Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar Interim / Quarterly Report 2019

Jan 30, 2019

2196_rns_2019-01-30_18137689-bea6-47ff-9d91-61887fc60e24.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

Hagar hf.

Samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar
1. mars til 30. nóvember 2018

Hagar hf.
Hagasmára 1
201 Kópavogur
Kt. 670203-2120


Efnisyfirlit

Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra ... 3
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu ... 5
Efnahagsreikningur ... 6
Eiginfjáryfirlit ... 7
Sjóostreymisyflit ... 8
Skýringar ... 9

Samandreginn samstæouárshlutareikningur Haga hf. 30.11.2018


Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Hagar hf. er verslunarfyrirtæki með starfsemi á Íslandi.

Árshlutareikningur Haga hf. fyrir tímabilið 1. mars til 30. nóvember 2018 er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34. Árshlutareikningurinn samanstendur af samandregnum samstæðureikningi Haga hf. og dótturfélaga þess, sem visað er til sem samstæðunnar.

Kaup félagsins á Olíuverzlun Íslands ehf. og DGV ehf.

Þann 29. nóvember 2018 samþykkti Samkeppniseftirlitið samruna Haga hf., Olíuverzlunar Íslands ehf. (Olís) og DGV ehf. Kaupsamningar um viðskiptin voru undirritaðir 26. apríl 2017 með fyrirvara um niðurstöður áreiðanleikakönnunar, samþykkti Samkeppniseftirlitsins og samþykkti hluthafafundar Haga fyrir aukningu hlutafjár. Fyrirvara um niðurstöður áreiðanleikakönnunar var aflétt þann 13. júlí 2017 og hlutafjárakning var samþykkt á aðalfundi Haga í júní 2017. Þann 11. september 2018 var undirrituð sátt við Samkeppniseftirlitið um skilyrði fyrir kaupunum en öll skilyrði sáttarinnar voru uppfyllt og kom samruninn því til framkvæmda í lok nóvember eins og áður segir. Í skýringu 14 í árshlutareikningnum má finna nánari upplýsingar um kaupin, kaupverð, kostnað vegna samrunans, skilyrði Samkeppniseftirlitisins, kaupverðsútdeilingu o.fl.

Rekstur tímabilisins og fjárhagsleg staða

Rekstrarreikningur Olís og DGV er ekki hluti af árshlutareikningi þessum en yfirtökudagur var 30. nóvember 2018. Áhrif samrunans á rekstur samstæðunnar munu því ekki koma fram fyrr en á fjórða ársfjörðungi. Efnahagsreikningur félaganna er hins vegar hluti af árshlutareikningnum. Samanburðarfjárhæðum hefur ekki verið breytt og innifela þær ekki áhrif af hinum nýju félögum.

Samkvæmt rekstrarreikningi og yfirliti um heildarafkomu var hagnaður af rekstri samstæðunnar að fjárhæð 1.764 millj. kr. Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir samstæðunnar 52.737 millj. kr. Eigið fé í lok tímabilisins nam 23.726 millj. kr. og var eiginfjárhlutfall 45%.

Skráð hlutafé félagsins nam í lok tímabilisins 1.213 millj. kr. Hver hlutur er ein króna að nafnverði. Allir hlutir eru í sama flokki og njóta sömu réttinda.

Hluthafar

Hluthafar voru 843 í upphafi ársins en 726 í lok tímabilisins. Tíu stærstu hluthafar félagsins í lok tímabilisins eru eftirfarandi:

30.11.2018 28.2.2018
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) 13,52% 14,17%
Gildi - lífeyrissjóður 12,50% 12,95%
Lífeyrissjóður verzlunarmanna 7,72% 6,86%
Birta lífeyrissjóður 5,36% 5,61%
Samherji hf. 5,14% 0,00%
FISK-Seafood ehf. 4,57% 0,00%
Stapi lífeyrissjóður 3,45% 5,04%
Frjálsi lífeyrissjóðurinn 3,32% 3,44%
Global Macro Absolute Return Ab 3,28% 3,43%
Festa - lífeyrissjóður 3,22% 3,33%

Breyting á stjórn félagsins

Þann 18. janúar 2019 var haldinn hluthafafundur í félaginu þar sem kosning stjórnar var á dagskrá. Eirikur S. Jóhannsson og Katrín Olga Jóhannesdóttir koma ný inn í stjórn en Erna Gísladóttir, Davíð Harðarson og Stefán Árni Auðólfsson sitja áfram í stjórn félagsins. Á stjórnarfundi sem haldinn var í kjólfar hluthafafundarins var Erna Gísladóttir kjörin formaður stjórnar og Davíð Harðarson varaformaður stjórnar.

Samandregnin samstæðuárshlutareikningur Haga hf. 30.11.2018


Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra, frh.:

Yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Samkvæmt bestu vitneskju stjórnar og forstjóra gefur samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar glögga mynd af rekstrarafkomu samstæðunnar fyrir tímabilið 1. mars til 30. nóvember 2018, eignum, skuldum og fjárhagsstöðu hennar þann 30. nóvember 2018 og breytingum á handbæru fé á tímabilinu, í samræmi við alpjóðlegan reikningsskilastáðal, IAS 34, eins og hann hefur verið staðfestur af Evrópusambandinu.

Jafnframt er það álit stjórnar og forstjóra að árshlutareikningurinn og skýrsla stjórnar og forstjóra geymi glöggt yfirlit um þróun og árangur í rekstri samstæðunnar, stöðu hennar, og lýsi helstu áhættuþáttum og óvissu sem samstæðan býr við.

Stjórn og forstjóri Haga hf. hafa í dag farið yfir árshlutareikning samstæðunnar fyrir tímabilið 1. mars til 30. nóvember 2018 og staðfesta hann með undirritun sinni.

Kópavogi, 30. janúar 2019

Stjórn:

Erna Gísladóttir
Eiríkur S. Jóhannesson
Davíð Harðarson
Katrín Olga Jóhannesdóttir
Stefán Árni Auðólfsson

Forstjóri:

Finnur Árnason

Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Haga hf. 30.11.2018


Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu

  1. mars 2018 til 30. nóvember 2018
Skýr. Priðji ársfjörðungur Prír ársfjörðungar
2018
1.9.-30.11. 2017
1.9.-30.11. 2018
1.3.-30.11. 2017
1.3.-30.11.
Vörusala 18.521 16.915 56.255 54.084
Kostnaðarverð seldra vara ( 14.124) ( 12.719) ( 42.703) ( 40.691)
Framlegð 4.397 4.196 13.552 13.393
Aðrar rekstrartekjur 55 141 161 244
Laun og launatengd gjöld ( 2.107) ( 2.014) ( 6.112) ( 6.012)
Annar rekstrarkostnaður ( 1.428) ( 1.425) ( 4.255) ( 4.327)
Einskiptiskostnaður vegna samruna 14 ( 183) ( 4) ( 236) ( 26)
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir 734 894 3.110 3.272
Afskriftir 7 ( 265) ( 366) ( 770) ( 822)
Rekstrarhagnaður 469 528 2.340 2.450
Fjármunatekjur 12 26 33 119
Fjármagnsgjöld ( 56) ( 53) ( 153) ( 173)
Hrein fjármagnsgjöld 8 ( 44) ( 27) ( 120) ( 54)
Áhrif hlutdeildarfélaga 0 0 0 20
Hagnaður fyrir tekjuskatt 425 501 2.220 2.416
Tekjuskattur ( 97) ( 100) ( 456) ( 483)
Heildarhagnaður tímabilsins 328 401 1.764 1.933
Hagnaður á hlut:
Grunnhagnaður og þynntur hagnaður á hlut 0,30 0,35 1,60 1,69

Skýringar á blaðsíðum 9 til 13 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárs hlutareikningnum.

Samandreginn samstæðuárs hlutareikningur Haga hf. 30.11.2018

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Efnahagsreikningur 30. november 2018

Skýr. 30.11.2018 28.2.2018
Eignir
Rekstrarfjármunir 20.113 10.733
Fjárfestingarfasteignir 2.556 1.530
Öefnislegar eignir 10.313 8.101
Eignarhlutir í hlutdeildarfélögum 1.183 0
Eignarhlutir í öðrum félögum 39 0
Skuldabréfaeign 75 0
Fastafjármunir samtals 34.279 20.364
Eignir til sölu 14 660 0
Vörubirgðir 9 8.728 4.574
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 3.977 678
Viðskiptakröfur - greiðslukortakröfur 4.320 3.546
Handbært fé 773 222
Veltufjármunir samtals 18.458 9.020
Eignir samtals 52.737 29.384
Eigið fé
Hlutafé 1.213 1.103
Yfirverðsreikningur hlutafjár 5.023 0
Lögbundinn varasjóður 303 239
Bundinn hlutdeildarreikningur 3.661 3.664
Óráðstafað eigið fé 13.526 12.951
Eigið fé samtals 23.726 17.957
Skuldir
Vaxtaberandi langtímaskuldir 10 5.003 2.217
Tekjuskattsskuldbinding 2.134 718
Langtímaskuldir samtals 7.137 2.935
Vaxtaberandi skammtímaskuldir 10 8.890 771
Tekjuskattur til greiðslu 793 379
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir 11 11.862 6.897
Skuldbindingar 329 445
Skammtímaskuldir samtals 21.874 8.492
Skuldir samtals 29.011 11.427
Eigið fé og skuldir samtals 52.737 29.384

Skýringar á blaðsiðum 9 til 13 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárshlutareikningnum.

Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Haga hf. 30.11.2018
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Eiginfjáryfirlit

1. mars 2018 til 30. nóvember 2018

Hlutafé Yfirverðs-reikningur hlutafjár Lög-bundinn varasjóður Bundinn hlutdeildar-reikningur Óráðstafað eigið fé Samtals
1. mars til 30. nóvember 2017
Eigið fé 1. mars 2017 1.153 291 0 3.893 12.075 17.412
Heildarhagnaður tímabilsins 1.933 1.933
Endurkaup á eigin bréfum ( 26 ) ( 291 ) ( 618 ) ( 935 )
Flutt af bundnum hlutdeildarreikning ( 812 ) 812 0
Eigið fé 30. nóvember 2017 1.127 0 0 3.081 14.202 18.410
1. mars til 30. nóvember 2018
Eigið fé 1. mars 2018 1.103 0 239 3.664 12.951 17.957
Heildarhagnaður tímabilsins 1.764 1.764
Tillag í varasjóð 64 ( 64 ) 0
Greiddur arður, 1,024 kr. á hlut ( 1.129 ) ( 1.129 )
Hlutafjáraukning 42 1.901 1.943
Afhending á eigin bréfum v. samruna 69 3.122 3.191
Flutt af bundnum hlutdeildarreikning ( 3 ) 3 0
Eigið fé 30. nóvember 2018 1.213 5.023 303 3.661 13.526 23.726

Skýringar á blaðsíðum 9 til 13 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárs hlutareikningnum.

Samandreginn samstæðuárs hlutareikningur Haga hf. 30.11.2018
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Sjóðstreymisyfirlit

  1. mars 2018 til 30. nóvember 2018
Skýr. Priðji ársfjörðungur Prír ársfjörðungar
2018 2017 2018 2017
Rekstrarhreyfingar
Hagnaður tímabilsins 328 401 1.764 1.933
Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi:
Söluhagnaður rekstrarfjármuna 62 ( 85) 61 ( 87)
Afskriftir 7 265 366 770 822
Hrein fjármagnsgjöld 8 44 27 120 54
Áhrif hlutdeildarfélaga 0 0 0 ( 20)
Tekjuskattur 97 100 456 483
Veltufé frá rekstri 796 809 3.171 3.185
Breytingar á rekstrartengdum eignum ( 809) ( 499) ( 1.843) ( 727)
Breytingar á rekstrartengdum skuldum 749 77 872 ( 257)
Handbært fé fyrir vexti og tekjuskatt 736 387 2.200 2.201
Innheimtar vaxtatekjur 12 26 32 109
Greidd vaxtagjöld ( 57) ( 54) ( 152) ( 170)
Greiddur tekjuskattur 62 ( 202) ( 404) ( 687)
Handbært fé frá rekstri 753 157 1.676 1.453
Fjárfestingarhreyfingar
Kaup á dótturfélögum, að frádr. yfirteknu handb. fé 14 ( 4.967) 0 ( 4.967) 0
Fjárfesting í fasteignum ( 39) ( 7) ( 81) ( 82)
Fjárfesting í áhöldum og innréttingum ( 403) ( 1.249) ( 796) ( 2.014)
Fjárfesting í óefnislegum eignum ( 6) ( 30) 37 ( 155)
Söluverð áhalda og innréttinga 8 2 23 37
Söluverð eignarhluta 0 0 0 9
Framlag frá hlutdeildarfélagi 0 0 0 20
Fjárfestingarhreyfingar ( 5.407) ( 1.284) ( 5.784) ( 2.185)
Fjármögnunarhreyfingar
Afborganir vaxtaberandi skulda ( 193) ( 192) ( 578) ( 575)
Greiddur arður 0 0 ( 1.129) 0
Nýjar vaxtaberandi skuldir 5.282 0 5.282 0
Skuldir við lánastofnanir, breyting ( 16) 0 1.084 0
Keypt eigin bréf 0 ( 637) 0 ( 935)
Fjármögnunarhreyfingar 5.073 ( 829) 4.659 ( 1.510)
Hækkun (lækkun) á handbæru fé 419 ( 1.956) 551 ( 2.242)
Handbært fé í upphafi tímabils 354 2.188 222 2.474
Handbært fé í lok tímabils 773 232 773 232
Fjárfestingar og fjármögnunarhreyfingar án greiðsluáhrifa
Fjárfesting í fasteignum 0 0 0 ( 85)
Yfirteknar skuldir við kaup á félagi 0 0 0 85
Seld fasteign 0 85 0 85
Uppgerð skuld vegna sölu fasteignar 0 ( 85) 0 ( 85)
Kaup á dótturfélagi, greitt með hlutabréfum ( 5.134) 0 ( 5.134) 0
Hlutafjárauknig 1.943 0 1.943 0
Afhending á eigin bréfum v. samruna 3.191 0 3.191 0

Skýringar á blaðsiðum 9 til 13 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárs hlutareikningnum.

Samandreginn samstæðuárs hlutareikningur Haga hf. 30.11.2018

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

1. Félagið

Hagar hf. („félagið“) er íslensk hlutafélag og er lögheimili þess að Hagasmára 1, Kópavogi. Samstæðuárshlutareikningur félagsins fyrir tímabillið 1. mars 2018 til 30. nóvember 2018 hefur að geyma árshlutareikning félagsins og dótturfélaga þess, sem vísað er til í heild sinni sem „samstæðunnar“ og til einstakra félaga sem „samstæðufélaga“. Aðalstarfsemi félagsins er rekstur smásöluverslana.

2. Grundvöllur reikningsskilanna

Yfirlýsing um að alþjóðlegum reikningsskilastöðlum sé fylgt

Samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastæðal um árshlutareikninga IAS 34 eins og hann hefur verið staðfestur af Evrópusambandinu. Samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar inniheldur ekki allar þær upplýsingar sem krafist er í fullbúnum ársreikningi og ætti að lesa í samhengi við ársreikning samstæðunnar fyrir rekstrarárið sem endaði þann 28. febrúar 2018.

Stjórn félagsins staðfesti árshlutareikninginn þann 30. janúar 2019.

3. Mikilvægar reikningsskilaðferðir

Við gerð árshlutareikningsins er beitt sömu reikningsskilaðferðum og beitt var við gerð ársreiknings samstæðunnar fyrir rekstrarárið sem lauk í febrúar 2018. Hægt er að nálgast ársreikninginn á vef félagsins, www.hagar.is sem og á vef Kauphallar Íslands, www.nasdaqomxnordic.com.

Í upphafi árs tóku gildi tveir nýjir reikningsskilastæðlar: IFRS 9 Fjármálagerningar og IFRS 15 Tekjur af samningum við viðskiptavini.

IFRS 9 Fjármálagerningar tilgreinir hvernig flokkun, mat og afskráningu fjáreigna og fjárskulda skuli vera háttað auk þess að setja nýjar reglur um áhættuvarnarreikningsskil og setja fram nýtt líkan fyrir virðisrýrnun fjáreigna. Í reikningsskilum samstæðunnar eru helstu fjármálagerningar viðskiptakröfur, sjöður og bankainnstæður og skuldir allar færðar á afskrifuðu kostnaðarverði. Nýi staðallinn hefur ekki áhrif á meðferð þessara fjármálagerninga hjá samstæðunni.

IFRS 15 nær til sölu á vörum og þjónustu og byggir á þeirri grundvallarreglu að tekjur séu færðar þegar yfirráð yfir vöru eða þjónustu flyst til viðskiptavina. Hjá samstæðunni hafa tekjur verið færðar þegar viðskiptavinur hefur fengið vöru til umráða eða þegar þjónusta hefur verið innt af hendi. Nýr staðall breytir því ekki færslu tekna hjá samstæðunni.

Árshlutareikningurinn er gerður í íslenskum krónum, sem er starfrækslugjaldmiðill félagsins, og eru fjárhæðir birtar í milljónum króna.

4. Mat og ákvarðanir

Gerð samstæðuárshlutareiknings í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastæðla krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og gefi sér forsendur sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaðferða og birtar fjárhæðir eigna, skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að vera frábrugðnar þessu mati.

5. Starfsþáttayfirlit

Starfsemi samstæðunnar á tímabilinu er nær eingöngu í smásölurekstri matvöru á Íslandi. Stjórnendur hafa metið smásöluverslun eftir mismunandi tegundum verslana og landsvæðum og líta svo á að hún byggist á sambærilegum efnahagslegum einkennum, vörum, viðskiptavinum og birgjum. Heildsölurekstur matvöru og smásölurekstur sérvoru er óverulegur og undir þeim tekju-, hagnaðar- og eignamörkum sem hafa ber til viðmiðunar við gerð starfsþáttayfirlits. Í framhaldi af samruna Olís og DGV við samstæðu Haga mun samstæðan birta upplýsingar um starfsþætti. Í skýringu 14 er að finna upplýsingar um bókfært verð eigna Olís og DGV þann 30.11.2018 en engin rekstraráhrif koma fram í árshlutareikningnum.

6. Viðskiptavild

Engar vísbendingar voru um virðisrýrnun viðskiptavildar þann 30. nóvember 2018 og vegna þess var virðisrýrnunarpróf ekki framkvæmt.

Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Haga hf. 30.11.2018
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar, frh.:

  1. Afskriftir
Afskriftir greinast pannig: 2018 2017
1.3.-30.11. 1.3-30.11.
Afskrift rekstrarfjármuna 714 774
Afskrift fjärfestingarfasteigna 29 25
Afskrift öefnislegra eigna 27 23
Afskriftir samtals 770 822
  1. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld

Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld greinast pannig:

Vaxtatekjur af innstæðum og kröfum 34 119
Vaxtagjöld og verðbætur ( 154) ( 173)
Hrein fjármagnsgjöld ( 120) ( 54)
  1. Vörubirgðir
Vörubirgðir greinast pannig: 30.11.2018 28.2.2018
Matvara 4.040 3.583
Sérvara 2.657 709
Eldsneyti 1.714 0
Vörur í flutningi 317 282
Vörubirgðir samtals 8.728 4.574
Niðurfærsla birgða í lok tímabils 53 70
  1. Vaxtaberandi skuldir

Kaup Haga á Olís og DGV voru að hluta til fjármögnuð með óverðtryggðu skammtímaláni, á gjaldaga 20. nóvember 2019. Unnið er að endurfjármögnun samstæðunnar.

Vaxtaberandi skuldir greinast pannig:

Vegið meðaltal iaxta Eftirstöðvar 30.11.2018 Eftirstöðvar 28.2.2018
30.11.2018 28.2.2018
Skuldir í ISK, óverðtryggðar 5,50% 5,45% 12.463 2.872
Skuldir í ISK, verðtryggðar 10,50% 10,50% 96 116
Lánalína 6,05% - 1.334 0
Vaxtaberandi skuldir, þ.m.t. næsta árs afborgun 13.893 2.988
Næsta árs afborganir vaxtaberandi skulda ( 8.890 ) ( 771 )
Langtímaskuldir samtals 5.003 2.217

Afborganir vaxtaberandi skulda greinast pannig á næstu ár:

Afborganir innan árs 8.890 771
Afborganir eftir 1 til 2 ár 470 2.168
Afborganir eftir 2 til 3 ár 210 49
Afborganir eftir 3 til 4 ár 196 0
Afborganir eftir 4 til 5 ár 4.127 0
Samtals 13.893 2.988

Gangvirði fjáreigna og fjárskulda er jafnt bókfærðu virði þeirra.

Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Haga hf. 30.11.2018

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar, frh.:

11. Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir 30.11.2018 28.2.2018
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir greinast þannig:
Viðskiptaskuldir 10.043 5.232
Aðrar skammtímaskuldir 1.819 1.665
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir samtals 11.862 6.897
  1. Félög í samstæðu

Dótturfélög félagsins í lok tímabilsins voru sex. Dótturfélögin í samstæðuárshlutareikningnum eru eftirfarandi:

Eignarhlutur
Staðsetning 30.11.2018 28.2.2018
Hagar verslanir ehf. Ísland 100% 100%
Bananar ehf. Ísland 100% 100%
Ferskar kjötvörur ehf. Ísland 100% 100%
Noron ehf. Ísland 100% 100%
Olíuverzlun Íslands ehf (Olís) Ísland 100% 0%
DGV ehf. Ísland 100% 0%
  1. Kennitölur

Helstu kennitölur samstæðunnar eru eftirfarandi:

Efnahagsreikningur: 30.11.2018 28.2.2018
Veltufjárhlutfall - veltufjármunir/skammtímaskuldir 0,84 1,06
Eiginfjárhlutfall - eigið fé/heildareignir 45,0% 61,1%
Innra virði hlutafjár 19,56 16,28
  1. Kaup á dótturfélögum

Þann 29. nóvember 2018 heimilaði Samkeppniseftirlitið samruna Haga, Olís og DGV eftir að öllum fyrirvörum, sem voru í kaupsamningi, hafði verið aflétt. Samruninn kom því til framkvæmda þann 30. nóvember 2018 eftir að eignarhlutir í Olís og DGV voru afhentir Högum og gengið hafði verið frá greiðslu söluandvirðis. Alls voru 5.396 millj. króna greiddar með reiðufé sem fjármagnaðar voru að mestu með skammtímáláni með gjalddaga 20. nóvember 2019 og auk þess voru afhentir 111 millj. hlutir í Högum. Skv. kaupsamningi skyldu afhentir hlutir reiknast á gengi 47,5 eða að andvirði 5.272 millj. króna. Þó ber að taka fram að skv. alþjóðlegum reikningsskilastöðlum reiknast virði hinna afhentu hluta í bókum félagsins m.v. gangvirði á afhendingardegi, sem var 46,25. Þann 30. nóvember 2018 juku Hagar hlutafé sitt um 41.831.651 að nafnvirði, til þess að uppfylla ákvæði kaupsamnings. Eftir hækkunina er hlutafé Haga 1.213.333.841 en var áður 1.171.502.190.

Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Haga hf. 30.11.2018
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar, frh.:

14. Kaup á dótturfélögum, frh.:

Helstu skilyrði fyrir samrunanum eru eftirfarandi:

  1. Samrunaaðilar skuldbinda sig til að bjóða sama verð á dagvöru á Olís stöðvum um land allt.
  2. Samrunaaðilar skuldbinda sig til að selja nýjum endurseljendum eldsneytis, sem eftir því leita, eldsneyti í heildsölu á viðskiptalegum grunni.
  3. Aðgengi endurseljenda eldsneytis að birgðarými hjá Olíudreifingu verður tryggt að því marki sem Olís er unnt sem annar eigandi félagsins.
  4. Samrunaaðilar skuldbinda sig til að selja rekstur og fasteign félagsins að Faxafeni 14 í Reykjavík, þar sem verslun Bónus er starfrækt.
  5. Samrunaaðilar skuldbinda sig til að selja rekstur og fasteignir Olís þjónustustöðvanna við Háaleitisbraut 12 og Vallargrund 3 í Reykjavík.
  6. Samrunaaðilar skuldbinda sig til að selja rekstur verslana Bónus að Hallveigarstíg 1 í Reykjavík og Smiðjuvegi 2 í Kópavogi.
  7. Samrunaaðilar skuldbinda sig til að selja rekstur Olís verslunarinnar í Stykkishólmi.
  8. Samrunaaðilar skuldbinda sig til að selja rekstur og aðstöðu ÓB stöðva við Starengi 2, Kirkjustétt 2-5 og Knarrarvog 2 í Reykjavík.
  9. Annar seljenda Olís, FISK-Seafood ehf., skuldbatt sig gagnvart Samkeppniseftirlitinu til að selja að hluta þann eignarhlut í Högum sem hann fékk afhentan skv. kaupsamningi. Hagar samþykktu samhliða að falla frá sölu- og framsalsbanni sem fram kom í kaupsamningi milli aðila frá 26. apríl 2017.

Pegar sátt Haga við Samkeppniseftirlitið var undirrituð þann 11. september 2018 höfðu kaupsamningar um allar eignir sem Högum bar að selja skv. sátinni verið undirritaðir. Samningur um eignir Haga var gerður við Ísborg ehf. og samningur um eignir Olís við Atlantsolíu. Söluandvirði eignanna er 660 millj. króna skv. kaupsamningum og verður það greitt við afhendingu eignanna, frá seinni hluta janúarmánaðar og fram í byrjun marsmánaðar 2019. Í heild er söluhagnaður af seldum eignum um 15 millj. króna, en þó eru nettó áhrif viðskiptanna á samstæðureikning Haga söltap að upphæð 62 millj. króna. Söluhagnaður var af eignum Olís að fjárhæð 77 millj. króna, sem færður hefur verið í rekstrarreikning Olís þann 30. nóvember skv. alþjóðlegum reikningsskilastöðum, en söltap varð af dagvörueignum Haga að upphæð 62 millj. króna sem hefur verið gjaldfært á rekstur Haga á þriðja ársfjörðungi.

Eftir samrunann eru Olís og DGV orðin dótturfélög Haga og verða þau rekin sem sjálfstæðar rekstrareiningar, líkt og aðrar einingar innan samstæðunnar. Fyrirtæki Haga hafa ólík rekstrarform og ólíka menningu en hlutverk Haga er að veita fyrirtækjum sínum aðhald í rekstri og finna sameiginlega fleti sem leitt geta til hagræðingar í kostnaði og aukið tekjumöguleika fyrirtækjanna og um leið samkeppnisstyrk þeirra. Rekstrarreikningar Olís og DGV verða hluti af samstæðu Haga frá og með fjórða ársfjörðungi. Rekstrarári fyrirtækjanna tveggja hefur verið breytt til samræmis við rekstrarár Haga, þ.e. tímabilið frá 1. mars til febrúarloka ár hvert. Efnahagsreikningar Olís og DGV eru hluti af árshlutareikningi þessum.

Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Haga hf. 30.11.2018
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar, frh.:

14. Kaup á dótturfélögum, frh.:

Yfirteknar aðgreinanlegar eignir og skuldir

Samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðum skal yfirtökufélag framkvæma kaupverðsútdeilingu á yfirtökudegi með því að meta aðgreinanlegar yfirteknar eignir og skuldir yfirtekins félags til gangvirðis. Kaupverðsútdeilingu er að mestu lokið, en þó með þeim fyrirvara að ef nýjar upplýsingar um stöðu eigna og / eða skulda á yfirtökudegi koma fram innan eins árs frá yfirtöku getur kaupverðsútdeiling breyst.

Taflan hér að neðan sýnir gangvirði yfirtekinna eigna og skulda Olís og DGV samkvæmt kaupverðsútdeilingu.

Óefnislegar eignir ... 37
Rekstrarfjármunir ... 9.539
Fjárfestingarfasteignir ... 1.050
Eignarhlutir í hlutdeildarfélögum ... 1.183
Eignarhlutir í öðrum félögum ... 39
Skuldabréfaeign ... 75
Eignir til sölu ... 430
Vörubirgðir ... 2.890
Viðskiptakröfur ... 2.957
Aðrar skammtímakröfur ... 501
Handbært fé ... 428
Tekjuskattsskuldbinding ... ( 1.416)
Langtímaskuldir ... ( 5.114)
Viðskiptaskuldir ... ( 3.366)
Ógreiddir reiknaðir skattar ... ( 275)
Aðrar skammtímaskuldir ... ( 665)
Gangvirði aðgreinanlegra yfirtekinna eigna að frádregnum yfirteknum skuldum ... 8.293
Viðskiptavild ... 2.236
Kaupverð ... 10.529

Viðskiptavild

Viðskiptavild er færð að því marki að kaupverð er umfram gangvirði aðgreinanlegra yfirtekinna eigna að frádregnum aðgreinanlegum yfirteknum skuldum. Viðskiptavildin er ekki afskrifuð en er virðisprófuð árlega eða oftar ef vísbendingar eru um virðisrýrnun.

Kostnaður vegna samruna 2018 2017
1.3.-30.11. 1.3.-30.11.
Sólutap dagvörueigna Haga ( 62 ) 0
Sérfræðikostnaður og annar kostnaður ( 174 ) ( 26 )
samtals kostnaður vegna samruna ( 236 ) ( 26 )

Kostnaðurinn hefur allur verið gjaldfærður.

Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Haga hf. 30.11.2018
Fjárhæðir eru í milljónum króna