Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar Governance Information 2019

May 17, 2019

2196_rns_2019-05-16_0088a3c9-7deb-4681-9854-37a2573f5a5a.pdf

Governance Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

hagar

Samkeppnisstefna Haga

Með sátt Haga hf. við Samkeppniseftirlitið, dags. 11. september 2018, vegna samruna félagsins, Olíuverzlunar Íslands ehf. og DGV ehf., skuldbundu Hagar sig til að hlíta tilteknum skilyrðum í starfsemi sinni í samræmi við samkeppnislög. Meðal annars undirgengust Hagar þá skyldu að leggja fram samkeppnisstefnu til samþykktar á hluthafafundi félagsins. Í stefnunni skyldi kveðið á um háttsemi stjórnar og starfsmanna félagsins, skyldur félagsins samkvæmt sáttinni og samkeppnislögum og jafnframt skyldi hún fela í sér háternisreglur fyrir hluthafa Haga.

1. gr.

Það er ófrávíkjanleg stefna Haga að ástunda virka samkeppni á þeim mörkuðum sem félagið starfar á og haga starfsemi sinni í samræmi við reglur samkeppnislaga og þær sérstöku skyldur sem á félaginu hvíla. Samkvæmt sátt félagsins við Samkeppniseftirlitið, dags. 11. september 2018, hvíla nánar tilgreindar skyldur á félaginu, m.a. um að félagið auki aðgengi að heildsölu og birgðarými eldsneytis og tryggi eins og kostur er samkeppnislegt sjálfstæði Haga.

Einnig hvíla skyldur á félaginu m.a. vegna ákvarðana samkeppnisyfirvalda nr. 23/1995 og 21/2004 sem lutu að stofnun Olíudreifingar, sem og vegna ákvarðana nr. 38/2002, sem lýtur að starfsemi Banana ehf.. Þá geta eftir atvikum hvilt sérstakar skyldur á félaginu vegna markaðsráðandi stöðu samkvæmt samkeppnislögum.

Stjórn og starfsmenn Haga skulu gæta að þessum skyldum félagsins, almennum og sérstökum, við ákvarðanatöku og í háttsemi félagsins.

2. gr.

Hagar starfa með sjálfstæðum hætti á þeim mörkuðum sem félagið starfar á, á grundvelli þeirrar stefnu sem félagið markar sér á hverjum tíma. Stjórn og starfsmenn Haga skulu ekki eiga í samskiptum við starfsmenn keppinauta félagsins sem samhæfa viðskiptastefnu Haga við keppinauta þess.

3. gr.

Hluthafar Haga skulu ekki með háttsemi sinni hafa áhrif til þess að samhæfa starfsemi Haga og keppinauta félagsins. Í þeim tilvikum að hluthafar Haga eiga eignarhluti í félögum sem eiga í samkeppni við Haga skal þess gætt að viðkvæmar upplýsingar fari ekki á milli Haga og viðkomandi félags og að ekki verði samhæfing í stefnu og ákvarðanatöku Haga og viðkomandi félags.

Skulu hluthafar Haga gæta þess að velja einstaklinga í stjórn Haga sem ekki eru tengdir keppinautum Haga í gegnum atvinnu, stjórnarsetu eða eignarhald. Sama á við um maka eða sambúðarmaka framangreindra aðila í gegnum atvinnu, stjórnarsetu eða eignarhald. Aðilar sem sinna hagsmunagæslu eða ráðgjafastörfum fyrir keppinauta Haga skulu ekki sitja í stjórn félagsins.


hagar

4. gr.

Hagar skulu setja sér samkeppnisréttaráætlun sem nær til félagsins alls. Skulu stjórnarmenn, stjórnendur, lykilstarfsmenn og aðrir starfsmenn félagsins sem félagið telur þörf á, fá viðhlítandi fræðslu um áætlunina. Skal áætlunin uppfærð og kynnt með reglubundnum hætti.

5. gr.

Stjórn Haga skal gæta þess að ákvæði starfsreglna stjórnar séu í samræmi við ákvæði sáttar Haga við Samkeppniseftirlitið. Skal stjórnin undirrita viðeigandi yfirlýsingar um að hún hafi kynnt sér ákvæði sáttar Haga og Samkeppniseftirlitsins. Skal sérstaklega gætt að meðferð trúnaðaruppplýsinga og fjallað um meðferð þeirra í starfsreglum stjórnar.

6. gr.

Hagar skulu grípa til viðeigandi ráðstafana til þess að tryggja að dótturfélög Haga fylgi samkeppnisstefnu félagsins. Skal samkeppnisréttaráætlun Haga ná til dótturfélaganna og helstu stjórnendur þeirra undirrita yfirlýsingar um að þeir hafi kynnt sér efni sáttar Haga við Samkeppniseftirlitið.

Samþykkt í stjórn Haga hf.

  1. maí 2019