AI assistant
Hagar — Interim / Quarterly Report 2023
Oct 19, 2022
2196_rns_2022-10-19_7aac9665-d08e-4ccf-8c93-8014f4eeb48b.pdf
Interim / Quarterly Report
Open in viewerOpens in your device viewer
Fréttatilkynning 19. október 2022
hagar
VÖRUSALA Á 2F JÓKST UM 24,4%
Uppgjör Haga hf. á 2. ársfjórðungi 2022/23
Árshlutareikningur Haga hf. fyrir annan ársfjórðung 2022/23 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 19. október 2022. Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars til 31. ágúst 2022. Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alpjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Reikningurinn hefur verið kannaður af endurskoðendum félagsins, PricewaterhouseCoopers ehf.
Helstu lykiltölur
- Vörusala 2F nam 43.399 m.kr. (24,4% vöxtur frá 2F 2021/22). Vörusala 6M nam 81.612 m.kr. (22,0% vöxtur frá 6M 2021/22). [2F 2021/22: 34.885 m.kr., 6M 2021/22: 66.919 m.kr.]
- Framlegð 2F nam 8.383 m.kr. (19,3%) og 15.947 m.kr. (19,5%) fyrir 6M. [2F 2021/22: 7.384 m.kr. (21,2%), 6M 2021/22: 14.233 m.kr. (21,3%)]
- Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) 2F nam 4.369 m.kr. eða 10,1% af veltu. EBITDA 6M nam 7.037 m.kr. eða 8,6% af veltu. [2F 2021/22: 3.263 m.kr. (9,4%), 6M 2021/22: 5.541 m.kr. (8,3%)]
- Hagnaður 2F nam 2.378 m.kr. eða 5,5% af veltu. Hagnaður 6M nam 3.304 m.kr. eða 4,0% af veltu. [2F 2021/22: 1.709 m.kr. (4,9%), 6M 2021/22: 2.436 m.kr. (3,6%)]
- Grunnhagnaður á hlut 2F var 2,10 kr. og 2,92 kr. fyrir 6M. [2F 2021/22: 1,48 kr., 6M 2021/22: 2,11 kr.]. Þynntur hagnaður á hlut 2F var 2,03 kr. og 2,84 kr. fyrir 6M. [2F 2021/22: 1,47 kr., 6M 2021/22: 2,10 kr.]
- Eigið fé nam 26.786 m.kr. í lok tímabilis og eiginfjárhlutfall 38,2%. [Árslok 2021/22: 26.726 m.kr. og 41,0%]
- Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2022/23 gerir ráð fyrir að EBITDA verði 10.200-10.700 m.kr., án áhrifa vegna viðskipta með Klasa. Áhrif viðskiptanna á EBITDA félagsins eru um 966 m.kr.
Helstu fréttir af starfsemi
- Mikil veltuaukning (24,4%) á ársfjórðungi miða við sama tímabil í fyrra og heildarhagnaður eykst töluvert, einkum vegna áhrifa af viðskiptum við Klasa.
- Seldum stykkjum í dagvöruverslunum á 2F fjölgar um 6,2% milli ára og heimsóknum viðskiptavina fjölgar um 12,3% í samanburði við fyrra ár. Seldum eldsneytislítrum á 2F fækkar um 0,9%.
- Framlegð í krónum talið eykst um 13,5% milli ára en framlegðarhlutfallið lækkar um 1,9%-stig, einkum vegna hærra heimsmarkaðsverðs olíu samanborið við fyrra ár.
- Hagar leggja allt í sölurnar til að sporna við hækkandi vöruverði og bjóða viðskiptavinum vörur og þjónustu á sem hagkvæmasta verði. Þannig leggja Hagar sitt af mörkum til að halda aftur af verðbólgu.
- Í júní 2022 undirrituðu Hagar sátt við Samkeppniseftirlitið vegna kaupa félagsins á nýju hlutafé í Klasa ehf. Viðskiptin komu til framkvæmda í lok 2. ársfjórðungs og nema áhrif hans 966 m.kr. á EBITDA á fjórðungnum.
- Mjöll-Frigg ehf. var selt úr samstæðunni í ágúst. Áhrif viðskiptanna á EBITDA voru neikvæð um 84 m.kr.
- Þann 17. október samþykkti Samkeppniseftirlitið kaup Haga á öllu hlutafé í Eldum rétt ehf. Gert er ráð fyrir að Hagar taki við rekstri félagsins þann 31. október nk.
Fréttatilkynning 19. október 2022
hagar
Finnur Oddsson, forstjóri:
Rekstur Haga á öðrum fjörðungi rekstrarársins 2022/23 gekk ágætlega. Vörusala jókst um ríflega 24% miðað við sama tímabil á fyrra ári og nam 43,4 ma. kr. Afkoma á fjörðungnum batnaði á milli ára, m.a. vegna einskiptisliða, en EBITDA nam 4,4 ma. kr. og hagnaður 2.378 m.kr. Við erum heilt yfir ánægð með starfsemi félagsins á fyrri helming rekstrarárs, einkum kröftuga tekjuaukningu og að mikilvægum áföngum hafi verið náð sem munu styrkja félagið til framtíðar.
Striðsátök í austurhluta Evrópu og órói á hráefnis- og orkumörkuðum halda áfram að hafa veruleg áhrif á alla starfsemi félagsins. Hækkanir og sveiflur í verði aðfanga til starfsemi Haga voru því áfram eitt helsta viðfangsefni stjórnenda félagsins, sem hafa lagt sérstaka áherslu á að tryggja vöruúrval en sporna um leið gegin hækkandi vöruverði og verðbölgu með hagkvæmni í innkaupum og rekstri. Hækkandi verð aðfanga skýrir að nokkru leyti tekjuvöxt á milli fjörðunga, en helstu skýringar á bættri afkomu á fjörðungnum eru af tvennum toga. Í fyrsta lagi skilaði Olís töluvert betri afkomu en í fyrra, en þar hefur raungerst ávinningur hagræðingar í rekstri félagsins á síðustu misserum, áhrif fjölgunar erlendra ferðamanna og aukinna umsvifa hjá stórnotendum, einkum í útgerð og ferðapjónustu. Í öðru lagi, þá féll til á fjörðungnum hagnaður vegna sölu á eignum vegna kaupa Haga á 1/3 hlutafjár í Klasa ehf., en áhrif á EBITDA samstæðu eru jákvæð um 966 m.kr. Að lokum, þá hafa nýjar stefnuáherslur og almennar hagræðingaraðgerðir síðustu misseri skilað bata í rekstri þvert á samstæðuna.
Áfram er kröftugur vöxtur í sölu á dagvöru hjá samstæðunni, um 12%, sem er töluvert meiri vöxtur en á fyrsta fjörðungi rekstrarársins. Þessa tekjuaukningu má að hluta rekja til þess að fleiri viðskiptavinir sækja í verslanir Haga, 12% aukning í það heila, og að seldum stykkjum fjölgaði um 6%. Við sjáum það sérstaklega að viðskiptavinum Bónus fjölgar ört, enda hefur þeim sem sækja í hagkvæmasta verslunarkostinn fjölgað jafnt og þétt síðustu mánuði. Tekjuaukningu má svo einnig rekja til hækkandi verðs aðfanga frá heildsölum og framleiðendum sem leiðir til hærra vöruverðs í verslunum Haga. Afkoma í dagvörusölu á fjörðungnum var svipuð á milli ára.
Á fjörðungnum voru tekin mikilvæg skref í samræmi við stefnumótandi áherslur Haga síðustu misseri. Þar ber hæst að gengið var frá kaupum á hlutafé í Klasa ehf., en eignarhald og samstarf um félagið hefur það að markmiði að hraða og auka hagkvæmni uppyggingar á þróunareignum Haga en gera starfsemi Haga um leið hnitmiðaðri. Klasi er eftir viðskiptin eitt öflugasta þróunarfélag landsins en meðal eigna eru þróunarlöðir á höfuðborgarsvæðinu með áætlað byggingarmagn um 280 þúsund fermetra. Í október heimilaði Samkeppniseftirlitið kaup Haga á öllu hlutafé í Eldum rétt ehf. Kaupin eru liður í því hvernig Hagar og dótturfélög munu bregðast við breyttum neysluvenjum og aukinni áherslu á hollar en einfaldar lausnir sem spara tíma og draga úr matarsóun. Fleiri afurðir stafrænnar vegferðar hjá Högum litu dagsins ljós, en ný netverslun Hagkaups með leikföng fór í loftið í vikunni. Vinna við önnur stafræn verkefni gengur vel og miðar að því að tryggja enn betur grunnrekstur upplýsingakerfa þvert á samstæðu Haga en um leið efla þjónustu við viðskiptavini. Vel hefur gengið að uppfæra ásýnd og þjónustuframboð hjá fyrirtækjum Haga síðustu mánuði. Lengri opnunartíma í stærstum hluta verslana Bónus hefur verið afar vel tekið og það sama má segja um uppfært útlit og vöruframboð þjónustustöðva Olís. Þjónustustöðvar hafa verið lagaðar betur að þörfum viðskiptavina með breyttu þjónustuframboði og bættri aðstöðu, en framundan eru frekari umbætur, m.a. með uppyggingu nets hraðhleðslustöðva í samstarfi við Ísorku. Hjá Hagkaup hefur úrval þægilegra og gómsætra valkosta verið aukið, m.a. með spennandi samstarfi við Sælkerabúðina og íslenska smáframleiðendur og frumkvöðla í matvælagerð.
Heilt yfir erum við sátt við þann árangur sem við náðum á síðasta ársfjörðungi í vægast sagt ögrandi aðstæðum, hækkandi aðfangaverði og almennri óvissu um þróun mikilvægra þátta í okkar rekstri. Okkar stærsta verkefni verður áfram að tryggja framboð á nauðsynjum en gæta um leið að hagkvæmni í allri okkar starfsemi, til að halda aftur af verðhækkunum til neytenda og verðbölgu. Frábært starfsfólk Haga og dótturfélaga er og verður vakið og sofið yfir þessu verkefni og er aukin aðsókn viðskiptavina okkur hvatning til að halda áfram á þeirri braut. Fjárhagsleg staða Haga er traust og félagið vel í stakk búið til að takast á við krefjandi aðstæður og óvissu sem framundan er í íslensku efnahagslífi.
Fréttatilkynning
- október 2022
hagar
Rekstrarreikningur samstæðunnar
| Likilij.kr. | 2F 2022/23 | 2F 2021/22 | RM 2022/23 | RM 2021/22 | ||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 01.08-31.08 | 01.08-31.08 | Breyting | Breyting % | 01.03-31.08 | 01.03-31.08 | Breyting | Breyting % | |
| Vörusala | 43.289 | 34.885 | 8.514 | 24,4% | 91.612 | 86.919 | 14.693 | 22,0% |
| Kostnaðarverð seldra vara | (35.016) | (27.501) | (7.515) | 27,3% | (65.665) | (52.686) | (12.979) | 24,6% |
| Framlegð | 8.383 | 7.384 | 999 | 13,5% | 15.947 | 14.233 | 1.714 | 12,0% |
| Framlegð % | 19,3% | 21,2% | - | -1,9% | 19,5% | 21,3% | - | -1,7% |
| Aðrar rekstrartekjur | 147 | 125 | 22 | 17,6% | 349 | 229 | 120 | 52,4% |
| Hagnaður af sölu eigna | 882 | 269 | 613 | 227,9% | 882 | 349 | 533 | 152,7% |
| Laun og launatengd gjöld | (3.438) | (3.182) | (256) | 8,0% | (6.881) | (6.432) | (449) | 7,0% |
| Annar rekstrakkostnaður | (1.605) | (1.333) | (272) | 20,4% | (3.260) | (2.838) | (422) | 14,9% |
| Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) | 4.369 | 3.263 | 1.106 | 33,9% | 7.037 | 5.541 | 1.496 | 27,0% |
| EBITDA % | 10,1% | 9,4% | - | 0,7% | 8,6% | 8,3% | - | 0,3% |
| Afskriftir | (1.099) | (897) | (202) | 22,5% | (2.120) | (1.902) | (218) | 11,5% |
| Rekstrarhagnaður (EBIT) | 3.270 | 2.366 | 904 | 38,2% | 4.917 | 3.639 | 1.278 | 35,1% |
| Hrein fjármagnsgjöld | (426) | (341) | (85) | 24,9% | (970) | (731) | (239) | 32,7% |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | 94 | 90 | 4 | 4,4% | 138 | 121 | 17 | 14,0% |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 2.938 | 2.115 | 823 | 38,9% | 4.085 | 3.029 | 1.056 | 34,9% |
| Tekjuskattur | (560) | (406) | (154) | 37,9% | (781) | (593) | (188) | 31,7% |
| Heildarhagnaður | 2.378 | 1.709 | 669 | 39,1% | 3.304 | 2.436 | 868 | 35,6% |
| Skipting hagnaðar | ||||||||
| Hlutdeild miðurfélags | 2.378 | 1.709 | 669 | 39,1% | 3.304 | 2.426 | 878 | 36,2% |
| Hlutdeild minnihluta | -- | -- | -- | - | -- | 10 | (10) | - |
| 2.378 | 1.709 | 669 | 39,1% | 3.304 | 2.436 | 868 | 35,6% |
Lykiltölur á 2. ársfjörðungi
Vörusala á 2F jókst um 24,4% milli ára. Fjöldi seldra stykka í dagvöruverslunum jókst um 6,2% og heimsóknum viðskiptavina fjölgaði um 12,3%. Eldsneytislítrum hjá Olís á 2F fækkaði um 0,9% milli ára.
Framlegð á 2F í krónum talið jókst um 13,5% milli ára en framlegðarhlutfall lækkaði úr 21,2% í 19,3%, einkum vegna hærra heimsmarkaðsverðs olíu samanborið við fyrra ár.
Hagnaður af sölu eigna nam 882 m.kr. á 2F en þar af nam innleystur söluhagnaður eigna í viðskiptum við Klasa, að frádregnum sölukostnaði, samtals 966 m.kr. Sölutap að fjárhæð 84 m.kr. var fært vegna sölu á Mjöll Frigg á tímabilinu. Söluhagnaður eigna á fyrra ári nam 269 m.kr. vegna sölu Útilífs.
Launa- og kostnaðarhlutfall 2F er 11,6% en var 12,9% á fyrra ári.
EBITDA 2F var 4.369 m.kr. í samanburði við 3.263 á fyrra ári. EBITDA-hlutfall var 10,1% en var 9,4% á fyrra ári.
Heildarhagnaður 2F nam 2.378 m.kr. og hækkar um 39,1% á milli ára.
Rekstur á fyrri árshelmingi 2022/23
Vörusala tímabilsins nam 81.612 m.kr., samanborið við 66.919 m.kr. árið áður. Sölauukning milli ára nam 22,0%. Sölauukning verslana og vöruhúsa nam 7,8% og sölauukning hjá Olís nam 52,8%.
Fjöldi seldra stykka í dagvöruverslunum jókst um 3,9% og heimsóknum viðskiptavina fjölgaði um 11,3%. Magnaukning á fyrri árshelmingi í seldum eldsneytislítrum hjá Olís var 6,8%.
Framlegð samstæðunnar var 15.947 m.kr., samanborið við 14.233 m.kr. árið áður, eða aukning sem nemur 12,0%. Framlegðarhlutfall lækkaði hins vegar og var 19,5% í samanburði við 21,3% á fyrra ári. Framlegð í krónum talið á tímabilinu jókst einkum vegna aukinnar magnsölu eldsneytis til stórnotenda hjá Olís og aukinnar veltu hjá Bónus.
Launakostnaður hækkaði um 7,0% milli ára en launahlutfallið lækkaði úr 9,6% í 8,4% á tímabilinu. Annar rekstrakkostnaður hækkaði um 14,9% milli ára en kostnaðarhlutfallið er nú 4,0% í samanburði við 4,2% árið áður.
Afkoma fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA) nam 7.037 m.kr., samanborið við 5.541 m.kr. árið áður. EBITDA-hlutfall var 8,6%, samanborið við 8,3% á fyrra ári. EBITDA verslana og vöruhúsa lækkar um 0,8% milli ára en EBITDA Olís hækkar um 143,9%, m.a. vegna seldra eigna í viðskiptum með Klasa.
Heildarhagnaður tímabilsins nam 3.304 m.kr., sem jafngildir 4,0% af veltu en heildarhagnaður á fyrra ári var 2.436 m.kr. eða 3,6% af veltu.
Fréttatilkynning
- október 2022
hagar
Efnahagsreikningur samstæðunnar
| i millj. kr. | 31.08.2022 | 28.02.2022 | Breyting | Breyting % |
|---|---|---|---|---|
| Eignir | ||||
| Fastafjármunir | 48.484 | 45.064 | 3.420 | 7,6% |
| Veltufjármunir | 21.597 | 17.740 | 3.857 | 21,7% |
| Eignir til sölu | -- | 2.388 | (2.388) | - |
| Eignir samtals | 70.081 | 65.192 | 4.889 | 7,5% |
| Eigið fé og skuldir | ||||
| Hlutafé | 1.126 | 1.139 | (13) | -1,1% |
| Annað eigið fé | 25.660 | 25.587 | 73 | 0,3% |
| Eigið fé samtals | 26.786 | 26.726 | 60 | 0,2% |
| Langtímaskuldir | 21.543 | 20.950 | 593 | 2,8% |
| Vaxtaberandi skammtímaskuldir | 2.194 | 451 | 1.743 | 386,5% |
| Aðrar skammtímaskuldir | 19.558 | 17.065 | 2.493 | 14,6% |
| Skuldir samtals | 43.295 | 38.466 | 4.829 | 12,6% |
| Eigið fé og skuldir samtals | 70.081 | 65.192 | 4.889 | 7,5% |
Lykiltölur efnahags 31.08.2022
- Heildareignir samstæðunnar í lok tímabils námu 70.081 m.kr. og hækkuðu um 4.889 m.kr. frá árslokum 2021/22.
- Fastafjármunir voru 48.484 m.kr. og hækkuðu um 3.420 m.kr. frá árslokum 2021/22. Þar telur að mestu eignarhlutur Haga í Klasa sem bókfærður er í lok ágúst.
- Veltufjármunir, að meðtöldum eignum til sölu, voru 21.597 m.kr. og hækkuðu um 1.469 m.kr. frá árslokum 2021/22.
- Birgðir í lok ágúst voru 12.419 m.kr. og veltuhraði birgða 10,8. Birgðir hafa hækkað um 2.602 m.kr. frá lokum 2F 2021/22 en hækkuð birgða má nær alfarið rekja til hærri eldsneytisbirgða, sem orsakast af mikilli hækkuð á eldsneytisverði milli ára og meiri umsvifum. Veltuhraði birgða á fyrra ári var 11,0. Birgðir hafa hækkað um 1.712 m.kr. frá árslokum 2021/22, af sömu ástæðu og rakin er hér á undan.
- Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur hækka um 833 m.kr. á tímabilinu. Innheimtutími viðskiptakrafna er nú 12,0 dagar samanborið við 11,4 daga á fyrra ári.
- Veltufjárhlutfall er 0,99 og lausafjárhlutfall 0,42 í lok fyrri árshelmings. Aðgangur að skammtímafjármögnun í formi lánalína að upphæð 6,2 ma. kr. hjá viðskiptabanka er tryggður.
- Eigið fé í lok tímabilsins var 26.786 m.kr. og eiginfjárhlutfall 38,2%. Arðsemi eigin fjár var 18,6%. Eiginfjárhlutfall við lok síðasta rekstrarárs var 41,0% og arðsemi eigin fjár 15,9%. Félagíð átti 7,0 millj. eigin hluti í lok tímabilsins.
- Heildarskuldir samstæðunnar í lok fyrri árshelmings voru 43.295 m.kr. en þar af voru vaxtaberandi skuldir 14.073 m.kr. og leiguskuldir 9.234 m.kr. Nettó vaxtaberandi skuldir, með leiguskuldum, í lok tímabils voru 21.212 m.kr. eða 1,8 x 12 mánaða EBITDA. Nettó vaxtaberandi skuldir, án leiguskulda, voru 1,0 x 12 mánaða EBITDA.
Fréttatilkynning
- október 2022
hagar
Sjóðstreymisyflit samstæðunnar
| Fmill. kr. | 2F 2022/23 | 2F 2021/22 | 8M 2022/23 | 8M 2021/22 | ||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 01.06-31.08 | 01.06-31.08 | Breyting | Breyting % | 01.03-31.08 | 01.03-31.08 | Breyting | Breyting % | |
| Handbært fé frá rekstri | 2.785 | 2.050 | 735 | 35,9% | 4.755 | 4.557 | 198 | 4,3% |
| Fjárfestingarhreyfingar | (353) | (416) | 63 | -15,1% | (857) | (854) | (3) | 0,4% |
| Fjármögnunarhreyfingar | (1.550) | (2.014) | 464 | -23,0% | (2.586) | (3.140) | 554 | -17,6% |
| Hækkun á handbæru fé | 882 | (380) | 1.262 | -332,1% | 1.312 | 563 | 749 | 133,0% |
| Handbært fé í byrjun tímabils | 1.213 | 1.331 | (118) | -8,9% | 783 | 388 | 395 | 101,8% |
| Handbært fé í lok tímabils | 2.095 | 951 | 1.144 | 120,3% | 2.095 | 951 | 1.144 | 120,3% |
Sjóðstreymi á fyrri árshelmingi 2022/23
- Handbært fé frá rekstri á fyrri árshelmingi 2022/23 nam 4.755 m.kr., samanborið við 4.557 m.kr. á fyrra ári.
- Fjárfestingarhreyfingar á fyrri árshelmingi voru 857 m.kr., samanborið við 854 m.kr. á fyrra ári. Fjárfesting í rekstrarfjármunum nam 992 m.kr. á fyrri árshelmingi sem m.a. er vegna opnunar nýrrar verslunar Bónus á Norðurtorgi á Akureyri, endurnýjunar verslana Bónus og Hagkaups, ásamt endurnýjun á þjónustustöðvum Olís.
- Fjármögnunarhreyfingar tímabilsins voru 2.586 m.kr., samanborið við 3.140 m.kr. á fyrra ári. Endurkaup eigin bréfa á fyrri árshelmingi námu 1.000 m.kr. og arðgreiðsla í júní 2022 nam 2.265 m.kr.
Staðan og framtíðarhorfur
Segja má að starfsemi samstæðunnar sé komin í eðillegra horf í samanburði við síðustu tvö rekstrarár, þar sem áhrif COVID-19 heimsfaraldursins hafa farið dvinandi. Ferðalög landsmanna utan hafa aukist og erlendum ferðamönnum á Íslandi hefur fjölgað, sem hefur áhrif á eftirspurn á mörkuðum fyrir dagvöru og eldsneyti. Hnökra gætir þó enn í framleiðslu matvöru og í aðfangakeðjunni, bæði vegna eftirstöðva heimsfaraldursins og stríðsátaka í Úkrainu, sem hefur leitt til hækkunar á verði aðfanga, aukinnar verðbólgu og hærra vaxtastigs. Hagar munu, eftir sem áður, leggja sérstaka áherslu á að sporna við hækkandi vöruverði til neytenda og leggja þannig sitt af mörkum til að halda niðri verðbólgu og tryggja viðskiptavinum vörur og þjónustu á sem hagkvæmasta verði.
Afkomuspa stjórnenda gerir ráð fyrir að rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) samstæðu Haga fyrir rekstrarárið 2022/23 verði á bilinu 10.200-10.700 m.kr., ef frá eru talin áhrif sem tengjast sölu á eignum til Klasa. Áhrif þeirra viðskipta á EBITDA samstæðunnar eru um 966 m.kr.
Endurskoðuð fjárfestingaráætlun ársins nemur 3,0 ma. kr. Upphafleg fjárfestingaráætlun nam 4,0 ma. kr. en nú er ljóst að fjárfesting í fasteign að Norðlingabraut 2 færist yfir á næsta rekstrarár. Helstu liðir áætlunarinnar eru vegna fjárfestinga í stafræni þróun og upplýsingatækni, endurnýjun verslana Bónus og Hagkaups ásamt endurnýjun þjónustustöðva Olís.
Fjárhagsleg staða samstæðu Haga hf. er sterk og er félagið vel í stakk búð að takast á við ögrandi aðstæður í íslensku efnahagslífi. Fjármögnun samstæðunnar er að mestu tryggð til langs tíma og er aðgangur tryggður að skammtímafjármögnun í formi lánalína að fjárhæð 4,5 ma. kr. og USD 12,5 millj.
Þann 3. desember 2021 undirrituðu Hagar samning um áskrift að hlutafé í fasteignaþróunarfélaginu Klasa ehf. en líkt og tilkynnt var þann 24. september 2021 undirrituðu Hagar hf., Reginn hf., Klasi ehf. og KLS eignarhaldsfélag ehf. viljayfirlýsingu um frekari uppbyggingu og rekstur fasteignaþróunarfélagsins Klasa ehf. Þann 10. júní 2022 undirrituðu Hagar sátt við Samkeppniseftirlitið vegna kaupanna, með þremur skilyrðum sem Hagar skuldbinda sig til að hlíta. Framlag Haga í viðskiptunum eru fasteignir og lóðir og er metið á 3.912 m.kr. Eignarhlutur Haga í Klasa er 1/3 af útgefnu hlutafé, líkt og eignarhlutur Regins og KLS eignarhaldsfélags. Verðmæti eigna Klasa eftir viðskiptin eru um 14,8 ma. kr. og eiginfjárhlutfall félagsins
Fréttatilkynning 19. október 2022
hagar
79%. Viðskiptin komu til framkvæmda í lok 2. ársfjórðungs, þann 31. ágúst 2022, þegar öllum fyrirvörum hafði verið aflétt. Fjárhagsleg áhrif viðskiptanna koma fram á 2. ársfjórðungi en áhrif af innleystum söluhagnaði, að frádregnum sölukostnaði, á EBITDA samstæðunnar eru 966 m.kr. Bókfærður eignarhlutur Haga í Klasa nemur 3.403 m.kr., að frádregnum óinnleystum söluhagnaði eigna, sem færður er sem eignarhlutur í hlutdeildarfélagi í efnahagsreikningi.
Á tímabilinu var Mjöll Frigg ehf., dótturfélag Olís ehf., selt út úr samstæðunni. Fjárhagsleg áhrif viðskiptanna voru sölutap að fjárhæð 84 m.kr.
Í mars 2022 náðu Hagar samkomulagi við eigendur Eldum rétt ehf. um kaup Haga á öllu hlutafé Eldum rétt. Eldum rétt sérhæfir sig í gerð matarpakka sem viðskiptavinir geta pantað á netinu en í hverri viku geta viðskiptavinir valið á milli nýrra uppskrifta. Eldum rétt var stofnað árið 2013 en stjórnendur og starfsfólk fyrirtækisins hafa skapað sterkt vörumerki á skómmum tíma. Kaupin voru gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins sem samþykkti samrunann þann 17. október 2022. Gert er ráð fyrir að Hagar taki við rekstri félagsins þann 31. október nk.
Hlutafé og hluthafar
- Markaðsvirði Haga í lok tímabilisins nam 76,5 ma. kr. og lokaverð þann 31. ágúst 2022 var 67,5 kr./hlut.
- Skráð hlutafé Haga í lok tímabilisins nam 1.133 m.kr. Félagið átti 7,0 millj. eigin hluti í lok tímabilis.
- Þann 1. júní 2022 samþykkti aðalfundur að lækka hlutafé félagsins til ógildingar á eigin hlutum að nafnverði 21,6 m.kr. Lækkunin kom til framkvæmda þann 23. júní 2022 og lækkaði hlutfé Haga því úr 1.154 m.kr. að nafnverði í 1.133 m.kr. að nafnverði.
- Aðalfundur samþykkti einnig að greiddur yrði arður til hluthafa vegna síðastliðins árs sem nam 2,0 krónum á hlut eða 2.265 m.kr. Arðurinn var greiddur þann 15. júní 2022.
- Stjórn Haga hefur á grundvelli samþykktar aðalfundar frá 1. júní 2022 sett í gang eina endurkaupaáætlun á tímabilinu í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins. Endurkaupunum er lokið en fjárhæð þeirra nam 500 m.kr. eða 7,0 millj. hluta. Þá var auk þess ný endurkaupaáætlun sett í gang þann 2. september 2022.
- Hluthafar voru 986 í þyrjun rekstrarárs og 1.044 í lok ágúst. 10 stærstu hluthafar félagsins áttu 76,6% eignarhlut í félaginu í lok ágúst.
Rafraenn kynningarfundur fimtudaginn 20. október 2022
Rafraenn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn fimtudaginn 20. október kl. 8:30. Fundinum verður varpað í gegnum netið, þar sem Finnur Oddsson, forstjóri, og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna rekstur og afkomu félagsins ásamt því að svara fyrirspurnum.
Tekið verður við spurningum sem tengjast uppgjörinu á meðan á útsendingu stendur á netfangið [email protected] og verður þeim svarað eins og kostur er í lok fundar.
Fundinum verður streymt og er skráning á fundinn hér: https://www.hagar.is/skraning
Kynningargögn verða aðgengileg á heimasíðu Haga, www.hagar.is, við upphaf fundar.
Fréttatilkynning
- október 2022
hagar
Fjárhagsdagatal 2022/23
Fjárhagsupplýsingar eru birtar eftir lokun markaða.
| Uppgjörstímabil | Vikudagur | Birtingardagur |
|---|---|---|
| 3F – 1. mars til 30. nóvember | Miðvikudagur | 11. janúar 2023 |
| 4F – 1. mars til 28. febrúar | Fimmtudagur | 27. apríl 2023 |
| Aðalfundur 2023 | Fimmtudagur | 1. júní 2023 |
Fréttatilkynning þessi og uppgjörsgögn verða aðgengileg á ensku þann 21. október á https://www.hagar.is/en/
Press release and financial statements will be available in English on October 21st at https://www.hagar.is/en/
Nánari upplýsingar veita Finnur Oddsson, forstjóri félagsins ([email protected]), og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs ([email protected]), í síma 530-5500 eða tölvupósti.