AI assistant
Hagar — Interim / Quarterly Report 2022
Jan 12, 2022
2196_rns_2022-01-12_3fda74ec-a738-48b4-b1a2-09e5d2f1ae09.pdf
Interim / Quarterly Report
Open in viewerOpens in your device viewer
Fréttatilkynning
- januar 2022
hagar
Veltuaukning á 3F og hagnaður 841 m.kr.
Uppgjör Haga hf. á 3. ársfjórðungi 2021/22
Árshlutareikningur Haga hf. á þriðja ársfjórðungi 2021/22 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 12. janúar 2022. Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars 2021 til 30. nóvember 2021. Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaða (IFRS). Reikningurinn hefur hvorki verið kannaður né endurskoðaður af endurskoðendum félagsins, PricewaterhouseCoopers ehf.
Helstu lykiltölur
- Vörusala 3F nam 33.551 m.kr. (12,6% vöxtur frá 3F 2020/21). Vörusala 9M nam 100.470 m.kr. (12,9% vöxtur frá 9M 2020/21). [3F 2020/21: 29.787 m.kr., 9M 2020/2021: 88.952 m.kr.]
- Framlegð 3F nam 6.916 m.kr. (20,6%) og 21.149 m.kr. (21,1%) fyrir 9M. [3F 2020/21: 6.395 m.kr. (21,5%), 9M 2020/2021: 19.491 m.kr. (21,9%)]
- Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) 3F nam 2.535 m.kr. eða 7,6% af veltu. EBITDA 9M nam 8.076 m.kr. eða 8,0% af veltu. [3F 2020/21: 1.947 m.kr. (6,5%), 9M 2020/21: 6.263 m.kr. (7,0%)]
- Hagnaður 3F nam 841 m.kr. eða 2,5% af veltu. Hagnaður 9M nam 3.277 m.kr. eða 3,3% af veltu. [3F 2020/21: 448 m.kr. (1,5%), 9M 2020/21: 1.673 m.kr. (1,9%)]
- Grunnhagnaður á hlut 3F var 0,73 kr. og 2,84 kr. fyrir 9M. [3F 2020/21: 0,37 kr., 9M 2020/21: 1,42 kr.]. Þynntur hagnaður á hlut 3F var 0,73 kr. og 2,82 kr. fyrir 9M. [3F 2020/21: 0,37 kr., 9M 2020/21: 1,42 kr.]
- Eigið fé nam 26.502 m.kr. í lok tímabils og eiginfjárhlutfall 40,3%. [Árslok 2020/21: 25.187 m.kr. og 40,9%]
- Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2021/22 gerir ráð fyrir að EBITDA verði 10.000-10.500 m.kr.
Helstu fréttir af starfseminni
- Rekstur á 3F gekk vel með heildarveltu og afkomu töluvert umfram áætlanir og umfram síðasta ár. Helstu kennitölur rekstrar samstæðu styrkjast.
- Heimsóknum í verslanir fjölgar á milli ára en karfa minnkar lítillega. Magnaukning í eldsneytislítrum á 3F er um 18,5%.
- Framlegð samstæðu í krónum hækkar en framlegðarhlutfall lækkar lítillega. Framlegð í krónum af eldsneytissölu hækkar en vegna hækkunar heimsmarkaðsverðs og aukinnar sölu til stórnotenda lækkar framlegðarhlutfall. Framlegð í dagvöruverslun hækkar, bæði hlutfall og í krónum talið.
- Aðlögun á þjónustuframboði eldsneytisstöðva Olís skilaði hagræðingu í rekstri. Áframhaldandi vinna við að styrkja kjarnarekstur Olís á fyrirtækjasviði og efla um leið þjónustu Haga við stórnotendur.
- Vörumerki Bónus var fært í nútímalegra horf og afgreiðslutími verslana lengdur til að bæta þjónustu við viðskiptavini.
- Áhrifa COVID-19 faraldursins munu gæta á rekstur fram á næsta rekstrarár.
- Í desember undirrituðu Hagar samning um áskrift að hlutafé í fasteignapróunarfélaginu Klasa ehf. Kaupin eru háð samþykki SE.
- Nýr överðtryggður skuldabréfaflokkur til 3ja ára að fjárhæð 2.500 m.kr., HAGA181024, gefinn út á 3F. Skuldabréfin voru tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í lok desember sl.
- Aukin áhersla á sjálfbærni- og samfélagsmál, m.a. með samvinnu við Grænvang, samstarfsvettvang stjórnvalda og atvinnulífs um loftslagsmál og grænar lausnir.
Fréttatilkynning
12. januar 2022
hagar
Finnur Oddsson, forstjóri:
Pað sem helst einkennir uppgjör Haga á þríðja ársfjórðungi er bættur rekstur, sem annarsvegar má rekja til aukinnar veltu og hinsvegar áhrifa hagræðingarvinnu síðustu missera. Vörusala jókst um tæp 13% frá fyrra ári og nam 33.551 m.kr. Afkoma batnaði tóluvert, en EBITDA Haga á fjórðungnum var 2.535 m.kr, eða 7,6% af veltu. Hagnaður á fjórðungnum nam 841 m.kr. og jókst um 88%. Á fyrstu 9 mánuðum ársins nam vörusala rúmum 100 ma.kr. og EBITDA hlutfall 8%. Við erum ánægð með rekstur félagins það sem af er ári og sérstaklega að sjá umbótaverkefni skila sér í bættri arðsemi og sterkari innviðum félagsins til lengri tíma.
Megin skýring á góðri niðurstöðu fjórðungs og fyrstu níu mánaða ársins felst í því að allar helstu rekstrareiningar Haga, þ.e. Bónus, Hagkaup og Olís, skiluðu umtalsvert betri rekstrarafkomu á tímabilinu. Þar munar hlutfallslega mestu um bættan rekstur hjá Olís, en þar fer saman 33% tekjuaukning og lægri rekstarkostnaður það sem af er árs, sem m.a. hefur náðst með breyttum áherslum í starfsemi eldsneytisstöðva. Framlegð í rekstri Olís á fjórðungnum og það sem af er ári hækkar í samræmi við aukið magn, en lækkar hlutfallslega vegna hækkunar á heimsmarkaðsverði og verulega aukinni sölu til stórnotenda. Tekjur í dagvöruverslunum, þ.e. Bónus og Hagkaup, aukast áfram og hefur framlegð hækkæð, bæði sem hlutfall og í krónum talið, og nálgast nú það framlegðarstig sem var áður en veirufaraldurinn hófst í byrjun árs 2020.
Vinna við innleiðingu stefnumótunar Haga og umbótaverkefna hjá rekstrarfélögum gengur vel og samkvæmt áætlun. Aðlögun á þjónustu og vöruframboði eldsneytisstöðva hefur skilað umtalsverðum rekstrabata og á þríðja fjórðungi var hafist handa við að einfalda sölu- og aðfangaskipulag Olís gagnvart stórnotendum. Markmið vinnunnar er að styrkja kjarnarekstur Olís á þessu sviði en efla um leið þjónustu Haga við stórnotendur. Útibúanet Olís verður endurskipulagt, verslunum á landsbyggð breytt í afgreiðslulagera og söluskrifstofur og þjónusta við viðskiptavini verður aukin með beinu sölustarfi og vefsölu. Sala á hreinlætis-, rekstrar- og heilbrigðisvörum verður færð yfir í nýja söleiningu hjá Högum sem byggir á sterkum innkaupa- og vöruhúsainnviðum sem þar eru fyrir. Yfirfærsla þessara verkefna verður undirbúin enn frekar á næstu vikum og gert er ráð fyrir að ný eining Haga hefji starfsemi á vormánuðum. Samhliða er í undirbúningi uppfærsla á vörumerki Olís með breytingum á ásýnd þjónustustöðva, vöru- og þjónustuframboði.
Undanfarna mánuði hefur sérstaða vörumerkja Haga á neytendamarkaði verið rýnd og skilgreind, með sérstakri áherslu á bæði ytri og innri ásýnd, vöruframboð og þjónustu. Fyrsti afrakstur þessarar vinnu leit dagsins ljós í nóvember þegar vörumerki Bónus, grísinn, var færður í nútímalegra horf og opnunartími verslana var lengdur. Það var ánægjulegt að sjá hvað undirtektir voru fjörugar og hve vel breytingarnar mæltust fyrir, eins og best sést á fjölgun viðskiptavina á tímabilinu. Á næstu mánuðum verður unnið að því að færa verslanir Bónus í nýjan búnig, að utan sem innan, auk þess sem viðskiptavinir geta hlakkað til þess að sjá afrakstur svipaðrar vinnu fyrir þjónustuframboð og ásýnd Hagkaups og Olís.
Uppbygging samstæðu Haga til framtíðar og svar við kalli viðskiptavina um aukið aðgengi, hagkvæmni, upplysingar og þjónustu mun að tóluverðu leyti grundvallast á stafrænum lausnum. Fyrsta fasa í uppbýggingu netverslunar Haga og dótturfélaga lýkur fljótlega, þegar ný snyrtivöruverslun Hagkaups verður opnuð. Hönnun og smiði nýrrar netverslunar þjónar sem ákveðinn grunnur fyrir önnur stafraen verkefni sem þegar hefur verið ýtt úr vör og munu nýtast viðskiptavinum síðar á þessu ári.
Í byrjun desember voru undirritaðir samningar, með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins, um kaup Haga á nýju hlutafé í fasteignapróunarfélaginu Klasa ehf. og um leið samstarf milli Haga, Regins hf. og KLS eignarhaldsfélags ehf. um rekstur og frekari uppbýggingu félagsins. Hagar munu greiða fyrir eignarhlut sinn með þróunareignum sem teljast ekki hluti af kjarnastarfsemi félagsins, m.a. eignum við Stekkjarbakka, Álfabakka, Klettagarða, Álfheimar og Egilsgötu. Framlag Haga er metið á rúma 3,9 ma. kr. og verður eignarhlutur félagsins í Klasa 1/3 af útgefnu hlutafé. Með framlagi eigenda, Haga, Regins og KLS verður heildarumfang þróunareigna Klasa nálægt 280 þúsund fermetrum, auk á annars tug fasteigna í útleigu sem hugsaðar eru til sölu eða frekari þróunar. Verðmæti eigna Klasa eftir viðskiptin verður um 14,8 ma. kr. og eiginfjárhlutfall félagsins í upphafi 79%. Með þessum samningi er stigið mikilvægt skref í að koma verðmætum þróunareignum Haga hratt og örugglega í uppbýggingu, sem stuðlar að jákvæðri þróun á höfuðborgarsvæðinu og er til hagsbóta fyrir hluthafa.
Fréttatilkynning
- januar 2022
hagar
Undir lok árs gerðust Hagar bakhjarl Grænvangs, samstarfsvettvangs stjórnvalda og atvinnulífs um loftslagsmál og grænar lausnir. Við hlökkum til að taka þátt í starfi Grænvangs, sem stillir saman aðgerðir stjórnvalda og atvinnulífs til að ná kolefnishlutleysi á Íslandi árið 2040. Aðgerðir til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda eru eitt af meginþemum sjálfbærnistefnu Haga og er það stefna okkar að Hagar verði áfram leiðandi fyrirtæki á Íslandi þegar kemur að umhverfis- og samfélagslegum málefnum.
Rekstur Haga hefur gengið vel að undaförnu og við höfum séð allar helstu kennitölur rekstrar- og efnahagsreiknings styrkjast síðustu fjórðunga. Pessa breytingu má m.a. rekja til umbótaverkefna sem lagt var upp með undir lok árs 2020 og eru nú að koma til áhrifa í auknum mæli. Framundan er sambærileg vinna sem ætlað er að bæta rekstur enn frekar og styrkja stöðu Haga og dótturfélaga, t.a.m. við að skerpa á og aðlaga vörumerki dótturfélaga, nýta stafrænar leiðir til að efla starfsemi á öllum sviðum samstæðu, þróa vöru- og þjónustuframboð áfram í samræmi við síbreytilega neysluhegðun, hraða uppbyggingu þróunarreita o.s.frv.
Fjárhagsleg staða Haga er sterk og félagið í góðri stöðu til að fylgja eftir áðurnefndri vinnu, en takast um leið á við sérstakar aðstæður sem skapast af breyttri hegðun og neyslumynstri vegna veirufaraldursins og umtalsverðum hækkunum á verði matvöru vegna hnökra í aðfangakeðju á heimsvísu. Þar liggur styrkur Haga í öflugum dótturfélögum sem hafa á að skipa starfsfólki sem hefur sýnt í verki, sérstaklega síðustu tvö ár, að það rís undir hverri ögrun og leggur sig ávallt fram um að efla hag viðskiptavina með hagkvæmri, þægilegri og skemmtilegri verslun. Horfur í rekstri Haga eru því góðar.
Fréttatilkynning
- januar 2022
hagar
Rekstrarreikningur samstæðunnar
| Æmilli, kr. | 3F 2021/22 | 3F 2020/21 | 9M 2021/22 9M 2020/21 | |||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 01.03.2021 | 01.03.2021 | Begging | % | 01.03.2021 | 01.03.2021 | Begging | % | |
| Vörusala | 33.551 | 29.787 | 3.764 | 12,6% | 100.470 | 88.952 | 11.518 | 12,9% |
| Kostnaðarverð seldra vara | (26.635) | (23.392) | (3.243) | 13,9% | (79.321) | (69.461) | (9.860) | 14,2% |
| Framlegð | 6.916 | 6.395 | 521 | 8,1% | 21.149 | 19.491 | 1.658 | 8,5% |
| Framlegð % | 20,6% | 21,5% | - | -0,9% | 21,1% | 21,9% | - | -0,9% |
| Aðrar rekstrartekjur | 125 | 96 | 29 | 30,2% | 354 | 279 | 75 | 26,9% |
| Hagnaður af sölu félaga | - | - | - | - | 349 | - | 349 | - |
| Laun og launatengd gjöld | (3.132) | (3.197) | 65 | -2,0% | (9.564) | (9.537) | (27) | 0,3% |
| Annar rekstrakkostnaður | (1.374) | (1.347) | (27) | 2,0% | (4.212) | (3.970) | (242) | 6,1% |
| Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) | 2.535 | 1.947 | 588 | 30,2% | 8.076 | 6.263 | 1.813 | 28,9% |
| EBITDA % | 7,6% | 6,5% | - | 1,0% | 8,0% | 7,0% | - | 1,0% |
| Afskriftir | (1.105) | (1.038) | (67) | 6,5% | (3.007) | (3.130) | 123 | -3,9% |
| Rekstrarhagnaður (EBIT) | 1.430 | 909 | 521 | 57,3% | 5.069 | 3.133 | 1.936 | 61,8% |
| Hrein fjármagnsgjöld | (373) | (381) | 8 | -2,1% | (1.104) | (1.231) | 127 | -10,3% |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | 23 | 25 | (2) | -8,0% | 144 | 150 | (6) | -4,0% |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 1.080 | 553 | 527 | 95,3% | 4.109 | 2.052 | 2.057 | 100,2% |
| Tekjuskattur | (239) | (105) | (134) | 127,6% | (832) | (379) | (453) | 119,5% |
| Heildarhagnaður | 841 | 448 | 393 | 87,7% | 3.277 | 1.673 | 1.604 | 95,9% |
| Skipting hagnaðar | ||||||||
| Hlutdeild móðurfélags | 841 | 448 | 393 | 87,7% | 3.267 | 1.676 | 1.591 | 94,9% |
| Hlutdeild minnihluta | - | - | - | - | 10 | (3) | 13 | - |
| 841 | 448 | 393 | 87,7% | 3.277 | 1.673 | 1.604 | 95,9% |
Rekstur fyrstu níu mánuði rekstrarársins
Vörusala tímabilsins nam 100.470 m.kr., samanborið við 88.952 m.kr. árið áður. Söluaukning milli ára nam 12,9%. Söluaukning verslana og vöruhúsa nam 6,0% og söluaukning hjá Olís nam 32,9%.
Framlegð samstæðunnar var 21.149 m.kr., samanborið við 19.491 m.kr. árið áður eða 21,1% framlegðarhlutfall í samanburði við 21,9% árið áður.
Hagnaður af sölu Reykjavíkur Apóteks ehf. og sölu eigna Útilífs nam samtals 349 m.kr. á tímabilinu.
Launakostnaður hækkaði aðeins um 0,3% milli ára, þrátt fyrir hækkun launa vegna kjarasamninga og einskiptisliði vegna starfsloka framkvæmdastjóra og gjaldfærslu kaupréttarsamninga. Hagræðingaræðgerðir hjá Olís hafa skilað góðum árangri.
Annar rekstrakkostnaður hækkar um 6,1% milli ára en kostnaðarhlutfall er 4,2% í samanburði við 4,5% árið áður.
Afkoma fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA) nam 8.076 m.kr., samanborið við 6.263 m.kr. árið áður. EBITDA-hlutfall var 8,0%, samanborið við 7,0% árið áður. EBITDA verslana og vöruhúsa hækkar um 18,1% milli ára og EBITDA Olís hækkar um 97,1%.
Heildarhagnaður tímabilsins nam 3.277 m.kr., sem jafngildir 3,3% af veltu en heildarhagnaður á fyrra ári var 1.673 m.kr. eða 1,9% af veltu.
Lykiltölur á 3. ársfjörðungi
- Vörusala 3F jókst um 12,6% milli ára. Óverulegar breytingar eru í fjölda seldra stykkja á 3F en heimsöknum viðskiptavina fjölgaði um 9,3%. Meðalkarfa minnkaði um 6,7% á fjörðungnum. Magnaukning í eldsneytislítrum hjá Olís var 18,5% milli ára.
- Framlegð 3F í krónum talið jókst um 8,1% milli ára en framlegðarhlutfall lækkaði úr 21,5% í 20,6%. Framlegðarminnkun liggur í eldsneytis hluta samstæðunnar, sem orsakast einkum af hækkandi heimsmarkaðsverði og breyttri samsetningu viðskiptavina.
- Laun 3F voru 2,0% undir fyrra ári, einkum vegna áhrifa hagræðingaræðgerða hjá Olís. Annar rekstrakkostnaður hækkaði um 2,0%.
- Launa- og kostnaðarhlutfall 3F er 13,4% en var 15,3% á fyrra ári.
- EBITDA 3F hækkar um 30,2% frá fyrra ári. EBITDA-hlutfall er 7,6% en var 6,5% á fyrra ári.
- Heildarhagnaður 3F hækkar um 87,7% á milli ára.
Fréttatilkynning
- januar 2022
hagar
Efnahagsreikningur samstæðunnar
| (millj. kr. | 30.11.2021 | 28.02.2021 | Breyting | % |
|---|---|---|---|---|
| Eignir | ||||
| Fastafjármunir | 45.283 | 47.816 | (2.533) | -5,3% |
| Veltufjármunir | 20.493 | 13.832 | 6.661 | 48,2% |
| Eignir samtals | 65.776 | 61.648 | 4.128 | 6,7% |
| Eigið fé og skuldir | ||||
| Hlutafé | 1.146 | 1.154 | (8) | -0,7% |
| Annað eigið fé | 25.356 | 24.035 | 1.321 | 5,5% |
| Samtals | 26.502 | 25.189 | 1.313 | 5,2% |
| Hlutdeild minnihluta | – | (2) | 2 | -100,0% |
| Eigið fé samtals | 26.502 | 25.187 | 1.315 | 5,2% |
| Langtímaskuldir | 21.732 | 18.592 | 3.140 | 16,9% |
| Vaxtaberandi skammtímaskuldir | 455 | 2.957 | (2.502) | -84,6% |
| Skuldir við lánastofnanir | – | 601 | (601) | -100,0% |
| Aðrar skammtímaskuldir | 17.087 | 14.311 | 2.776 | 19,4% |
| Skuldir samtals | 39.274 | 36.461 | 2.813 | 7,7% |
| Eigið fé og skuldir samtals | 65.776 | 61.648 | 4.128 | 6,7% |
Lykiltölur efnahags 30.11.2021
- Heildareignir samstæðunnar í lok tímabilsins námu 65.776 m.kr. og hækkuðu um 4.128 m.kr. frá árslokum 2020/21.
- Fastafjármunir voru 45.283 m.kr. og lækkuðu um 2.533 m.kr. frá árslokum, sem skýrist einkum af endurflokkun eigna sem afhentar verða Klasa sem greiðsla fyrir hlutafé í félaginu. Eignirnar eru nú flokkaðar sem eignir til sölu og færðar á kostnaðarverði meðal veltufjármuna. Fjárfesting í áhöldum og innréttingum nam 1.168 m.kr. á tímabilinu.
- Veltufjármunir voru 20.493 m.kr. og hækkuðu um 6.661 m.kr. frá árslokum.
- Birgðir í lok tímabils voru 10.776 m.kr. og veltuhraði birgða 10,2 en árstíðabundin hækkun birgða, vegna jólavertíðar, einkennir mestmegnis birgðastöðuna nú. Birgðir hafa hækkað um 1.985 m.kr. á rekstrarárinu og eru 1.355 m.kr. hærri en á sama tíma í fyrra. Hækkun birgða milli ára má að langmestu leyti rekja til hærri eldsneytisbírgða, sem orsakast af hærra eldsneytisverði og meiri umsvifum. Veltuhraði birgða á fyrra ári var einnig 10,2.
- Innheimtutími viðskiptakrafna er 10,2 dagar samanborið við 9,9 daga á sama tímabili á fyrra ári.
- Veltufjárhlutfall er 1,17 og lausafjárhlutfall 0,55 í lok tímabils. Aðgangur að skammtímafjármögnun í formi lánalína að upphæð 6,2 ma. kr. hjá viðskiptabanka er tryggður.
- Eigið fé í lok tímabilsins var 26.502 m.kr. og eiginfjárhlutfall 40,3%. Arðsemi eigin fjár á tímabilinu var 16,3%. Eiginfjárhlutfall við lok síðasta rekstrarárs var 40,9% og arðsemi eigin fjár 10,2%. Félagið átti 7,8 millj. eigin hluti í lok tímabils.
- Heildarskuldir samstæðunnar í lok tímabils voru 39.274 m.kr. en þar af voru vaxtaberandi skuldir 12.214 m.kr. og leiguskuldir 9.057 m.kr. Nettó vaxtaberandi skuldir, með leiguskuldum, í lok tímabils voru 21.271 m.kr. eða 1,8 x 12 mánaða EBITDA. Nettó vaxtaberandi skuldir, án leiguskulda, voru 1,0 x 12 mánaða EBITDA.
- Överðtryggður skuldabréfaflokkur, HAGA181024, að upphæð 2.500 m.kr. var gefinn út í október til endurfjármögnunar á skuldabréfaflokki HAGA181021. Skuldabréfaflokkurinn er til 3ja ára en bréfin eru vaxtagreiðslubréf með gjalddaga tvisvar á ári og bera 3,72% fasta vexti. Skuldabréfin voru tekin til viðskipta á Áðalmarkaði Nasdaq Iceland þann 29. desember sl.
5
Fréttatilkynning
- januar 2022
hagar
Sjóðstreymisyflit samstæðunnar
| Fertili ha | 3F 2021/22 3F 2020/21 | 9M 2021/22 9M 2020/21 | ||||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 01.09.20-14 | 01.09.30-14 | Brexting | 01.09.20-14 | 01.09.30-14 | Brexting | % | ||
| Handbært fé frá rekstri | 2.478 | 2.328 | 150 | 6,4% | 7.035 | 5.931 | 1.104 | 18,6% |
| Fjárfestingarhreyfingar | (367) | (794) | 427 | -53,8% | (1.221) | (2.934) | 1.713 | -58,4% |
| Fjármögnunarhreyfingar | (1.006) | (1.050) | 44 | -4,2% | (4.146) | (3.856) | (290) | 7,5% |
| Hækkun (lækkun) á handbæru fé | 1.105 | 484 | 621 | 128,3% | 1.668 | (859) | 2.527 | -294,2% |
| Handbært fé í byrjun tímabils | 951 | 889 | 62 | 7,0% | 388 | 2.232 | (1.844) | -82,6% |
| Handbært fé í lok tímabils | 2.056 | 1.373 | 683 | 49,7% | 2.056 | 1.373 | 683 | 49,7% |
Sjóðstreymi fyrstu níu mánuði rekstrarársins
- Handbært fé frá rekstri á tímabilinu nam 7.035 m.kr., samanborið við 5.931 m.kr. á fyrra ári en breytingu á milli ára má fyrst og fremst rekja til betri afkomu samstæðunnar.
- Fjárfestingarhreyfingar tímabilsins voru 1.221 m.kr., samanborið við 2.934 m.kr. á fyrra ári. Fjárfestingar tímabilsins eru heldur lægri en á fyrra ári þegar fjárfesting í fasteignum, m.a. byggingu á nýju kæli- og frystivöruhúsi Aðfanga, nam 1.694 m.kr. Fjárfesting í áhöldum og innréttingum á tímabilinu nam 1.168 m.kr. sem var að stærstum hluta vegna endurnýjunar Bónus og Hagkaupsverslana.
- Fjármögnunarhreyfingar tímabilsins voru 4.146 m.kr., samanborið við 3.856 m.kr. á fyrra ári. Í júní var greiddur arður til hluthafa, vegna síðastliðins rekstrarárs, að fjárhæð 1.466 m.kr. en á fyrra ári var enginn arður greiddur.
Staðan og framtíðarhorfur
Hagar og dótturfélög þess hafa undanfarin misseri fundið fyrir áhrifum COVID-19 heimsfaraldursins og hefur starfsemin litast af aðgerðum til að takmarka afleiðingar faraldursins og tryggja öryggi starfsfólks, viðskiptavina og annarra samstarfsaðila samstæðunnar. Áhrif faraldursins hafa verið jákvæð á dagvöruhluta samstæðunnar þar sem velta og afkoma hafa heldur aukist. Áhrif á rekstur í eldsneytishluta samstæðunnar hafa hins vegar verið frekar neikvæð, þá sér í lagi á fyrsta ársfjörðungi síðasta rekstrarárs, en velta og afkoma er nú farin að nálgast það sem vænta má í eðlilegra árferði.
Í ljósi aðstæðna þá gekk rekstur á fyrsta ársfjörðungi 2021/22 vel. Samanburður við fyrsta ársfjörðung síðasta rekstrarárs var hagstæður þar sem sá ársfjörðungur varð fyrir höggi þegar gengisfall íslensku krónunnar og lækkun á heimsmarkaðsverði á olíu höfðu mikil áhrif á afkomu Olís og Haga. Rekstrarniðurstaða annars ársfjörðungs var umfram áætlanir og nokkuð betri en á síðasta ári sem m.a. má rekja til sölu eigna tengt rekstri Útilífs. Rekstur á þriðja ársfjörðungi gekk vel með heildarveltu og afkomu tölvert umfram áætlanir og síðasta ár. Gera má ráð fyrir að áhrifa COVID-19 faraldursins gæti á rekstur samstæðunnar fram á næsta rekstrarár. Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið sem nú fer að ljúka gerir ráð fyrir að EBITDA afkoma samstæðunnar verði 10.000-10.500 m.kr.
Fjárhagsleg staða samstæðu Haga hf. er sterk og er félagið vel í stakk búið að takast á við sérstakar aðstæður í íslensku efnahagslífi. Fjármögnun samstæðunnar er að mestu tryggð til langs tíma og er aðgangur tryggður að skammtímafjármögnun í formi lánalína að fjárhæð 4,5 ma.kr. og USD 12,5 millj.
Pann 3. desember sl. undirrituðu Hagar hf. samning um áskrift að hlutafé í fasteignapróunarfélaginu Klasa ehf. en líkt og tilkynnt var þann 24. september sl. undirrituðu Hagar hf., Reginn hf., Klasi ehf. og KLS eignarhaldsfélag ehf. viljayfirlysingu um frekari uppbyggingu og rekstur fasteignapróunarfélagsins Klasa ehf.
Hagar munu greiða fyrir eignarhlut sinn í Klasa með þróunareignum sem ekki eru hluti af kjarnastarfsemi félagsins en eignirnar eru Stekkjarbakki 4-6, Álfabakki 7, Klettagarðar 27, Álfheimar 49, Egilsgata 5, Tjarnarvellir 5 og Nýbýlavegur 1. Framlag Haga í viðskiptunum er metið á rúmlega 3,9 ma. kr. og verður eignarhlutur Haga í Klasa 1/3 af útgefnu hlutafé, líkt og eignarhlutur Regins og KLS eignarhaldsfélags. Verðmæti eigna Klasa eftir viðskiptin
6
Fréttatilkynning
- januar 2022
hagar
verður um 14,8 ma.kr. og eiginfjárhlutfall félagsins í upphafi 79%. Fyrirhuguð viðskipti eru gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins en áreiðanleikakönnunum er nú lokið.
Áhrif af áætlúðum innleystum söluhagnaði eigna Haga, að frádregnum áætlúðum sölukostnaði, á EBITDA afkomu eru um 940 m.kr. og áætlúð jákvæð áhrif á hagnað félagsins eftir skatta eru um 750 m.kr. Óvissa er um hvort fjárhagsleg áhrif komi fram á núlíðandi rekstrarári 2021/22 en endanleg tímasetning viðskiptanna er háð fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.
Hlutafé og hluthafar
- Markaðsvirði Haga í lok tímabilsins nam 75,6 ma. kr. og lokaverð þann 30. nóvember 2021 var 65,5 kr./hlut.
- Skráð hlutafé Haga í lok tímabilsins nam 1.154 m.kr. Félagið átti 7,8 millj. eigin hluti í lok tímabils.
- Þann 3. júní 2021 samþykkti aðalfundur að lækka hlutafé félagsins til ógildingar á eigin hlutum að nafnverði 26,4 m.kr. Lækkunin kom til framkvæmda þann 5. júli 2021 og lækkaði hlutfé Haga því úr 1.181 m.kr. að nafnverði í 1.154 m.kr. að nafnverði.
- Aðalfundur samþykkti einnig að greiddur yrði arður til hluthafa vegna síðastliðins árs sem nemur 1,27 krónum á hlut eða 1.466 m.kr. Arðurinn var greiddur þann 16. júní 2021.
- Stjórn Haga hefur á grundvelli samþykktar aðalfundar frá 3. júní 2021 ákveðið að setja í gang endurkaupaáætlun að fjárhæð 500 m.kr., í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins. Nánar verður tilkynnt um útfærslu endurkaupanna á næstu dögum.
- Hluthafar voru 784 í byrjun rekstrarárs og 910 í lok nóvember. 10 stærstu hluthafar félagsins áttu tæplega 73,7% eignarhlut í félaginu í lok tímabils.
Rafrænn kynningarfundur fimmtudaginn 13. januar 2022
Rafrænn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn fimmtudaginn 13. januar kl. 08:30. Fundinum verður varpað í gegnum netið á vefslóðinni https://vimeo.com/event/1696586/embed/7dfccd7e38 þar sem Finnur Oddsson, forstjóri, og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna rekstur og afkomu félagsins, ásamt því að svara fyrirspurnum.
Tekið verður við spurningum sem tengjast uppgjörinu á meðan á útsendingu stendur á netfangið [email protected] og verður þeim svarað eins og kostur er í lok fundar.
Kynningargögn verða aðgengileg við upphaf fundar á heimasíðu Haga, www.hagar.is.
Fjárhagsdagatal 2021/22
Fjárhagsupplysingar eru birtar eftir lokun markaða.
| Uppgjörstímabil | Vikudagur | Birtingardagur |
|---|---|---|
| 4F – 1. desember til 28. febrúar | Fimmtudagur | 28. apríl 2022 |
| Aðalfundur 2022 | Miðvikudagur | 1. júní 2022 |
Fréttatilkynning þessi og uppgjörsgögn verða aðgengileg á ensku þann 14. janúar á https://www.hagar.is/en/
Press release and financial statements will be available in English on January 14th at https://www.hagar.is/en/
Nánari upplýsingar veita Finnur Oddsson, forstjóri félagsins ([email protected]) og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs ([email protected]), í síma 530-5500 eða tölvupósti.