Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar Interim / Quarterly Report 2017

Oct 27, 2016

2196_rns_2016-10-27_4263988a-d04c-49a1-968f-d5fc65df331e.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

hagar

Fréttatilkynning:

Hagar hf. árslutauppgjør Q2 // mars 2016 – ágúst 2016

Árslutareikningur Haga hf. fyrir annan ársfjórðung 2016/17 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 27. október 2016. Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars 2016 til 31. ágúst 2016. Árslutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Reikningurinn hefur verið kannaður af endurskoðendum félagsins, KPMG ehf.

Helstu upplýsingar

  • Hagnaður tímabilsins nam 2.161 millj. kr. eða 5,3% af veltu.
  • Vörusala tímabilsins nam 40.712 millj. kr.
  • Framlegð tímabilsins var 24,6%.
  • Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) nam 3.180 millj. kr.
  • Heildareignir samstæðunnar námu 30.220 millj. kr. í lok tímabilsins.
  • Handbært fé félagsins nam 3.316 millj. kr. í lok tímabilsins.
  • Eigið fé félagsins nam 16.537 millj. kr. í lok tímabilsins.
  • Eiginfjárhlutfall var 54,7% í lok tímabilsins.

Söluvöxtur félagsins var 6,0% á tímabilinu

Vörusala tímabilsins nam 40.712 milljónum króna, samanborið við 38.390 milljónir króna árið áður. Söluvöxtur félagsins er því 6,0% á tímabilinu. Hækkun 6 mánaða meðaltals vísitölu neysluverðs milli rekstrarára var 1,41% en vísitalan án húsnæðis lækkaði um 0,15%. Framlegð félagsins var 10.035 milljónir króna, samanborið við 9.332 milljónir króna árið áður eða 24,6% framlegð samanborið við 24,3% á fyrra ári. Rekstrarkostnaður í heild hækkar um 413 milljónir króna eða 6,3% milli ára en kostnaðarhlutfallið stendur í stað í 17,1%.

Afkoma fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA) nam 3.180 milljónum króna, samanborið við 2.868 milljónir króna árið áður. EBITDA framlegð var 7,8%, samanborið við 7,5% árið áður.

Hagnaður tímabilsins fyrir skatta nam 2.701 milljónum króna, samanborið við 2.482 milljónir króna árið áður. Hagnaður eftir skatta nam 2.161 milljónum króna á tímabilinu, sem jafngildir 5,3% af veltu en hagnaður eftir skatta á fyrra ári var 1.986 milljónir.

Heildareignir samstæðunnar í lok tímabilsins námu 30.220 milljónum króna. Fastafjármunir voru 16.745 milljónir króna og veltufjármunir 13.475 milljónir króna. Þar af eru birgðir 4.885 milljónir króna en birgðir voru 4.924 milljónir króna ári áður.

Eigið fé félagsins var 16.537 milljónir króna í lok tímabilsins og eiginfjárhlutfall 54,7%. Heildarskuldir samstæðunnar voru 13.683 milljónir króna, þar af voru langtímaskuldir 3.843 milljón króna.


Handbært fé frá rekstri á tímabilinu nam 2.398 milljónum króna, samanborið við 2.815 milljónir króna á fyrra ári. Fjárfestingarhre yfingar tímabilsins voru 521 milljónir króna. Fjármögnunar-hreyfingar tímabilsins voru 2.371 milljónir króna og þar af voru 1.992 milljónir króna vegna arðgreiðslu í júní sl. Handbært fé í lok tímabilsins var 3.316 milljónir króna, samanborið við 2.478 milljónir króna árið áður.

Staðan og framtíðarhorfur

Fyrstu 6 mánuðir rekstrarársins hafa farið vel af stað og hefur hagnaður aukist milli ára en áætlanir gerðu ráð fyrir svipuðum hagnaði. Horfur næstu mánaða eru í takti við áætlanir, sem gera ráð fyrir sambærilegri niðurstöðu og á fyrra ári.

Í september sl. var tilkynnt að samningar hefðu náðst við kleinuhringjaframleiðandann Krispy Kreme en kaffihús verður opnað í Hagkaup í Smáralind þann 5. nóvember nk. Þann dag mun einnig ný og endurbætt verslun fyrirtækisins opna. Verslun Hagkaups í Smáralind hefur verið lokuð frá lok ágústmánaðar. Auk þess hefur matvöruhluta Hagkaups verið lokað í Holtagörðum, en þar er nú starfræktur Outletmarkaður.

Þann 5. nóvember mun Útilíf opna nýja og glæsilega verslun í austurenda Smáralindar. Nýja verslunin verður tæplega 1.200 fm. að stærð en með versluninni sameinast starfsemi tveggja verslana Útilífs, þ.e. þeirrar verslunar sem starfrækt hefur verið í Smáralind og verslunarinnar í Glæsibæ sem lokar í byrjun nóvember.

Í september sl. var tilkynnt um framkvæmd endurkaupaáætlunar félagsins en framkvæmdin er í höndum Arctica Finance hf. Endurkaupin munu í heild sinni að hámarki nema 20.000.000 hlutum, þó þannig að fjárhæðin verði aldrei hærri en 1.000 milljónir króna. Að lokinni viku 42 hefur félagið keypt samtals 12.212.104 hluti og er kaupverðið samtals 634 millj. kr.

Verslanir Bónus og Hagkaups hafa á árinu skilað tæplega 100 milljónum króna til viðskiptavina sinna í formi lægra vöruverðs í kjólfar dóms Hæstaréttar um ólögmæta gjaldtöku ríkissjóðs á innfluttum landbúnaðarvörum. Viðskiptavinir félagsins munu áfram njóta lægra verðs á vörum sem dómurinn nær til, þar til allri upphæðinni hefur verið skilað í formi lægra vöruverðs.

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn á skrifstofu Haga, 3. hæð í Smáralind í Kópavogi, fóstudaginn 28. október kl. 8:30 en þar mun Finnur Árnason forstjóri Haga kynna afkomu félagsins og svara spurningum ásamt stjórnendum félagsins.

Kynningarefni, ásamt upptöku af fundinum, verður aðgengilegt að honum loknum á heimasíðu Haga, www.hagar.is.

Fjárhagsdagatal 2016/17

  1. ársfjórðungur (1. mars – 30. nóvember): 12. janúar 2017
  2. ársfjórðungur (1. mars – 28. feb): 15. maí 2017

Nánari upplýsingar veitir Finnur Árnason, forstjóri félagsins, í síma 530-5500.


Árshlutareikningur Haga hf. Q2 // mars 2016 – ágúst 2016

Lykiltölur í millj. kr. – samstæða

Rekstrarreikningur

Q2 2016/17 Q2 2015/16 2016/17 2015/16
01.06-31.08 01.06-31.08 01.03-31.08 01.03-31.08
Vörusala 20.731 19.722 40.712 38.390
KSV (15.608) (14.875) (30.677) (29.058)
Heildarframlegð 5.123 4.847 10.035 9.332
Aðrar tekjur 55 42 109 87
Laun og launatengd gjöld (1.814) (1.667) (3.754) (3.364)
Annar rekstrarkostnaður (1.557) (1.566) (3.210) (3.187)
EBITDA 1.807 1.656 3.180 2.868
Afskriftir (271) (162) (462) (333)
EBIT 1.536 1.494 2.718 2.535
Hrein fjármagnsgjöld (20) (26) (17) (53)
Hagnaður fyrir skatta 1.516 1.468 2.701 2.482
Tekjuskattur (303) (293) (540) (496)
Hagnaður tímabilsins 1.213 1.175 2.161 1.986

Efnahagsreikningur

31.08.2016 29.02.2016
Eignir
Fastafjármunir 16.745 16.684
Veltufjármunir 13.475 13.021
Eignir samtals 30.220 29.705
Eigið fé og skuldir
Hlutafé 1.172 1.172
Annað eigið fé 15.365 15.196
Eigið fé samtals 16.537 16.368
Langtímaskuldir 3.843 4.257
Vaxtaberandi skammtímaskuldir 779 763
Aðrar skammtímaskuldir 9.061 8.317
Skuldir samtals 13.683 13.337
Eigið fé og skuldir samtals 30.220 29.705

Sjóðstreymi

Q2 2016/17 Q2 2015/16 2016/17 2015/16
01.06-31.08 01.06-31.08 01.03-31.08 01.03-31.08
Handbært fé frá rekstri 1.048 612 2.398 2.815
Fjárfestingarhreyfingar (282) (769) (521) (1.319)
Fjármögnunarhreyfingar (2.183) (2.179) (2.371) (2.366)
Hækkun (lækkun) á handbæru fé (1.417) (2.336) (494) (870)
Handbært fé í byrjun tímabils 4.733 4.814 3.810 3.348
Handbært fé í lok tímabils 3.316 2.478 3.316 2.478

Breytingar á eigin fé

Hlutafé Yfirverðs-reikningur Bundinn hlutdeildar-reikningur Óráðstafað eigið fé Samtals
Eigið fé 1. mars 2016 1.172 1.272 -- 13.924 16.368
Greiddur arður (1.992) (1.992)
Hagnaður tímabilsins 2.161 2.161
Fært á bundið eigið fé 2.166 (2.166) --
Eigið fé 31. ágúst 2016 1.172 1.272 2.166 11.927 16.537