Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar Interim / Quarterly Report 2020

Oct 29, 2020

2196_rns_2020-10-29_abd9cabb-5643-4dd2-a5bd-7900665200f6.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

Fréttatilkynning

  1. oktober 2020

hagar

Hagnaður Haga á 2F jókst um 25% milli ára

Uppgjör Haga hf. á 2. ársfjórðungi 2020/21

Árshlutareikningur Haga hf. fyrir annan ársfjórðung 2020/21 var sambykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 29. október 2020. Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars 2020 til 31. ágúst 2020. Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Reikningurinn hefur verið kannaður af endurskoðendum félagsins, PricewaterhouseCoopers ehf.

Helstu lykiltölur

  • Vörusala 2F nam 30.924 millj. kr. (2019/20: 30.914 millj. kr.). Vörusala 1H nam 59.165 millj. kr. (2019/20: 59.504 millj. kr.).
  • Framlegðarhlutfall 2F var 23,5% (2019/20: 21,6%). Framlegðarhlutfall 1H var 22,1% (2019/20: 22,0%).
  • Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) 2F nam 3.019 millj. kr. (2019/20: 2.489 millj. kr.). Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) 1H nam 4.316 millj. kr. (2019/20: 4.523 millj. kr.).
  • Hagnaður 2F nam 1.321 millj. kr. eða 4,3% af veltu (2019/20: 1.056 millj. kr.). Hagnaður 1H nam 1.225 millj. kr. eða 2,1% af veltu (2019/20: 1.721 millj. kr.).
  • Hagnaður á hlut 2F var 1,12 kr. (2019/20: 0,87 kr.). Hagnaður á hlut 1H var 1,04 kr. (2019/20: 1,42 kr.).
  • Eigið fé nam 25.392 millj. kr. í lok tímabilsins og eiginfjárhlutfall 40,8% (Árslok 2019/20: 24.587 millj. kr. og 39,2%).
  • Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2020/21 gerir ráð fyrir að EBITDA verði 8.100-8.600 millj. kr.

Helstu fréttir af starfseminni

  • Jákvæður viðsnúningur hjá öllum rekstrar-einingum samstæðunnar á öðrum ársfjórðungi.
  • Neikvæð áhrif vegna fyrstu bylgu COVID-19 heimsfaraldursins voru mikil á 1F og voru því að mestu komin fram á 2F.
  • Gripið hefur verið til margvíslegra aðgerða til að tryggja öryggi og heilsu starfsfólks, viðskiptavina og annarra samstarfsaðila í heimsfaraldrinum.
  • Heimsóknum viðskiptavina í matvöruverslanir hefur fækkæði en meðalkarfa hefur stækkæði umtalsvert.
  • Mikil vinna við endurnýjun verslana Bónus og Hagkaups undanfarin misseri, þar sem þægindi og umhverfissjónarmið ráða ríkjum.
  • Framkvæmd við nýtt kæli- og frystivöruhús Aðfanga á áætlun og undirbúningur flutnings hafinn.
  • Sjálfsafgreiðslukössum fjölgað mikið. Meirihluti afgreiðslukassa í Bónus nú sjálfsafgreiðslukassar og eru þeir einnig komnir í allar matvöruverslanir Hagkaups.
  • Aukin áhersla á umhverfisvænni umbúðir og plastnotkun því minnkað umtalsvert undanfarin misseri.
  • Áherslur í rekstri og stefna félagsins hafa verið mótuð til lengri tíma. Útilíf og Reykjavíkur Apótek sett í söluferli.

Fréttatilkynning

  1. október 2020

hagar

Finnur Oddsson, forstjóri:

„Afkoma á öðrum ársfjórðungi var góð og umfram væntingar, sem endurspeglar styrk Haga samstæðunnar í ögrandi aðstæðum eins og þeim sem heimsfaraldur COVID-19 veldur. Við erum ánægð með þennan árangur og sérstaklega viðsnúninginn frá fyrstu mánuðum árs þegar faraldurinn setti stórt strik í reikninginn í öllum okkar rekstri.

Áhrifum COVID-19 er nokkuð misskipt eftir rekstrareiningum, en í samanburði við síðasta ár hefur verslana- og vöruhúsastarfsemi Haga gengið vel. Við finnum hins vegar fyrir því að viðskiptavinir okkar hafa breytt kauphegðun sinni með því að fækka heimsóknum í matvöruverslanir. Á sama tíma hefur meðalkarfa í hverri heimsókn stækkað tölvert og niðurstæðan er góð tekjuaukning í rekstri Bónus, Hagkaups og sérvöruverslana sem og aukin hagkvæmni í rekstri vöruhúsa Haga, Aðfanga og Banana.

Eftir erfiðan fyrsta ársfjórðung færðist rekstur Olís til betri vegar og gekk vel á öðrum fjórðungi, yfir sumarmánuðina. Þar nutum við góðs af ferðagleði landsmanna auk þess sem breytingar á olíuverði voru hagfelldari en á fyrsta fjórðungi. Rekstur er enn undir áætlunum og fyrirsjáanlegt er að neikvæðra áhrifa COVID-19 mun áfram gæta í meiri mæli hjá Olís en í verslunareiningum Haga. Til að takast á við þær aðstæður er mikilvægt að gæta sérstaklega að hagkvæmni í rekstri eins og við höfum gert undanfarna mánuði.

Pessi ágæti árangur á öðrum ársfjórðungi er langt frá því að vera sjálsagður. Mér er eftir í huga þakklæti til starfsfólks allra eininga Haga sem hefur synt bæði aðlögunarhæfni og fórnføsi í þeim undarlegu kringumstæðum sem farsóttin hefur skapað. Sérstaklega vil ég þar nefna starfsfólk í framlínu verslana og eldsneytisstöðva, sem á hverjum degi þjónar fjölda viðskiptavina okkar af kostgæfni, nú sem fyrr. Velferð og hagsmunir viðskiptavina, starfsfólks og samfélagsins hafa verið í forgrunni í öllum okkar aðgerðum. Við munum áfram gera allt sem í okkar valdi stendur til að viðhalda öflugum sóttvörnum en um leið lágmarka neikvæð áhrif á þjónustu og upplifun viðskiptavina okkar.

Samhliða því að bregðast við aðstæðum og treysta þjónustu við viðskiptavini, höfum við nýtt undanfarna mánuði til að móta áherslur í rekstri og stefnu félagsins til lengri tíma litið. Á næstu misserum munu Hagar einblína á kjarnastarfsemi og leggja ríkari áherslu á það sem við gerum best, sem er annars vegar á dagvörumarkaði og hins vegar á markaði með eldsneyti. Vörumerki Haga eru sterk og með langa sögu, en það verður markmið okkar að efla sérstöðu þeirra enn frekar og sjá til þess að heildin mæti ólíkum þörfum neytenda sem allra best. Við viljum jafnframt efla gagnkvæmt samtal við viðskiptavini okkar, m.a. eftir stafrænum leiðum, til að geta brugðist hraðar við nýjum þörfum og örum breytingum á neysluhegðun. Í allri þessari vinnu verður mikilvægasti áttavitinn okkar og grundvallarmarkmið að efla hag neytenda í gegnum framúrskarandi verslun. Það eru skemmtilegir tímar fram undan hjá Högum.“


Fréttatilkynning

  1. október 2020

hagar

Rekstrarreikningur samstæðunnar

Friillj. kr. 2F 2020/21 3F 2019/20 6M 2020/21 6M 2019/20
01.06.31.06 01.06.31.06 Revying % 01.03.31.06 01.03.31.06 Revying %
Vörusala 30.924 30.914 10 0,0% 59.165 59.504 (339) -0,6%
Kostnaðarverð seldra vara (23.657) (24.244) 587 -2,4% (46.069) (46.402) 333 -0,7%
Framlegð 7.267 6.670 597 9,0% 13.096 13.102 (6) 0,0%
Framlegð % 23,5% 21,6% - 1,9% 22,1% 22,0% - 0,1%
Aðrar rekstrartekjur 85 156 (71) -45,5% 183 264 (81) -30,7%
Laun og launatengd gjöld (3.064) (2.965) (99) 3,3% (6.340) (6.023) (317) 5,3%
Annar rekstrarkostnaður (1.269) (1.372) 103 -7,5% (2.623) (2.820) 197 -7,0%
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) 3.019 2.489 530 21,3% 4.316 4.523 (207) -4,6%
EBITDA % 9,8% 8,1% - 1,7% 7,3% 7,6% - -0,3%
Afskriftir (1.068) (936) (132) 14,1% (2.092) (1.869) (223) 11,9%
Rekstrarhagnaður (EBIT) 1.951 1.553 398 25,6% 2.224 2.654 (430) -16,2%
Hrein fjármagnsgjöld (419) (317) (102) 32,2% (850) (615) (235) 38,2%
Áhrif hlutdeildarfélaga 95 67 28 41,8% 125 90 35 38,9%
Hagnaður fyrir tekjuskatt 1.627 1.303 324 24,9% 1.499 2.129 (630) -29,6%
Tekjuskattur (306) (247) (59) 23,9% (274) (408) 134 -32,8%
Heildarhagnaður 1.321 1.056 265 25,1% 1.225 1.721 (496) -28,8%
Skipting hagnaðar
Hlutdeild móðurfélags 1.322 1.056 266 25,2% 1.228 1.721 (493) -28,6%
Hlutdeild minnih luta (1) - (1) - (3) - (3) -
1.321 1.056 265 25,1% 1.225 1.721 (496) -28,8%

Rekstur fyrstu sex mánuði rekstrarársins

Vörusala tímabilsins nam 59.165 millj. kr., samanborið við 59.504 millj. kr. árið áður. Sölusamdráttur tímabilsins milli ára var 0,6%.

Framlegð félagsins var 13.096 millj. kr., samanborið við 13.102 millj. kr. árið áður eða 22,1% framlegð, samanborið við 22,0% á fyrra ári.

Rekstrarkostnaður í heild hækkar um 120 millj. kr. Laun hækka um 5,3% sem skýrist m.a. af áhrifum starfslokagreiðslna. Annar rekstrarkostnaður lækkar um 197 millj. kr. Um 150 millj. kr. af launa- og rekstrarkostnaði á tímabilinu má rekja beint til COVID-19. Kostnaðarhlutfallið í heild hækkar milli ára úr 14,9% í 15,1%.

Afkoma fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA) nam 4.316 millj. kr., samanborið við 4.523 millj. kr. árið áður. EBITDA-hlutfall var 7,3%, samanborið við 7,6% árið áður.

Afskriftir hafa aukist nokkuð vegna endurnýjunar verslana og mikilla fjárfestinga undanfarin misseri.

Fjármagnskostnaður hefur aukist vegna meiri skuldsetningar og gengistaps á tímabilinu.

Heildarhagnaður tímabilsins nam 1.225 millj. kr., sem jafngildir 2,1% af veltu en hagnaður eftir skatta á fyrra ári var 1.721 millj. kr. eða 2,9% af veltu.

Lykiltölur á 2. ársfjörðungi

  • Vörusala 2F á pari við síðasta ár.
  • Framlegðarhlutfall 2F nokkuð yfir fyrra ári eða 23,5% samanborið við 21,6%. Framlegðarhlutfall Hagkaups og Olís töluvert yfir væntingum en Bónus nokkuð undir væntingum.
  • Aðrar rekstrartekjur 2F nokkuð lægri en á fyrra ári vegna einskiptisliðar á 2F 2019/20.
  • Laun 2F yfir fyrra ári, m.a. vegna lotunar á samningsbundnum starfslokakostnaði.
  • Kostnaðarhlutfall 2F er 14,0% og óbreytt frá fyrra ári.
  • EBITDA á 2F hækkar um 530 millj. kr. frá fyrra ári og nemur 9,8% af tekjum.
  • Fjármagnskostnaður hækkað nokkuð á 2F vegna gengistaps, samanborið við gengishagnað á fyrra ári.
  • Heildarhagnaður á 2F hækkar um 25,1% á milli ára.

Fréttatilkynning

  1. oktober 2020

hagar

Efnahagsreikningur samstæðunnar

Lykiltölur efnahags 31.08.2020

  • Heildareignir samstæðunnar í lok tímabilsins námu 62.246 millj. kr. og minnkuðu um 462 millj. kr. frá árslokum.
  • Fastafjármunir voru 48.065 millj. kr. og hækkuðu um 511 millj. kr. frá árslokum 2019/20. Fjárfesting í fasteignum nam 1.352 millj. kr. á tímabilinu og fjárfesting í áhöldum og innréttingum nam 855 millj. kr.
  • Veltufjármunir voru 14.181 millj. kr. og lækkuðu um 973 millj. kr. frá árslokum, sem að mestu má rekja til lækkunar á handbæru fé.
  • Birgðir í lok tímabils voru 8.359 millj. kr. og veltuhraði birgða 11,1. Birgðir stóðu nánast í stað frá árslokum og var veltuhraði á sama tímabili á fyrra ári 13,2.
  • Viðskiptakröfur hækkuðu um 391 millj. kr. og er innheimtutími krafna nú 11,1 dagar samanborið við 12,7 daga á sama tímabili á fyrra ári.
  • Veltufjárhlutfall er 0,97 og lausafjárhlutfall 0,4 í lok tímabils. Aðgangur að skammtímafjármögnun að upphæð 6,2 ma. kr. hjá viðskiptabanka tryggður.
  • Eigið fé í lok tímabilsins var 25.392 millj. kr. og eiginfjárhlutfall 40,8%. Arðsemi eigin fjár á tímabilinu var 10,7%. Eiginfjárhlutfall við lok síðasta rekstrarárs var 39,2% og arðsemi eigin fjár 12,6%. Félagið átti enga eigin hluti í lok tímabils.
  • Heildarskuldir samstæðunnar í lok tímabils voru 36.852 millj. kr. en þar af voru vaxtaberandi skuldir 12.545 millj. kr. og leiguskuldir 9.417 millj. kr. Nettó vaxtaberandi skuldir í lok tímabils voru 11.656 millj. kr. eða 2,4x12 mánaða EBITDA.
I millj. kr. 31.08.2020 29.02.2020 Breyting %
Eignir
Fastafjármunir 48.065 47.554 511 1,1%
Veltufjármunir 14.181 15.154 (973) -6,4%
Eignir samtals 62.246 62.708 (462) -0,7%
Eigið fé og skuldir
Hlutafé 1.181 1.189 (8) -0,7%
Annað eigið fé 24.213 23.397 816 3,5%
Samtals 25.394 24.586 808 3,3%
Hlutdeild minnihluta (2) 1 (3) -300,0%
Eigið fé samtals 25.392 24.587 805 3,3%
Langtimaskuldir 22.206 22.362 (156) -0,7%
Vaxtaberandi skammtímaskuldir 464 442 22 5,0%
Skuldir við lánastofnanir 1.273 (1.273) -100,0%
Aðrar skammtímaskuldir 14.182 14.045 137 1,0%
Skuldir samtals 36.852 38.122 (1.270) -3,3%
Eigið fé og skuldir samtals 62.246 62.708 (462) -0,7%

Fréttatilkynning

  1. október 2020

hagar

Sjóðstreymisyfirlit samstæðunnar

Unilli. kr. ZF 2020/21 ZF 2019/20 UM 2020/21 UM 2019/20
01.06-31.08 01.06-31.08 Breyting % 01.03-31.08 01.03-31.08 Breyting %
Handbært fé frá rekstri 942 2.442 (1.500) -61,4% 3.603 7.409 (3.806) -51,4%
Fjárfestingarhreyfingar (1.282) (688) (594) 86,3% (2.140) (1.498) (642) 42,9%
Fjármögnunarhreyfingar (2.246) (2.709) 463 -17,1% (2.806) (3.888) 1.082 -27,8%
Hækkun (lækkun) á handbæru fé (2.586) (955) (1.631) 170,8% (1.343) 2.023 (3.366) -166,4%
Handbært fé í byrjun tímabils 3.475 3.714 (239) -6,4% 2.232 736 1.496 203,3%
Handbært fé í lok tímabils 889 2.759 (1.870) -67,8% 889 2.759 (1.870) -67,8%

Sjóðstreymi fyrstu sex mánuði rekstrarárs

  • Handbært fé frá rekstri á tímabilinu nam 3.603 millj. kr., samanborið við 7.409 millj. kr. á fyrra ári. Breytingu á milli ára má rekja til breytinga á rekstrartengdum eignum, en á fyrra ári var gerð breyting á uppgjörsfyrirkomulagi greiðslukorta, þar sem uppgjör frá færsluhirði fór úr því að vera mánaðarlegt í daglegt.
  • Fjárfestingarhreyfingar tímabilsins voru 2.140 millj. kr., samanborið við 1.498 millj. kr. á fyrra ári. Á tímabilinu var fjárfest í fasteign á Furuvöllum á Akureyri auk þess sem stór hluti af kostnaði við framkvæmd við kæli- og frystivöruhús Aðfanga er kominn fram.
  • Fjármögnunarhreyfingar tímabilsins voru 2.806 millj. kr., samanborið við 3.888 millj. kr. á fyrra ári. Ekki var greiddur arður til hluthafa vegna síðastliðins rekstrarárs en á fyrra ári var arðgreiðsla að fjárhæð 1.159 millj. kr.

Staðan og framtíðarhorfur

Afkoma á öðrum ársfjörðungi var umfram væntingar en jákvæður viðsnúningur var hjá öllum rekstrareiningum samstæðunnar samanborið við fyrsta ársfjörðung. Fyrsti ársfjörðungur var töluvert undir áætlunum þar sem mikilla áhrifa gætti af COVID-19 faraldrinum strax í byrjun mars. Auk þess höfðu veiking íslensku krónunnar og lækkun á heimsmarkaðsverði á oliu neikvæð áhrif. Svo virðist sem áhrif fyrstu bylgu faraldursins hafi að mestu verið komin fram á öðrum ársfjörðungi þar sem aukin verslun innanlands, ásamt miklum ferðalögum landsmanna, höfðu jákvæð áhrif á afkomuna á fjörðungnum.

Á þessari stundu er erfitt að leggja mat á áhrif COVID-19 á seinni helming rekstrarársins. Þó má gera ráð fyrir áframhaldandi tekjuvexti í dagvöruhluta samstæðunnar en að rekstur Olís muni þyngjast í samanburði við fyrra ár og nýliðinn ársfjörðung. Þá er framlegð undir væntingum og búist er við áframhaldandi verðþrýstingi sem fer saman við kjarasamningsbundnar launahækkanir á næstu mánuðum. Á tímum sem þessum er mikilvægt fyrir aðila í rekstri, bæði birgja og smásala, að leita allra leiða til að hagræða hjá sér í rekstrinum til að komast megi hjá óhóflegum verðhækkunum, og stuðla þannig að því að verðbölgumarkmið náist og lífskjarasamningar haldi.

Afkomuspa stjórnenda fyrir seinni helming rekstrarársins, þ.e. tímabilið september 2020 til febrúar 2021, gerir ráð fyrir að EBITDA verði 3.800-4.300 millj. kr. og verður EBITDA afkoma rekstrarársins 2020/21 því 8.100-8.600 millj. kr.

Efnahags- og lausafjárstaða Haga er sterk og er félagið vel í stakk búið að takast á við ögrandi aðstæður í íslensku efnahagslífi. Fjármögnun félagsins er tryggð til langs tíma og er aðgangur að skammtímafjármögnun, að fjárhæð um 6,2 ma. kr., hjá viðskiptabanka einnig tryggður.

Gripið hefur verið til margvislegra aðgerða til að tryggja öryggi og heilsu starfsfólks, viðskiptavina og annarra samstarfsaðila samstæðunnar. Aðgerðirnar skipta miklu máli því stór hluti af starfsemi samstæðunnar, s.s. matvöruverslanir og tengd vöruhús, ásamt sölustöðum eldsneytis, gegna lykilhlutverki í innviðastarfsemi landsins.

5


Fréttatilkynning

  1. október 2020

hagar

Hlutafé og hluthafar

  • Markaðsvirði Haga í lok tímabilsins nam 58,7 ma. kr. og lokaverð þann 31. ágúst 2020 var 49,7.
  • Skráð hlutafé Haga í lok tímabilsins nam 1.181 millj. kr. Félagið á enga eigin hluti.
  • Þann 9. júní 2020 samþykkti aðalfundur að ekki yrði greiddur arður til hluthafa vegna síðastliðins árs.
  • Stjórn Haga hefur á grundvelli samþykktar aðalfundar frá 9. júní 2020 ákveðið að hefja í byrjun nóvember endurkaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins. Fjárhæð endurkaupanna verður að hámarki 500 millj. kr.
  • Hluthafar voru 684 í byrjun rekstrarárs og 683 í lok tímabilsins.

Rafraenn kynningarfundur föstudaginn 30. október 2020

Rafraenn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn föstudaginn 30. október kl. 8:30. Fundinum verður varpað í gegnum netið, þar sem Finnur Oddsson, forstjóri, og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar og samstæðu, munu kynna rekstur og afkomu félagsins, ásamt því að svara fyrirspurnum.

Tekið verður við spurningum sem tengjast uppgjörinu á meðan á útsendingu stendur á netfangið [email protected] og verður þeim svarað eins og kostur er í lok fundar.

Fundinum verður varpað í gegnum netið á slóðinni: https://livestream.com/accounts/11153656/events/9365572/player

Kynningargögn verða aðgengileg við upphaf fundar á heimasíðu Haga, www.hagar.is.

Fjárhagsdagatal 2020/21

Fjárhagsupplysingar eru birtar eftir lokun markaða.

Uppgjörstímabil Vikudagur Birtingardagur
3F – 1. mars – 30. nóvember Fimmtudagur 21. janúar 2021
4F – 1. mars – 28. febrúar Miðvikudagur 19. maí 2021
Aðalfundur 2021 Fimmtudagur 10. júní 2021

Fréttatilkynning þessi og uppgjörsgögn verða aðgengileg í enskri útgáfu á https://en.hagar.is/

Press release and financial statements will be available in English at https://en.hagar.is/

Nánari upplýsingar veita Finnur Oddsson, forstjóri félagsins ([email protected]) og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar og samstæðu ([email protected]), í síma 530-5500 eða tölvupósti.