Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar Interim / Quarterly Report 2022

Jun 30, 2022

2196_rns_2022-06-30_e821254a-0f87-4d93-873c-1f58ad02db91.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

hagar

SAMANDREGINN ÄRSHLUTAREIKNINGUR SAMSTÄEDUNNAR

  1. MARS TIL 31. MAI 2022

Hagar hf. • Holtavegi 10 • 104 Reykjavík • kt: 670203-2120 • hagar.is • 530-5500


EPNISYFIRLIT

Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra ... 3
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu ... 5
Efnahagsreikningur ... 6
Eiginfjáryfirlit ... 7
Sjóostreymisyflit ... 8
Skýringar ... 9

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. mai 2022


SKÝRSLA OG YFIRLÝSING STJÓRNAR OG FORSTJÓRA

Hagar hf. („félagið“) er verslunarfyrirtæki með starfsemi á Íslandi en félagið er leiðandi á íslenskum dagvöru- og eldsneytismarkaði. Í lok tímabilsins starfrækti félagið 38 matvöruverslanir, 25 Olís þjónustustöðvar, 42 ÓB-stöðvar, eina sérvöruverslun, eina birgðaverslun, tvö vöruhús og tvær framleiðslustöðvar. Kjarnastarfsemi Haga er á sviði matvöru og tengdra vöruhúsa, auk eldsneytissölu.

Árshlutareikningur Haga hf. fyrir tímabilið 1. mars til 31. maí 2022 er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34. Árshlutareikningurinn samanstendur af samandregnum samstæðureikningi Haga hf. og dótturfélaga þess, sem vísað er til sem samstæðunnar. Árshlutareikningurinn er hvorki endurskoðaður né kannaður af endurskoðendum félagsins.

Rekstur tímabilsins og fjárhagsleg staða

Samkvæmt rekstrarreikningi og yfirliti um heildarafkomu var hagnaður af rekstri samstæðunnar að fjárhæð 926 millj. kr. (2021/22: 727). Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 2.668 millj. kr. (2021/22: 2.278). Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir samstæðunnar 67.584 millj. kr. (Árslok 2021/22: 65.192). Eigið fé í lok tímabilsins nam 27.152 millj. kr. (Árslok 2021/22: 26.726) og var eiginfjárhlutfall 40,2% (Árslok 2021/22: 41,0%).

Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2022/23 gerir ráð fyrir að rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) verði á bilinu 10.200-10.700 millj. kr. Fjárhagsleg staða samstæðunnar er sterk og er fjármögnun tryggð til langs tíma. Þá er aðgangur að skammtímafjármögnun í formi lánalína, að fjárhæð 4,5 ma. kr. og USD 12,5 millj. einnig tryggður.

Áhrif COVID-19 faraldursins og stríðsátaka í Úkrainu á afkomu og stöðu samstæðunnar

Áhrif vegna COVID-19 heimsfaraldursins á rekstur samstæðunnar hafa breyst og minnkað á fyrsta ársfjörðungi 2022/23 í samanburði við síðustu tvö rekstrarár. Starfsemin er farin að nálgast eðlilegra árferði og litast ekki lengur af sóttvarnaraðgerðum. Ferðalög landsmanna utan hafa aukist og erlendum ferðamönnum á Íslandi fjölgað, sem hefur áhrif á eftirspurn á mörkuðum fyrir dagvöru og eldsneyti. Ýmissa hnökra gætir þó enn í framleiðslu matvöru og í aðfangakeðjunni, bæði vegna eftirstöðva heimsfaraldursins og stríðsátaka í Úkrainu sem hófust í febrúar 2022, sem hefur leitt til hækkunar á verði aðfanga og mögulegs vöruskorts í einstaka vöruflokkum. Hagar munu, eftir sem áður, fylgjast vel með stöðunni og leita allra leiða til að tryggja viðskiptavinum sínum vörur og þjónustu á sem hagkvæmustu verði.

Kaup á nýju hlutafé í Klasa ehf.

Þann 3. desember 2021 undirrituðu Hagar samning um áskrift að hlutafé í fasteignapróunarfélaginu Klasa ehf. en líkt og tilkynnt var þann 24. september 2021 undirrituðu Hagar hf., Reginn hf., Klasi ehf. og KLS eignarhaldsfélag ehf. viljayfirlýsingu um frekari uppbyggingu og rekstur fasteignapróunarfélagsins Klasa ehf. Þann 10. júní 2022 undirrituðu Hagar sátt við Samkeppniseftirlitið vegna kaupanna, með þremur skilyrðum sem Hagar skuldbinda sig til að hlíta. Nánari upplýsingar má finna í skýringu 16.

Hlutafé og hluthafar

Skráð hlutafé félagsins nam í lok tímabilsins 1.154 millj. kr. Hver hlutur er ein króna að nafnverði. Allir hlutir eru í sama flokki og njóta sömu réttinda. Félagið á í lok tímabilsins eigin hluti að nafnverði 21,6 millj. kr.

Hluthafar voru 986 í byrjun tímabilsins og 1.025 í lok þess.

Þann 1. júní 2022 samþykkti aðalfundur félagsins að greiddur yrði arður til hluthafa sem nemur 2,0 krónum á hlut eða um 2.266 millj. kr. Arðurinn var greiddur þann 15. júní 2022. Aðalfundur samþykkti einnig að lækka hlutafé félagsins til ógildingar á eigin hlutum að nafnverði 21,6 millj. kr. og verður skráð hlutafé eftir lækkun því 1.133 millj. kr.

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. maí 2022


SKÝRSLA OG YFIRLÝSING STJÓRNAR OG FORSTJÓRA, FRH.:

Yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Samkvæmt bestu vitneskju stjórnar og forstjóra gefur samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar glögga mynd af rekstrarafkomu samstæðunnar fyrir tímabilið 1. mars til 31. maí 2022, eignum, skuldum og fjárhagsstöðu hennar þann 31. maí 2022 og breytingum á handbæru fé á tímabilinu, í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu.

Jafnframt er það álit stjórnar og forstjóra að árshlutareikningurinn og skýrsla stjórnar og forstjóra geymi glöggt yfirlit um þróun og árangur í rekstri samstæðunnar, stöðu hennar, og lýsi helstu áhættupáttum og óvissu sem samstæðan býr við.

Stjórn og forstjóri Haga hf. hafa í dag farið yfir árshlutareikning samstæðunnar fyrir tímabilið 1. mars til 31. maí 2022 og staðfesta hann með undirritun sinni.

Árshlutareikningurinn er undirritaður með rafrænum hætti í samræmi við lög nr. 55/2019, um rafræna auðkenningu og traustþjónustu fyrir rafræn viðskipti.

Reykjavík, 30. júní 2022

Stjórn:

Davíð Harðarson, formaður

Eva Bryndís Helgadóttir, varaformaður Eiríkur S. Jóhannsson, meðstjórnandi
Jensína Kristín Böðvarsdóttir, meðstjórnandi Sigríður Olgeirsdóttir, meðstjórnandi

Forstjóri:

Finnur Oddsson

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. maí 2022


REKSTRARREIKNINGUR OG YFIRLIT UM HEILDARAFKOMU

1. MARS 2022 TIL 31. MAÍ 2022

2022 2021
Skýr. 1.3.-31.5. 1.3.-31.5.
Vörusala 38.213 32.034
Kostnaðarverð seldra vara ( 30.649) ( 25.185)
Framlegð 7.564 6.849
Aðrar rekstrartekjur 202 104
Hagnaður af sölú dótturfélags 0 80
Laun og launatengd gjöld ( 3.443) ( 3.250)
Annar rekstrarkostnaður ( 1.655) ( 1.505)
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir 2.668 2.278
Afskriftir 7 ( 1.021) ( 1.005)
Rekstrarhagnaður 1.647 1.273
Fjármunatekjur 8 7
Fjármagnsgjöld ( 552) ( 397)
Hrein fjármagnsgjöld 8 ( 544) ( 390)
Áhrif hlutdeildarfélaga 44 31
Hagnaður fyrir tekjuskatt 1.147 914
Tekjuskattur ( 221) ( 187)
Heildarhagnaður tímabilsins 926 727
Skipting hagnaðar
Hluthafar móðurfélags 926 717
Hlutdeild minnihluta 0 10
926 727
Hagnaður á hlut
Grunnhagnaður á hlut 0,82 0,63
Þynntur hagnaður á hlut 0,81 0,63
Starfsþáttayfirlit, skýring 18

Skýringar á blaðsíðum 9 til 14 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárs hlutareikningnum.

Samandreginn árs hlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. maí 2022

Fjárhæðir eru í milljónum króna


EFNAHAGSREIKNINGUR 31. MAI 2022

Skýr. 31.5.2022 28.2.2022
Eignir
Rekstrarfjármunir 21.180 21.215
Fjárfestingarfasteignir 3.468 3.474
Óefnislegar eignir 10.776 10.723
Leigueignir 13 8.572 8.151
Eignarhlutir í hlutdeildarfélögum 1.486 1.443
Eignarhlutir í öðrum félögum 40 40
Skuldabréfaeign 17 18
Fastafjármunir samtals 45.539 45.064
Vörubirgðir 9 12.235 10.707
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 10 5.258 4.871
Viðskiptakröfur - greiðslukortakröfur 10 951 1.379
Handbært fé 1.213 783
Veltufjármunir samtals 19.657 17.740
Eignir til sölu 2.388 2.388
Eignir samtals 67.584 65.192
Eigið fé
Hlutafé 1.133 1.139
Yfirverðsreikningur hlutafjár 653 1.147
Lögbundinn varasjóður 285 285
Bundnir eiginfjárreikningar 6.466 5.286
Óráðstafað eigið fé 18.615 18.869
Eigið fé samtals 27.152 26.726
Skuldir
Vaxtaberandi langtímaskuldir 12 11.789 11.720
Leiguskuldir 13 7.250 6.918
Tekjuskattsskuldbinding 2.657 2.312
Langtímaskuldir samtals 21.696 20.950
Vaxtaberandi skammtímaskuldir 11 449 451
Tekjuskattur til greiðslu 843 770
Leiguskuldir 13 2.067 1.966
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir 12 15.377 14.329
Skammtímaskuldir samtals 18.736 17.516
Skuldir samtals 40.432 38.466
Eigið fé og skuldir samtals 67.584 65.192

Aðrar upplýsingar, skýringar 14-17

Skýringar á blaðsiðum 9 til 14 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárs hlutareikningnum.

Samandreginn árs hlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. mai 2022

Fjárhæðir eru í milljónum króna


EIGINFJÁRYFIRLIT

1. MARS 2022 TIL 31. MAÍ 2022

Hlutafé Yfirverðs-reikningur hlutafjár Lög-bundinn varasjóður Bundinn hlutdeildar-reikningur Bundinn eiginfjár-reikningur Óráðstafað eigið fé Samtals Hlutdeild minnih luta Eigið fé samtals
Breytingar á eigin fé 1. mars til 31. maí 2022
Eigið fé 1. mars 2022 1.139 1.147 285 5.274 12 18.869 26.726 0 26.726
Endurkaup á eigin bréfum ( 6 ) ( 494 ) ( 500 ) ( 500 )
Heildarhagnaður tímabilsins 926 926 926
Flutt á bundinn hlutdeildarreikning 1.180 ( 1.180 ) 0 0
Eigið fé 31. maí 2022 1.133 653 285 6.454 12 18.615 27.152 0 27.152
Breytingar á eigin fé 1. mars til 31. maí 2021
Eigið fé 1. mars 2021 1.154 2.132 289 4.433 0 17.181 25.189 ( 2 ) 25.187
Heildarhagnaður tímabilsins 717 717 10 727
Flutt á bundinn hlutdeildarreikning 824 ( 824 ) 0 0
Hlutdeild minnih luta við sölu á dótturfélagi 0 ( 8 ) ( 8 )
Eigið fé 31. maí 2021 1.154 2.132 289 5.257 0 17.074 25.906 0 25.906

Þann 1. júní 2022 sambykkti aðalfundur félagsins að greiddur yrði arður til hluthafa sem nemur 2,0 krónum á hlut eða um 2.266 millj. kr. Arðurinn var greiddur þann 15. júní 2022. Aðalfundur sambykkti einnig að lækka hlutafé félagsins til ógildingar á eigin hlutum að nafnverði 21,6 millj. kr. og verður skráð hlutafé eftir lækkun því 1.133 millj. kr.

Skýringar á blaðsíðum 9 til 14 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárshlutareikningnum.

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. maí 2022

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SJÓBSTREYMISYFIRLIT

1. MARS 2022 TIL 31. MAÍ 2022

2022 2021
Skýr. 1.3.-31.5. 1.3.-31.5.
Rekstrarhreyfingar
Hagnaður tímabilsins 926 727
Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi:
Söluhagnaður rekstrarfjármuna ( 68) ( 136)
Afskriftir 7 1.021 1.005
Hrein fjármagnsgjöld 8 544 390
Áhrif hlutdeildarfélaga ( 44) ( 31)
Tekjuskattur 221 187
Veltufé frá rekstri 2.600 2.142
Breytingar á rekstrartengdum eignum ( 1.600) ( 652)
Breytingar á rekstrartengdum skuldum 1.459 1.470
Handbært fé fyrir vexti og tekjuskatt 2.459 2.960
Innheimtar vaxtatekjur 5 7
Greidd vaxtagjöld ( 346) ( 277)
Greiddur tekjuskattur ( 148) ( 183)
Handbært fé frá rekstri 1.970 2.507
Fjárfestingarhreyfingar
Fjárfesting í fasteignum ( 25) ( 49)
Fjárfesting í fjárfestingarfasteignum 0 ( 33)
Fjárfesting í áhöldum og innréttingum ( 479) ( 489)
Fjárfesting í óefnislegum eignum ( 112) ( 15)
Söluverð fasteigna 70 0
Söluverð áhalda og innréttinga 40 24
Skuldabréfaeign, breyting 2 ( 17)
Seldur eignarhlutur í dótturfélagi 0 141
Fjárfestingarhreyfingar ( 504) ( 438)
Fjármögnunarhreyfingar
Afborganir langtímalána ( 125) ( 114)
Breyting á lánalínu 0 ( 601)
Keypt eigin bréf ( 500) 0
Leiguskuld afborganir 13 ( 411) ( 411)
Fjármögnunarhreyfingar ( 1.036) ( 1.126)
Hækkun á handbæru fé 430 943
Handbært fé í upphafi tímabils 783 388
Handbært fé í lok tímabils 1.213 1.331

Skýringar á blaðsíðum 9 til 14 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárs hlutareikningnum.

Samandreginn árs hlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. maí 2022

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKYRINGAR

  1. Félagið

Hagar hf. („félagið“) er íslenskt hlutafélag og er lögheimili þess að Holtavegi 10, Reykjavík. Samstæðuárshlutareikningur félagsins fyrir tímabilið 1. mars til 31. maí 2022 hefur að geyma árshlutareikning félagsins og dótturfélaga þess, sem vísað er til í heild sinni sem „samstæðunnar“ og til einstakra félaga sem „samstæðufélaga“. Aðalstarfsemi félagsins er rekstur smásöluverslana og tengdra vöruhúsa, ásamt sölu á eldsneyti. Í skýringu 14 er greint frá félögum í samstæðunni.

  1. Grundvöllur reikningsskilanna

Yfirlýsing um að alþjóðlegum reikningsskilastöðlum sé fylgt

Árshlutareikningur samstæðunnar er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal (IFRS) um árshlutareikninga, IAS 34, eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu. Samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar inniheldur ekki allar þær upplýsingar sem krafist er í fullbúnum ársreikningi og ætti að lesa í samhengi við ársreikning samstæðunnar fyrir rekstrarárið sem endaði þann 28. febrúar 2022.

Stjórn félagsins staðfesti árshlutareikninginn þann 30. júní 2022.

  1. Mikilvægar reikningsskilaðferðir

Við gerð árshlutareikningsins er beitt sömu reikningsskilaðferðum og beitt var við gerð ársreiknings samstæðunnar fyrir rekstrarárið sem endaði þann 28. febrúar 2022. Hægt er að nálgast ársreikninginn á vef félagsins, www.hagar.is.

Árshlutareikningurinn er birtur í íslenskum krónum, sem er starfrækslugjaldmiðill félagsins. Allar fjárhæðir eru birtur í milljónum króna.

  1. Mat og ákvarðanir

Gerð samstæðuárshlutareiknings í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og gefi sér forsendur sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaðferða og birtur fjárhæðir eigna, skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að verða frábrugðnar þessu mati.

  1. Starfsþáttayfirlit

Starfsþættir samstæðunnar eru tveir, verslanir og vöruhús annars vegar og Olís hins vegar. Starfsemi verslana og vöruhúsa, þ.e. rekstur þeirra félaga sem mynduðu samstæðuna fyrir samruna Haga og Olís, er nær eingöngu í smásölurekstri matvöru á Íslandi. Stjórnendur hafa hingað til metið smásöluverslun eftir mismunandi tegundum verslana og landsvæðum og líta svo á að hún byggist á sambærilegum efnahagslegum einkennum, vörum, viðskiptavinum og birgjum. Heildsölurekstur matvöru og smásölurekstur sérvöru er óverulegur og undir þeim tekju-, hagnaðar- og eignamörkum sem hafa ber til viðmiðunar við gerð starfsþáttayfirlits samstæðunnar. Starfsemi Olís er að stærstum hluta í sölu eldsneytis og þjónustu sem því tengist.

Starfsþáttayfirlitið má finna í skýringu 18.

  1. Viðskiptavild

Engar vísbendingar voru um virðisrýrnun viðskiptavildar þann 31. maí 2022 og vegna þess var virðisrýrnunarpróf ekki framkvæmt.

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. maí 2022

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKYRINGAR, FRH.:

7. Afskriftir 2022 2021
Afskriftir greinast pannig: 1.3-31.5. 1.3-31.5.
Afskriftir rekstrarfjármuna 501 510
Afskriftir fjárfestingarfasteigna 20 24
Afskriftir leigueigna 425 414
Afskriftir óefnislegra eigna 41 24
Hlutdeild í afskriftum Olludreifingar ehf. 34 33
Afskriftir samtals 1.021 1.005
  1. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld
    Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld greinast pannig:
Vaxtatekjur af innstæðum og kröfum 8 7
Fjármunatekjur samtals 8 7
Vaxtagjöld og verðbætur ( 391) ( 257)
Vaxtagjöld leiguskuldar ( 123) ( 122)
Gengistap ( 38) ( 18)
Fjármagnsgjöld samtals ( 552) ( 397)
Hrein fjármagnsgjöld ( 544) ( 390)
  1. Vörubirgðir
Vörubirgðir greinast pannig: 31.5.2022 28.2.2022
Matvara 5.003 5.115
Sérvara 2.171 1.885
Eldsneyti 4.546 3.316
Vörur í flutningi 515 391
Vörubirgðir samtals 12.235 10.707
Niðurfærsla birgða í lok tímabils 294 258
  1. Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur
    Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur greinast pannig:
Viðskiptakröfur 5.247 4.877
Niðurfærsla viðskiptakrafna ( 303) ( 273)
Aðrar skammtímakröfur 314 267
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 5.258 4.871
Greiðslukortakröfur 951 1.379
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur samtals 6.209 6.250

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. mai 2022

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKYRINGAR, FRH.:

  1. Vaxtaberandi skuldir
Vaxtaberandi skuldir greinast pannig:
Vegið meðaltal vaxta Eftirstöðvar Eftirstöðvar
31.5.2022 28.2.2022 31.5.2022 28.2.2022
Skuldir í ISK, óverðtryggðar 4,45% 3,80% 6.499 6.569
Skuldir í ISK, verðtryggðar 2,80% 2,80% 5.739 5.602
Vaxtaberandi skuldir, þ.m.t. næsta árs afborgun . 12.238 12.171
Næsta árs afborganir vaxtaberandi skulda ( 449 ) ( 451 )
Langtímaskuldir samtals 11.789 11.720
Afborganir langtímalána greinast pannig á næstu ár:
Afborganir innan árs 449 451
Afborganir eftir 1 til 2 ár 455 457
Afborganir eftir 2 til 3 ár 2.948 2.949
Afborganir eftir 3 til 4 ár 453 452
Afborganir eftir 4 til 5 ár 460 458
Afborganir síðar 7.473 7.404
Samtals 12.238 12.171

Gangvirði fjáreigna og fjárskulda er jafnt bókfærðu virði þeirra.

  1. Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir greinast pannig: 31.5.2022 28.2.2022
Viðskiptaskuldir 12.871 11.227
Aðrar skammtímaskuldir 2.506 3.102
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir samtals 15.377 14.329
  1. IFRS 16 Leigusamningar

Leigueignir og leiguskuldir samstæðunnar sem leigutaka eru eingöngu vegna húsnæðis. Leigueignir og leiguskuldir vegna lóðaleigusamninga eru ekki færðar. Við útreikning fjárhæða leigueigna og leiguskulda var lagt mat á leigutíma og vexti á nýju lánsfé enda var ekki unnt að ákvarða innbyggða vexti í leigusamningum með áreiðanlegum hætti. Vegnir meðalvextir voru ákvarðaðir 5,45%. Við mat á leigutíma er horft til samningstíma, að teknu tilliti til áforma stjórnenda.

Leigueignir greinast pannig frá upphafi til loka tímabilisins: 31.5.2022 28.2.2022
Leigueignir í upphafi tímabils 8.151 8.255
Nýir samningar á tímabilinu 573 1.442
Verðbætur á tímabilinu 273 463
Afskriftir á tímabilinu ( 425) ( 1.587)
Aðrar breytingar samninga á tímabilinu 0 ( 422)
Leigueignir í lok tímabils 8.572 8.151

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. mai 2022

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKÝRINGAR, FRH.:

  1. IFRS 16 Leigusamningar, frh.:
Leiguskuldir greinast pannig frá upphafi til loka tímabilsins: 31.5.2022 28.2.2022
Leiguskuldir í upphafi tímabils 8.884 9.029
Nýir samningar á tímabilinu 573 1.442
Afborgunarbáttur leigugreiðslna ( 411) ( 1.627)
Verðbætur á tímabilinu 273 462
Aðrar breytingar samninga á tímabilinu ( 2) ( 422)
Leiguskuldir í lok tímabils 9.317 8.884

Afborganir leiguskulda greinast pannig á næstu ár:

Afborganir innan árs 2.067 1.966
Afborganir síðar 7.250 6.918
Samtals 9.317 8.884

Heildarleigugreiðslur sem tengjast þeim leigusamningum sem færðir eru samkvæmt leigustaðli IFRS 16 námu 535 millj. kr. (2021/22: 533 millj. kr.).

  1. Félög í samstæðu

Dótturfélög í samstæðu Haga hf. voru sex í lok tímabilsins. Dótturfélögin eru eftirfarandi:

Staðsetning Eignarhlutur
31.5.2022 28.2.2022
Hagar verslanir ehf. Ísland 100% 100%
Olís ehf. Ísland 100% 100%
Bananar ehf. Ísland 100% 100%
Noron ehf. Ísland 100% 100%
Stórkaup ehf. Ísland 100% 100%
Mjöll Frigg ehf. Ísland 100% 100%

Mjöll Frigg ehf. er dótturfélag Olís.

  1. Tengdir aðilar

Tengdir aðilar félagsins eru stórir hluthafar í félaginu, hlutdeildarfélög þess, lykilstjórnendur og stjórnarmenn. Viðskipti á milli félagsins og dótturfélaga þess, sem eru skilgreind sem tengdir aðilar, hafa verið færð út í samstæðureikningsskilum og eru ekki hluti af þessari skýringu.

Viðskipti við tengda aðila 2022 2021
Viðskipti við tengda aðila greinast pannig: 1.3.-31.5. 1.3.-31.5.
Seldar vörur og þjónusta 64 29
Keyptar vörur og þjónusta ( 486) ( 346)
Viðskiptakröfur í lok tímabils 1 1
Viðskiptaskuldir í lok tímabils ( 108) ( 152)

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. mai 2022

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKÝRINGAR, FRH.:

  1. Kaup á nýju hlutafé í Klasa ehf.

Þann 3. desember 2021 undirrituðu Hagar samning um áskrift að hlutafé í fasteignaþróunarfélaginu Klasa ehf. en líkt og tilkynnt var þann 24. september 2021 undirrituðu Hagar hf., Reginn hf., Klasi ehf. og KLS eignarhaldsfélag ehf. viljayfirlýsingu um frekari uppbyggingu og rekstur fasteignaþróunarfélagsins Klasa ehf. Þann 10. júní 2022 undirrituðu Hagar sátt við Samkeppniseftirlitið vegna kaupanna, með þremur skilyrðum sem Hagar skuldbinda sig til að hlíta.

Samruninn kemur til framkvæmda á næstu víkum. Gert er ráð fyrir að fjárhagsleg áhrif viðskiptanna komi fram á 2. ársfjörðungi 2022/23, en áættuð áhrif af innleystum sóluhagnaði eigna, að frádregnum áættuðum sólukostnaði, á EBITDA afkomu eru um 940 millj. kr. og áættuð jákvæð áhrif á hagnað félagsins eftir skatta eru um 750 millj. kr.

  1. Kennitölur

Helstu kennitölur samstæðunnar eru eftirfarandi:

2022 2021
Rekstur 1.3-31.5. 1.3-31.5.
Rekstrarhagnaðarhlutfall (rekstrarhagnaður fyrir afskriftir / vörusölu) 7,0% 7,1%
Launahlutfall (laun og launatengd gjöld / vörusölu) 9,0% 10,1%
Kostnaðarhlutfall (annar rekstrarkostnaður / vörusölu) 4,3% 4,7%
Veltuhraði birgða (kostnaðarverð seldra vara / meðalbirgðastaða) 10,6 11,2
Innheimtutími viðskiptakrafna í dögum 11,5 10,8
Efnahagur 31.5.2022 28.2.2022
Veltufjárhlutfall (veltufjármunir / skammtímaskuldir) 1,18 1,15
Lausafjárhlutfall ((veltufjármunir-birgðir) / skammtímaskuldir) 0,52 0,54
Skuldsetning (nettó vaxtaberandi skuldir / rekstrarhagnaður fyrir afskriftir) 1,86 1,90
Eiginfjárhlutfall (eigið fé / heildareignir) 40,2% 41,0%
Innra virði hlutafjár (eigið fé / hlutafé) 23,96 23,46

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. mai 2022

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKYRINGAR, FRH.:

18. Starfsbøttayfirlit

Fyrsti årsfjöröungur 2022/23 Verslanir og vöruhús Olís ehf. Jöfnunar-færslur Samtals
Vörusala 24.668 13.794 ( 249) 38.213
Aðrar rekstrartekjur 120 82 0 202
Heildartekjur starfsbøtta 24.788 13.876 ( 249) 38.415
Heildarreestrargjöld starfsbøtta ( 22.920) ( 13.076) 249 ( 35.747)
EBITDA starfsbøtta 1.868 800 0 2.668
Afskriftir starfsbøtta ( 825) ( 196) 0 ( 1.021)
Áhrif hlutdeildarfélaga 17 27 0 44
Rekstrarafkoma starfsbøtta 1.060 631 0 1.691
Hrein fjármagnsgjöld ( 432) ( 112) 0 ( 544)
Tekjuskattur ( 221)
Hagnaður tímabilsins 926
31. mai 2022
Eignir starfsbøtta 47.193 20.391 0 67.584
Eignir samtals 67.584
Skuldir starfsbøtta 29.771 10.661 0 40.432
Skuldir samtals 40.432
Fjárfestingar starfsbøtta (nettó) 502 4 0 506
Fyrsti årsfjöröungur 2021/22 Verslanir og vöruhús Olís ehf. Jöfnunar-færslur Samtals
--- --- --- --- ---
Vörusala 23.338 8.750 ( 54) 32.034
Aðrar rekstrartekjur 174 12 ( 2) 184
Heildartekjur starfsbøtta 23.512 8.762 ( 56) 32.218
Heildarreestrargjöld starfsbøtta ( 21.529) ( 8.467) 56 ( 29.940)
EBITDA starfsbøtta 1.983 295 0 2.278
Afskriftir starfsbøtta ( 791) ( 214) 0 ( 1.005)
Áhrif hlutdeildarfélaga 0 31 0 31
Rekstrarafkoma starfsbøtta 1.192 112 0 1.304
Hrein fjármagnsgjöld ( 333) ( 57) 0 ( 390)
Tekjuskattur ( 187)
Tap tímabilsins 727

31. mai 2021

Eignir starfsbøtta 45.011 17.856 0 62.867
Eignir samtals 62.867
Skuldir starfsbøtta 27.857 9.104 0 36.961
Skuldir samtals 36.961
Fjárfestingar starfsbøtta (nettó) 437 125 0 562

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. mai 2022

Fjárhæðir eru í milfjónum króna