Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar Interim / Quarterly Report 2016

Jun 29, 2016

2196_rns_2016-06-29_4feefd21-0f69-43d3-abb7-58dd19add178.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

hagar

Fréttatilkynning:

Hagar hf. árslutauppgjør Q1 // mars 2016 – mai 2016

Árslutareikningur Haga hf. fyrir fyrsta ársfjórðung 2016/17 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 29. júní 2016. Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars 2016 til 31. mai 2016. Árslutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Endurskoðendur félagsins, KPMG ehf., hafa hvorki endurskoðað né kannað reikninginn.

Helstu upplýsingar

  • Hagnaður tímabilisins nam 948 millj. kr. eða 4,7% af veltu.
  • Vörusala tímabilisins nam 19.981 millj. kr.
  • Framlegð tímabilisins var 24,6%.
  • Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) nam 1.373 millj. kr.
  • Heildareignir samstæðunnar námu 31.637 millj. kr. í lok tímabilisins.
  • Handbært fé félagsins nam 4.733 millj. kr. í lok tímabilisins.
  • Eigið fé félagsins nam 17.316 millj. kr. í lok tímabilisins.
  • Eiginfjárhlutfall var 54,7% í lok tímabilisins.

Söluvöxtur félagsins var 7,0% á tímabilinu

Vörusala tímabilisins nam 19.981 milljónum króna, samanborið við 18.668 milljón króna árið áður. Söluvöxtur félagsins á tímabilinu er 7,0%. Hækkun 3 mánaða meðaltals vísitölu neysluverðs milli rekstrarára var 1,59% en hækkun vísitölunnar án húsnæðis var 0,22%. Framlegð félagsins var 4.912 milljónir króna, samanborið við 4.485 milljónir króna árið áður eða 24,6% framlegð samanborið við 24,0% á fyrra ári. Rekstrarkostnaður í heild hækkar um 275 milljónir króna eða 8,3% milli ára en kostnaðarhlutfallið hækkar úr 17,8% í 18,0%.

Afkoma fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA) nam 1.373 milljónum króna, samanborið við 1.212 milljónir króna árið áður. EBITDA framlegð var 6,9%, samanborið við 6,5% árið áður.

Hagnaður tímabilisins fyrir skatta nam 1.185 milljónum króna, samanborið við 1.014 milljónir króna árið áður. Hagnaður eftir skatta nam 948 milljónum króna á tímabilinu, sem jafngildir 4,7% af veltu en hagnaður eftir skatta á fyrra ári var 811 milljónir.

Heildareignir samstæðunnar í lok tímabilisins námu 31.637 milljónum króna. Fastafjármunir voru 16.732 milljónir króna og veltufjármunir 14.905 milljónir króna. Þar af eru birgðir 5.342 milljónir króna en birgðir voru 4.951 milljónir króna ári áður.

Eigið fé félagsins var 17.316 milljónir króna í lok tímabilisins og eiginfjárhlutfall 54,7%. Heildarskuldir samstæðunnar voru 14.321 milljónir króna, þar af voru langtímaskuldir 3.984 milljónir króna.


Handbært fé frá rekstri á tímabilinu nam 1.350 milljónum króna, samanborið við 2.203 milljónir króna á fyrra ári. Fjárfestingarhre yfingar tímabilsins voru 239 milljónir króna og fjármögnunarhre yfingar 188 milljónir króna. Handbært fé í lok tímabilsins var 4.733 milljónir króna, samanborið við 4.814 milljónir króna árið áður.

Staðan og framtíðarhorfur

Áhrif verkfalla og kostnaðarauki vegna kjarasamninga setti mark sitt á fyrsta ársfjórðung fyrra rekstrarárs og ber því samanburður milli ára þess merki.

Hagar munu loka verslun Debenhams í Smáralind eigi síðar en í lok maímánaðar 2017 þegar núverandi leigusamningur rennur út þar sem ekki náðust samningar við leigusala um endurnýjun. Verslun Útilífs í Smáralind verður flutt í austurenda Smáralindar og minnkar um tæplega 200 fermetra. Með lokun Debenhams á næsta ári, minnkun verslunar Hagkaups á haustmánuðum og minnkun Útilífs mun verslunarfermetrum Haga í Smáralind fækka um nálægt 9.500.

Fjárhagsdagatal 2016/17

  1. ársfjórðungur (1. mars – 31. ágúst): 27. október 2016
  2. ársfjórðungur (1. mars – 30. nóvember): 12. janúar 2017
  3. ársfjórðungur (1. mars – 29. feb): 15. mái 2017

Nánari upplýsingar veitir Finnur Árnason, forstjóri félagsins, í síma 530-5500.

2


Árshlutareikningur Haga hf. Q1 // mars 2016 – mai 2016

Lykiltölur í millj. kr. – samstæða

Rekstrarreikningur

2016/17 2015/16
1.3-31.5 1.3-31.5
Vörusala 19.981 18.668
KSV (15.069) (14.183)
Heildarframlegð 4.912 4.485
Aðrar tekjur 54 45
Laun og launatengd gjöld (1.940) (1.697)
Annar rekstrarkostnaður (1.653) (1.621)
EBITDA 1.373 1.212
Afskriftir (191) (171)
EBIT 1.182 1.041
Fjármunatekjur (-gjöld) 3 (27)
Hagnaður fyrir skatta 1.185 1.014
Tekjuskattur (237) (203)
Hagnaður tímabilsins 948 811

Efnahagsreikningur

31.05.2016 29.02.2016
Eignir
Fastafjármunir 16.732 16.684
Veltufjármunir 14.905 13.021
Eignir samtals 31.637 29.705
Eigið fé og skuldir
Hlutafé 1.172 1.172
Annað eigið fé 16.144 15.196
Eigið fé samtals 17.316 16.368
Langtímaskuldir 3.984 4.257
Vaxtaberandi skammtímaskuldir 765 763
Aðrar skammtímaskuldir 9.572 8.317
Skuldir samtals 14.321 13.337
Eigið fé og skuldir samtals 31.637 29.705

Sjóðstreymi

2016/17 2015/16
1.3-31.5 1.3-31.5
Handbært fé frá rekstri 1.350 2.203
Fjárfestingarhreyfingar (239) (550)
Fjármögnunarhreyfingar (188) (187)
Hækkun (lækkun) á handbæru fé 923 1.466
Handbært fé í byrjun tímabils 3.810 3.348
Handbært fé í lok tímabils 4.733 4.814

Breytingar á eigin fé

Hlutafé Yfirverðs-reikningur Óráðstafað eigið fé Samtals
Eigið fé 1. mars 2016 1.172 1.272 13.924 16.368
Hagnaður tímabilsins 948 948
Eigið fé 31. mai 2016 1.172 1.272 14.872 17.316