Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar Interim / Quarterly Report 2022

Jun 30, 2022

2196_rns_2022-06-30_e834e146-2dbd-4d03-a492-5b2f77533c87.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

Fréttatilkynning

  1. júní 2022

hagar

VÖRUSALA Á 1F JÓKST UM 19% OG HAGNABUR NAM 926 M.KR

Uppgjör Haga hf. á 1. ársfjórðungi 2022/23

Árshlutareikningur Haga hf. fyrir fyrsta ársfjórðung 2022/23 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 30. júní 2022. Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars til 31. maí 2022. Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Reikningurinn hefur hvorki verið kannaður né endurskoðaður af endurskoðendum félagsins, PricewaterhouseCoopers ehf.

Helstu lykiltölur

  • Vörusala 1F nam 38.213 m.kr. (19,3% vöxtur frá 1F 2021/22). [1F 2021/22: 32.034 m.kr.]
  • Framlegð 1F nam 7.564 m.kr. (19,8%). [1F 2021/22: 6.849 m.kr. (21,4%)]
  • Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) 1F nam 2.668 m.kr. eða 7,0% af veltu. [1F 2021/22: 2.278 m.kr. (7,1%)]
  • Hagnaður 1F nam 926 m.kr. eða 2,4% af veltu. [1F 2021/22: 727 m.kr. (2,3%)]
  • Grunnhagnaður á hlut 1F var 0,82 kr. [1F 2021/22: 0,63 kr.]. Þynntur hagnaður á hlut 1F var 0,81 kr. [1F 2021/22: 0,63 kr.]
  • Eigið fé nam 27.152 m.kr. í lok tímabils og eiginfjárhlutfall 40,2%. [Árslok 2021/22: 26.726 m.kr. og 41,0%]
  • Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2022/23 var nýlega uppfærð og gerir ráð fyrir að EBITDA verði 10.200-10.700 m.kr., án áhrifa vegna viðskipta með Klasa.

Helstu fréttir af starfsemi

  • Rekstur á fyrsta ársfjórðungi gekk vel, með 19% veltuaukningu milli ára og heildarhagnaði 27% yfir fyrra ári.
  • Seldum stykkjum í dagvöruverslunum fjölgar milli ára og heimsóknum viðskiptavina fjölgar auk þess um rúm 10% á fjórðungnum. Magnaukning í eldsneytislítrum á 1F er rúm 17%.
  • Framlegð í krónum talið eykst um 10,4% milli ára en framlegðarhlutfallið lækkar um 1,6%-stig, einkum vegna aukinnar sölu eldsneytis til stórnotenda og hækkunar á heimsmarkaðsverði.
  • Lengri afgreiðslutími verslana Bónus skilar áfram fjölgun viðskiptavina og aukinni sölu.
  • Áhrif COVID-19 hafa minnkað en ýmissa hnökra gætir í framleiðslu matvöru og í aðfangakeðjunni, vegna eftirstöðva farsóttar og vegna stríðsátaka í Úkrainu – hefur leitt til hækkandi aðfangaverðs og aukið líkur á vöruskorti einstaka vöruflokka.
  • Í mars 2022 var gengið frá samningum um kaup Haga á öllu hlutfé í Eldum rétt ehf. Kaupin eru háð samþykki SE.
  • Í júní 2022 undirrituðu Hagar sát við Samkeppniseftirlitið vegna kaupa félagsins á nýju hlutafé í Klasa ehf.

Fréttatilkynning

  1. júní 2022

hagar

Finnur Oddsson, forstjóri:

Starfsemi Haga á fyrsta fjórðungi rekstrarársins 2022/23 gekk heilt yfir vel og einkenndist m.a. af áframhaldandi tekjuvexti og ágætri afkomu. Vörusala jókst um 19% miðað við sama tímabil á fyrra ári og nam 38,2 ma. kr. EBITDA nam 2.668 m.kr. og hagnaður var 926 m.kr.

Eftirstöðvar COVID-19 og stríðsátök í Úkrainu höfðu nokkur áhrif á reksturinn og skýra hækkanir aðfangaverðs, bæði í dagvöru og eldsneyti, og tekjuvöxt að einhverju leyti. Bætta afkomu Haga á milli fjórðunga má að stórum hluta rekja til starfsemi Olís sem skilaði umtalsvert betri afkomu en í fyrra. Þar raungerist ávinningur vegna nokkurra þátta, þ.e. hagræðingar í rekstri Olís á síðustu misserum, breyttum áherslum í rekstri þjónustustöðva, fjölgun erlendra ferðamanna og mikið auknum umsvifum hjá stórnotendum, m.a. í útgerð og ferðapjónustu. Framlegð vörusölu hjá Olís jókst í krónum talið í takti við aukið magn, en lækkar sem hlutfall af tekjum. Helstu áhrifapættir eru mikil hækkan á heimsmarkaðsverði oliu og umtalsverð söluaukning til stórnotenda.

Tekjur vegna sölu á dagvöru í Bónus og Hagkaup jukust um tæp 6% á fjórðungnum, seldum stykkjum fjölgaði lítillega og heimsóknum viðskiptavina töluvert. Tekjuaukningu má að hluta rekja til aukningar hjá Bónus og að hluta til hærra vöruverðs, en verð á aðfögum frá framleiðendum og birgjum hélt áfram að hækka á fjórðungnum, af fyrrgreindum ástæðum. Afkoma í dagvörusölu var svipuð á milli ára.

Vinna við breyttar áherslur í starfsemi Haga hélt áfram á fjórðungnum og gekk vel. Þar má m.a. nefna breytingar á vörumerki Olís og umbreytingu á starfsemi smásölusviðs, einföldun á fyrirtækjasviði Olís og stofnun nýrrar rekstrareiningar, Stórkaups, í maí. Nýjar áherslur og lengri opnunartími hjá Bónus hafa einnig gefist vel, náðu til fleiri verslana og endurspeglast ágætlega í nýrri og glæsilegri verslun sem opnuð var á Akureyri í maí. Kaup Haga á hlut í Klasa voru samþykkt af Samkeppniseftirlitinu, en kaupin eru liður í því að auka fókus stjórnenda Haga í sölu á dagvöru og eldsneyti og treysta um leið verðmætasköpun á grunni þróunareigna félagsins. Gengið var frá samningum um kaup Haga á Eldum rétt ehf., sem einkum eru hugsuð til að bregðast við breyttum neysluvenjum og aukinni áherslu á hollar og einfaldar lausnir fyrir viðskiptavini. Vinnu við stafræn verkefni miðar vel, annars vegar til að tryggja betur grunnrekstur upplýsingakerfa og hins vegar til að efla þjónustu við viðskiptavini, m.a. með áframhaldandi þróun netverslana fyrir Hagkaup og Stórkaup.

Við erum ánægð með árangur Haga á þessum fyrsta fjórðungi rekstrarársins. Heilt yfir þá gekk vel og eins og síðustu fjórðunga þá njótum við nú góðs af aðgerðum til að auka skilvirkni rekstrar. Vegna hækkani aðfangaverðs sem meðal annars hlyst af átökum í Úkrainu er ljóst að það eru ögrandi tímar framundan í smásölu. Sem fyrr verður okkar mikilvægasta viðfangsefni að tryggja framboð á nauðsynjum og gæta sérstaklega að hagkvæmni í allri okkar starfsemi, einkum til að vega upp á móti verðhækkunum á nauðsynjum sem nú gætir bæði hérldis og erlendis.

Nýlega uppfærð afkomuspá gerir ráð fyrir að EBITDA samstæðunnar á yfirstandandi rekstrarári verði á bilinu 10.200 – 10.700 m.kr., án áhrifa vegna viðskipta með Klasa.


Fréttatilkynning

  1. júní 2022

hagar

Rekstrarreikningur samstæðunnar

I mill. kr. 1F 2022/23 1F 2021/22 Breyting Breyting %
01.03-31.05 01.03-31.05
Vörusala 38.213 32.034 6.179 19,3%
Kostnaðarverð seldra vara (30.649) (25.185) (5.464) 21,7%
Framlegð 7.564 6.849 715 10,4%
Framlegð % 19,8% 21,4% - -1,6%
Aðrar rekstrartekjur 202 184 18 9,8%
Laun og launatengd gjöld (3.443) (3.250) (193) 5,9%
Annar rekstrarkostnaður (1.655) (1.505) (150) 10,0%
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) 2.668 2.278 390 17,1%
EBITDA % 7,0% 7,1% - -0,1%
Afskriftir (1.021) (1.005) (16) 1,6%
Rekstrarhagnaður (EBIT) 1.647 1.273 374 29,4%
Hrein fjármagnsgjöld (544) (390) (154) 39,5%
Áhrif hlutdeildarfélaga 44 31 13 41,9%
Hagnaður fyrir tekjuskatt 1.147 914 233 25,5%
Tekjuskattur (221) (187) (34) 18,2%
Heildarhagnaður 926 727 199 27,4%
Skipting hagnaðar
Hlutdeild móðurfélags 926 717 209 29,1%
Hlutdeild minnihluta - 10 (10) -
926 727 199 27,4%

Rekstur á fyrsta ársfjörðungi 2022/23

Vörusala á 1F rekstrarársins nam 38.213 m.kr., samanborið við 32.034 m.kr. árið áður. Söluaukning milli ára nam 19,3%. Söluaukning verslana og vöruhúsa nam 5,7% og söluaukning hjá Olís nam 57,6%.

Fjöldi seldra stykkja í matvöruverslunum jókst um 1,6% og heimsóknum viðskiptavina fjölgaði um 10,3%. Magnaukning á 1F í eldsneytislítrum hjá Olís var 17,2%.

Framlegð samstæðunnar var 7.564 m.kr., samanborið við 6.849 m.kr. árið áður, eða aukning sem nemur 10,4%. Framlegðarhlutfall lækkáði hins vegar og var 19,8% í samanborið við 21,4% á fyrra ári. Framlegð í krónum talið á 1F eykst einkum vegna aukinnar magnsölu eldsneytis til stórnotenda hjá Olís, sem skýrir þó einnig lækkandi framlegðarhlutfall.

Launakostnaður hækkáði um 5,9% milli ára en launahlutfallið lækkar úr 10,1% í 9,0% á ársfjörðungnum.

Annar rekstrarkostnaður hækkáði um 10,0% milli ára en kostnaðarhlutfallið er 4,3% í samanborið við 4,7% árið áður. Aukinn rekstrarkostnaður skýrist einna helst af vinnu við uppfærslu vörumerkja Haga, hækkun eldsneytiskostnaðar og vísitölutengdum kostnaði líkt og húsaleigu.

Afkoma fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA) nam 2.668 m.kr., samanborið við 2.278 m.kr. árið áður. EBITDA-hlutfall var 7,0%, samanborið við 7,1% á fyrra ári. EBITDA verslana og vöruhúsa lækkar um 5,8% milli ára en EBITDA Olís hækkar um 171,2%, eða úr 295 m.kr. í 800 m.kr.

Heildarhagnaður tímabilsins nam 926 m.kr., sem jafngildir 2,4% af veltu en heildarhagnaður á fyrra ári var 727 m.kr. eða 2,3% af veltu.


Fréttatilkynning

  1. júní 2022

hagar

Efnahagsreikningur samstæðunnar

í millj. kr. 31.05.2022 28.02.2022 Breyting Breyting %
Eignir
Fastafjármunir 45.539 45.064 475 1,1%
Veltufjármunir 19.657 17.740 1.917 10,8%
Eignir til sölu 2.388 2.388
Eignir samtals 67.584 65.192 2.392 3,7%
Eigið fé og skuldir
Hlutafé 1.133 1.139 (6) -0,5%
Annað eigið fé 26.019 25.587 432 1,7%
Eigið fé samtals 27.152 26.726 426 1,6%
Langtímaskuldir 21.696 20.950 746 3,6%
Vaxtaberandi skammtímaskuldir 449 451 (2) -0,4%
Aðrar skammtímaskuldir 18.287 17.065 1.222 7,2%
Skuldir samtals 40.432 38.466 1.966 5,1%
Eigið fé og skuldir samtals 67.584 65.192 2.392 3,7%

Lykiltölur efnahags 31.05.2022

  • Heildareignir samstæðunnar í lok tímabils námu 67.584 m.kr. og hækkuðu um 2.392 m.kr. frá árslokum 2021/22.
  • Fastafjármunir voru 45.539 m.kr. og hækkuðu um 475 m.kr. frá árslokum 2021/22.
  • Veltufjármunir, að meðtöldum eignum til sölu, voru 22.045 m.kr. og hækkuðu um 1.917 m.kr. frá árslokum 2021/22.
  • Birgðir í lok ársfjórðungs voru 12.235 m.kr. og veltuhraði birgða 10,6. Birgðir hafa hækkað um 3.245 m.kr. frá lokum 1F 2021/22 en hækkuð birgða má nær alfarið rekja til hærri eldsneytisbirgða, sem orsakast af mikilli hækkuð á eldsneytisverði milli ára og meiri umsvífum. Veltuhraði birgða á fyrra ári var 11,2. Birgðir hafa hækkað um 1.528 m.kr. frá árslokum 2021/22, af sömu ástæðu og rakin er hér á undan.
  • Víðskiptakröfur lækka um 41 m.kr. á tímabilinu og er innheimtutími víðskiptakrafna nú 11,5 dagar samanborið við 10,8 daga á fyrra ári.
  • Veltufjárhlutfall er 1,18 og lausafjárhlutfall 0,52 í lok ársfjórðungs. Aðgangur að skammtímafjármögnun í formi lánalína að upphæð 6,2 ma. kr. hjá víðskiptabanka er tryggður.
  • Eigið fé í lok tímabilsins var 27.152 m.kr. og eiginfjárhlutfall 40,2%. Arðsemi eigin fjár var 16,2%. Eiginfjárhlutfall við lok síðasta rekstrarárs var 41,0% og arðsemi eigin fjár 15,9%. Félagið átti 21,6 millj. eigin hluti í lok tímabilsins.
  • Heildarskuldir samstæðunnar í lok fyrsta ársfjórðungs voru 40.432 m.kr. en þar af voru vaxtaberandi skuldir 12.238 m.kr. og leiguskuldir 9.317 m.kr. Nettó vaxtaberandi skuldir, með leiguskuldum, í lok tímabils voru 20.342 m.kr. eða 1,9 x 12 mánaða EBITDA. Nettó vaxtaberandi skuldir, án leiguskulda, voru 1,0 x 12 mánaða EBITDA.

Fréttatilkynning

  1. júní 2022

hagar

Sjóðstreymisyfirlit samstæðunnar

| í millj. kr. | 1F 2022/23
01.03-31.05 | 1F 2021/22
01.03-31.05 | Breyting | Breyting % |
| --- | --- | --- | --- | --- |
| Handbært fé frá rekstri | 1.970 | 2.507 | (537) | -21,4% |
| Fjárfestingarhreýfingar | (504) | (438) | (66) | 15,1% |
| Fjármögnunarhreýfingar | (1.036) | (1.126) | 90 | -8,0% |
| Hækkun á handbæru fé | 430 | 943 | (513) | -54,4% |
| Handbært fé í byrjun tímabils | 783 | 388 | 395 | 101,8% |
| Handbært fé í lok tímabils | 1.213 | 1.331 | (118) | -8,9% |

Sjóðstreymi fyrstu þrjá mánuði rekstrarársins 2022/23

  • Handbært fé frá rekstri á fyrsta ársfjórðungi nam 1.970 m.kr., samanborið við 2.507 m.kr. á fyrra ári en lækkun á handbæru fé milli ára má m.a. rekja til hækkandi birgðastöðu þar sem eldsneytisverð pr. liter hefur hækkað mikið undanfarna mánuði.
  • Fjárfestingarhreýfingar tímabilsins voru 504 m.kr., samanborið við 438 m.kr. á fyrra ári. Fjárfesting í áhöldum og innréttingum nam 479 m.kr. á fjórðungnum sem m.a. er vegna opnunar nýrrar verslunar Bónus á Norðurtorgi á Akureyri og endurnýjun þjónustustöðva Olís.
  • Fjármögnunarhreýfingar tímabilsins voru 1.036 m.kr., samanborið við 1.126 m.kr. á fyrra ári.

Staðan og framtíðarhorfur

Áhrif vegna COVID-19 heimsfaraldursins á rekstur samstæðunnar hafa breyst og minnkað á fyrsta ársfjórðungi 2022/23 í samanburði við síðustu tvö rekstrarár. Starfsemin er farin að nálgast eðlilegra árferði og litast ekki lengur af sóttvarnaraðgerðum. Ferðalög landsmanna utan hafa aukist og erlendum ferðamönnum á Íslandi fjölgað, sem hefur áhrif á eftirspurn á mörkuðum fyrir dagvöru og eldsneyti. Ýmissa hnökra gætir þó enn í framleiðslu matvöru og í aðfangakeðjunni, bæði vegna eftirstöðva heimsfaraldursins og stríðsátaka í Úkrainu sem hófust í febrúar 2022, sem hefur leitt til hækkunar á verði aðfanga og mögulegs vöruskorts í einstaka vöruflokkum. Hagar munu, eftir sem áður, fylgjast vel með stöðunni og leita allra leiða til að tryggja viðskiptavinum sínum vörur og þjónustu á sem hagkvæmustu verði.

Nýlega uppfærð afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2022/23 gerir ráð fyrir að rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) verði á bilinu 10.200-10.700 millj. kr., án áhrifa vegna viðskipta með Klasa. Fjárhagsleg staða samstæðunnar er sterk og er fjármögnun tryggð til langs tíma. Þá er aðgangur að skammtímafjármögnun í formi lánalína, að fjárhæð 4,5 ma. kr. og USD 12,5 millj. einnig tryggður.

Þann 10. júní 2022 undirrituðu Hagar sátt við Samkeppniseftirlitið vegna kaupa félagsins á nýju hlutafé í fasteignapróunarfélaginu Klasa ehf. Sáttin inniheldur þrjú skilyrði sem Hagar skuldbinda sig til að hlíta. Samruninn kemur til framkvæmda á næstu víkum. Gert er ráð fyrir að fjárhagsleg áhrif viðskiptanna komi fram á 2. ársfjórðungi 2022/23, en áætluð áhrif af innleystum söluhagnaði eigna, að frádregnum áætluðum sölukostnaði, á EBITDA afkomu eru um 940 millj. kr. og áætluð áhrif á hagnað félagsins eftir skatta eru um 750 millj. kr.

5


Fréttatilkynning

  1. júní 2022

hagar

Hlutafé og hluthafar

  • Markaðsvirði Haga í lok tímabilsins nam 80,2 ma. kr. og lokaverð þann 31. maí 2022 var 69,5 kr./hlut.
  • Skráð hlutafé Haga í lok tímabilsins nam 1.154 m.kr. Félagið átti 21,6 millj. eigin hluti í lok tímabils.
  • Þann 1. júní 2022 samþykkti aðalfundur að lækka hlutafé félagsins til ógildingar á eigin hlutum að nafnverði 21,6 m.kr. Lækkunin kom til framkvæmda þann 23. júní 2022 og lækkaði hlutfé Haga því úr 1.154 m.kr. að nafnverði í 1.133 m.kr. að nafnverði.
  • Aðalfundur samþykkti einnig að greiddur yrði arður til hluthafa vegna síðastliðins árs sem nam 2,00 krónum á hlut eða 2.266 m.kr. Arðurinn var greiddur þann 15. júní 2022.
  • Stjórn Haga hefur á grundvelli samþykktar aðalfundar frá 1. júní 2022 ákveðið að setja í gang endurkaupaáætlun að fjárhæð 500 m.kr. í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins. Nánar verður tilkynnt um útfærslu endurkaupanna á næstu dögum.
  • Hluthafar voru 986 í byrjun tímabils og 1.025 í lok þess. 10 stærstu hluthafar félagsins áttu 73,1% eignarhlut í félaginu í lok ársfjórðungs.

Rafrænn kynningarfundur föstudaginn 1. júli 2022

Rafrænn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn föstudaginn 1. júli kl. 8:30. Fundinum verður varpað í gegnum netið, þar sem Finnur Oddsson, forstjóri, og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna rekstur og afkomu félagsins ásamt því að svara fyrirspurnum.

Tekið verður við spurningum sem tengjast uppgjörinu á meðan á útsendingu stendur á netfangið [email protected] og verður þeim svarað eins og kostur er í lok fundar.

Fundinum verður streymt og er skráning á fundinn hér: https://www.hagar.is/skraning

Kynningargögn verða aðgengileg á heimasíðu Haga, www.hagar.is, við upphaf fundar.

Fjárhagsdagatal 2022/23

Fjárhagsupplysingar eru birtar eftir lokun markaða.

Uppgjörstímabil Vikudagur Birtingardagur
2F – 1. mars til 31. ágúst Miðvikudagur 19. október 2022
3F – 1. mars til 30. nóvember Miðvikudagur 11. janúar 2023
4F – 1. mars til 28. febrúar Fimmtudagur 27. apríl 2023
Aðalfundur 2023 Fimmtudagur 1. júní 2023

Fréttatilkynning þessi og uppgjörsgögn verða aðgengileg á ensku þann 4. júli á https://www.hagar.is/en/

Press release and financial statements will be available in English on July 4th at https://www.hagar.is/en/

Nánari upplýsingar veita Finnur Oddsson, forstjóri félagsins ([email protected]), og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs ([email protected]), í síma 530-5500 eða tölvupósti.