Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar Interim / Quarterly Report 2020

Jan 20, 2020

2196_rns_2020-01-20_046c78c9-25ef-4cb7-a268-f96bc0a7b320.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

hagar

Fréttatilkynning:

Hagar hf. árslutauppgjör Q3 // mars 2019 – nóvember 2019

Árslutareikningur Haga hf. fyrir þriðja ársfjórðung 2019/20 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 20. janúar 2020. Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars 2019 til 30. nóvember 2019. Árslutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Reikningurinn hefur hvorki verið kannaður né endurskoðaður af endurskoðendum félagsins, PricewaterhouseCoopers ehf.

Áhrif af rekstri Olíuverzlunar Íslands ehf. (Olís) og DGV ehf. á samstæðuna komu fyrst fram þann 1. desember 2018, þ.e. í upphafi fjórða ársfjórðungs 2018/19. Samanburðarfjárhæðum fyrri tímabila hefur ekki verið breytt og innifela þær því ekki rekstraráhrif af hinum nýju félögum.

Þann 1. mars 2019 var innleiddur alþjóðlegur reikningsskilastaðall IFRS 16 Leigusamningar í reikningsskil samstæðunnar. Samkvæmt nýja staðlinum er eign (réttur til að nota hina leigðu eign) og skuld vegna greiðslu leigu færð í efnahagsreikning. Leigueign í lok þriðja ársfjórðungs var 9.184 milljónir króna og leiguskuld 9.908 milljónir króna. Áhrif staðalsins á rekstrarreikning tímabilsins er 1.645 milljón króna hækkun á EBITDA, 1.250 milljón króna hækkun á afskriftum og 419 milljón króna hækkun á vaxtagjöldum.

Helstu niðurstöður á fyrstu níu mánuðum rekstrarársins:

  • Hagnaður tímabilsins eftir skatta nam 2.349 millj. kr. eða 2,7% af veltu.
  • Hagnaður á hlut var 1,95 kr.
  • Vörusala tímabilsins nam 87.744 millj. kr.
  • Framlegð tímabilsins var 22,1%.
  • Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) nam 6.736 millj. kr.
  • Heildareignir samstæðunnar námu 61.301 millj. kr. í lok tímabilsins.
  • Handbært fé félagsins nam 3.365 millj. kr. í lok tímabilsins.
  • Eigið fé félagsins nam 24.193 millj. kr. í lok tímabilsins.
  • Eiginfjárhlutfall var 39,5% í lok tímabilsins.
  • Fyrstu níu mánuðir rekstrarársins eru á áætlun og útgefin afkomuspá er óbreytt.

Rekstrarafkoma fyrstu niu mánaða á áætlun

Rekstrarrelkningur

3F 2019/20 3F 2018/19 9M 2019/20 9M 2018/19
01.09-30.11 01.09-30.11 Breyting % 01.03-30.11 01.03-30.11 Breyting %
Vörusala 28.240 18.521 9.719 52,5% 87.744 56.255 31.489 56,0%
Kostnaðarverð seldra vara (21.970) (14.124) (7.846) 55,6% (68.372) (42.703) (25.669) 60,1%
Framlegð 6.270 4.397 1.873 42,6% 19.372 13.552 5.820 42,9%
Framlegð % 22,2% 23,7% - -1,5% 22,1% 24,1% - -2,0%
Aðrar rekstrartekjur 121 55 66 120,0% 385 161 224 139,1%
Laun og launatengd gjöld (2.991) (2.107) (884) 42,0% (9.014) (6.112) (2.902) 47,5%
Annar rekstrarkostnaður (1.187) (1.611) 424 -26,3% (4.007) (4.491) 484 -10,8%
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) 2.213 734 1.479 201,5% 6.736 3.110 3.626 116,6%
EBITDA % 7,8% 4,0% - 3,9% 7,7% 5,5% - 2,1%
Afskriftir (1.013) (265) (748) 282,3% (2.882) (770) (2.112) 274,3%
Rekstrarhagnaður (EBIT) 1.200 469 731 155,9% 3.854 2.340 1.514 64,7%
Hrein fjármagnsgjöld (440) (44) (396) 900,0% (1.055) (120) (935) 779,2%
Áhrif hlutdeildarfélaga 21 - 21 - 111 - 111 -
Hagnaður fyrir tekjuskatt 781 425 356 83,8% 2.910 2.220 690 31,1%
Tekjuskattur (153) (97) (56) 57,7% (561) (456) (105) 23,0%
Heildarhagnaður 628 328 300 91,5% 2.349 1.764 585 33,2%
Án áhrifa IFRS 16:
Annar rekstrarkostnaður (1.796) (1.611) (185) 11,5% (5.652) (4.491) (1.161) 25,8%
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) 1.604 734 870 118,5% 5.091 3.110 1.981 63,7%
Afskriftir (540) (265) (275) 103,6% (1.632) (770) (862) 111,9%
Hrein fjármagnsgjöld (257) (44) (213) 484,1% (636) (120) (516) 429,7%
Heildarhagnaður 676 328 348 106,0% 2.374 1.764 610 34,6%

Vörusala tímabilsins nam 87.744 milljónum króna, samanborið við 56.255 milljónir króna árið áður. Söluaukning tímabilsins milli ára er 56,0% og skýrist að mestu leyti af áhrifum Olís. Án áhrifa Olís er söluaukning félagsins 4,0% en söluaukning er í báðum matvörukeðjum félagsins, Bónus og Hagkaup, þrátt fyrir fækkun verslana. Níu mánaða meðaltal vísitölu neysluverðs milli rekstrarára hefur hækkað um 3,09% en hækkan vísitölunnar án húsnæðis var 2,79%. Vísitala innkaupa í erlendum gjaldmiðlum, þar sem vegnar eru innkaupamyntir Haga, sýnir veikingu íslensku krónunnar, eða um 7,7% á samanburðartímabilinu.

Framlegð félagsins var 19.372 milljónir króna, samanborið við 13.552 milljónir króna árið áður eða 22,1% framlegð samanborið við 24,1% á fyrra ári. Rekstrarkostnaður í heild hækkar um 2.418 milljónir króna sem skýrist að mestu af áhrifum Olís en til frádráttar eru leigugreiðslur sem tekjufærðar eru vegna IFRS 16 leigustaðals að upphæð 1.645 milljónir króna. Kostnaðarhlutfallið lækkar milli ára úr 18,8% í 14,8%. Án áhrifa IFRS 16 er kostnaðarhlutfallið nú 16,7%.

Afkoma fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA) nam 6.736 milljónum króna, samanborið við 3.110 milljónir króna árið áður. EBITDA-hlutfall var 7,7%, samanborið við 5,5% árið áður. EBITDA afkoma án áhrifa IFRS 16 var 5.091 milljón króna og EBITDA-hlutfall 5,8%.

Hagnaður tímabilsins eftir skatta nam 2.349 milljónum króna, sem jafngildir 2,7% af veltu en hagnaður eftir skatta á fyrra ári var 1.764 milljónir króna eða 3,1% af veltu.

2


Efnahagur samstæðunnar 30. nóvember 2019

Efnahagsreikningur

30.11.2019 28.02.2019 Breyting %
Eignir
Fastafjármunir 45.214 34.896 10.318 29,6%
Veltufjármunir 16.087 15.955 132 0,8%
Eignir samtals 61.301 50.851 10.450 20,6%
Eigið fé og skuldir
Hlutafé 1.196 1.213 (17) -1,4%
Annað eigið fé 22.996 23.066 (70) -0,3%
Samtals 24.192 24.279 (87) -0,4%
Hlutdeild minnihluta 1 1
Eigið fé samtals 24.193 24.279 (86) -0,4%
Langtímaskuldir 23.364 6.877 16.487 239,7%
Vaxtaberandi skammtímaskuldir 420 8.431 (8.011) -95,0%
Aðrar skammtímaskuldir 13.324 11.264 2.060 18,3%
Skuldir samtals 37.108 26.572 10.536 39,7%
Eigið fé og skuldir samtals 61.301 50.851 10.450 20,6%

Heildareignir samstæðunnar í lok tímabilsins námu 61.301 milljónum króna. Fastafjármunir voru 45.214 milljónir króna en þar af er leigueign 9.184 milljónir króna. Veltufjármunir voru 16.087 milljónir króna en þar af eru birgðir 8.557 milljónir króna.

Eigið fé í lok tímabilsins var 24.193 milljónir króna og eiginfjárhlutfall 39,5%. Heildarhlutafé í lok tímabilsins nam 1.213 milljónum króna og á félagið eigin hluti að nafnverði 17 milljónir króna.

Heildarskuldir samstæðunnar voru 37.108 milljónir króna í lok tímabilsins en þar af voru langtímaskuldir 23.364 milljónir króna. Leiguskuldir voru samtals 9.908 milljónir króna. Vaxtaberandi skuldir voru samtals 12.670 milljónir króna og nettó vaxtaberandi skuldir 9.305 milljónir króna eða 1,15x12 mánaða EBITDA. Veltufjárhlutfall var 1,17.

Sjóðstreymi fyrstu níu mánuði rekstrarársins

Sjóðstreymi

3F 2019/20 3F 2018/19 9M 2019/20 9M 2018/19
01.09-30.11 01.09-30.11 Breyting % 01.03-30.11 01.03-30.11 Breyting %
Handbært fé frá rekstri 1.266 753 513 68,1% 8.675 1.676 6.999 417,6%
Fjárfestingarhreyfingar (1.066) (5.407) 4.341 -80,3% (2.564) (5.784) 3.220 -55,7%
Fjármögnunarhreyfingar 406 5.073 (4.667) -92,0% (3.482) 4.659 (8.141) -174,7%
Hækkun (lækkun) á handbæru fé 606 419 187 44,6% 2.629 551 2.078 377,1%
Handbært fé í byrjun tímabils 2.759 354 2.405 679,4% 736 222 514 231,5%
Handbært fé í lok tímabils 3.365 773 2.592 335,3% 3.365 773 2.592 335,3%

Handbært fé frá rekstri á tímabilinu nam 8.675 milljónum króna, samanborið við 1.676 milljónir króna á fyrra ári. Fjárfestingarhreyfingar tímabilsins voru -2.564 milljónir króna, samanborið við -5.784 milljónir króna á fyrra ári. Fjármögnunarhreyfingar voru -3.482 milljónir króna, samanborið við 4.659 milljónir króna á fyrra ári. Handbært fé í lok tímabilsins var 3.365 milljónir króna, samanborið við 773 milljónir króna árið áður.


4

Staðan og framtíðarhorfur

Fyrstu níu mánuðir rekstrarársins eru í takti við áællanir félagsins og er útgefin EBITDA áætlun stjórnenda óbreytt. Útgefin fjárfestingaráætlun hækkar úr 3.300 milljónum króna í 3.800 milljónir króna vegna áætlaðra fasteignakaupa.

Þann 30. ágúst 2019 samþykkti Samkeppniseftirlitið samruna Haga hf. og Reykjavíkur Apóteks ehf. Afhending og greiðsla kaupverðs fór fram þann 5. september 2019 og koma áhrif kaupanna fram á rekstrarreikning og efnahagsreikning frá og með sama tíma. Reykjavíkur Apótek er staðsett á Seljavegi 2 í Reykjavík en nýtt apótek opnar í Skeifunni 11 fyrir lok janúarmánaðar.

Undanfarin misseri hefur verið unnið að endurfjármögnun samstæðunnar en um 7 ma.kr. greiðslur af lánum, sem voru á gjalddaga í október og nóvember 2019, voru greiddar 7. október sl. þegar félagið lauk skuldabréfaútboði. Skuldabréfaútboðið er í verðtryggðum flokki annars vegar að nafnverði 5,5 ma.kr. og hins vegar í óverðtryggðum flokki að nafnverði 2,5 ma.kr. Auk þess hefur félagið tryggt sér fjármögnun í formi lánalína að fjárhæð 4,5 ma.kr. og USD 12,5 millj. til að mæta skammtímasveiflum í rekstri. Hin nýju bréf verða tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland innan sex mánaða frá útgáfu þeirra. Verðtryggði skuldabréfaflokkurinn ber fasta 2,8% verðtryggða vexti en flokkurinn er tryggður með veði í lykilfasteignum Haga. Hann er til 10 ára með jöfnum afborgunum á þriggja mánaða fresti. Endurgreiðsluferli afborgana fylgir 30 ára greiðsluferli. Flokkurinn er stækkanlegur í allt að 15 ma.kr. Óverðtryggði skuldabréfaflokkurinn ber fasta 4,65% vexti og er tryggður með veði í þróunareignum Haga. Hann er til tveggja ára með einum gjalddaga höfuðstóls. Vextir greiðast á þriggja mánaða fresti.

Þann 3. janúar sl. samþykkti Samkeppniseftirlitið kaup dótturfélagsins Olís á öllu hlutafé í Mjöll Frigg ehf. Afhending félagsins fór fram á greiðsludegi, þann 7. janúar sl., og koma áhrif af rekstri félagsins því ekki fram fyrr en á síðasta ársfjörðungi.

Fjárhagsdagatal 2019/20

Fjárhagsupplýsingar eru birtar eftir lokun markaða.

Uppgjör Vikudagur Birtingardagur
4F – 1. mars – 29. febrúar Mánudagur 18. maí 2020
Aðalfundur Þriðjudagur 9. júní 2020

Nánari upplýsingar veitir Finnur Árnason, forstjóri félagsins, í síma 530-5500.