Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar Interim / Quarterly Report 2018

Jun 28, 2018

2196_rns_2018-06-28_b6a2b096-c75b-4f9f-9fe2-e6ebcb465405.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

hagar

Fréttatilkynning:

Hagar hf. árslutauppgjør Q1 // mars 2018 – mai 2018

Árslutareikningur Haga hf. fyrir fyrsta ársfjórðung 2018/19 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 28. júní 2018. Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars 2018 til 31. mai 2018. Árslutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Endurskoðendur félagsins, PricewaterhouseCoopers ehf., hafa hvorki endurskoðað né kannað reikninginn.

Helstu upplýsingar

  • Hagnaður tímabilsins nam 728 millj. kr. eða 3,9% af veltu.
  • Hagnaður á hlut var 0,66 kr.
  • Vörusala tímabilsins nam 18.592 millj. kr.
  • Framlegð tímabilsins var 24,7%.
  • Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) nam 1.193 millj. kr.
  • Heildareignir samstæðunnar námu 30.312 millj. kr. í lok tímabilsins.
  • Handbært fé félagsins nam 373 millj. kr. í lok tímabilsins.
  • Eigið fé félagsins nam 18.685 millj. kr. í lok tímabilsins.
  • Eiginfjárhlutfall var 61,6% í lok tímabilsins.

Rekstrarafkoma fyrsta ársfjórðungs

Vörusala tímabilsins nam 18.592 milljónum króna, samanborið við 19.048 milljónir króna árið áður. Sölusamdráttur tímabilsins milli ára er 2,4%. Í matvöruhluta félagsins er sölusamdráttur 2,8% í krónum talið en 3,8% í stykkjum. Fjölda viðskiptavina hefur fækkað um 1,5% milli ára. Þriggja mánaða meðaltal vísitölu neysluverðs milli rekstrarára hefur hækkað um 2,34% en lækkun vísitölunnar án húsnæðis var 0,10%. Vísitala innkaupa í erlendum gjaldmiðlum, þar sem vegnar eru innkaupamyntir Haga, sýnir veikingu íslensku krónunnar, eða um 3,2% á samanburðartímabilinu.

Framlegð félagsins var 4.592 milljónir króna, samanborið við 4.736 milljónir króna árið áður eða 24,7% framlegð samanborið við 24,9% á fyrra ári. Rekstrarkostnaður í heild lækkar um 58 milljónir króna eða 1,7% milli ára en kostnaðarhlutfallið hækkar úr 18,4% í 18,6%.

Afkoma fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA) nam 1.193 milljónum króna, samanborið við 1.277 milljónir króna árið áður. EBITDA-hlutfall var 6,4%, samanborið við 6,7% árið áður.

Hagnaður tímabilsins eftir skatta nam 728 milljónum króna, sem jafngildir 3,9% af veltu en hagnaður eftir skatta á fyrra ári var 850 milljónir eða 4,5% af veltu.


2

Efnahagsreikningur og sjóðstreymi fyrsta ársfjórðungs

Heildareignir samstæðunnar í lok tímabilsins námu 30.312 milljónum króna. Fastafjármunir voru 20.323 milljónir króna og veltufjármunir 9.989 milljónir króna. Þar af eru birgðir 4.845 milljónir króna en birgðir voru 4.393 milljónir króna ári áður. Birgðir hafa því hækkað um 452 milljónir króna milli ára.

Eigið fé félagsins var 18.685 milljónir króna í lok tímabilsins og eiginfjárhlutfall 61,6%. Heildarskuldir samstæðunnar voru 11.627 milljónir króna, þar af voru langtímaskuldir 2.743 milljónir króna.

Handbært fé frá rekstri á tímabilinu nam 550 milljónum króna, samanborið við 1.090 milljónir króna á fyrra ári. Fjárfestingarhreyfingar tímabilsins voru 207 milljónir króna og fjármögnunarhreyfingar 192 milljónir króna. Handbært fé í lok tímabilsins var 373 milljónir króna, samanborið við 3.027 milljónir króna árið áður. Handbært fé hækkaði um 151 milljónir króna á tímabilinu.

Staðan og framtíðarhorfur

Fyrsti ársfjórðungur var í takti við áætlanir félagsins. Horfur næstu mánaða gera ráð fyrir að áætlanir standist og er því áætlun stjórnenda sem gefin var út fyrir rekstrarárið 2018/19 óbreytt en eins og fram kom samhliða birtingu ársuppgjørs félagsins er gert ráð fyrir að EBITDA samstæðunnar verði um 5.000 milljónir króna. Fjárfestingaáætlun er einnig óbreytt eða um 1.800-2.000 milljónir króna.

Eins og fram hefur komið undirritaði félagið samning um kaup á öllu hlutafé í Olíuverzlun Íslands hf. og DGV ehf. þann 26. apríl 2017. Enn er beðið eftir niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins en unnið hefur verið að því síðustu misseri að leggja fram tillögur í málinu sem nægi til að leysa úr öllum þeim samkeppnislegu vandamálum sem annars leiði af samrunanum að mati Samkeppniseftirlitsins. Málinu getur því enn lokið með setningu skilyrða fyrir samrunanum eða ógildingu hans.

Fjárhagsdagatal 2018/19

  1. ársfjórðungur (1. mars – 31. ágúst): 29. október 2018
  2. ársfjórðungur (1. mars – 30. nóvember): 15. janúar 2019
  3. ársfjórðungur (1. mars – 28. febrúar): 16. maí 2019

Nánari upplýsingar veitir Finnur Árnason, forstjóri félagsins, í síma 530-5500.


Árshlutareikningur Haga hf. Q1 // mars 2018 – mai 2018

Lykiltölur í millj. kr. – samstæða

Rekstrarreikningur

2018/19 2017/18
1.3-31.5 1.3-31.5
Vörusala 18.592 19.048
Kostnaðarverð seldra vara (14.000) (14.312)
Framlegð 4.592 4.736
Aðrar rekstrartekjur 56 54
Laun og launatengd gjöld (2.054) (2.043)
Annar rekstarkostnaður (1.401) (1.470)
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) 1.193 1.277
Afskriftir (249) (225)
Rekstrarhagnaður (EBIT) 944 1.052
Hrein fjármagnsgjöld (34) (10)
Áhrif hlutdeildarfélaga -- 20
Hagnaður fyrir tekjuskatt 910 1.062
Tekjuskattur (182) (212)
Heildarhagnaður timabilsins 728 850

Efnahagstreikningur

31.05.2018 28.02.2018
Eignir
Fastafjármunir 20.323 20.364
Veltufjármunir 9.989 9.020
Eignir samtals 30.312 29.384
Eigið fé og skuldir
Hlutafé 1.103 1.103
Annað eigið fé 17.582 16.854
Eigið fé samtals 18.685 17.957
Langtímaskuldir 2.743 2.935
Vaxtaberandi skammtímaskuldir 772 771
Aðrar skammtímaskuldir 8.112 7.721
Skuldir samtals 11.627 11.427
Eigið fé og skuldir samtals 30.312 29.384

Sjóðstreymi

2017/18 2017/18
1.3-31.5 1.3-31.5
Handbært fé frá rekstri 550 1.090
Fjárfestingarhreyfingar (207) (346)
Fjármögnunarhreyfingar (192) (191)
Hækkun á handbæru fé 151 553
Handbært fé í byrjun tímabils 222 2.474
Handbært fé í lok tímabils 373 3.027

Breytingar á eigin fé

Hlutafé Yfirverðs-reikningur Lögb. varasj. Bundinn hlutdeildar-reikningur Óráðstafað eigið fé Samtals
Eigið fé 1. mars 2018 1.103 -- 239 3.664 12.951 17.957
Heildarhagnaður tímabilsins 728 728
Tillag í lögbundinn varasjóð 36 (36) --
Flutt á bundinn hlutdeildarreikning 778 (778) --
Eigið fé 31. mai 2018 1.103 275 4.442 12.865 18.685