Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar Interim / Quarterly Report 2016

Oct 28, 2015

2196_rns_2015-10-28_bcf59293-59b8-48a5-99f3-3dc76c5f72d6.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

hagar

Fréttatilkynning:

Hagar hf. árslutauppgjør Q2 // mars 2015 – ágúst 2015

Árslutareikningur Haga hf. fyrir annan ársfjórðung 2015/16 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 28. október 2015. Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars 2015 til 31. ágúst 2015. Árslutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Reikningurinn hefur verið kannaður af endurskoðendum félagsins, KPMG ehf.

Helstu upplýsingar

  • Hagnaður tímabilsins nam 1.986 millj. kr. eða 5,2% af veltu.
  • Vörusala tímabilsins nam 38.390 millj. kr.
  • Framlegð tímabilsins var 24,3%.
  • Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) nam 2.868 millj. kr.
  • Heildareignir samstæðunnar námu 27.974 millj. kr. í lok tímabilsins.
  • Handbært fé félagsins nam 2.478 millj. kr. í lok tímabilsins.
  • Eigið fé félagsins nam 14.758 millj. kr. í lok tímabilsins.
  • Eiginfjárhlutfall var 52,8% í lok tímabilsins.

Söluaukning félagsins var 0,1% - Afnám vörugjalda hefur áhrif á söluvöxt

Vörusala tímabilsins nam 38.390 milljónum króna, samanborið við 38.363 milljónir króna árið áður. Söluaukning félagsins er 0,1%. Hækkun 6 mánaða meðaltals vísitölu neysluverðs milli rekstrarára var 1,71% en hækkun vísitölunnar án húsnæðis var 0,23%. Vörugjöld sem voru afnumin um síðustu áramót voru um 1,7% af kostnaðarverði seldra vara á síðasta almanaksári. Framlegð félagsins var 9.332 milljónir króna, samanborið við 9.265 milljónir króna árið áður eða 24,3% framlegð samanborið við 24,2% á fyrra ári. Rekstrarkostnaður í heild hækkar um 272 milljónir króna eða 4,3% milli ára en kostnaðarhlutfallið hækkar úr 16,4% í 17,1%.

Afkoma fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA) nam 2.868 milljónum króna, samanborið við 3.043 milljónir króna árið áður. EBITDA framlegð var 7,5%, samanborið við 7,9% árið áður.

Hagnaður tímabilsins fyrir skatta nam 2.482 milljónum króna, samanborið við 2.617 milljónir króna árið áður. Hagnaður eftir skatta nam 1.986 milljónum króna á tímabilinu, sem jafngildir 5,2% af veltu en hagnaður eftir skatta á fyrra ári var 2.094 milljónir.

Heildareignir samstæðunnar í lok tímabilsins námu 27.974 milljónum króna. Fastafjármunir voru 15.514 milljónir króna og veltufjármunir 12.460 milljónir króna. Þar af eru birgðir 4.924 milljónir króna en birgðir voru 4.969 milljónir króna ári áður.

Eigið fé félagsins var 14.758 milljónir króna í lok tímabilsins og eiginfjárhlutfall 52,8%. Heildarskuldir samstæðunnar voru 13.216 milljónir króna, þar af voru langtímaskuldir 4.255 milljón króna.


Handbært fé frá rekstri á tímabilinu nam 2.815 milljónum króna, samanborið við 2.766 milljónir króna á fyrra ári. Fjárfestingarhreyfingar tímabilsins voru 1.319 milljónir króna, þar af 722 milljónir króna vegna fasteignaverkefna. Fjármögnunarhreyfingar tímabilsins voru 2.366 milljónir króna og þar af voru 1.992 milljónir króna vegna arðgreiðslu í júní sl. Handbært fé í lok tímabilsins var 2.478 milljónir króna, samanborið við 3.046 milljónir króna árið áður.

Staðan og framtíðarhorfur

Áhrif verkfalla og kostnaðarauki vegna kjarasamninga setti mark sitt á fyrsta ársfjórðung Haga. Annar ársfjórðungur var betri og jókst hagnaður um 1,7% milli ára og var það umfram áætlanir félagsins. Horfur næstu mánaða eru sambærilegar árangri fyrra árs og gera áætlanir félagsins ráð fyrir því.

Þann 15. ágúst sl. opnaði Bónus verslun sína í Skipholti en Hagar festu kaup á hluta fasteignarinnar við Skipholti 11-13 þar sem verslunin er til húsa. Þann 10. október sl. opnaði Bónus svo verslun sína við Túngötu í Keflavík en Hagar festu einnig kaup á þeirri fasteign í júní sl. Opnun verslunar Bónus í Vestmannaeyjum hefur dregist á langinn en vonir standa til að hún opni fyrir jól.

Framkvæmdir við byggingu nýs vöruhúss Banana er á áætlun, bæði tíma- og kostnaðarlega séð. Gert er ráð fyrir að Bananar flytji í hið nýja húsnæði strax í upphafi næsta árs.

Nú sést til lands í samningum við Smáralind um nýjan leigusamning fyrir Hagkaup. Gert er ráð fyrir að verslun Hagkaups minnki um c.a. 5.000 fermetra.

Tveir íþyngjandi leigusamningar eru að renna út. Annar um áramót og hinn um mitt ár 2016. Árlegur kostnaður vegna þessara samninga er um 100 milljónir króna.

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa:

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn á Nauthól, Nauthólsvegi 106 í Reykjavík, fimmtudaginn 29. október kl. 8:30, en þar mun Finnur Árnason, forstjóri Haga, kynna afkomu félagsins og svara spurningum ásamt stjórnendum félagsins.

Kynningarefni, ásamt upptöku af fundinum, verður aðgengilegt að honum loknum á heimasíðu Haga, www.hagar.is.

Fjárhagsdagatal 2015/16

  1. ársfjórðungur (1. mars – 30. nóvember): 12. janúar 2016
  2. ársfjórðungur (1. mars – 29. feb): 12. maí 2016

Nánari upplýsingar veitir Finnur Árnason, forstjóri félagsins, í síma 530-5500.


Árshlutareikningur Haga hf. Q2 // mars 2015 – ágúst 2015

Lykiltölur í millj. kr. – samstæða

Rekstrarreikningur

Q2 2015/16 Q2 2014/15 2015/16 2014/15
01.06-31.08 01.06-31.08 01.03-31.08 01.03-31.08
Vörusala 19.722 19.478 38.390 38.363
KSV (14.875) (14.787) (29.058) (29.098)
Heildarframlegð 4.847 4.691 9.332 9.265
Aðrar tekjur 42 30 87 57
Laun og launatengd gjöld (1.667) (1.568) (3.364) (3.214)
Annar rekstrarkostnaður (1.566) (1.515) (3.187) (3.065)
EBITDA 1.656 1.638 2.868 3.043
Afskriftir (162) (168) (333) (334)
EBIT 1.494 1.470 2.535 2.709
Hrein fjármagnsgjöld (26) (27) (53) (92)
Hagnaður fyrir skatta 1.468 1.443 2.482 2.617
Tekjuskattur (293) (288) (496) (523)
Hagnaður tímabilsins 1.175 1.155 1.986 2.094

Efnahagsreikningur

31.08.2015 28.02.2015
Eignir
Fastafjármunir 15.514 14.520
Veltufjármunir 12.460 13.089
Eignir samtals 27.974 27.609
Eigið fé og skuldir
Hlutafé 1.172 1.172
Annað eigið fé 13.586 13.592
Eigið fé samtals 14.758 14.764
Langtímaskuldir 4.255 4.791
Vaxtaberandi skammtímaskuldir 751 749
Aðrar skammtímaskuldir 8.210 7.305
Skuldir samtals 13.216 12.845
Eigið fé og skuldir samtals 27.974 27.609

Sjóðstreymi

Q2 2015/16 Q2 2014/15 2015/16 2014/15
01.06-31.08 01.06-31.08 01.03-31.08 01.03-31.08
Handbært fé frá rekstri 612 1.546 2.815 2.766
Fjárfestingarhreyfingar (769) (179) (1.319) (400)
Fjármögnunarhreyfingar (2.179) (1.824) (2.366) (3.463)
Hækkun (lækkun) á handbæru fé (2.336) (457) (870) (1.097)
Handbært fé í byrjun árs 4.814 3.503 3.348 4.143
Handbært fé í lok árs 2.478 3.046 2.478 3.046

Breytingar á eigin fé

Hlutafé Yfirverðs-reikningur Óráðstafað eigið fé Samtals
Eigið fé 1. mars 2015 1.172 1.272 12.320 14.764
Greiddur arður (1.992) (1.992)
Hagnaður ársins 1.986 1.986
Eigið fé 31. ágúst 2015 1.172 1.272 12.314 14.758