AI assistant
Hagar — Interim / Quarterly Report 2021
Jun 25, 2021
2196_rns_2021-06-25_e962d09b-05f6-4918-bcef-23a711fe60bc.pdf
Interim / Quarterly Report
Open in viewerOpens in your device viewer
Fréttatilkynning
- júní 2021
hagar
Tekjuaukning á 1F og bætt afkoma milli ára
Uppgjør Haga hf. á 1. ársfjórðungi 2021/22
Árshlutareikningur Haga hf. fyrir fyrsta ársfjórðung 2021/22 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 25. júní 2021. Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars til 31. maí 2021. Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Reikningurinn hefur hvorki verið kannaður né endurskoðaður af endurskoðendum félagsins, PricewaterhouseCoopers ehf.
Helstu lykiltölur
- Vörusala 1F nam 32.034 millj. kr. (2020/21: 28.241 millj. kr.).
- Framlegðarhlutfall 1F var 21,4% (2020/21: 20,6%).
- Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) 1F nam 2.278 millj. kr. (2020/21: 1.297 millj. kr.).
- Hagnaður 1F nam 727 millj. kr. eða 2,3% af veltu (2020/21: tap 96 millj. kr. og -0,3% af veltu).
- Hagnaður á hlut 1F var 0,63 kr. (2020/21: tap 0,08 kr.).
- Eigið fé nam 25.906 millj. kr. í lok tímabilsins og eiginfjárhlutfall 41,2% (Árslok 2020/21: 25.187 millj. kr. og 40,9%).
- Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2021/22 gerir ráð fyrir að EBITDA verði 8.600-9.100 millj. kr.
Helstu fréttir af starfseminni
- Fyrsti ársfjórðungur gekk vel með aukinni veltu og framlegð hjá öllum rekstrareiningum samstæðu.
- Samanburður afkomu milli ára er hagstæður en fyrra ár markast af neikvæðum áhrifum af gengisfalli íslensku krónunnar og lækkun heimsmarkaðsverðs á olíu vegna COVID-19 faraldursins.
- Áhrifa COVID-19 gætir enn og starfsemi á 1F litast að hluta af sóttvarnaraðgerðum yfirvalda til að takmarka afleiðingar faraldursins.
- Seldum stykkjum í matvöruverslunum fækkar lítillega á 1F en heimsóknum viðskiptavina fer nú aftur fjölgandi eða um tæp 12% milli ára. Meðalkarfa hefur nú minnkað um rúm 4%.
- Mikil veltuaukning og framlegðarbati hjá Olís eftir erfiðan 1F í fyrra. Magnaukning í eldsneytislítrum 30% milli ára.
- Uppgjør vegna sölu Reykjavíkur Apóteks er lokið og hefur félagið verið afhent. Áhrif á afkomu á 1F eru jákvæð í rekstrarreikningi.
- Útilíf verður afhent nýjum eigendum á 2F en öllum fyrirvörum vegna kaupanna hefur verið aflétt.
- Hagar keyptu helmingshlut í Djús ehf., sem á og rekur veitingastaði Lemon. Beðið er samþykkis Samkeppniseftirlitsins.
Fréttatilkynning
- júní 2021
hagar
Finnur Oddsson, forstjóri:
„Starfsemi og rekstur Haga á fyrsta fjórðungi rekstrarársins 2021/22 gekk vel. Miðað við sama fjórðung í fyrra þá jókst vörusala um ríflega 13% og nam 32 ma.kr. Framlegð styrktist hjá öllum einingum og EBITDA var 2.278 m.kr, sem er aukning um 76% milli ára. Hagnaður á fjórðungnum nam 727 m.kr. í samanburði við tap af rekstri Haga á sama tímabili í fyrra. Við erum sérlega ánægð með þessa niðurstöðu og jákvæðan viðsnúning þar sem við sjáum bætingu í allri okkar starfsemi, hjá öllum rekstrareiningum.
Samanburður á milli ára litast eðlilega af því að neikvæðra áhrif COVID-19 faraldursins gætti hvað mest á fyrsta fjórðungi síðasta rekstrarárs. Þetta á einkum við hjá Olís þar sem gengisfall íslensku krónunnar, mikilli lækkun á heimsmarkaðsverði olíu og samdráttur í umferð hafði verulega neikvæð áhrif á rekstrarafkomu félagsins. Það er því ánægjulegt að sjá núna á fyrstu mánuðum rekstrarársins að vörusala og framlegð Olís hafa styrkst verulega og áhrif hagræðingaraðgerða síðustu mánaða sjást vel í rekstri. Með markvissri aðlögun á rekstri þjónustustöðva og útibúa, m.a. breyttum opnunartíma, þjónustuframboði og lokun tiltekinni eininga, hefur dregið úr kostnaði og afkoma batnað. Þar munar miklu um að stöðugildum hjá Olís hefur fækkað um tæplega 18% frá árinu á undan.
Umsvíf í verslun með dagvöru hafa haldið áfram að aukast, með ágætis tekjuaukningu hjá bæði Bónus og Hagkaup, framlegð hefur styrkst og afkoma einnig. Við sjáum að heimsóknum viðskiptavina hefur heldur fjölgað eftir því sem slakað er á takmörkunum vegna sóttvarna, en um leið minnkar körfustærð lítillega. Sérvoruverslanir Haga, ZARA og Útilíf, gengu einnig vel, sala jókst mikið og afkoma í samræmi við það.
Vinnu við að laga áherslur í rekstri samstæðu að nýrri stefnu miðar vel. Við höfum einfaldað starfsemi félagsins með sölu á Reykjavíkur Apóteki og Útilíf, sem gerir okkur kleift að einbeita okkur enn frekar að kjarnastarfsemi á dagvöru- og eldsneytismarkaði. Því tengt, þá keyptu Hagar hlut í Djús ehf. sem rekur veitingastaði undir merkjum Lemon. Kaupin eru liður í því að styrkja vöruframboð á þjónustustöðvum Olís og eru í samræmi við breyttar þarfir viðskiptavina og aukna eftirspurn eftir hollum og ferskum valkostum. Nýlega frágengið samkomulag við Reykjavíkurborg um fækkun bensínstöðva mun á næstu árum leiða til breytinga á þjónustuneti Olís á höfuðborgarsvæðinu. Eldsneytisstöðvum og dælum mun heldur fækka þegar þær víkja fyrir umhverfis vænni valkostum og þróun íbúða og atvinnuhúsnæðis á viðkomandi reitum. Samkomulag okkar við Reykjavíkurborg þjónar markmiðum okkar um grænni framtið, áhugaverða þróun byggðar og verðmætasköpun fyrir hluthafa.
Samfélagsábyrgð og sjálfærni hafa svo fengið aukið vægi og höfum við rýnt alla okkar starfsemi m.t.t. áhrifa á umhverfi og samfélag, sett okkur skýr markmið og í fyrsta skipti gert grein fyrir þeim í samfélagskýrslum fyrir Bónus, Hagkaup og Olís. Við erum stolt af þessari vinnu og þeim jákvæðu áhrifum sem starfsemi Haga hefur á íslenskt samfélag. Um leið trúum við því að við getum ávallt gert betur, ætlum okkur það og munum fylgja því eftir á næstu misserum.
Áhrif COVID-19 munu líklega fjara út á næstu víkum og við gerum ráð fyrir að ferðamannasumarið á Íslandi verði gjöfult, bæði vegna innlendra og erlendra ferðamanna. Um leið er líklegt að landsmenn fari í auknum mæli utan í sumar og haust sem mun hafa einhver áhrif á dagvöruveltu í verslunum hérlands. Þó svo nokkurrar óvissu gæti um þróun verslunar á næstu mánuðum eftir að faraldurinn er að baki, þá teljum við horfur í rekstri Haga góðar, bæði til skemmri og lengri tíma. Fjárhagur félagsins er afar sterkur og það vel í stakk búið að fylgja eftir nýjum verkefnum í samræmi við stefnumótun. Eins og fyrr er markmiðið okkar með þeirri vinnu að efla hag viðskiptavina okkar með framúrskarandi verslun."
Fréttatilkynning
- júní 2021
hagar
Rekstrarreikningur samstæðunnar
| I millj. kr. | 1F 2021/22 | 1F 2020/21 | Breyting | % |
|---|---|---|---|---|
| 01.03-31.05 | 01.03-31.05 | |||
| Vörusala | 32.034 | 28.241 | 3.793 | 13,4% |
| Kostnaðarverð seldra vara | (25.185) | (22.412) | (2.774) | 12,4% |
| Framlegð | 6.849 | 5.829 | 1.020 | 17,5% |
| Framlegð % | 21,4% | 20,6% | - | 0,7% |
| Aðrar rekstrartekjur | 104 | 98 | 6 | 6,0% |
| Hagnaður af sölu dótturfélags | 80 | -- | 80 | - |
| Laun og launatengd gjöld | (3.250) | (3.276) | 26 | -0,8% |
| Annar rekstrakostnaður | (1.505) | (1.354) | (151) | 11,2% |
| Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) | 2.278 | 1.297 | 981 | 75,6% |
| EBITDA % | 7,1% | 4,6% | - | 2,5% |
| Afskriftir | (1.005) | (1.024) | 19 | -1,9% |
| Rekstrarhagnaður (EBIT) | 1.273 | 273 | 1.000 | 366,6% |
| Hrein fjármagnsgjöld | (390) | (431) | 41 | -9,5% |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | 31 | 30 | 1 | 3,6% |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 914 | (128) | 1.042 | - |
| Tekjuskattur | (187) | 32 | (219) | - |
| Heildarhagnaður | 727 | (96) | 823 | - |
| Skipting hagnaðar | ||||
| Hlutdeild móðurfélags | 717 | (94) | 811 | - |
| Hlutdeild minnihluta | 10 | (2) | 12 | - |
| 727 | (96) | 823 | - |
Rekstur á fyrsta ársfjörðungi 2021/22
Vörusala á 1F rekstrarársins nam 32.034 millj. kr., samanborið við 28.241 millj. kr. árið áður. Söluaukning milli ára nam 13,4%. Vörusala verslana og vöruhúsa jókst um 8,2% og söluaukning hjá Olís nam 29,0%.
Framlegð félagsins var 6.849 millj. kr., samanborið við 5.829 millj. kr. árið áður eða sem nemur 17,5% aukningu milli ára. Framlegðarhlutfall var 21,4% til samanburðar við 20,6% á fyrra ári.
Hagnaður af sölu Reykjavíkur Apóteks ehf. nam 80 millj. kr. Viðmiðunardagur viðskiptanna var 31. maí sl. en afhending fór fram þann 18. júní.
Launakostnaður lækkar um 0,8% milli ára þrátt fyrir um 6% hækkun launa vegna kjarasamninga. Helstu skýringar á lækkun milli ára eru minni áhrif vegna COVID-19, fækkun stöðugilda hjá Olís og einskiptisliður á fyrra ári vegna starfsloka fyrrum forstjóra sem nam 86,4 millj. kr.
Annar rekstrakostnaður hækkar um 151 millj. kr. milli ára eða um 11,2% en hækkunina má að mestu rekja til hækkunar á húsnæðiskostnaði. Kostnaðarhlutfallið í heild lækkar milli ára úr 16,4% í 14,8%. Þar af lækkar launahlutfallið úr 11,6% í 10,1%.
Afkoma fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA) nam 2.278 millj. kr., samanborið við 1.297 millj. kr. árið áður. EBITDA-hlutfall var 7,1%, samanborið við 4,6% árið áður. EBITDA verslana og vöruhúsa jókst um 27,0% milli ára og viðsnúningur úr tapi á fyrra ári í hagnað hjá Olís nam 560 millj. kr.
Afskriftir lækkar lítillega milli ára og fjármagnskostnaður lækkar um tæp 10%.
Heildarhagnaður tímabilsins nam 727 millj. kr., sem jafngildir 2,3% af veltu ársfjörðungsins en tap varð af rekstri félagsins á 1F á fyrra ári sem nam 96 millj. kr. Breyting milli ára nemur því 823 millj. kr.
Fréttatilkynning
- júní 2021
hagar
Efnahagsreikningur samstæðunnar
| I millj. kr. | 31.05.2021 | 28.02.2021 | Breyting | % |
|---|---|---|---|---|
| Eignir | ||||
| Fastafjármunir | 47.454 | 47.816 | (362) | -0,8% |
| Veltufjármunir | 15.413 | 13.832 | 1.581 | 11,4% |
| Eignir samtals | 62.867 | 61.648 | 1.219 | 2,0% |
| Eigið fé og skuldir | ||||
| Hlutafé | 1.154 | 1.154 | – | 0,0% |
| Annað eigið fé | 24.752 | 24.035 | 717 | 3,0% |
| Samtals | 25.906 | 25.189 | 717 | 2,8% |
| Hlutdeild minnih luta | – | (2) | 2 | -100,0% |
| Eigið fé samtals | 25.906 | 25.187 | 719 | 2,9% |
| Langtímaskuldir | 18.624 | 18.592 | 32 | 0,2% |
| Vaxtaberandi skammtímaskuldir | 2.958 | 2.957 | 1 | 0,0% |
| Skuldir við lánastofnánir | – | 601 | (601) | -100,0% |
| Aðrar skammtímaskuldir | 15.379 | 14.311 | 1.068 | 7,5% |
| Skuldir samtals | 36.961 | 36.461 | 500 | 1,4% |
| Eigið fé og skuldir samtals | 62.867 | 61.648 | 1.219 | 2,0% |
Lykiltölur efnahags 31.05.2021
- Heildareignir samstæðunnar í lok fyrsta ársfjórðungs námu 62.867 millj. kr. og jukust þær um 1.219 millj. kr. frá árslokum 2020/21.
- Fastafjármunir voru 47.454 millj. kr. og lækkuðu um 362 millj. kr. frá árslokum sem að mestu má rekja til lækkunar á leigueignum. Fjárfesting í áhöldum og innréttingum nam 489 millj. kr. á tímabilinu.
- Veltufjármunir voru 15.413 millj. kr. og hækkuðu um 1.581 millj. kr. frá árslokum en þar af hækkaði handbært fé um 943 millj. kr.
- Birgðir í lok fyrsta ársfjórðungs voru 8.990 millj. kr. og veltuhraði birgða 11,2. Birgðir voru 8.791 millj. kr. í árslok 2020/21 en í lok fyrsta ársfjórðungs á fyrra ári voru birgðir 8.070 millj. kr. Veltuhraði birgða á fyrra ári var einnig 11,2.
- Viðskiptakröfur hækkuðu um 749 millj. kr. milli ára en hækkuðu um 427 millj. kr. frá árslokum. Innheimtutími krafna er nú 10,8 dagar sem er sami dagafjöldi og á sama tímabili á fyrra ári.
- Veltufjárhlutfall er 0,84 og lausafjárhlutfall 0,35 í lok fyrsta ársfjórðungs. Aðgangur að skammtímafjármögnun í formi lánalína að upphæð 6,2 ma. kr. hjá viðskiptabanka er tryggður.
- Eigið fé í lok tímabilsins var 25.906 millj. kr. og eiginfjárhlutfall 41,2%. Arðsemi eigin fjár var 13,9%. Eiginfjárhlutfall við lok síðasta rekstrarárs var 40,9% og arðsemi eigin fjár 10,2%. Félagið átti 26,4 millj. eigin hluti í lok tímabilsins.
- Heildarskuldir samstæðunnar í lok fyrsta ársfjórðungs voru 36.961 millj. kr. en þar af voru vaxtaberandi skuldir 12.313 millj. kr. og leiguskuldir 8.720 millj. kr. Nettó vaxtaberandi skuldir, með leiguskuldum, í lok tímabilsins voru 19.702 millj. kr. eða 2,0xEBITDA. Nettó vaxtaberandi skuldir, án leiguskulda, voru 1,1xEBITDA.
- Överðtryggður skuldabréfaflokkur, HAGA181021, að upphæð 2.500 millj. kr. er á gjaldaga í október 2021 en unnið er að endurfjármögnun hans.
4
Fréttatilkynning
- júní 2021
hagar
Sjóðstreymisyfirlit samstæðunnar
| I millj. kr. | 1F 2021/22 | 1F 2020/21 | Breyting | % |
|---|---|---|---|---|
| 01.03-31.05 | 01.03-31.05 | |||
| Handbært fé frá rekstri | 2.507 | 2.661 | (154) | -5,8% |
| Fjárfestingarhreyfingar | (438) | (858) | 420 | -49,0% |
| Fjármögnunarhreyfingar | (1.126) | (560) | (566) | 101,1% |
| Hækkun á handbæru fé | 943 | 1.243 | (300) | -24,1% |
| Handbært fé í byrjun tímabils | 388 | 2.232 | (1.844) | -82,6% |
| Handbært fé í lok ársins | 1.331 | 3.475 | (2.144) | -61,7% |
Sjóðstreymi fyrstu þrjá mánuði rekstrarársins
- Handbært fé frá rekstri á tímabilinu nam 2.507 millj. kr., samanborið við 2.661 millj. kr. á fyrra ári.
- Fjárfestingarhreyfingar tímabilsins voru 438 millj. kr., samanborið við 858 millj. kr. á fyrra ári. Fjárfesting í áhöldum og innréttingum á tímabilinu nam 489 millj. kr. og er að stærstum hluta vegna endurnýjunar á verslun Bónus í Hveragerði og Hagkaups á Akureyri, breytingu á vöruhúsi í Skútvogi og vélakaupa í kjötvinnslu félagsins.
- Fjármögnunarhreyfingar tímabilsins voru 1.126 millj. kr., samanborið við 560 millj. kr. á fyrra ári.
Staðan og framtíðarhorfur
Hagar og dótturfélög þess finna enn fyrir áhrifum COVID-19 heimsfaraldursins en starfsemi samstæðunnar litast áfram af aðgerðum til að takmarka afleiðingar faraldursins, tryggja öryggi starfsfólks, viðskiptavina og annarra samstarfsaðila samstæðunnar. Rekstrarniðurstaða fyrsta ársfjörðungs er ánægjuleg í ljósi aðstæðna en samanburður við fyrsta ársfjörðung síðasta rekstrarárs er hagstæður þar sem sá ársfjörðungur varð fyrir höggi þegar gengisfall íslensku krónunnar, lækkun á heimsmarkaðsverði á olíu og samdráttur í umferð höfðu mikil áhrif á afkomu Olís.
Velta í dagvöruhluta samstæðunnar er enn að aukast og velta í eldsneytishlutanum er töluvert yfir fyrra ári og er farin að nálgast eðlilegra árferði. Gert er ráð fyrir að áhrifa af faraldrinum muni gæta á rekstur samstæðunnar fram á mitt rekstrarár en afkomuspá stjórnenda fyrir árið gerir ráð fyrir að EBITDA afkoma samstæðunnar verði 8.600 - 9.100 millj. kr.
Fjárhagsleg staða samstæðu Haga er sterk og er félagið vel í stakk búið til að takast á við ögrandi aðstæður í íslensku efnahagslífi. Fjármögnun samstæðunnar er tryggð til langs tíma og er aðgangur að skammtímafjármögnun, að fjárhæð um 6,2 ma. kr., hjá viðskiptabanka einnig tryggð.
Hlutafé og hluthafar
- Markaðsvirði Haga í lok tímabilsins nam 70,7 ma. kr. og lokaverð þann 31. maí 2021 var 59,9 kr./hlut.
- Skráð hlutafé Haga í lok tímabilsins nam 1.181 millj. kr. Félagið átti 26,4 millj. kr. eigin hluti í lok tímabils.
- Þann 3. júní 2021 samþykkti aðalfundur að lækka hlutafé félagsins til ógildingar á eigin hlutum að nafnverði 26,4 millj. kr. og verður skráð hlutafé eftir lækkun því 1.154 millj. kr. Lækkun hlutafjárins kemur til framkvæmda um mánaðamótin júní/júlí.
- Aðalfundur samþykkti einnig að greiddur yrði arður til hluthafa sem nemur 1,27 krónum á hlut eða um 1.500 millj. kr. Arðurinn var greiddur þann 16. júní sl.
- Hluthafar voru 784 í byrjun tímabils og 787 í lok þess. 10 stærstu hluthafar í félaginu eiga um 69% eignarhlut í lok ársfjörðungs.
Fréttatilkynning
- júní 2021
hagar
Rafraenn kynningarfundur mánudaginn 28. júní 2021
Rafraenn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn mánudaginn 28. júní kl. 8:30. Fundinum verður varpað í gegnum netið, þar sem Finnur Oddsson, forstjóri, og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna rekstur og afkomu félagsins, ásamt því að svara fyrirspurnum.
Tekið verður við spurningum sem tengjast uppgjörinu á meðan á útsendingu stendur á netfangið [email protected] og verður þeim svarað eins og kostur er í lok fundar.
Fundinum verður varpað í gegnum netið á slóðinni: https://vimeo.com/event/1086672/embed/458a4d8295
Kynningargögn verða aðgengileg við upphaf fundar á heimasíðu Haga, www.hagar.is.
Fjárhagsdagatal 2021/22
Fjárhagsupplysingar eru birtar eftir lokun markaða.
| Uppgjörstímabil | Vikudagur | Birtingardagur |
|---|---|---|
| 2F - 1. júní til 31. ágúst | Þriðjudagur | 19. október 2021 |
| 3F – 1. september til 30. nóvember | Miðvikudagur | 12. janúar 2022 |
| 4F – 1. desember til 28. febrúar | Þriðjudagur | 10. mái 2022 |
| Aðalfundur 2022 | Fimmtudagur | 2. júní 2022 |
Fréttatilkynning þessi og uppgjörsgögn verða aðgengileg í enskri útgáfu þann 28. mái á https://en.hagar.is/
Press release and financial statements will be available in English on June 28th at https://en.hagar.is/
Nánari upplýsingar veita Finnur Oddsson, forstjóri félagsins ([email protected]) og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs ([email protected]), í síma 530-5500 eða tölvupósti.