Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar Interim / Quarterly Report 2022

Oct 19, 2022

2196_rns_2022-10-19_0f315cf7-a483-4a7f-bdf5-bbce4f5a998e.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

hagar

SAMANDREGINN ÁRSHLUTAREIKNINGUR SAMSTÆDUNNAR
1. MARS TIL 31. ÁGÚST 2022

BÓNUS
HAGKAUP
olis
Sommer 2022
ZARA
STÓR KAUP

Hagar hf. • Holtavegi 10 • 104 Reykjavík • kt: 670203-2120 • hagar.is • 530-5500


Sarnandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. ágúst 2022

EFNISYFIRLIT

Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra ... 3
Könnunaráritun óháðs endurskoðanda ... 5
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu ... 6
Efnahagsreikningur ... 7
Eiginfjáryfirlit ... 8
Sjóðstreymisyflit ... 9
Skýringar ... 10

Sarnandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. ágúst 2022


SKÝRSLA OG YFIRLÝSING STJÓRNAR OG FORSTJÓRA

Hagar hf. („félagið“) er verslunarfyrirtæki með starfsemi á Íslandi en félagið er leiðandi á íslenskum matvöru-, sérvöru- og eldsneytismarkaði. Í lok tímabilsins starfrækti félagið 38 matvöruverslanir, 25 Olís þjónustustöðvar, 42 ÓB-stöðvar, tvö vöruhús, eina framleiðslustöð, eina birgðaverslun og eina sérvöruverslun. Kjarnastarfsemi Haga er á sviði matvöru og tengdra vöruhúsa, auk eldsneytissölu.

Árshlutareikningur Haga hf. fyrir tímabilið 1. mars til 31. ágúst 2022 er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34. Árshlutareikningurinn samanstendur af samandregnum samstæðureikningi Haga hf. og dótturfélaga þess, sem vísað er til sem samstæðunnar.

Rekstur tímabilsins og fjárhagsleg staða

Samkvæmt rekstrarreikningi og yfirliti um heildarafkomu var hagnaður af rekstri samstæðunnar að fjárhæð 3.304 millj. kr. (2021/22: 2.436). Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir samstæðunnar 70.081 millj. kr. (Árslok 2021/22: 65.192). Eigið fé í lok tímabilsins nam 26.786 millj. kr. (Árslok 2021/22: 26.726) og var eiginfjárhlutfall 38,2% (Árslok 2021/22: 41,0%).

Segja má að starfsemi samstæðunnar sé komin í eðlilegra horf í samanburði við síðustu tvö rekstrarár, þar sem áhrif COVID-19 heimsfaraldursins hafa farið dvínandi. Ferðalög landsmanna utan hafa aukist og erlendum ferðamönnum á Íslandi hefur fjölgað, sem hefur áhrif á eftirspurn á mörkuðum fyrir dagvöru og eldsneyti. Hnökra gætir þó enn í framleiðslu matvöru og í aðfangakeðjunni, bæði vegna eftirstöðva heimsfaraldursins og stríðsátaka í Úkrainu, sem hefur leitt til hækkunar á verði aðfanga, aukinnar verðbólgu og hærra vaxtastigs. Hagar munu, eftir sem áður, reyna að sporna við hækkandi vöruverði til neytenda og leggja þannig sitt af mörkum til að halda niðri verðbólgu og tryggja viðskiptavinum sínum vörur og þjónustu á sem hagkvæmasta verði.

Afkomuspá stjórnenda gerir ráð fyrir að rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) samstæðu Haga fyrir rekstrarárið 2022/23 verði á bilinu 10.200-10.700 millj. kr., ef frá eru talin áhrif sem tengjast sölu á eignum til Klasa. Áhrif þeirra viðskipta á EBITDA samstæðunnar eru um 966 millj. kr. Nánari upplýsingar má finna í skýringu 17. Fjárhagsleg staða samstæðu Haga hf. er sterk og er félagið vel í stakk búið að takast á við ögrandi aðstæður í íslensku efnahagslífi. Fjármögnun samstæðunnar er að mestu tryggð til langs tíma og er aðgangur tryggður að skammtímafjármögnun í formi lánalína að fjárhæð 4,5 ma. kr. og USD 12,5 millj.

Kaup á nýju hlutafé í Klasa ehf.

Þann 3. desember 2021 undirrituðu Hagar samning um áskrift að hlutafé í fasteignaþróunarfélaginu Klasa ehf. en samruninn kom til framkvæmda í lok 2. ársfjórðungs, þann 31. ágúst 2022. Fjárhagsleg áhrif viðskiptanna koma fram á tímabilinu, þ.e. á 2. ársfjórðungi. Nánari upplýsingar má finna í skýringu 17.

Kaup á Eldum rétt ehf.

Í mars 2022 náðu Hagar samkomulagi við eigendur Eldum rétt ehf. um kaup Haga á öllu hlutafé Eldum rétt ehf. Kaupin voru gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins sem samþykkti samrunann þann 17. október 2022. Gert er ráð fyrir að Hagar taki við rekstri félagsins þann 31. október nk. Nánari upplýsingar má finna í skýringu 19.

Hlutafé og hluthafar

Skráð hlutafé félagsins nam í lok tímabilsins 1.133 millj. kr. Hver hlutur er ein króna að nafnverði. Allir hlutir eru í sama flokki og njóta sömu réttinda. Félagið á í lok tímabilsins eigin hluti að nafnverði 7,0 millj. kr.

Hluthafar voru 986 í byrjun rekstrarársins og 1.044 í lok ágúst 2022.

Þann 1. júní 2022 samþykkti aðalfundur félagsins að greiddur yrði arður til hluthafa vegna síðastliðins árs sem nemur 2,0 krónum á hlut eða 2.265 millj. kr. Arðurinn var greiddur þann 15. júní 2022. Aðalfundur samþykkti einnig að lækka hlutafé félagsins til ógildingar á eigin hlutum að nafnverði 21,6 millj. kr. Lækkunin kom til framkvæmda þann 21. júní 2022 og lækkaði hlutafé Haga því úr 1.154 millj. kr. að nafnverði í 1.133 millj. kr. að nafnverði.

Samandregnin árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. ágúst 2022


SKÝRSLA OG YFIRLÝSING STJÓRNAR OG FORSTJÓRA, FRH.:

Yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Samkvæmt bestu vitneskju stjórnar og forstjóra gefur samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar glögga mynd af rekstrarafkomu samstæðunnar fyrir tímabilið 1. mars til 31. ágúst 2022, eignum, skuldum og fjárhagsstöðu hennar þann 31. ágúst 2022 og breytingum á handbæru fé á tímabilinu, í samræmi við alpjóðlegan reikningsskilastaðal, IAS 34, eins og hann hefur verið staðfestur af Evrópusambandinu.

Jafnframt er það álit stjórnar og forstjóra að árshlutareikningurinn og skýrsla stjórnar og forstjóra geymi glöggt yfirlit um þróun og árangur í rekstri samstæðunnar, stöðu hennar, og lýsi helstu áhættupáttum og óvissu sem samstæðan býr við.

Stjórn og forstjóri Haga hf. hafa í dag farið yfir árshlutareikning samstæðunnar fyrir tímabilið 1. mars til 31. ágúst 2022 og staðfesta hann með undirritun sinni.

Ársreikningurinn er undirritaður með rafrænum hætti í samræmi við lög nr. 55/2019, um rafræna auðkenningu og traustþjónustu um rafræn viðskipti.

Reykjavík, 19. október 2022

Stjórn:

Davíð Harðarson, formaður

Eva Bryndís Helgadóttir, varaformaður

Eiríkur S. Jóhannsson, meðstjórnandi

Jensína Kristín Böðvarsdóttir, meðstjórnandi

Sigríður Olgeirsdóttir, meðstjórnandi

Forstjóri:

Finnur Oddsson

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. ágúst 2022


KÖNNUNARÁRITUN ÓHÁBS ENDURSKOBANDA

Til stjórnar og hluthafa Haga hf.

Inngangur

Við höfum kannað meðfylgjandi samandreginn árshlutareikning samstæðu Haga hf. fyrir tímabilið 1. mars til 31. ágúst 2022. Samandregni árshlutareikningurinn hefur að geyma skýrslu og yfirlýsingu stjórnar og forstjóra, rekstrarreikning og yfirlit um heildarafkomu, efnahagsreikning, eiginfjáryfirlit, sjóðstreymisyflit, upplýsingar um mikilvægar reikningsskilaðferðir og aðrar skýringar. Stjórnendur eru ábyrgir fyrir gerð og framsetningu samandregna árshlutareikningsins í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal IAS 34, eins og hann hefur verið sambykktur af Evrópusambandinu. Ábyrgð okkar felst í þeirri ályktun sem af könnun okkar leiðir.

Umfang könnunar

Könnun okkar var unnin í samræmi við alþjóðlegan staðal ISRE 2410, sem fjallar um könnun óháðs endurskoðanda á árshlutareikningum. Slik könnun felur í sér fyrirspurnir, einkum til starfsmanna sem eru ábyrgir fyrir fjármálum og reikningsskilum félagsins ásamt greiningum á hinum ýmsu liðum reikningsskilanna og öðrum könnunaraðgerðum. Könnun felur ekki í sér jafn viðtækar aðgerðir og endurskoðun sem unnin er í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla og er því ekki víst að við fáum vitneskju um öll mikilvæg atriði sem gætu komið í ljós við endurskoðun. Þar af leiðandi látum við ekki í ljós álit um endurskoðun.

Ályktun

Við könnun okkar kom ekkert fram sem bendir til annars en að meðfylgjandi samandreginn árshlutareikningur sé í öllum meginatriðum gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal IAS 34, eins og hann hefur verið sambykktur af Evrópusambandinu.

Reykjavík, 19. október 2022

PricewaterhouseCoopers ehf.

Bryndís Björk Guðjónsdóttir

Vignir Rafn Gíslason

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. ágúst 2022


REKSTRARREIKNINGUR OG YFIRLIT UM HEILDARAFKOMU

1. MARS TIL 31. ÁGÚST 2022

Skýr. Annar ársfjörðungur* Fyrri árshelmingur
2022 2021 2022 2021
1.6.-31.8. 1.6.-31.8. 1.3.-31.8. 1.3.-31.8.
Vörusala 43.399 34.885 81.612 66.919
Kostnaðarverð seldra vara ( 35.016) ( 27.501) ( 65.665) ( 52.686)
Framlegð 8.383 7.384 15.947 14.233
Aðrar rekstrartekjur 147 125 349 229
Hagnaður af sölu eigna 17 882 269 882 349
Laun og launatengd gjöld ( 3.438) ( 3.182) ( 6.881) ( 6.432)
Annar rekstrarkostnaður ( 1.605) ( 1.333) ( 3.260) ( 2.838)
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir 4.369 3.263 7.037 5.541
Afskriftir 7 ( 1.099) ( 897) ( 2.120) ( 1.902)
Rekstrarhagnaður 3.270 2.366 4.917 3.639
Hrein fjármagnsgjöld 8 ( 426) ( 341) ( 970) ( 731)
Áhrif hlutdeildarfélaga 94 90 138 121
Hagnaður fyrir tekjuskatt 2.938 2.115 4.085 3.029
Tekjuskattur ( 560) ( 406) ( 781) ( 593)
Heildarhagnaður tímabilsins 2.378 1.709 3.304 2.436
Skipting hagnaðar:
Hluthafar móðurfélags 2.378 1.709 3.304 2.426
Hlutdeild minnihluta 0 0 0 10
2.378 1.709 3.304 2.436
Hagnaður á hlut:
Grunnhagnaður á hlut 2,10 1,48 2,92 2,11
Þynntur hagnaður á hlut 2,03 1,47 2,84 2,10

Starfsþáttayfirlit, skýring ... 20

Skýringar á blaðsíðum 10 til 15 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárs hlutareikningnum.

  • Ekki kannað

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. ágúst 2022

Fjárhæðir eru í milljónum króna


EFNAHAGSREIKNINGUR 31. ÁGÚST 2022

Skýr. 31.8.2022 28.2.2022
Eignir
Rekstrarfjármunir 20.981 21.215
Fjárfestingarfasteignir 3.437 3.474
Óefnislegar eignir 10.722 10.723
Leigueignir 13 8.478 8.151
Eignarhlutir í hlutdeildarfélögum 17 4.810 1.443
Eignarhlutir í öðrum félögum 40 40
Skuldabréfaeign 16 18
Fastafjármunir samtals 48.484 45.064
Vörubirgðir 9 12.419 10.707
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 10 7.083 6.250
Handbært fé 2.095 783
Veltufjármunir samtals 21.597 17.740
Eignir til sölu 17 0 2.388
Eignir samtals 70.081 65.192
Eigið fé
Hlutafé 1.126 1.139
Yfirverðsreikningur hlutafjár 160 1.147
Lögbundinn varasjóður 283 285
Bundnir eiginfjárreikningar 5.184 5.286
Óráðstafað eigið fé 20.033 18.869
Eigið fé samtals 26.786 26.726
Skuldir
Vaxtaberandi langtímaskuldir 11 11.879 11.720
Leiguskuldir 13 7.169 6.918
Tekjuskattsskuldbinding 2.495 2.312
Langtímaskuldir samtals 21.543 20.950
Vaxtaberandi skammtímaskuldir 11 448 451
Skuldir við lánastofinanir 11 1.746 0
Leiguskuldir 13 2.065 1.966
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir 12 17.493 15.099
Skammtímaskuldir samtals 21.752 17.516
Skuldir samtals 43.295 38.466
Eigið fé og skuldir samtals 70.081 65.192

Aðrar upplýsingar, skýringar 14-16,18-19

Skýringar á blaðsiðum 10 til 15 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárshlutareikningnum.

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. ágúst 2022

Fjárhæðir eru í milljónum króna


EIGINFJÁRYFIRLIT

1. MARS TIL 31. ÁGÚST 2022

Hlutafé Yfirverös-reikningur hlutafjár Lög-bundinn varasjóður Bundinn hlutdeildar-reikningur Bundinn eiginfjár-reikningur Óráðstafað eigið fé Samtals Hlutdeild minnih luta Eigið fé samtals
Breytingar á eigin fé 1. mars til 31. ágúst 2022
Eigið fé 1. mars 2022 1.139 1.147 285 5.274 12 18.869 26.726 0 26.726
Endurkaup á eigin bréfum - ógild* ( 6 ) ( 494 ) ( 500 ) ( 500 )
Endurkaup á eigin bréfum ( 7 ) ( 493 ) ( 500 ) ( 500 )
Heildarhagnaður tímabilsins 3.304 3.304 3.304
Breyting á varasjóð ( 2 ) 2 0 0
Áfallinn kostnaður vegna kaupréttarsamninga .. 21 21 21
Flutt af bundnum hlutdeildarreikningi ( 123 ) 123 0 0
Greiddur arður, 2,00 kr. á hlut ( 2.265 ) ( 2.265 ) ( 2.265 )
Eigið fé 31. ágúst 2022 1.126 160 283 5.151 33 20.033 26.786 0 26.786
Breytingar á eigin fé 1. mars til 31. ágúst 2021
Eigið fé 1. mars 2021 1.154 2.132 289 4.433 0 17.181 25.189 ( 2 ) 25.187
Heildarhagnaður tímabilsins 2.426 2.426 10 2.436
Flutt af bundnum hlutdeildarreikningi ( 1.125 ) 1.125 0 0
Áfallinn kostnaður vegna kaupréttarsamninga .. 12 12 12
Hlutdeild minnih luta við sölu á dótturfélagi 0 ( 8 ) ( 8 )
Greiddur arður, 1,27 kr. á hlut ( 1.466 ) ( 1.466 ) ( 1.466 )
Eigið fé 31. ágúst 2021 1.154 2.132 289 3.308 12 19.266 26.161 0 26.161

Þann 1. júní 2022 samþykkti aðalfundur félagsins að greiddur yrði arður til hluthafa sem nemur 2,0 krónum á hlut. Arðurinn var greiddur þann 15. júní 2022.

*Aðalfundur samþykkti einnig að lækka hlutafé félagsins til ógildingar á eigin hlutum að nafnverði 21,6 millj. kr. og er skráð hlutafé eftir lækkun því 1.133 millj. kr. og eigin bréf samtals 7,0 millj. kr. í lok tímabilsins.

Skýringar á blaðsíðum 10 til 15 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðúárshlutareikningnum.

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. ágúst 2022

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SJÖBSTREYMISYFIRLIT

1. MARS TIL 31. ÁGÚST 2022

Skýr. Annar ársfjöröungur* Fyrri árshelmingur
2022 2021 2022 2021
Rekstrarhreyfingar
Hagnaður tímabilsins 2.378 1.709 3.304 2.436
Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi: (Söluhagnaður) -tap (926) 5 (994) (131)
Afskriftir 7 1.099 897 2.120 1.902
Hrein fjármagnsgjöld 8 426 341 970 731
Áhrif hlutdeildarfélaga (94) (90) (138) (121)
Tekjuskattur 560 406 781 593
Aðrir liðir 35 12 35 12
Veltufé frá rekstri 3.478 3.280 6.078 5.422
Breytingar á rekstrartengdum eignum (1.466) (1.322) (3.066) (1.974)
Breytingar á rekstrartengdum skuldum 1.273 558 2.732 2.028
Handbært fé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt 3.285 2.516 5.744 5.476
Innheimtar vaxtatekjur (1) 7 4 14
Greidd vaxtagjöld (350) (323) (696) (600)
Greiddur tekjuskattur (149) (150) (297) (333)
Handbært fé frá rekstri 2.785 2.050 4.755 4.557
Fjárfestingarhreyfingar
Fjárfesting í rekstrarfjármunum (488) (374) (992) (912)
Fjárfesting í fjárfestingarfasteignum 0 (41) 0 (74)
Fjárfesting í óefnislegum eignum (91) (29) (203) (44)
Söluverð rekstrarfjármuna 4 60 114 84
Fjárfesting í hlutdeildarfélögum 0 (156) 0 (156)
Móttekinn arður frá hlutdeildarfélögum 174 124 174 124
Seldur eignarhlutur í dótturfélagi 17 50 0 50 141
Skuldabréfaeign, breyting (2) 0 0 (17)
Fjárfestingarhreyfingar (353) (416) (857) (854)
Fjármögnunarhreyfingar
Keypt eigin bréf (500) 0 (1.000) 0
Greiddur arður (2.265) (1.466) (2.265) (1.466)
Afborganir langtímalána (101) (124) (226) (238)
Breyting á lánalínu 1.747 0 1.747 (601)
Leiguskuld afborganir 13 (431) (424) (842) (835)
Fjármögnunarhreyfingar (1.550) (2.014) (2.586) (3.140)
Hækkun (lækkun) á handbæru fé 882 (380) 1.312 563
Handbært fé í upphafi tímabils 1.213 1.331 783 388
Handbært fé í lok tímabils 2.095 951 2.095 951
Fjárfestingarhreyfingar án greiðsluáhrífa 17
Söluverð fasteigna 3.403 0 3.403 0
Fjárfesting í hlutdeildarfélögum (3.403) 0 (3.403) 0

Skýringar á blaðsiðum 10 til 15 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárs hlutareikningnum.

  • Ekki kannað

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. ágúst 2022

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKYRINGAR

  1. Félagið

Hagar hf. („félagið“) er íslensk hlutafélag og er lögheimili þess að Holtavegi 10, Reykjavík. Samstæðuárshlutareikningur félagsins fyrir tímabilið 1. mars 2022 til 31. ágúst 2022 hefur að geyma samstæðu árshlutareikning félagsins og dótturfélaga þess, sem vísað er til í heild sinni sem „samstæðunnar“ og til einstakra félaga sem „samstæðufélaga“. Aðalstarfsemi félagsins er rekstur smásöluverslana og sala á eldsneyti. Yfirlit yfir félög í samstæðunni má finna í skýringu 14.

  1. Grundvöllur reikningsskilanna

Yfirlýsing um að alþjóðlegum reikningsskilastöðlum sé fylgt

Samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastöðal um árshlutareikninga IAS 34 eins og hann hefur verið staðfestur af Evrópusambandinu. Samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar inniheldur ekki allar þær upplýsingar sem krafist er í fullbúnum ársreikningi og ætti að lesa í samhengi við ársreikning samstæðunnar fyrir rekstrarárið sem endaði þann 28. febrúar 2022.

Stjórn félagsins staðfesti árshlutareikninginn þann 19. október 2022.

  1. Mikilvægar reikningsskilaðferðir

Við gerð árshlutareikningsins er beitt sömu reikningsskilaðferðum og beitt var við gerð ársreiknings samstæðunnar fyrir árið sem lauk í febrúar 2022. Hægt er að nálgast ársreikninginn á vef félagsins, www.hagar.is.

Árshlutareikningurinn er gerður í íslenskum krónum, sem er starfrækslugjaldmiðill félagsins, og eru fjárhæðir birtar í milljónum króna.

  1. Mat og ákvarðanir

Gerð samstæðuárshlutareiknings í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastöða krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og gefi sér forsendur sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaðferða og birtar fjárhæðir eigna, skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að vera frábrögðnar þessu mati.

  1. Starfsþáttayfirlit

Starfsþættir samstæðunnar eru tveir, verslanir og vöruhús annars vegar og Olís hins vegar. Starfsemi verslana og vöruhúsa er nær eingöngu í smásölurekstri matvöru á Íslandi. Stjórnendur hafa hingað til metið smásöluverslun eftir mismunandi tegundum verslana og landsvæðum og líta svo á að hún byggist á sambærilegum efnahagslegum einkennum, vörum, viðskiptavinum og birgjum. Heildsölurekstur matvöru og smásölurekstur sérvöru er óverulegur og undir þeim tekju-, hagnaðar- og eignamörkum sem hafa ber til viðmiðunar við gerð starfsþáttayfirlits. Starfsemi Olís er að stærstum hluta í sölu eldsneytis og þjónustu sem því tengist.

Starfsþáttayfirlitið má finna í skýringu 20.

  1. Viðskiptavild

Engar vísbendingar voru um virðisrýrnun viðskiptavildar þann 31. ágúst 2022 og vegna þess var virðisrýrnunarpróf ekki framkvæmt.

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. ágúst 2022

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKYRINGAR, FRH.:

7. Afskriftir 2022 2021 2022 2021
Afskriftir greinast pannig: 1.6.-31.8. 1.6.-31.8. 1.3.-31.8. 1.3.-31.8.
Afskriftir rekstrarfjármuna 563 479 1.064 989
Afskriftir fjärfestingarfasteigna 18 23 38 47
Afskriftir leigueigna 440 319 865 733
Afskriftir öefnislegra eigna 55 43 96 67
Hlutdeild í afskriftum Oliudreifingar ehf. 23 33 57 66
Afskriftir samtals 1.099 897 2.120 1.902
  1. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld

Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld greinast pannig:

Vaxtatekjur af innstæðum og kröfum 0 7 8 14
Vaxtagjöld og verðbætur ( 459) ( 237) ( 850) ( 494)
Vaxtagjöld leiguskuldar ( 124) ( 112) ( 247) ( 234)
Fjármagnsgjöld samtals ( 583) ( 349) ( 1.097) ( 728)
Gengismunur 157 1 119 ( 17)
Hrein fjármagnsgjöld ( 426 ) ( 341 ) ( 970 ) ( 731 )
  1. Vörubirgðir

Vörubirgðir greinast pannig:

Matvara 5.046 5.115

Sérvara 2.093 1.885

Eldsneyti 4.714 3.316

Vörur í flutningi 566 391

Vörubirgðir samtals 12.419 10.707

Niðurfærsla birgða í lok tímabils 302 285

  1. Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur

Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur greinast pannig:

Viðskiptakröfur 6.151 4.877
Niðurfærsla viðskiptakrafna ( 261) ( 273)
Greiðslukortakröfur 725 1.379
Aðrar skammtímakröfur 430 231
Næsta árs afborgun skuldabréfaeignar 38 36
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur samtals 7.083 6.250

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. ágúst 2022

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKÝRINGAR, FRH.:

  1. Vaxtaberandi skuldir
Vaxtaberandi skuldir greinast þannig: Vegið meðaltal vaxta Eftirstöðvar Eftirstöðvar
31.8.2022 28.2.2022 31.8.2022 28.2.2022
Skuldir í ISK, óverðtryggðar 5,49% 3,80% 6.447 6.569
Skuldir í ISK, verðtryggðar 2,80% 2,80% 5.880 5.602
Lánalína 5,87% - 1.746 0
Vaxtaberandi sk, þ.m.t. næsta árs afborgun 14.073 12.171
Næsta árs afborganir vaxtaberandi skulda ( 2.194 ) ( 451 )
Langtímaskuldir samtals 11.879 11.720

Afborganir langtímalána greinast þannig á næstu ár:

Afborganir innan árs 2.194 451
Afborganir eftir 1 til 2 ár 2.941 457
Afborganir eftir 2 til 3 ár 439 2.949
Afborganir eftir 3 til 4 ár 446 452
Afborganir eftir 4 til 5 ár 454 458
Afborganir síðar 7.599 7.404
Samtals 14.073 12.171

Gangvirði fjáreigna og fjárskulda er jafnt bókfærðu virði þeirra.

  1. Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir greinast þannig: 31.8.2022 28.2.2022
Viðskiptaskuldir 13.779 11.227
Aðrar skammtímaskuldir 2.407 3.102
Tekjuskattur til greiðslu 1.307 770
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir samtals 17.493 15.099
  1. Leigueignir og leiguskuldir

Leigueignir og leiguskuldir samstæðunnar sem leigutaka eru eingöngu vegna húsnæðis. Leigueignir og leiguskuldir vegna lóðaleigusamninga eru ekki færðar.

Leigueignir greinast þannig frá upphafi til loka tímabilsins: 31.8.2022 28.2.2022
Leigueignir í upphafi tímabils 8.151 8.255
Nýir samningar á tímabilinu 595 1.442
Verðbætur á tímabilinu 592 463
Afskriftir tímabilsins ( 865) ( 1.587)
Aðrar breytingar samninga á tímabilinu 5 ( 422)
Leigueignir í lok tímabils 8.478 8.151

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. ágúst 2022

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKYRINGAR, FRH.:

  1. Leigueignir og leiguskuldir, frh.:
Leiguskuldir greinast pannig frá upphafi til loka tímabilsins: 31.8.2022 28.2.2022
Leiguskuldir í upphafi tímabils 8.884 9.029
Nýir samningar á tímabilinu 595 1.442
Afborgunarpáttur leigugreiðslna ( 842) ( 1.627)
Verðbætur á tímabilinu 592 462
Aðrar breytingar samninga á tímabilinu 5 ( 422)
Leiguskuldir í lok tímabils 9.234 8.884

Afborganir leiguskulda greinast pannig á næstu ár:

Afborganir innan árs 2.065 1.966
Afborganir eftir 1 til 2 ár 1.637 1.449
Afborganir eftir 2 til 3 ár 1.471 1.086
Afborganir eftir 3 til 4 ár 1.306 990
Afborganir eftir 4 til 5 ár 874 859
Afborganir síðar 1.881 2.534
Samtals 9.234 8.884

Heildarleigugreiðslur sem tengjast þeim leigusamningum sem færðir eru samkvæmt leigustaðli IFRS 16 námu 1.089 millj. kr. á tímabilinu (2021/22: 1.070 millj. kr.). Vaxtagreiðslur sem tengjast leigusamningum eru færðir til gjalda samanber skýringu 8.

  1. Félög í samstæðu

Dótturfélög í samstæðu Haga hf. voru fimm í lok tímabilsins en sex í upphafi þess. Dótturfélögin eru eftirfarandi:

Staðsetning Eignarhlutur
31.8.2022 28.2.2022
Hagar verslanir ehf. Ísland 100% 100%
Olís ehf. Ísland 100% 100%
Bananar ehf. Ísland 100% 100%
Noron ehf. Ísland 100% 100%
Stórkaup ehf. Ísland 100% 100%
Mjöll Frigg ehf. Ísland - 100%

Mjöll Frigg ehf., dótturfélag Olís ehf., var selt 1. ágúst 2022 og er ekki hluti af samstæðunni frá þeim tíma.

  1. Tengdir aðilar

Tengdir aðilar félagsins eru stórir hluthafar í félaginu, hlutdeildarfélög þess, lykilstjórnendur og stjórnarmenn. Viðskipti á milli félagsins og dótturfélaga þess, sem eru skilgreind sem tengdir aðilar, hafa verið færð út í samstæðureikningsskilum og eru ekki hluti af þessari skýringu.

Viðskipti við tengda aðila 2022 2021
Viðskipti við tengda aðila greinast pannig: 1.3.-31.8. 1.3.-31.8.
Seldar vörur og þjónusta 93 74
Keyptar vörur og þjónusta 996 775
Viðskiptakröfur í lok tímabils 2 1
Viðskiptaskuldir í lok tímabils 113 126

Samandreginn árslutareikningur samstæðu Haga hf. 31. ágúst 2022

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKYRINGAR, FRH.:

16. Kennitölur

Helstu kennitölur samstæðunnar eru eftirfarandi:

2022 2021
Rekstur 1.3.-31.8. 1.3.-31.8.
Hagnaðarhlutfall (rekstrarhagnaður fyrir afskriftir / vörusölu) 8,6% 8,3%
Launahlutfall (laun og launatengd gjöld / vörusölu) 8,4% 9,6%
Kostnaðarhlutfall (annar rekstrarkostnaður / vörusölu) 4,0% 4,2%
Veltuhraði birgða (kostnaðarverð seldra vara / meðalbirgðastaða) 10,8 11,0
Innheimtutími viðskiptakrafna í dögum 12,0 11,4
Efnahagur 31.8.2022 28.2.2022
Veltufjárhlutfall (veltufjármunir / skammtímaskuldir) 0,99 1,01
Lausafjárhlutfall ((veltufjármunir-birgðir) / skammtímaskuldir) 0,42 0,40
Skuldsetning (nettó vaxtaberandi skuldir / rekstrarhagnaður fyrir afskriftir) 1,77 2,28
Eiginfjárhlutfall (eigið fé / heildareignir) 38,2% 41,0%
Innra virði hlutafjár (eigið fé / hlutafé) 23,79 23,46

17. Breytingar á samstæðunni

Sala á þróunareignum og fjárfesting í Klasa ehf.

Þann 3. desember 2021 undirrituðu Hagar hf. samning um áskrift að hlutafé í fasteignapróunarfélaginu Klasa ehf. en líkt og tilkynnt var þann 24. september 2021 undirrituðu Hagar hf., Reginn hf., Klasi ehf. og KLS eignarhaldsfélag ehf. viljayfirlýsingu um frekari uppbýggingu og rekstur fasteignapróunarfélagsins Klasa. Þann 10. júní 2022 undirrituðu Hagar sátt við Samkeppniseftirlitið vegna kaupanna, með þremur skilyrðum sem Hagar skuldbinda sig til að hlíta.

Framlag Haga í viðskiptunum eru fasteignir og lóðir og er metið á 3.912 millj. kr. Eignarhlutur Haga í Klasa er 1/3 af útgefnu hlutafé, líkt og eignarhlutur Regins og KLS eignarhaldsfélags. Verðmæti eigna Klasa eftir viðskiptin eru um 14,8 ma. kr. og eiginfjárhlutfall félagsins 79%.

Viðskiptin komu til framkvæmda í lok 2. ársfjörðungs, þann 31. ágúst 2022, þegar öllum fyrirvörum hafði verið aflétt. Fjárhagsleg áhrif viðskiptanna koma fram á 2. ársfjörðungi. Þar sem viðskiptin tengjast framlagi verðmæta í hlutdeildarfélag Haga er óheimilt samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum að innleysa í rekstrarreikningi þann hluta sölihagnaðarins sem nemur eignarhlutdeild samstæðu Haga í Klasa. Af því leiðir að 33,3% af fjárhæð sölihagnaðarins er færður til lækkunnar á bókéfærðu verði eignarhlutarins í Klasa. Áhrif sölihagnaðar á EBITDA samstæðunnar, að frádregnum söliukostnaði, nemur 966 millj. kr. Bókfærður eignarhlutur Haga í Klasa nemur 3.403 millj. kr., að frádregnum óinnleystum sölihagnaði eigna, sem færður er sem eignarhlutur í hlutdeildarfélagi í efnahagsreikningi.

Fasteignir sem seldar voru inn í Klasa voru í lok árs 2021/22 endurflokkaðar og settar fram sem eignir til sölu í efnahagsreikningi.

Sala á Mjöll Frigg ehf.

Á tímabilinu var Mjöll Frigg ehf., dótturfélag Olís ehf., selt út úr samstæðunni. Fjárhagsleg áhrif viðskiptanna voru sölutap að fjárhæð 84 millj. kr.

18. Onnur mál

Hagar hafa skuldbundið sig til að kaupa fasteign á höfuðborgarsvæðinu. Áætluð afhending er á fyrsta ársfjörðungi 2023/24 og kaupverð nemur um 1.010 millj. kr.

19. Atburðir eftir lok reikningsskiladags

Í mars 2022 náðu Hagar samkomulagi við eigendur Eldum rétt ehf. um kaup Haga á öllu hlutafé Eldum rétt. Eldum rétt sérhæfir sig í gerð matarpakka sem viðskiptavinir geta pantað á netinu en í hverri viku geta viðskiptavinir valið á milli nýrra uppskrifta. Eldum rétt var stofnað árið 2013 en stjórnendur og starfsfólk fyrirtækisins hafa skapað sterkt vörumerki á skómmum tíma. Kaupin voru gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins sem samþykktí samrunann þann 17. október 2022. Gert er ráð fyrir að Hagar taki við rekstrí félagsins þann 31. október nk.

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. ágúst 2022

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SKYRINGAR, FRH.:

  1. Starfspåttayfirlit
Fyrri árshelmingur 2022/23 Verslanir og vöruhús Olís ehf. Jöfnunar-færslur Samtals
Vörusala 51.170 31.268 ( 826) 81.612
Aðrar rekstrartekjur og söluhagnaður 607 742 ( 118) 1.231
Heildartekjur starfsbátta 51.777 32.010 ( 944) 82.843
Heildarreksstrargjöld starfsbátta ( 47.333) ( 29.417) 944 ( 75.806)
EBITDA starfsbátta 4.444 2.593 0 7.037
Afskriftir starfsbátta ( 1.675) ( 445) 0 ( 2.120)
Áhrif hlutdeildarfélaga 9 129 0 138
Rekstrarafkoma starfsbátta 2.778 2.277 0 5.055
Hrein fjármagnsgjöld ( 922) ( 48) 0 ( 970)
Tekjuskattur ( 781)
Hagnaður tímabilsins 3.304
31. ágúst 2022
Eignir starfsbátta 47.917 22.164 0 70.081
Eignir samtals 70.081
Skuldir starfsbátta 32.248 11.047 0 43.295
Skuldir samtals 43.295
Fjárfestingar starfsbátta (nettó) ( 785) ( 296) 0 ( 1.081)
Fyrri árshelmingur 2021/22 Verslanir og vöruhús Olís ehf. Jöfnunar-færslur Samtals
--- --- --- --- ---
Vörusala 47.486 20.465 ( 1.032) 66.919
Aðrar rekstrartekjur og söluhagnaður 648 36 ( 106) 578
Heildartekjur starfsbátta 48.134 20.501 ( 1.138) 67.497
Heildarreksstrargjöld starfsbátta ( 43.656) ( 19.438) 1.138 ( 61.956)
EBITDA starfsbátta 4.478 1.063 0 5.541
Afskriftir starfsbátta ( 1.480) ( 422) 0 (1.902)
Áhrif hlutdeildarfélaga 5 116 0 121
Rekstrarafkoma starfsbátta 3.003 757 0 3.760
Hrein fjármagnsgjöld ( 616) ( 115) 0 ( 731)
Tekjuskattur ( 593)
Hagnaður tímabilsins 2.436
31. ágúst 2021
Eignir starfsbátta 45.182 19.168 0 64.350
Eignir samtals 64.350
Skuldir starfsbátta 28.259 9.930 0 38.189
Skuldir samtals 38.189
Fjárfestingar starfsbátta (nettó) ( 805) ( 141) 0 ( 946)

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. ágúst 2022

Fjárhæðir eru í milljónum króna