AI assistant
Hagar — Interim / Quarterly Report 2018
Oct 29, 2018
2196_rns_2018-10-29_90323cb3-1fb4-4346-9fed-0679240e8a68.pdf
Interim / Quarterly Report
Open in viewerOpens in your device viewer
Hagar hf.
Samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar
1. mars til 31. ágúst 2018
Hagar hf.
Hagasmára 1
201 Kópavogur
Kt. 670203-2120
Efnisyfirlit
Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra ... 3
Áritun óháðs endurskoðanda ... 4
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu ... 5
Efnahagsreikningur ... 6
Eiginfjáryfirlit ... 7
Sjóðstreymisyfirlit ... 8
Skýringar ... 9
Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Haga hf. 31.08.2018
Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra
Hagar hf. er verslunarfyrirtæki með starfsemi á Íslandi.
Árshlutareikningur Haga hf. fyrir tímabilið 1. mars til 31. ágúst 2018 er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34. Árshlutareikningurinn samanstendur af samandregnum samstæðureikningi Haga hf. og dótturfélaga þess, sem vísað er til sem samstæðunnar.
Samkvæmt rekstrarreikningi og yfirliti um heildarafkomu var hagnaður af rekstri samstæðunnar að fjárhæð 1.436 millj. kr. Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir samstæðunnar 30.424 millj. kr. Eigið fé í lok tímabilisins nam 18.264 millj. kr. og var eiginfjárhlutfall 60%.
Skráð hlutafé félagsins nam í lok tímabilisins 1.172 millj. kr. en félagið á eigin hluti að nafnverði 69 millj. kr. Hver hlutur er ein króna að nafnverði. Allir hlutir eru í sama flokki og njóta sömu réttinda.
Hluthafar voru 843 í byrjun tímabilisins og 752 í lok þess.
Þann 11. september 2018 undirritaði Hagar hf. sátt við Samkeppniseftirlitið vegna kaupa Haga hf. á öllu hlutafé í Olíuverzlun Íslands hf. en kaupsamningur var undirritaður í apríl 2017. Samruninn kemur þó ekki til framkvæmda fyrr en skilyrði fyrir sölu eigna hafa verið uppfyllt og Samkeppniseftirlitið hefur metið hæfi kaupenda eignanna. Vonir standa til að hæfismati verði lokið í síðasta lagi um miðjan nóvember. Öðrum fyrirvörum hefur verið aflétt. Nánari upplýsingar um viðskiptin má finna í skýringu 15.
Yfirlýsing stjórnar og forstjóra
Samkvæmt bestu vitneskju stjórnar og forstjóra gefur samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar glögga mynd af rekstrarafkomu samstæðunnar fyrir tímabilið 1. mars til 31. ágúst 2018, eignum, skuldum og fjárhagsstöðu hennar þann 31. ágúst 2018 og breytingum á handbæru fé á tímabilinu, í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal, IAS 34, eins og hann hefur verið staðfestur af Evrópusambandinu.
Jafnframt er það álit stjórnar og forstjóra að árshlutareikningurinn og skýrsla stjórnar og forstjóra geymi glöggt yfirlit um þróun og árangur í rekstri samstæðunnar, stöðu hennar, og lýsi helstu áhættuþáttum og óvissu sem samstæðan býr við.
Stjórn og forstjóri Haga hf. hafa í dag farið yfir árshlutareikning samstæðunnar fyrir tímabilið 1. mars til 31. ágúst 2018 og staðfesta hann með undirritun sinni.
Kópavogi, 29. október 2018
Stjórn:
Kristín Friðgeirsdóttir
Erna Gísladóttir
Davíð Harðarson
Sigurður Arnar Sigurðsson
Stefán Árni Auðólfsson
Forstjóri:
Finnur Árnason
Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Haga hf. 31.08.2018
Kőnnunaráritun óháðs endurskoðanda
Til stjórnar og hluthafa Haga hf.
Inngangur
Við hófum kannað meðfylgjandi samandreginn árshlutareikning samstæðu Haga hf. fyrir tímabilið 1. mars til 31. ágúst 2018. Samandregni árshlutareikningurinn hefur að geyma skýrslu og yfirlýsingu stjórnar og forstjóra, rekstrarreikning og yfirlit um heildarafkomu, efnahagsreikning, eiginfjáryfirlit, sjóðstreymisyfirlit, upplýsingar um mikilvægar reikningsskilaaðferðir og aðrar skýringar. Stjórnendur eru ábyrgir fyrir gerð og framsetningu samandregna árshlutareikningsins í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal IAS 34, eins og hann hefur verið sambykktur af Evrópusambandinu. Ábyrgð okkar felst í þeirri ályktun sem af kőnnun okkar leiðir.
Umfang kőnnunar
Kőnnun okkar var unnin í samræmi við alþjóðlegan staðal ISRE 2410, sem fjallar um kőnnun óháðs endurskoðanda á árshlutareikningum. Slik kőnnun felur í sér fyrirspurnir, einkum til starfsmanna sem eru ábyrgir fyrir fjármálum og reikningsskilum félagsins ásamt greiningum á hinum ýmsu liðum reikningsskilanna og öðrum kőnnunaraðgerðum. Kőnnun felur ekki í sér jafn viðtækar aðgerðir og endurskoðun sem unnin er í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla og er því ekki víst að við fáum vitneskju um öll mikilvæg atriði sem gætu komið í ljós við endurskoðun. Þar af leiðandi látum við ekki í ljós álit um endurskoðun.
Ályktun
Við kőnnun okkar kom ekkert fram sem bendir til annars en að meðfylgjandi samandreginn árshlutareikningur sé í öllum meginatriðum gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal IAS 34, eins og hann hefur verið sambykktur af Evrópusambandinu.
Reykjavík, 29. október 2018
PricewaterhouseCoopers ehf.
Bryndís Björk Guðjónsdóttir
Vignir Rafn Gíslason
Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Haga hf. 31.08.2018
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu
1. mars til 31. ágúst 2018
| Skýr. | Annar ársfjórðungur | Fyrri árshelmingur | |||
|---|---|---|---|---|---|
| 2018 | 2017 | 2018 | 2017 | ||
| 1.6.-31.8. | 1.6.-31.8. | 1.3.-31.8. | 1.3.-31.8. | ||
| * | * | ||||
| Vörusala | 19.142 | 18.121 | 37.734 | 37.169 | |
| Kostnaðarverð seldra vara | ( 14.579) | ( 13.660) | ( 28.579) | ( 27.972) | |
| Framlegð | 4.563 | 4.461 | 9.155 | 9.197 | |
| Aðrar rekstrartekjur | 50 | 49 | 106 | 103 | |
| Laun og launatengd gjöld | ( 1.951) | ( 1.955) | ( 4.005) | ( 3.998) | |
| Annar rekstrarkostnaður | ( 1.479) | ( 1.454) | ( 2.880) | ( 2.924) | |
| Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir | 1.183 | 1.101 | 2.376 | 2.378 | |
| Afskriftir | 7 | ( 256) | ( 231) | ( 505) | ( 456) |
| Rekstrarhagnaður | 927 | 870 | 1.871 | 1.922 | |
| Fjármunatekjur | 7 | 39 | 21 | 93 | |
| Fjármagnsgjöld | ( 49) | ( 56) | ( 97) | ( 120) | |
| Hrein fjármagnsgjöld | 8 | ( 42) | ( 17) | ( 76) | ( 27) |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | 0 | 0 | 0 | 20 | |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 885 | 853 | 1.795 | 1.915 | |
| Tekjuskattur | ( 177) | ( 171) | ( 359) | ( 383) | |
| Heildarhagnaður tímabilsins | 708 | 682 | 1.436 | 1.532 | |
| Hagnaður á hlut: | |||||
| Grunnhagnaður og þynntur hagnaður á hlut | 0,64 | 0,59 | 1,30 | 1,33 |
Skýringar á blaðsíðum 9 til 12 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárs hlutareikningnum.
- Ekki kannað
Samandreginn samstæðuárs hlutareikningur Haga hf. 31.08.2018
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Efnahagsreikningur 31. ágúst 2018
| Skýr. | 31.8.2018 | 28.2.2018 | |
|---|---|---|---|
| Eignir | |||
| Rekstrarfjármunir | 10.682 | 10.733 | |
| Fjárfestingarfasteignir | 1.514 | 1.530 | |
| Óefnislegar eignir | 8.041 | 8.101 | |
| Fastafjármunir samtals | 20.237 | 20.364 | |
| Vörubirgðir | 9 | 4.569 | 4.574 |
| Viðskiptakrófur og aðrar skammtímakrófur | 965 | 678 | |
| Viðskiptakrófur - greiðslukortakrófur | 4.299 | 3.546 | |
| Handbært fé | 354 | 222 | |
| Veltufjármunir samtals | 10.187 | 9.020 | |
| Eignir samtals | 30.424 | 29.384 | |
| Eigið fé | |||
| Hlutafé | 1.103 | 1.103 | |
| Lögbundinn varasjóður | 276 | 239 | |
| Bundinn hlutdeildarreikningur | 10 | 4.472 | 3.664 |
| Óráðstafað eigið fé | 12.413 | 12.951 | |
| Eigið fé samtals | 18.264 | 17.957 | |
| Skuldir | |||
| Vaxtaberandi langtímaskuldir | 11 | 1.832 | 2.217 |
| Tekjuskattsskuldbinding | 718 | 718 | |
| Langtímaskuldir samtals | 2.550 | 2.935 | |
| Vaxtaberandi skammtímaskuldir | 11 | 773 | 771 |
| Skuldir við lánastofnanir | 1.100 | 0 | |
| Tekjuskattur til greiðslu | 272 | 379 | |
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir | 12 | 7.091 | 6.897 |
| Skuldbindingar | 374 | 445 | |
| Skammtímaskuldir samtals | 9.610 | 8.492 | |
| Skuldir samtals | 12.160 | 11.427 | |
| Eigið fé og skuldir samtals | 30.424 | 29.384 |
Skýringar á blaðsiðum 9 til 12 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárs hlutareikningnum.
Samandreginn samstæðuárs hlutareikningur Haga hf. 31.08.2018
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Eiginfjáryfirlit
1. mars til 31. ágúst 2018
| Skýr. | Hlutafé | Yfirverðs-reikningur hlutafjár | Lög-bundinn varasjóður | Bundinn hlutdeildar-reikningur | Óráðstafað eigið fé | Samtals | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Breytingar á eigin fé 1. mars til 31. ágúst 2017 | |||||||
| Eigið fé 1. mars 2017 | 1.153 | 291 | 0 | 3.893 | 12.075 | 17.412 | |
| Heildarhagnaður tímabilsins | 1.532 | 1.532 | |||||
| Endurkaup á eigin bréfum | ( 8 ) | ( 290 ) | ( 298 ) | ||||
| Flutt á bundinn hlutdeildarreikning | 10 | ( 1.206 ) | 1.206 | 0 | |||
| Eigið fé 31. ágúst 2017 | 1.145 | 1 | 0 | 2.687 | 14.813 | 18.646 | |
| Breytingar á eigin fé 1. mars til 31. ágúst 2018 | |||||||
| Eigið fé 1. mars 2018 | 1.103 | 0 | 239 | 3.664 | 12.951 | 17.957 | |
| Heildarhagnaður tímabilsins | 1.436 | 1.436 | |||||
| Tillag í varasjóð | 37 | ( 37 ) | 0 | ||||
| Greiddur arður, 1,024 kr. á hlut | ( 1.129 ) | ( 1.129 ) | |||||
| Flutt á bundinn hlutdeildarreikning | 10 | 808 | ( 808 ) | 0 | |||
| Eigið fé 31. ágúst 2018 | 1.103 | 0 | 276 | 4.472 | 12.413 | 18.264 |
Skýringar á blaðsíðum 9 til 12 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárs hlutareikningnum.
Samandreginn samstæðuárs hlutareikningur Haga hf. 31.08.2018
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Sjóðstreymisyfirlit
1. mars til 31. ágúst 2018
| Skýr. | Annar ársfjörðungur | Fyrri árshelmingur | |||
|---|---|---|---|---|---|
| 2018 | 2017 | 2018 | 2017 | ||
| 1.6.-31.8. | 1.6.-31.8. | 1.3.-31.8. | 1.3.-31.8. | ||
| Rekstrarhreyfingar | |||||
| Hagnaður tímabilsins | 708 | 682 | 1.436 | 1.532 | |
| Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi: | |||||
| Söluhagnaður rekstrarfjármuna | 0 | ( 1) | ( 1) | ( 2) | |
| Afskriftir | 7 | 256 | 231 | 505 | 456 |
| Hrein fjármagnsgjöld | 8 | 42 | 17 | 76 | 27 |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | 0 | 0 | 0 | ( 20) | |
| Tekjuskattur | 177 | 171 | 359 | 383 | |
| Veltufé frá rekstri | 1.183 | 1.100 | 2.375 | 2.376 | |
| Breytingar á rekstrartengdum eignum | ( 216) | ( 171) | ( 1.034) | ( 228) | |
| Breytingar á rekstrartengdum skuldum | 781 | ( 466) | 1.223 | ( 334) | |
| Handbært fé fyrir vexti og tekjuskatt | 1.748 | 463 | 2.564 | 1.814 | |
| Innheimtar vaxtatekjur | 8 | 42 | 20 | 83 | |
| Greidd vaxtagjöld | ( 50) | ( 56) | ( 95) | ( 116) | |
| Greiddur tekjuskattur | ( 233) | ( 243) | ( 466) | ( 485) | |
| Handbært fé frá rekstri | 1.473 | 206 | 2.023 | 1.296 | |
| Fjárfestingarhreyfingar | |||||
| Fjárfesting í fasteignum | 79 | ( 1) | ( 42) | ( 75) | |
| Fjárfesting í áhöldum og innréttingum | ( 248) | ( 546) | ( 393) | ( 765) | |
| Fjárfesting í óefnislegum eignum | ( 6) | ( 39) | 43 | ( 125) | |
| Söluverð áhalda og innréttinga | 5 | 31 | 15 | 35 | |
| Söluverð eignarhluta | 0 | 0 | 0 | 9 | |
| Framlag frá hlutdeildarfélagi | 0 | 0 | 0 | 20 | |
| Fjárfestingarhreyfingar | ( 170) | ( 555) | ( 377) | ( 901) | |
| Fjármögnunarhreyfingar | |||||
| Áfborganir vaxtaberandi skulda | ( 193) | ( 192) | ( 385) | ( 383) | |
| Greiddur arður | ( 1.129) | 0 | ( 1.129) | 0 | |
| Keypt eigin bréf | 0 | ( 298) | 0 | ( 298) | |
| Fjármögnunarhreyfingar | ( 1.322) | ( 490) | ( 1.514) | ( 681) | |
| Hækkun (lækkun) á handbæru fé | ( 19) | ( 839) | 132 | ( 286) | |
| Handbært fé í upphafi tímabils | 373 | 3.027 | 222 | 2.474 | |
| Handbært fé í lok tímabils | 354 | 2.188 | 354 | 2.188 | |
| Fjárfestingar og fjármögnunarhreyfingar án greiðsluáhrifa | |||||
| Fjárfesting í fasteignum | 0 | ( 85) | 0 | ( 85) | |
| Yfirteknar skuldir við kaup á félagi | 0 | 85 | 0 | 85 |
Skýringar á blaðsíðum 9 til 12 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðúárshlutareikningnum.
- Ekki kannað
Samandreginn samstæðúárshlutareikningur Haga hf. 31.08.2018
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
1. Félagið
Hagar hf. („félagið“) er íslensk hlutafélag og er lögheimili þess að Hagasmára 1, Kópavogi. Samstæðuárshlutareikningur félagsins fyrir tímabilið 1. mars 2018 til 31. ágúst 2018 hefur að geyma árshlutareikning félagsins og dótturfélaga þess, sem vísað er til í heild sinni sem „samstæðunnar“ og til einstakra félaga sem „samstæðufélaga“. Aðalstarfsemi félagsins er rekstur smásöluverslana.
2. Grundvöllur reikningsskilanna
Yfirlýsing um að alþjóðlegum reikningsskilastöðlum sé fylgt
Samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastöðal um árshlutareikninga IAS 34 eins og hann hefur verið staðfestur af Evrópusambandinu. Samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar inniheldur ekki allar þær upplýsingar sem krafist er í fullbúnum ársreikningi og ætti að lesa í samhengi við ársreikning samstæðunnar fyrir rekstrarárið sem endaði þann 28. febrúar 2018.
Stjórn félagsins staðfesti árshlutareikninginn þann 29. október 2018.
3. Mikilvægar reikningsskilaðferðir
Við gerð árshlutareikningsins er beitt sömu reikningsskilaðferðum og beitt var við gerð ársreiknings samstæðunnar fyrir árið sem lauk í febrúar 2018. Hægt er að nálgast ársreikninginn á vef félagsins, www.hagar.is sem og á vef Kauphallar Íslands, www.nasdaqomxnordic.com.
Í upphafi árs tóku gildi tveir nýjir reikningsskilastöðlar: IFRS 9 Fjármálagerningar og IFRS 15 Tekjur af samningum við viðskiptavini.
IFRS 9 Fjármálagerningar tilgreinir hvernig flokkun, mat og afskráningu fjáreigna og fjárskulda skuli vera háttað auk þess að setja nýjar reglur um áhættuvarnarreikningsskil og setja fram nýtt líkan fyrir virðisrýrnun fjáreigna. Í reikningsskilum samstæðunnar eru helstu fjármálagerningar viðskiptakröfur, sjöður og bankainnstæður og skuldir allar færðar á afskrifuðu kostnaðarverði. Nýi staðallinn hefur ekki áhrif á meðferð þessara fjármálagerninga hjá samstæðunni.
IFRS 15 nær til sölu á vörum og þjónustu og byggir á þeirri grundvallarreglu að tekjur séu færðar þegar yfirráð yfir vöru eða þjónustu flyst til viðskiptavina. Hjá samstæðunni hafa tekjur verið færðar þegar viðskiptavinur hefur fengið vöru til umráða eða þegar þjónusta hefur verið innt af hendi. Nýr staðall breytir því ekki færslu tekna hjá samstæðunni.
Árshlutareikningurinn er gerður í íslenskum krónum, sem er starfrækslugjaldmiðill félagsins, og eru fjárhæðir birtar í milljónum króna.
4. Mat og ákvarðanir
Gerð samstæðuárshlutareiknings í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastöðla krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og gefi sér forsendur sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaðferða og birtar fjárhæðir eigna, skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að vera frábrugðnar þessu mati.
5. Starfsþáttayfirlit
Starfsemi samstæðunnar er nær eingöngu í smásölurekstri matvöru á Íslandi. Stjórnendur hafa metið smásöluverslun eftir mismunandi tegundum verslana og landsvæðum og líta svo á að hún byggist á sambærilegum efnahagslegum einkennum, vörum, viðskiptavinum og birgjum. Heildsölurekstur matvöru og smásölurekstur sérvöru er óverulegur og undir þeim tekju-, hagnaðar- og eignamörkum sem hafa ber til viðmiðunar við gerð starfsþáttayfirlits.
6. Viðskiptavild
Engar vísbendingar voru um virðisrýrnun viðskiptavildar þann 31. ágúst 2018 og vegna þess var virðisrýrnunarpróf ekki framkvæmt.
Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Haga hf. 31.08.2018
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar, frh.:
7. Afskriftir
| Afskriftir greinast pannig: | 2018 | 2017 |
|---|---|---|
| 1.3.-31.8. | 1.3-31.8. | |
| Afskrift rekstrarfjármuna | 472 | 429 |
| Afskriftir fjärfestingaeigna | 16 | 16 |
| Afskrift öefnislegra eigna | 17 | 11 |
| Afskriftir samtals | 505 | 456 |
8. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld
Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld greinast pannig:
| Vaxtatekjur af innstæðum og kröfum | 21 | 93 |
|---|---|---|
| Vaxtagjöld og verðbætur | ( 97) | ( 120) |
| Hrein fjármagnsgjöld | ( 76) | ( 27) |
9. Vörubirgðir
| Vörubirgðir greinast pannig: | 31.8.2018 | 28.2.2018 |
|---|---|---|
| Matvara | 3.516 | 3.583 |
| Sérvara | 667 | 709 |
| Vörur í flutningi | 386 | 282 |
| Vörubirgðir samtals | 4.569 | 4.574 |
| Niðurfærsla birgða í lok tímabils | 23 | 70 |
10. Bundið eigið fé
Samkvæmt lögum nr. 3/2006 ber félögum að færa hlutdeild í afkomu dóttur- eða hlutdeildarfélaga, sem færð er í rekstrarreikning og er umfram móttekinn arð eða pann arð sem ákveðið hefur verið að úthluta, á bundinn hlutdeildarreikning meðal eigir fjár.
11. Vaxtaberandi skuldir
Vaxtaberandi skuldir greinast pannig:
| Vegið meðaltal iaxta | Eftirstöðvar | Eftirstöðvar | ||
|---|---|---|---|---|
| 31.8.2018 | 28.2.2018 | 31.8.2018 | 28.2.2018 | |
| Skuldir í ISK, óverðtryggðar | 5,45% | 5,45% | 2.502 | 2.872 |
| Skuldir í ISK, verðtryggðar | 10,50% | 10,50% | 103 | 116 |
| Langtímaskuldir, þ.m.t. næsta árs afborgun | 2.605 | 2.988 | ||
| Næsta árs afborganir langtímaskulda | ( 773 ) | ( 771 ) | ||
| Langtímaskuldir samtals | 1.832 | 2.217 |
Afborganir langtímalána greinast pannig á næstu ár:
| Afborganir 2018/19 | 773 | 771 |
|---|---|---|
| Afborganir 2019/20 | 1.801 | 2.168 |
| Afborganir 2020/21 | 31 | 49 |
| Samtals | 2.605 | 2.988 |
Gangvirði fjáreigna og fjárskulda er jafnt bókfærðu virði þeirra.
Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Haga hf. 31.08.2018
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar, frh.:
| 12. Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir | 31.8.2018 | 28.2.2018 |
|---|---|---|
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir greinast pannig: | ||
| Viðskiptaskuldir | 5.718 | 5.232 |
| Aðrar skammtímaskuldir | 1.373 | 1.665 |
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir samtals | 7.091 | 6.897 |
13. Félög í samstæðu
Dótturfélög félagsins í lok tímabilsins voru fjögur. Dótturfélögin í samstæðuárshlutareikningnum eru eftirfarandi:
| Eignarhlutur | |||
|---|---|---|---|
| Staðsetning | 31.8.2018 | 28.2.2018 | |
| Hagar verslanir ehf. | Ísland | 100% | 100% |
| Bananar ehf. | Ísland | 100% | 100% |
| Ferskar kjötvörur ehf. | Ísland | 100% | 100% |
| Noron ehf. | Ísland | 100% | 100% |
Hlutir móðurfélagsins í ofangreindum dótturfélögum eru veðsettir vegna vaxtaberandi skulda.
14. Kennitölur
Helstu kennitölur samstæðunnar eru eftirfarandi:
| Efnahagsreikningur: | 31.8.2018 | 28.2.2018 |
|---|---|---|
| Veltufjárhlutfall - veltufjármunir/skammtímaskuldir | 1,06 | 1,06 |
| Eiginfjárhlutfall - eigið fé/heildareignir | 60,0% | 61,1% |
| Innra virði hlutafjár | 16,56 | 16,28 |
15. Kaup Haga hf. á Olíuverzlun Íslands hf. og fasteignafélaginu DVG ehf. sambykkt af Samkeppniseftirlitinu
Pann 26. apríl 2017 tilkynntu Hagar um undirritun kaupsamnings um kaup á öllu hlutafé í Olíuverzlun Íslands hf. og fasteignafélaginu DGV ehf. Kaupsamningarnir voru undirritaðir með fyrirvara um niðurstöður áreiðanleikakönnunar, sambykki hluthafafundar fyrir aukningu hlutafjár og sambykki Samkeppniseftirlitsins. Hluthafafundur sambykkti aukningu hlutafjár á aðalfundi Haga pann 7. júní 2017 og var fyrirvara um niðurstöður áreiðanleikakönnunar aflétt pann 13. júli 2017. Samkeppniseftirlitið sambykkti samrunann með skilyrðum pann 11. september 2018. Samruninn verður þó ekki framkvæmdur fyrr en skilyrði fyrir sölu eigna hafa verið uppfyllt og Samkeppniseftirlitið hefur metið hæfi kaupenda eignanna. Vonir standa til að hæfismati verði lokið í síðasta lagi um miðjan nóvember næstkomandi.
Í samkomulagi Haga, Olíuverzlunar Íslands og DGV fasteignafélags er heildarvirði Olís 16.082 millj. kr. og nettó vaxtaberandi skuldir 5.928 millj. kr. Kaupverð hlutafjár er því 10.154 millj. kr. Heildarvirði DGV er 1.040 millj. kr. en vaxtaberandi skuldir eru 640 millj. kr. Kaupverð hlutafjár DGV er því 400 millj. kr. og heildarkaupverð viðskiptanna 10.554 millj. kr. EBITDA Olís rekstrarárið 2017 var um 2.300 millj. kr. og nettó vaxtaberandi skuldir voru 5.036 millj. kr. í lok árs 2017. Kaupverð verður greitt annars vegar með afhendingu á 111 milljón hlutum í Högum og hins vegar með reiðufé. Hagar eiga eigin hluti að nafnverði kr. 69.168.349 og hefur stjórn félagsins sambykkt að hækka hlutafé um 41.831.651 krónur að nafnverði, sbr. 2. gr. í sambykktum félagsins. Við útreikning á kaupverði er miðað við gengi Haga 47,5. Sá hluti kaupverðsins sem greiddur er með reiðufé er fjármagnaður til næstu 12 mánaða með lánssamningi við Arion banka. Samningurinn er á sömu kjörum og með sambærilegum skilyrðum og langtímalán félagsins eru í dag.
Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Haga hf. 31.08.2018
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar, frh.:
- Kaup Haga hf . á Olíuverslun Íslands hf. og fasteignafélaginu DVG ehf. samþykkt af Samkeppniseftirlitinu, frh:
Í framhaldi af samrunanum verður unnið að því að endurskipuleggja fjármagnsskipan Haga með það að markmiði að hámarka nýtingu eigna og straumlínulaga rekstur. Ráðgjafar kaupanda gera ráð fyrir að samlegðaráhrif nemi um 600 millj. kr. á ársgrundvelli, eða um 3% af samanlögðum rekstarkostnaði hinna sameinuðu félaga. Hlutfall nettó vaxtaberandi skulda félaganna á móti EBITDA verður um 2,0. Ráðgjafar kaupanda í viðskiptunum voru Arctica Finance og Landslög.
Kostnaður tengdur kaupunum, sem þegar hefur fallið til og gjaldfærður er í rekstarreikningi, nemur 53 millj. kr. á tímabilinu og hefur í heild numið 139 millj. kr.
Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Haga hf. 31.08.2018
Fjárhæðir eru í milljónum króna