haga hefur fjölgað áfram og sömuleiðis seldum stykkjum, sem skýrir að stórum hluta þennan mikla tekjuvöxt.

Nýjar verslanir Bónus sem opnaðar voru í sumar, í Norðlingaholti og Holtagörðum, fara vel af stað, en almennt þá hefur viðskiptavinum Bónus fjölgað ört síðustu misseri. Við teljum sem fyrr að áherslur í rekstri félagsins og loforð um að leitast ávallt við að bjóða upp á hagkvæmustu matvörukörfuna eigi vel við, sérstaklega á verðbölgutímum eins og nú eru. Eins og fram hefur komið, þá munum við um áramót sjá á eftir góðum liðsmanni í þessari baráttu þegar Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónus til 25 ára, lætur af störfum. Ég þakka honum afar gott samstarf og mikilsvert framlag til Bónus og Haga í gegnum tíðina. Það er hins vegar ánægjulegt að maður kemur í manns stað, en Björgvin Víkingsson aðstoðarframkvæmdastjóri Bónus hefur verið ráðinn í stöðu framkvæmdastjóra frá áramótum. Viðtæk reynsla Björgvins af innkaupum, vörustjörnun og forystu í umsvifamikilli starfsemi mun efla starfsemi Bónus og treysta stöðu félagsins enn frekar sem leiðandi aðili á dagvörumarkaði.

Viðskiptavinum Hagkaups heldur áfram að fjölga sem staðfestir að aukið úrval í verslunum, nýjar netverslanir og góð þjónusta mælast vel fyrir. Heimilum sem fá senda matarpakka frá netverslun Eldum rétt eða kaupa einstaka rétti fyrirtækisins í Hagkaup fjölgaði mikið í sumar, jafnvel meira en á fyrri hluta árs. Við litum svo á að stækkandi viðskiptavinahópur Eldum rétt endurspegli að þjónustan sé bæði þægileg og hagkvæm og að rétt eldaður matur sé einstaklega bragðgóður. Afkoma starfsþáttarins verslanir og vöruhús er heldur að styrkjast á milli fjörðunga, fyrst og fremst vegna aukinnar veltu.

Þróun og uppbygging samstæðu Haga miðar vel áfram og fjöldi verkefna sem sett hafa verið í gang á undanförnum misserum eru í góðum farvegi. Rekstur Bónus hefur styrkst, með opnun nýrra verslana og aukinni þjónustu við viðskiptavini, m.a. í formi tæknilausna eins og Gripið & Greitt. Sömuleiðis hefur vöruframboð í Hagkaup verið stóraukið, netverslun styrkt og aðbúnaður í verslunum bættur, bæði til aukinna þæginda fyrir viðskiptavini en einnig til að gera Hagkaup að einni umhverfisvænustu verslunarkeðju landsins. Rekstur Olis hefur verið straumlínulagaður á síðustu misserum, m.a. með nýju


Fréttatilkynning 18. október 2023

hagar

skipulagi í pjónustu við stórnotendur og bættri upplifun á pjónustustöðvum, en hvoru tveggja endurspeglast í bættri afkomu félagsins að undanförnu. Fyrsta starfsár Stórkaups gekk vel og framundan er frekari sökn á vaxandi markað rekstraraðila og stórnotenda. Með kaupum á Eldum rétt hefur starfsemi Haga á dagvörumarkaði verið útvíkkuð og viðskiptavinahópur sömuleiðis, enda er Eldum rétt liklega ein stærsta netverslun landsins með matvöru. Því tengt, þá hafa mikilvæg skref verið stigin í nýtingu á upplýsingatækni til að pjónusta viðskiptavini, en próun stafræna lausna er nú einn af lykilpáttum í okkar starfsemi. Próun netverslana fyrir Hagkaup, Stórkaup o.fl. og próun Gripið & Greitt fyrir Bónus hefur myndæ mikilvægan grunn að tækniumhverfi sem mun nýtast til að efla pjónustu rekstrareininga Haga við viðskiptavini enn frekar og horfum við þar til fjölda nýrra og spennandi tækifæra. Próunar- og fasteignaverkefnum á vegum Klasa miðar vel og er gert ráð fyrir að áhugaverðir próunarreitir komist af skipulagsstigi í byggingu á næstu mánuðum.

Heilt yfir erum við ánægð með rekstrarniðurstöðu fjórðungsins og próun samstæðu Haga á undanförnum misserum. Afkoma hefur haldið áfram að styrkjast, fyrst og fremst vegna almennrar hagræðingar í rekstri, stefnumarkandi ákvarðana sem hafa reynst vel og almennt aukinna umsvifa hjá öllum einingum Haga. Viðfangsefni okkar fram undan verður annars vegar að styðja við áframhaldandi próun samstæðunnar og hins vegar að kljást við og vinna gegir verðhækkunum í dagvöru og verðbölgu sem hefur verið viðvarandi um of langt skeið. Staða Haga til að vinna það verk er sterk, fjárhagslega, markaðslega og ekki síst þekkingarlega, en félagíð hefur á að skipa reynslumiklum hópi starfsfólks sem ber hag viðskiptavina fyrir brjósti og hefur metnað til að gera verslun hagkvæma, þægilega og skemmtilega.


Fréttatilkynning

  1. október 2023

hagar

Rekstrarreikningur samstæðunnar

Fællij. kr. 2F 2023/24 2F 2022/23 8M 2023/24 8M 2022/23
01.06.-31.08 01.06.-31.08 Breýting Breýting % 01.03.-31.08 01.03.-31.08 Breýting Breýting %
Vörusala 45.309 43.399 1.910 4,4% 86.799 81.612 5.187 6,4%
Kostnaðarverð seldra vara (35.406) (35.016) (390) 1,1% (68.824) (65.665) (3.159) 4,8%
Framlegð 9.903 8.383 1.520 18,1% 17.975 15.947 2.028 12,7%
Framlegð % 21,9% 19,3% - 2,5% 20,7% 19,5% - 1,2%
Aðrar rekstrartekjur 210 147 63 42,9% 404 349 55 15,8%
Hagnaður af sölu eigna -- 882 (882) - -- 882 (882) -
Laun og launatengd gjöld (3.881) (3.438) (443) 12,9% (7.813) (6.881) (932) 13,5%
Ánnar rekstrarkostnaður (1.760) (1.605) (155) 9,7% (3.573) (3.260) (313) 9,6%
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) 4.472 4.369 103 2,4% 6.993 7.037 (44) -0,6%
EBITDA % 9,9% 10,1% - -0,2% 8,1% 8,6% - -0,6%
Afskriftir (1.353) (1.099) (254) 23,1% (2.482) (2.120) (362) 17,1%
Rekstrarhagnaður (EBIT) 3.119 3.270 (151) -4,6% 4.511 4.917 (406) -8,3%
Hrein fjármagnsgjöld (639) (426) (213) 50,0% (1.265) (970) (295) 30,4%
Áhrif hlutdeildarfélaga 109 94 15 16,0% 149 138 11 8,0%
Hagnaður fyrir tekjuskatt 2.589 2.938 (349) -11,9% 3.395 4.085 (690) -16,9%
Tekjuskattur (505) (560) 55 -9,8% (658) (781) 123 -15,7%
Heildarhagnaður 2.084 2.378 (294) -12,4% 2.737 3.304 (567) -17,2%

Lykiltölur á 2. ársfjörðungi 2023/24

Vörusala á 2F nam 45.309 m.kr. og jökst um 4,4% milli ára. Söluaukning verslana og vöruhúsa nam 15,5% en samdráttur var í sölu hjá Olís sem nemur 14,1% milli ára.

Seldum stykkjum í dagvöruverslunum fjölgaði um 6,9% milli ára og heimsóknum viðskiptavina fjölgaði einnig, eða um 12,5% á fjörðungnum. Seldum eldsneytislítrum hjá Olís fjölgaði lítillega eða um 0,3%.

Framlegð á 2F nam 9.903 m.kr. og jökst um 18,1% milli ára. Framlegðarhlutfall nam 21,9% og hækkaði um 2,5%-stig frá fyrra ári. Hækkun framlegðarhlutfalls má að mestu rekja til viðskipta stórnotenda hjá Olís en framlegðarhlutfall í dagvöru stendur í stað.

Á 2F fyrra árs nam hagnaður af sölu eigna 882 m.kr. en þar af nam innleystur sölu hagnaður eigna í viðskiptum við Klasa 966 m.kr.

Launa- og kostnaðarhlutfall á 2F hækkar úr 11,6% í 12,5% milli ára.

EBITDA á 2F nam 4.472 m.kr. og hækkar um 2,4% milli ára. EBITDA hækkar um 31,4% milli ára ef frá eru talin einskiptisáhrif af viðskiptum með Klasa í fyrra. EBITDA-hlutfall er 9,9% en var 10,1% í fyrra (7,8% án einskiptisliða).

Hagnaður ársfjörðungsins nam 2.084 m.kr. og lækkar um 12,4% milli ára.

Rekstur á fyrri árshelmingi 2023/24

Vörusala tímabilsins nam 86.799 m.kr., samanborið við 81.612 m.kr. árið áður. Söluaukning milli ára nam 6,4%. Söluaukning verslana og vöruhúsa nam 16,5% en 11,4% samdráttur var í sölu hjá Olís.

Framlegð samstæðunnar var 17.975 m.kr., samanborið við 15.947 m.kr. árið áður, eða aukning sem nemur 12,7%. Framlegðarhlutfall nam 20,7% og hækkaði um 1,2%-stig frá fyrra ári. Hækkun framlegðarhlutfalls liggur í eldsneytishluta samstæðunnar en í dagvöru hefur framlegðarhlutfall lækkað lítillega.

Launakostnaður hækkaði um 13,5% milli ára og annar rekstrarkostnaður hækkaði um 9,6%. Launa- og kostnaðarhlutfall á tímabilinu hækkar úr 12,4% í 13,1%.

EBITDA nam 6.993 m.kr., samanborið við 7.037 m.kr. árið áður. EBITDA-hlutfall var 8,1%, samanborið við 8,6% á fyrra ári. EBITDA verslana og vöruhúsa jökst um 11,9% milli ára en EBITDA Olís dróst saman um 22,1%, einkum vegna einskiptisliða vegna Klasa á fyrra ári.

Afskriftir hækka um 17,1% milli ára og fjármagnskostnaður eykst um 30,4%.

Heildarhagnaður tímabilsins nam 2.737 m.kr., sem jafngildir 3,2% af veltu en heildarhagnaður á fyrra ári var 3.304 m.kr. eða 4,0% af veltu.


Fréttatilkynning

  1. október 2023

hagar

Efnahagsreikningar samstæðunnar

i mill. kr. 31.08.2023 28.02.2023 Breyting Breyting %
Eignir
Fastafjármunir 53.016 50.502 2.514 5,0%
Veltufjármunir 22.471 21.505 966 4,5%
Eignir samtals 75.487 72.007 3.480 4,8%
Eigið fé og skuldir
Hlutafé 1.106 1.119 (13) -1,2%
Annað eigið fé 26.275 26.812 (537) -2,0%
Eigið fé samtals 27.381 27.931 (550) -2,0%
Langtímaskuldir 22.276 21.101 1.175 5,6%
Vaxtaberandi skammtímaskuldir 4.966 3.325 1.641 49,4%
Aðrar skammtímaskuldir 20.864 19.650 1.214 6,2%
Skuldir samtals 48.106 44.076 4.030 9,1%
Eigið fé og skuldir samtals 75.487 72.007 3.480 4,8%

Lykiltölur efnahags 31.08.2023

  • Heildareignir samstæðunnar í lok tímabils námu 75.487 m.kr. og hækkuðu um 3.480 m.kr. frá árslokum 2022/23.
  • Fastafjármunir voru 53.016 m.kr. og hækkuðu um 2.514 m.kr. frá árslokum 2022/23. Hækkunina má að mestu rekja til fjárfestinga í fasteignum og öðrum rekstrarfjármunum en einnig hækkun leigueigna vegna nýrra leigusamninga.
  • Veltufjármunir voru 22.471 m.kr. og hækkuðu um 966 m.kr. frá árslokum 2022/23.
  • Vörubirgðir eru stærsti hluti veltufjármuna og námu 12.020 m.kr. í lok ágúst. Birgðir hafa lækkað um 399 m.kr. frá lokum 2F 2022/23 og um 697 m.kr. frá árslokum 2022/23. Lækkun birgða má nær alfarið rekja til lægra birgðaverðmætis eldsneytis, einkum vegna lækkunar heimsmarkaðsverðs. Veltuhraði birgða er nú 11,0 en var 10,8 á fyrra ári.
  • Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur námu 7.725 m.kr. og hækka um 1.806 m.kr. á tímabilinu en viðskiptakröfur eru 642 m.kr. hærri en í lok 2F á fyrra ári. Innheimtutími viðskiptakrafna er nú 12,9 dagar samanborið við 12,0 daga á fyrra ári.
  • Veltufjárhlutfall er 0,87 og lausafjárhlutfall 0,40 í lok annars árshelmings. Aðgangur að skammtímafjármögnun í formi lánalína að upphæð 6,2 ma. kr. hjá viðskiptabanka er tryggður en auk þess fjármagnar félagið sig til skamms tíma með útgáfu vixla.
  • Eigið fé í lok tímabilsins var 27.381 m.kr. og eiginfjárhlutfall 36,3%. Arðsemi eigin fjár var 16,4%. Eiginfjárhlutfall við lok síðasta rekstrarárs var 38,8% og arðsemi eigin fjár 18,5%. Félagið átti enga eigin hluti í lok tímabils en þeir hlutir sem höfðu verið keyptir á árinu voru ógiltir skv. ákvörðun aðalfundar um lækkun hlutafjár í júní síðastliðnum.
  • Heildarskuldir samstæðunnar í lok fyrri árshelmings námu 48.106 m.kr. en þar af voru vaxtaberandi skuldir 16.857 m.kr. og leiguskuldir 9.655 m.kr. Nettó vaxtaberandi skuldir, með leiguskuldum, í lok tímabils voru 23.786 m.kr. eða 2,0 x 12 mánaða EBITDA.
  • Vaxtaberandi skammtímaskuldir námu 4.966 m.kr. en þar af nam lánalína 1.630 m.kr. og víxilskuldir 2.900 m.kr.

5


Fréttatilkynning

  1. október 2023

hagar

Sjóðstreymisyflit samstæðunnar

I millj. kr. 3P 2023/24 8M 2023/24 8M 2022/23
01.06-31.08 01.06-31.08 Breýting 01.03-31.08 01.03-31.08 Breýting 01.03-31.08 Breýting %
Handbært fé frá rekstri 2.451 2.785 (334) -12,0% 5.786 4.755 1.031 21,7%
Fjárfestingarhreyfingar (777) (353) (424) 120,1% (3.127) (857) (2.270) 264,9%
Fjármögnunarhreyfingar (1.904) (1.550) (354) 22,8% (2.802) (2.586) (216) 8,4%
Hækkun á handbæru fé (230) 882 (1.112) -126,1% (143) 1.312 (1.455) -110,9%
Handbært fé í byrjun tímabils 2.956 1.213 1.743 143,7% 2.869 783 2.086 266,4%
Handbært fé í lok tímabils 2.726 2.095 631 30,1% 2.726 2.095 631 30,1%

Sjóðstreymi á fyrri árshelmingi 2023/24

  • Handbært fé frá rekstri á fyrri árshelmingi nam 5.786 m.kr., samanborið við 4.755 m.kr. á fyrra ári.
  • Fjárfestingarhreyfingar tímabilsins voru 3.127 m.kr., samanborið við 857 m.kr. á fyrra ári. Fjárfesting í fasteignum nam 1.431 m.kr. sem er að stærstum hluta í fasteign við Norðlingabraut í Reykjavík. Auk þess var fjárfest í opnun nýrra verslana Bónus við Norðlingabraut og í Holtagörðum og nýrri þjónustustöð Olís að Fitjum í Reykjanesbæ. Þá var fjárfest í mikilvægum sjálfbærnitengdum verkefnum á borð við kolsýruvæðingu kælikerfa o.fl.
  • Fjármögnunarhreyfingar tímabilsins voru 2.802 m.kr., samanborið við 2.586 m.kr. á fyrra ári. Endurkaup eigin bréfa á fyrri árshelmingi námu 833 m.kr. og arðgreiðsla í júní 2023 nam 2.475 m.kr.
  • Handbært fé í lok ágúst 2023 nam 2.726 millj., samanborið við 2.095 millj. í ágústlok í fyrra.

Staðan og framtíðarhorfur

Rekstur á nýliðnum ársfjörðungi gekk vel og var nokkuð umfram áætlanir. Ástæðuna má einkum rekja til sterkari afkomu hjá Olís en auk þess eru aukin umsvif hjá öðrum rekstrareiningum Haga. Aukin velta í dagvöru hefur annars vegar verið drifin áfram af áhrifum verðbólgu og hins vegar auknum umsvifum, en seldum stykkjum hefur fjölgað og viðskiptavinir heimsækja verslanirnar oftar en áður. Í eldsneytishluta samstæðunnar hefur velta dregist töluvert saman, vegna áhrifa lækkandi heimsmarkaðsverðs eldsneytis, en seldum lítrum fjölgaði lítillega á fjörðungnum. Framlegðarhlutfall samstæðunnar á fjörðungnum hækkar milli ára sem rekja má til Olís en framlegðarhlutfall í dagvöru stendur í stað.

Í september síðastliðnum var tilkynnt um breytingar sem verða á framkvæmdastjórn samstæðunnar frá og með næstu áramótum. Þá mun Björgvin Víkingsson taka við starfi framkvæmdastjóra Bónus af Guðmundi Marteinssyni en hann lætur af störfum eftir ríflega 30 ár hjá félaginu.

Í janúar 2023 gerðu Hagar kaupsamning, með fyrirvörum, við eigendur Dista ehf. um kaup á öllu hlutafé heildverslunarinnar. Hagar hafa nú fallið frá samningnum og kemur hann því ekki til framkvæmda.

Afkomuspa stjórnenda fyrir rekstrarárið 2023/24 gerir ráð fyrir að rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) verði á bilinu 12.250-12.750 millj. kr. Fjárhagsleg staða samstæðunnar er sterk og er fjármögnun tryggð til langs tíma. Þá er aðgangur að skammtímafjármögnun í formi lánalína, að fjárhæð 4,5 ma. kr. og USD 12,5 millj. einnig tryggður. Þá hefur félagið undanfarið nýtt sér skammtímafjármögnun í formi vixlaútgáfu en útgáfá vixlanna er í samræmi við grunnlýsingu 10 ma. kr. útgáfuramma sem stjórn félagsins hefur samþykkt. Gera má ráð fyrir að félagið horfi í meira mæli til markaðsfjármögnunar á næstu misserum en til marks um það var gefinn út nýr skuldabréfaflokkur HAGA120926 1 í september síðastliðnum.

6


Fréttatilkynning

  1. október 2023

hagar

Hlutafé og hluthafar

  • Markaðsvirði Haga í lok tímabilsins nam 75,8 ma. kr. og lokaverð þann 31. ágúst 2023 var 68,5 kr./hlut.
  • Þann 1. júní 2023 samþykkti aðalfundur að lækka hlutafé félagsins til ógildingar á eigin hlutum að nafnverði 26,2 m.kr. Lækkunin kom til framkvæmda þann 28. júní 2023 og lækkaði hlutafé Haga því úr 1.133 m.kr. að nafnverði í 1.106 m.kr. að nafnverði, sem er skráð hlutafé í lok tímabils.
  • Aðalfundur samþykkti einnig að greiddur yrði arður til hluthafa vegna síðastliðins árs sem nam 2,24 krónum á hlut eða 2.475 m.kr. Arðurinn var greiddur þann 13. júní 2023.
  • Félagið átti enga eigin hluti í lok tímabils. Þann 30. ágúst 2023 keypti félagið eigin hluti að nafnverði 7,2 millj. kr. með uppgjörsdegi og afhendingu þann 1. september 2023. Þeir eigin hlutir sem keyptir voru á fyrsta ársfjórðungi voru partur þeirra hluta sem ógiltir voru í kjólfar ákvörðunar aðalfundar 2023 um lækkun hlutafjár.
  • Hluthafar voru 1.055 í byrjun tímabils og 1.022 í lok þess. 10 stærstu hluthafar félagsins áttu 77,0% eignarhlut í félaginu í lok annars ársfjórðungs.

Rafrænn kynningarfundur fimmtudaginn 19. október 2023

Rafrænn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn fimmtudaginn 19. október kl. 08:30, þar sem Finnur Oddsson, forstjóri, og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna rekstur og afkomu félagsins ásamt því að svara fyrirspurnum.

Tekið verður við spurningum sem tengjast uppgöru á meðan á útsendingu stendur á netfangið [email protected] og verður þeim svarað eins og kostur er í lok fundar.

Fundinum verður streymt og er skráning á fundinn hér: https://www.hagar.is/skraning

Kynningargögn verða aðgengileg á heimasíðu Haga, www.hagar.is, við upphaf fundar.

Fjárhagsdagatal 2023/24

Fjárhagsupplysingar eru birtar eftir lokun markaða.

Uppgjörstímabil Vikudagur Birtingardagur
3F – 1. mars til 30. nóvember Fimmtudagur 11. janúar 2024
4F – 1. mars til 29. febrúar Þriðjudagur 23. apríl 2024
Aðalfundur 2024 Fimmtudagur 30. maí 2024

Fréttatilkynning þessi og uppgjörsgögn verða aðgengileg á ensku þann 20. október á https://www.hagar.is/en/

Press release and financial statements will be available in English on October 20th at https://www.hagar.is/en/

Nánari upplysingar veita Finnur Oddsson, forstjóri félagsins ([email protected]), og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs ([email protected]), í síma 530-5500 eða tölvupósti.